Skessuhorn - 15.04.2020, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 20208
Engin mót yngri
landsliða
EVRÓPA: Stjórn körfuknatt-
leiksins, FIBA Europe, hélt
stjórnarfund í liðinni viku og
ræddi framhald mótahalds í
sumar. Stjórnin komst að þeirri
niðurstöðu að engin mót yngri
landsliða fari fram í sumar á
þeirra vegum. Það þýðir að
Evrópukeppnir U16, U18 og
U20 liða fara ekki fram árið
2020 í öllum deildum. Alls eru
um 16 mót á þeirra vegum að
ræða. Að auki verður ekkert af
Norðurlandamótinu í Finn-
landi hjá U16 og U18 liðun-
um í lok júní og nú þegar hefur
verið hætt við verkefni U15 lið-
anna í Danmörku. „Mikilvægast
er að setja áfram heilsuna í for-
gang og reyna allt til að stoppa
útbreiðslu veirunnar sem nú
herjar á heiminn. Staðan er víða
slæm og ennþá margt óljóst
hvenær körfuknattleiksæfing-
ar geta hafist að nýju og einn-
ig hver staðan verður þá í Evr-
ópu allri til ferðalaga og dval-
ar erlendis. Því tók FIBA þessa
ákvörðun.“ Stjórn og starfsfólk
KKÍ mun skoða á næstu miss-
erum áfram hvort eitthvað ann-
að afreksstarf en keppni á mót-
um erlendis fari fram þegar það
verður leyfilegt og gerlegt síðar
í sumar. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
4.-10. apríl
Tölur (í kílóum) frá Fiski-
stofu
Akranes: 2 bátar.
Heildarlöndun: 15.458 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF: 14.742
kg í þremur róðrum.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 6.081 kg.
Mestur afli: Særif SH: 6.081 kg
í einum róðri.
Grundarfjörður: 1 bátur.
Heildarlöndun: 61.683 kg.
Mestur afli: Runólfur SH:
61.683 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 11 bátar.
Heildarlöndun: 146.370 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 59.244
kg í tveimur róðrum.
Rif: 12 bátar.
Heildarlöndun: 272.923 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
107.140 kg í þremur löndun-
um.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 3.195 kg.
Mestur afli: Fjóla GK: 2.750
kg í tveimur róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Runólfur SH - GRU: 61.683
kg. 6. apríl.
2. Tjaldur SH - RIF: 40.103
kg. 6. apríl.
3. Magnús SH - RIF: 39.177
kg. 8. apríl.
4. Bárður SH - ÓLA: 37.875
kg. 8. apríl.
5. Magnús SH - RIF: 34.576
kg. 7. apríl.
-kgk
Afskipti af
heimilisofbeldi
VESTURLAND: Vesturland
var ekki undanþegið heimilis-
ofbeldi og heimilisófriði, frekar
en aðrir landshlutar. Mál tengd
heimilisofbeldi hafa komið inn
á borð lögreglunnar hér í lands-
hlutanum undanfarið eins og
annars staðar á landinu. Hafa
þau farið í hefðbundinn farveg,
að sögn lögreglu. -kgk
Göt á sjókví í
Arnarfirði
VESTFIRÐIR: Matvælastofn-
un barst tilkynning frá Arnarlaxi
fimmtudaginn 2. apríl síðastlið-
inn um þrjú göt á nótarpoka einn-
ar sjókvíar Arnarlax við Hrings-
dal í Arnarfirði. Götin uppgötv-
uðust seinni partinn 2. apríl þeg-
ar verið var að sækja fisk til slátr-
unar. Nótarpoki var hífður upp og
tóku starfsmenn eftir götunum og
gerðu við þau. „Samkvæmt upp-
lýsingum Arnarlax voru rifurnar á
1,5 m dýpi og var lengd þeirra 20
cm, 50 cm og 100 cm lóðrétt nið-
ur nótarpokann. Í kvínni voru um
88.500 laxar með meðalþyngd 7,9
kg. Neðansjávareftirlit var áður
framkvæmt 19. mars sl. og var
nótarpoki þá heill. Matvælastofn-
un kallaði eftir gögnum og upp-
lýsingum er varða viðbrögð fyrir-
tækisins og er atvikið til meðferðar
hjá stofnuninni. Arnarlax lagði út
net í samráði við Fiskistofu til að
kanna hvort strok hafi átt sér stað.
Netanna var vitjað helgina á eftir,
enginn lax veiddist og voru netin
tekin upp 7. apríl,“ segir í tilkynn-
ingu frá Matvælastofnun. -mm
Um líflamba-
flutning
LANDIÐ: Opnað hefur ver-
ið fyrir umsóknir til líflamba-
flutnings í Þjónustugátt Mat-
vælastofnunar. Umsóknarfrest-
ur rennur út 1. júlí samkvæmt
reglugerð um flutning líflamba
milli landssvæða. Til þess að
hefta útbreiðslu smitsjúkdóma
í búfénaði og stuðla að útrým-
ingu sjúkdóma er óheimilt að
flytja sauðfé, geitur og nautgripi
yfir varnarlínur nema með leyfi
frá Matvælastofnun. Þá er einnig
bannað að flytja sauðfé og geit-
ur milli hjarða á svæðum þar sem
riða er landlæg og hefur greinst
undanfarin 20 ár. Sjá nánar á vef
MAST. -mm
111% aukning
í innlendri net-
verslun
LANDIÐ: Greiðslukorta-
velta Íslendinga dróst saman um
12,5% í mars síðastliðnum sam-
anborið við mars í fyrra. Í sam-
antekt Rannsóknaseturs verslun-
arinnar kemur fram að kortavelta
í verslun er í heildina nær óbreytt
frá sama mánuði í fyrra en þjón-
ustuflokkarnir taka höggið. Net-
verslun ríflega tvöfaldast á milli
ára. Heildarvelta greiðslukorta
Íslendinga hérlendis í mars nam
56,4 milljörðum kr. í mars. Þeg-
ar einungis er litið til kortaveltu
í verslun hefur orðið lítil breyt-
ing á milli ára að nafnvirði, eða
um -0,72%. Töluverður munur
er þó á milli flokka verslunar þar
sem velta eykst í sumum flokkum
en dregst saman í örðum. Net-
verslun jókst um 111% á milli
ára og var í stöðugum vexti allan
mánuðinn. -mm
Stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigð-
isstofnunar Vesturlands hefur tek-
ið ákvörðun um kaup á átta nýj-
um sjúkrarúmum, dýnum og gálg-
um, að fjárhæð 5,2 milljónir króna.
Rúmin koma til viðbótar við þau 17
sjúkrarúm sem þegar var búið að
kaupa og afhenda HVE. Söluaðili
átti fjögur rúm á lager og koma þau
til afhendingar strax. Eitt þetta fer á
Hólmavík, eitt í Stykkishólm og tvö
á Akranes. Þau fjögur rúm sem eru
væntanleg í sumar fara svo á sjúkra-
húsið á Akranesi. „Við viljum þakka
Soroptimistaklúbbi Akraness, Bif-
reiðastöð ÞÞÞ á Akranesi og Kven-
félaginu 19. júní á Hvanneyri, en
þessi félög og fyrirtæki lögðu til
myndarlegan fjárstuðning til að
gera kaupin möguleg,“ segir í til-
kynningu.
Hollvinasamtökin vilja minna á
reikningsnúmer samtakanna: 0326-
26-005100 og kennitalan: 510214-
0560. mm
Starfsmannafélag Slökkviliðs Snæ-
fellsbæjar er þakklátt fyrir það frá-
bæra og vandasama starf sem á sér
stað hjá heilbrigðisstarfsmönn-
um landsins þessa dagana. Birgir
Tryggvason slökkviliðsmaður segir
í samtali við Skessuhorn að slökkvi-
liðsmennirnir hafi heyrt af söfnun-
inni til styrktar gjörgæslunni. „Við
erum að sjálfsögðu með í söfnun-
inni enda um frábært framtak að
ræða - og að sjálfsögðu „Hhlýðum
við Víði,“ tökum þátt í söfnun með
kaup á bolum“. Að auki ætlar starfs-
mannafélgið að styrkja Von styrkt-
arfélag gjörgæsludeildar Landsspít-
alans um hundrað þúsund krónur,
en þar er fólki sinnt sem veikt er af
Covid-19 sjúkdómnum.
Slökkviliðsmenn stilltu sér upp
til myndatöku við þetta tækifæri
og var að sjálfsögðu passað upp á
að hafa tvo metrana á milli manna.
Slökkvilið Snæfellsbæjar skorar á
önnur slökkvilið á Íslandi að taka
þátt í þessari söfnun.
af
Á þessu ári hafa orðið þrjú atvik þar
sem tilkynnt hefur verið um göt
á laxeldiskvíum í sjó hér við land.
Rekstraraðilar þessara sjókvía halda
því fram að í öllum tilfellum hafi
enginn fiskur sloppið. Landssam-
band veiðifélaga hefur sent frá sér
ályktun þar sem meðal annars seg-
ir að þessi óhöpp hafi átt sér stað
þrátt fyrir fögur fyrirheit um ann-
að. „Það er vitað að þessar sjókví-
ar halda ekki fiski. Ef fyrirætlanir
stjórnvalda um að stórauka laxeldi
hér á landi og hleypa því inn í Ísa-
fjarðardjúp mun það hafa hörmu-
legar afleiðingar í för með sér,“ seg-
ir í ályktuninni.
Þá er á það bent í ályktun LV að
fyrstu tvo mánuði þessa árs drápust
um 800 tonn af norskum eldislaxi
í sjókvíum í Arnarfirði, samkvæmt
upplýsingum frá Umhverfisstofnun.
„Ekki liggur fyrir hversu mikið sú
tala hækkaði í mars en fyrir tveim-
ur árum drápust um 1.500 tonn í
sjókvíum fyrir vestan fyrri hluta
ársins, samkvæmt upplýsingum frá
rekstraraðilanum sjálfum, en það
þýðir að um 300 þúsund eldislaxar
hafa drepist. Vegna þrengsla í kví-
unum var veruleg hætta á að mikið
magn laxa slyppi. Það er þekkt að
sjókvíar hreinlega sökkvi eða netin
rifni þegar svona mikill dauði verð-
ur. Á sama tíma sluppu yfir 200.000
laxar í Færeyju við svipaðar aðstæð-
ur. Í Arnarfirði mátti ekki miklu
muna að stórslys yrði.“
Þá segir í ályktun LV að þegar lit-
ið er til allra þessara atvika og ann-
arra sem hafa átt sér stað á undan-
förnum árum, sé sorglegt að nýtt
áhættumat fyrir erfðablöndun eld-
islaxa við villta laxastofna hafi verið
knúið fram af sjávarútvegsráðherra
og Alþingi. „Áhættumat sem byggt
er á ónógri reynslu af rekstri þess-
ara fyrirtækja og afleiðingum fyrir
náttúruna. Það er líka dapurlegt að
nú eigi að opna fyrir eldi á frjóum
norskum eldislaxi í Ísafjarðardjúpi
með þeirri ógn sem það hefur fyrir
árnar þar og aðrar ár, t.d. í Húna-
vatnssýslunum þar sem margar af
helstu laxveiðiám landsins eru.“
mm
Sjúkrarúm sömu gerðar og þau átta sem nú verða keypt. Ljósm. úr safni/ kgk.
Hollvinasamtök HVE
kaupa átta ný rúm
Skora á aðra slökkviliðsmenn
að safna fyrir gjörgæsluna
Veiðifélög benda á fjölda
slysasleppinga í fiskeldi