Skessuhorn - 15.04.2020, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 2020 11
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Íslenskukennari
Menntaskóli Borgarfjarðar óskar eftir að ráða íslenskukennara í 100% starf.
Menntaskóli Borgarfjarðar hefur frá upphafi verið framsækin menntastofnun og verið
óhrædd að taka upp nýjar leiðir við kennsluhætti. Einkunnarorð skólans eru „Sjálfstæði,
færni og framfarir“.
Kennari í íslensku skal uppfylla kröfur um menntun og hæfni kennara sem kveðið er á
um í lögum nr. 95/2019 og hafa leyfisbréf sem veitir rétt til að nota starfsheitið kennari.
Við leitum að einstaklingi sem hefur samstarfshæfileika og einlægan áhuga á að vinna
með ungu fólki. Mikil tölvufærni er nauðsynleg ásamt faglegum metnaði og áhuga á að
skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur.
Umsóknarfrestur er til 27. apríl.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu bragi@menntaborg.is
eða í síma 844-4259.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknir berist á tölvupóstfangið bragi@menntaborg.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Gréta Björgvinsdóttir
útfararstjóri s: 770 0188
Guðný Bjarnadóttir
útfararstjóri s: 869 7522
www.borgutfor.is Borg útfararþjónusta borg@borgutfor.is
Borg útfararþjónusta veitir alhliða þjónustu
við syrgjendur þegar að útför kemur, óháð
trúarbrögðum og lífsskoðunum.
Á stjórnarfundi Orkuveitu Reykja-
víkur (OR) síðastliðinn miðviku-
dag voru samþykktar aðgerðir til
að bregðast við þeim afleiðingum
sem Covid-19 faraldurinn hefur í
för með sér fyrir atvinnulífið. „Með
aðgerðunum vill OR sýna sam-
félagslega ábyrgð í verki og auka
fjárfestingar í verkefnum sem hafa
mikil áhrif í samfélaginu með það
að leiðarljósi að viðhalda atvinnu-
stiginu í landinu. Samþykkt var að
auka fjárfestingar samstæðu OR
um samtals tvo milljarða króna á
árinu 2020. Veitur, eitt dótturfyr-
irtækja OR, hafa undanfarið skil-
greint verkefni sem gætu komið til
greina en gert er ráð fyrir því að
framkvæmdir við veitukerfin verði
uppistaðan í þeim fjárfestingaverk-
efnum sem ráðist verður í. Lagt er
upp með að verkefnin verði manna-
flsfrek og að þau verði sem víðast á
starfssvæði Veitna,“ segir í tilkynn-
ingu frá fyrirtækinu. Jafnframt var
á stjórnarfundinum samþykkt að
stefna að því að auka fjárfestingar
á árinu 2021 um allt að fjóra millj-
arða króna en endanleg ákvörðun
um aukningu fjárfestinga á næsta
ári kemur til afgreiðslu við gerð
fjárhagsspár í haust.
Stjórn OR samþykkti sömuleið-
is að leggja til við aðalfund OR að
hækka arðgreiðslu til eigenda, sem
gert hafði verið ráð fyrir í fjár-
hagsspá, úr 1.750 milljónum króna í
3.000 milljónir króna sem jafngildir
um 1,6% af eigið fé í árslok 2019.
„Fyrirséð er að auknar fjárfestingar,
arðgreiðslur og verri efnahagshorf-
ur almennt muni auka fjármögn-
unarþörf OR. Því var samþykkt
að auka heimild til fjármögnunar
í formi skuldabréfaútgáfu, víxlaút-
gáfu eða bankalána úr 13 milljörð-
um króna, samkvæmt áður birtri
fjárhagsspá, í allt að 30 milljarða.
Hluti aukinnar fjármögnunarheim-
ildar er ætlaður til endurfjármögn-
unar á lánum sem eigendur OR
veittu fyrirtækinu á árunum 2011
og 2013 sem hluta af aðgerðaáætl-
un OR og eigenda um viðbrögð við
fjárhagsvanda OR, sem gekk undir
nafninu planið.“ mm
Farfuglar hafa hver af öðrum mætt
til landsins að undanförnu. Áhuga-
fólk um fugla fylgist grannt með
komu fuglanna og heldur hvert öðru
upplýstum um fuglana. Sumir láta
okkur á Skessuhorni vita. mm
Körfuknattleiksdeild Snæfells tók að
sér garðvinnu á lóð Dvalarheimilis
aldraðra í Stykkishólmi á mánudag-
inn. Um er að ræða samstarfsverk-
efni Stykkishólmsbæjar, Snæfells
og KpMG. Gunnlaugur Smárason,
þjálfari mfl. kvenna, er einn þeirra
sem tók þátt í vinnunni á mánudag-
inn ásamt leikmönnum meistara-
flokka Snæfells og stjórnarmönn-
um körfuknattleiksdeildar. Að sögn
hans er um að ræða styrk KpMG til
samfélagsins, en til stendur að taka
stéttina fyrir utan dvalarheimilið í
gegn, leggja þar hitalagnir og gera
fínt í kringum heimilið. Var vinna
körfuknattleiksfólksins á mánudag-
inn liður í því verkefni. Íþróttafólk-
ið annaðist vinnuna við að rífa upp
hellurnar og fær körfuknattleiks-
deildin styrk í staðinn fyrir unnin
handtök. Íbúar fylgdust svo grannt
með framkvæmdafólkinu.
kgk/ Ljósm. sá.
Margar hendur
vinna létt verk.
Rifu upp hellur við dvalarheimilið
Körfuknattleiksfólkið fyrir framan dvalarheimilið í Stykkishólmi.
Þessi ungi æðarkóngur, lengst til hægri á mynd, var mættur í fjöruna skammt
frá Grundarfirði um liðna helgi. Með tignarlegri fuglum og mjög sjaldséðir.
Æðarkóngur hefur haft vetursetu við strendur landsins á undanförnum árum og
því er ekki endilega um farfugl að ræða. Ljósm. Sverrir Karlsson.
Árlegir vorboðar
„Vorboðinn okkar Laufeyjar hér í Arnarholti Stafholtstungum er þegar brand-
öndin mætir. Hún sást fyrst núna í dag, sunnudag,“ sagði Gísli Karel Halldórsson
sem sendi Skessuhorni meðfylgjandi mynd. Brandönd hefur mætt á hverju vori á
túnið til þeirra hjóna í Arnarholt undanfarin sjö ár.
Auknar lántökur OR
sem greiðir engu að
síður út arð til eigenda