Skessuhorn - 15.04.2020, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 202012
Akraneskaupstaður hefur kynnt 14
aðgerðir til að mæta áhrifum Co-
vid-19 faraldursins. Heildarum-
svif þeirra nema 3,38 milljörðum
króna. Aðgerðunum er skipt upp
í þrjá þætti; varnir til að aflétta
óvissu innan samfélagsins, vernd til
að vernda grunnstoðir samfélagsins
og viðspyrnu til að stuðla að fjölg-
un atvinnutækifæra. Alger samstaða
ríkir um aðgerðirnar í bæjarstjórn,
að því er fram kemur á vef Akranes-
kaupstaðar.
Aðgerðirnar eru eftirfarandi:
1. Frestur verði á greiðslu fast-
eignagjalda íbúða- og atvinnuhús-
næðis
2. Frestur á innheimtu gatnagerð-
argjalda og tengdum þjónustu-
gjöldum
3. Virkt samtal milli bæjarstjórnar,
íbúa og fyrirtækja
4. Gjöld leikskóla-, grunnskóla og
frístundar í Þorpinu verða lækkuð í
samræmi við notkun á þjónustu
5. Gildistími þrek- og sundkorta
framlengdur
6. Sveigjanleiki aukinn í innheimtu
og gjaldfrestum
7. Efling velferðarþjónustu
8. Stuðningur til heilsueflingar og
til íþróttastarfs, menningar og lista
9. Markaðsátak Akraness
10. Aukin fjárveiting til fram-
kvæmda og til viðhaldsverkefna
11. Störf tryggð með uppbyggingu
húsnæðis til leigu fyrir aldraða, fatl-
aða og á almennum markaði
12. Fjölgun atvinnutækifæra
13. Nýsköpun og tækni í innleið-
ingu rafrænnar þjónustu
14. Þátttaka í markaðsátaki stjórn-
valda og Íslandsstofu til „Eflingar
ferðaþjónustunnar 2020“
Á vef Akraneskaupstaðar kemur
fram að bæjarfélagið sé vel í stakk
búið að takast á við efnahagslegt áfall.
„Gengið hefur vel að greiða niður
langtímaskuldir og er skuldastaða
Akraneskaupstaðar lág. Má þar benda á
að skuldaviðmið er nú um 27% sem má
vera að hámarki 150%. Akraneskaup-
staður á nú um 2 milljarða af handbæru
fé og er í miklum fjárfestingum,“ segir
á vef bæjarins. kgk
Aukin fjárveiting til viðhalds og
framkvæmda er ein þeirra aðgerða
sem Akraneskaupstaður ætlar að
ráðast í til að mæta áhrifum Co-
vid-19 á efnahagslíf bæjarfélagsins.
Á árinu hafa þegar verið áformaðar
fjárfestingar sem nema rúmum 1,5
milljörðum en til að tryggja verk-
tökum og starfsfólki atvinnu stend-
ur til að gefa enn frekar í með flýti-
framkvæmdum. Ætlunin er að ráð-
ast í aukið viðhald á stofnunum
bæjarins. Þess utan stendur til að
flýta stærri fjárfestingarverkefnum,
svo sem uppbyggingu íþróttasvæð-
isins við Jaðarsbakka, gatnafram-
kvæmdum, framkvæmdum við úti-
vistarsvæði og fleira. Til stendur
að kynna nánari útfærslu flýtifram-
kvæmdanna í lok mánaðarins.
Áformuð er uppbygging húsnæðis
á þessu ári og því næsta, með það að
markmiði að tryggja verkefni fyrir
byggingaverktaka í bæjarfélaginu.
Samtals verður þremur milljörð-
um ráðstafað til aukinnar uppbygg-
ingar leiguhúsnæðis. Stofnframlag
Akraneskaupstaðar til þeirrar upp-
byggingar er 250 milljónir króna.
Um er að ræða íbúðir fyrir almenn-
an leigumarkað og óhagnaðardrifið
leiguhúsnæði fyrir aldraða, húsnæði
fyrir fatlaða og aðra skjólstæðinga
Akraneskaupstaðar, sem og hús-
næði fyrir millitekjufólk og tekju-
lága. „Þarna er fyrst og fremst um
að ræða verkefni sem komu fram í
húsnæðisáætluninni. En núna erum
við að vinna að baki brotnu að þess-
ar hugmyndir raungerist. Það hefði
getað gerst að þessar framkvæmd-
ir stöðvuðust, í ljósi ástandsins og
stöðunnar í þjóðfélaginu. Hins veg-
ar er ríkur vilji hjá Akraneskaupstað
til að sjá til þess að af þeim verði,“
segir Sævar, en kveðst þó ekki geta
útlistað framkvæmdirnar nánar að
svo stöddu. „Á næstu vikum von-
ast ég til að við getum greint frá því
hverjir samstarfsaðilar okkar verða
í þessum verkefnum,“ segir hann.
Aukið púður
í atvinnuþróun
Atvinnuþróun er annar liður í að-
gerðum Akraneskaupstaðar til að
bregðast við áhrifum af Covid-19.
Til að mynda verður aukið við fjár-
magn til kaupa á ráðgjöf vegna at-
vinnuþróunarverkefna, samtals tíu
milljónir króna. Þá er stefnt að því
að skila niðurstöðum úr samstarfs-
verkefni með Brim og KpMG,
ásamt tilbúinni aðgerðaáætlun, fyr-
ir lok maímánaðar. Eins og sagt var
frá í Skessuhorni voru hugmynd-
ir kynntar á íbúafundi í lok janú-
ar. Í verkefninu er lögð áhersla á at-
vinnusköpun sem gæti orðið sam-
bland af nokkrum þáttum sem hafa
verið nefndir heilsuþorpið, sjávar-
þorpið, silfurþorpið og hátækni-
þorpið. „Allar þessar hugmynd-
ir hafa síðan verið unnar áfram,
í samráði við hagsmunaaðila, og
eru smám saman að fá meira kjöt
á beinin,“ segir Sævar. „Þessi vinna
hefur verið í gangi frá því í septem-
ber og markmiðið að kynna í maí
tímaáætlun og tillögur um hvaða
aðgerðir verði farið í og hvernig
megi forgangsraða til framtíðar í
þágu atvinnusköpunar,“ segir bæj-
arstjórinn.
Enn fremur tekur Akraneskaup-
staður þátt í ýmsum þróunarverk-
efnum á Grundartanga. Sagt hef-
ur verið frá þeim verkefnum áður
í Skessuhorni á síðustu vikum og
þau því ekki útlistuð nánar hér. Auk
þeirra segir Sævar fleiri verkefni í
pípunum í samstarfi við Þróunar-
félag Grundartanga. Hann sé hins
vegar bundinn trúnaði og geti því
ekki sagt frá þeim að svo stöddu.
Hugmyndakeppni um
Langasandsreit
Annar liður í aðgerðaáætluninni er
að ljúka hugmyndasamkeppni um
Langasandsreitinn. Það verkefni
var einnig kynnt á íbúafundi í janú-
ar. Fjórar arkitektastofur hafa verið
fengnar til að koma með hugmynd-
ir að því hvernig svæðið geti þróast.
Þær verða síðan kynntar íbúum og
þeim gefinn kostur á að segja sína
skoðun á málinu. „Þannig verður til
samtal um hvernig við viljum hafa
svæðið meðfram Bláfánaströndinni
Langasandi, hvernig við sjáum fyr-
ir okkur atvinnuþróun og -sköp-
un í nágrenni Guðlaugar, hvernig
íþróttasvæðið getur þróast til lengri
tíma og fleira,“ segir bæjarstjórinn.
„Þessar hugmyndir verða unnar á
næstu mánuðum og vonandi í haust
verðum við komin á þann stað að
geta kynnt þær fyrir íbúunum og
kallað eftir áliti þeirra á þeim,“ seg-
ir Sævar. kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Frá Akranesi. Horft yfir höfnina. Ljósm. úr safni/ ki.
Aðgerðir upp á 3,4 milljarða
Akraneskaupstaður spyrnir við áhrifum af Covid-19
Fjárfestingar í húsnæðismálum og atvinnuþróun
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi.
Byggt á Akranesi.