Skessuhorn - 15.04.2020, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 2020 7
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið hefur gengið frá útfærslu
100 milljóna króna fjárfestingar við
lagningu dreifikerfis raforku í jörðu
í samræmi við sérstakt tímabund-
ið fjárfestingarátak stjórnvalda.
Gengið hefur verið frá samkomu-
lagi við Rarik og Orkubú Vest-
fjarða um framkvæmdirnar. Ákveð-
ið hefur verið að fjármunirnir nýtist
þannig að 50 milljónir króna fara í
strenglagningarverkefni hjá Rarik
við Laxárdal og Fellsströnd í Dala-
byggð, strenglögn frá Seyðisfirði
til Mjóafjarðar, strenglögn frá Vík
að Kirkjubæjarklaustri og streng-
lögn frá Hvolsvelli að Þverá. Alls er
um 30 km að ræða af raflínu í jörð
og framkvæmdakostnaður um 150
m.kr. Mun framlagið dekka öll þau
verkefni. Hjá Orkubúi Vestfjarða
mun 50 milljónum króna verða var-
ið í að hefja það verkefni að koma
Rauðasandslínu, frá Sauðlauksdal
að Rauðasandi, í jörðu í nokkrum
áföngum.
mm
Skaginn 3X hefur ráðið Viktor-
íu Alfreðsdóttur í starf svæðissölu-
stjóra fyrir Rússland og Asíu. Vikt-
oría er fædd í Úkraínu en hefur ver-
ið búsett hér á Íslandi í um 15 ár.
Hún talar því reiprennandi úkra-
ínsku og íslensku ásamt ensku og
rússnesku. „Ráðning Viktoríu kem-
ur í kjölfar ákvörðunar Skagans 3X
að efla sölunet fyrirtækisins í Rúss-
landi og á Asíumarkaði. Hún mun
vinna náið með pétri Jakob péturs-
yni sölustjóra á fyrrnefndum mark-
aðssvæðum,“ segir í tilkynningu.
Viktoría er menntaður viðskipta-
fræðingur frá HR og er einnig með
mastersgráðu í vörumerkjastjórnun
frá polimoda í Flórens á Ítalíu.
Ör vöxtur í sölu
í Rússlandi og Asíu
Ör vöxtur hefur orðið í sölu Skag-
ans 3X á undanförnum misserum
til svæða í Rússlandi og Asíu. Má
þar nefna að fyrirtækið lauk nýver-
„Sveitarstjórn Dalabyggðar skorar
á sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra að tryggja dýralæknaþjónustu
í dreifbýli Íslands. Ljúka þarf vinnu
starfshóps um endurskoðun þjón-
ustusamninga sem fyrst og tryggja
sjálfstætt starfandi dýralæknum
í dreifbýli ásættanleg starfskjör.
Dýralæknar gegna mikilvægu hlut-
verki varðandi velferð dýra og eru
mikilvægur hlekkur í fæðuöryggi
Íslands,“ segir í ályktun sem sveit-
arstjórn samþykkti á fundi sínum 2.
apríl síðastliðinn.
Í Dalabyggð er landbúnaður
undirstaða byggðar í dreifbýli sveit-
arfélagsins og sauðburður á næsta
leiti. „Í þjóðfélaginu ríkir nú mikið
óvissuástand vegna heimsfaraldurs
af völdum COVID-19. Þjónusta
dýralækna í dreifbýli er grunnþjón-
usta sem þarf að tryggja án rösk-
unar og þeim upplýsingum þarf að
koma til bænda sem fyrst og eyða
allri óvissu um málið tafarlaust.“
mm
Vilja tryggja
dýralækna-
þjónustu
Skaginn 3X styrkir
sölunetið í
Rússlandi og Asíu
Viktoría Alfreðsdóttir sölustjóri
Skagans 3X í Rússlandi og Asíu.
ið byggingu og uppsetningu á upp-
sjávarverksmiðju í Rússlandi fyr-
ir JSC Gidrostroy á Shikotan sem
er ein Kúrileyja austast í Rússlandi.
Fyrirtækið er einnig að vinna að
smíði fiskvinnslu fyrir VI Lenin í
petropavlosk á Kamtchaka, ásamt
því að vinna að hönnun, smíði og
uppsetningu á fiskvinnslubúnaði
í fullkomið vinnsluskip fyrir sama
fyrirtæki.
mm
Flýta jarðstreng á
Fellsströnd og Laxárdal