Skessuhorn - 15.04.2020, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 2020 9
FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF
Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað
miðsvæðis á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann
Dalbraut 1, Akranesi. Afhending í s.l. lok apríl 2020.
Íbúðirnar seljast fullbúnar án gólfefna nema forstofa,
þvottahús og baðherbergi flísalagt. Öllum íbúðum fylgir
kæliskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu.
2ja-3ja herbergja íbúðirnar eru frá 93 fm til 96 fm,
möguleiki að bæta við öðru svefnherbergi. Sérmerkt
bílastæði. Sérgeymsla í kjallara.
Verð 39,0 millj. (ein íbúð eftir).
3ja herbergja íbúðirnar 105 fm til 107 fm. Íbúðunum
fylgir stæði í bílakjallara og sérgeymslu í kjallara.
Verð frá 46,6 millj. til 50,9 millj.
4ra herbergja íbúðirnar eru frá 126 fm til 128 fm.
Íbúðunum fylgir stæði í bílskýli og sérgeymslu í kjallara.
Verð frá 56,4 millj. til 59,4 millj.
Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandnum
HTH.
Innihurðir og flísar frá Parka.
Heimilistæki frá Ormsson.
Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast
beðið um að hafa samband í síma 898-9396 eða á
hakon@valfell.is og panta tíma til skoðunnar
Þingvangur ehf. byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á
góðum stað miðsvæðis á Akranesi. Staðsett við
verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi.
Afhending í s.l. lok apríl.
Stillholt 21 – Akranesi – 24 íbúðir af 37 seldar
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is
Þóra Grímsdóttir sagnakona á
Akranesi hefur lengi haft í huga að
taka upp sögurnar sem hún kann. Er
hún þá helst að hugsa fyrir barna-
börnin. Nú þegar margir eru fast-
ir heima hjá sér ákvað hún að taka
upp og deila nokkrum sögum á Fa-
cebook og er óhætt að segja að þær
hafi slegið í gegn. „Fyrir þarsíðustu
jól var ég beðin að segja sögur inn
á disk sem Hljóðbók.is gaf út. Það
var alltaf ætlunin að setja sjálf fleiri
sögur á disk fyrir barnabörnin,“
segir Þóra þegar Skessuhorn heyrði
í henni í síðustu viku. „Ég kann svo
ótrúlega margar sögur og það væri
hræðilegt að þær færu bara allar
með mér í gröfina,“ segir hún og
hlær en bætir svo við að sögurnar
komi víðsvegar að úr heiminum.
Passa að drekkja ekki
öllum í sögum
Þóra sagði sögur í Grundaskóla í
fjölmörg ár og þegar hún hætti að
vinna þar fór hún í smá lægð með
sagnalistina. „Ég hafði mig ekki í
að byrja aftur og hvað þá að taka
upp sögurnar. En svo hitti ég gaml-
an kennara úr Grundaskóla sem
spurði hvort ég ætlaði ekki að fara
að deila sögunum mínum á netinu
og krakkar sem höfðu hlustað á mig
segja sögur stoppuðu mig oft úti í
búð og sögðu mér hvað þau myndu
vel eftir sögunum mínum og svona.
Þetta var hvatning fyrir mig svo
ég peppaðist upp og ákvað að nú
væri tíminn til að gera þetta,“ segir
Þóra. „Það eina sem ég þarf svo að
passa núna er að halda í við mig svo
ég drekki ekki öllum í sögum,“ bæt-
ir hún hlæjandi við. Hún ætlar að
safna sögunum saman og deila þeim
á netinu; á Youtube, Facebook, Fé-
lag sagnaþula eða annarsstaðar þar
sem hentugt er að deila myndbönd-
um. „Ég er alsæl með viðbrögðin
og vil endilega deila þessu með sem
flestum. Að segja sögur er bara mín
ástríða,“ segir Þóra.
„Ef viðkomandi trúir að
hún sé sönn þá er hún
það bara fyrir honum“
Hvenær kviknaði áhugi Þóru á að
segja sögur? „Ég hef haft áhuga á
sögum eins lengi og ég man eft-
ir mér, bæði að hlusta á sögur og
segja þær. En ég hef haft þann eig-
inleika að þegar ég segi sögur fer
ég inn í þær og verð bara partur af
sögunni. Þetta er dásamlegt og gef-
ur mér ótrúlega mikið og ég finn
að þetta gefur líka öðrum, sem ylj-
ar mér,“ svarar Þóra. Hún segir
það samt sérstakt að sitja núna fyrir
framan myndavél og segja sögur án
þess að finna viðbrögð áheyrenda.
„Ég er vön að hafa fólk fyrir fram-
an mig þegar ég segi sögurnar og
það er rosalega gott að ná tengingu
við þann sem hlustar svo þetta er
spes upplifun að gera þetta svona.
En viðbrögðin sem ég hef fengið í
gegnum netið eru dásamleg og það
hvetur mig til að halda áfram,“ seg-
ir Þóra ánægð. Hún segist leggja
áherslu á að segja stuttar sögur sem
haldi vel þeim sem hlustar, en hvar
lærir hún allar þessar sögur? „Ég
hef farið á ótal námskeið á Norð-
urlöndum og hér heima og líka í
Skotlandi og ég varð bara „húkkt“
á þessu. Á þessum námskeiðum eru
kvöldvökur og þá er gjarnan slegist
um að fá að segja sögur og þá hef ég
alltaf punktað niður hjá mér helstu
atriðin og fínskrifa svo sögurnar
uppi á herbergi. Svona hef ég safn-
að sögum víðs vegar að úr heimin-
um og á margar troðfullar möppur
af sögum,“ segir hún og bætir við
að sögurnar þurfi ekki alltaf að vera
eins í hvert sinn sem þær eru sagð-
ar. „Að vera góður að segja sögur
krefst mikillar æfingar. Ég hef oft
líkt því að segja sögu við að fara í
flug. Þegar flugvélin tekur af stað
og lendir þarf að passa sig vel. Eins
er það þegar maður segir sögur þá
þarf maður að vera öruggur á byrj-
uninni og endinum en flýgur rólega
og frjáls þar á milli,“ útskýrir Þóra.
Spurð hvort hún segi skáldsögur
eða sannar sögur hlær Þóra og segir
það fara eftir áheyrandanum. „Það
skemmtilega við að segja sögur er
að þær mega breytast og það er í
góðu lagi að bæta inn í og breyta,
eftir því hvernig liggur á og hvern-
ig áheyrendurnir eru. Svo allar
mínar sögur eru sannar og ríflega
það,“ segir hún og hlær. „En þeg-
ar ég er spurð hvort sögurnar séu
sannar svara ég því að ef viðkom-
andi trúir að hún sé sönn þá sé hún
það bara fyrir honum,“ segir Þóra
að endingu.
arg
Sögurnar eru sannar og ríflega það
Þóra sagnakona á Akranesi.