Skessuhorn - 15.04.2020, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 2020 13
Vorkvöld við höfnina á Akranesi. Ljósm. Guðbjörg Ólafsdóttir.
Markaðsátak Akraness er ein þeirra
aðgerða sem bæjaryfirvöld á Akra-
nesi hafa boðað til að mæta áhrif-
um Covid-19 faraldursins. Mark-
aðsátakið felst í kynningu á mögu-
leikum til atvinnuuppbyggingar
í bæjarfélaginu og Akranesi sem
vænlegum búsetukosti sem höfð-
ar til fólks. „Hér hefur verið tölu-
verð uppbygging á húsnæði og
er fyrirhuguð áfram til framtíðar.
Með því að ráðast í markaðsherferð
sem þessa vill bæjarfélagið styðja
við þá uppbyggingu og í leiðinni
verja störf. Þannig geta þeir aðilar
sem eru að byggja hér í bæ aukið
möguleika á að húsnæðið seljist og
við fáum um leið nýjar fjölskyldur
sem fá að njóta okkar frábæra bæj-
arfélags,“ segir Sævar Freyr Þráins-
son, bæjarstjóri á Akranesi, í sam-
tali við Skessuhorn.
Vinna við markaðsátakið er haf-
in. Auk þess segir bæjarstjórinn að
unnið sé að vef sem ætlað er að gera
bæði verktökum, atvinnurekendum
og almenningi auðveldara um vik
að skoða þær lóðir sem eru í boði í
bæjarfélaginu. „Til dæmis með til-
liti til möguleika á uppbyggingu at-
vinnuhúsnæðis. Við erum að fara að
markaðssetja það til fyrirtækja sem
ef til vill þurfa að færa sig úr borg-
inni á næstunni,“ segir bæjarstjór-
inn. „En þessi vefur er líka hugsað-
ur fyrir lóðir sem aðilar geta tryggt
sér til framtíðar. Sömuleiðis verð-
ur aðgangur fyrir byggingaverktaka
þar sem geta komið íbúðum sínum
sem eru til sölu á framfæri. Þá geta
þeir haft sínar íbúðir inni á vefnum
fyrir fólk til að skoða og fá nánari
upplýsingar,“ segir Sævar og bætir
því við að vinna við þennan hluta
markaðsátaksins sé langt komin og
verði vonandi lokið eigi síðar en í
haust.
Áfangastaður
innanlands
Markaðsátak Akraness var upphaf-
lega kynnt í húsnæðisáætlun bæjar-
ins, sem lögð var fram seint í febrú-
ar. Þar var öll áhersla á markaðs-
setningu Akraness sem búsetukosts
og til atvinnuuppbyggingar. Nú
hefur markaðsátakið verið útvíkkað
og tekur einnig til ferðaþjónustu.
Bærinn verði kynntur sem áfanga-
staður með áherslu á gistingu og
ýmsa þjónustu fyrirtækja. Þar er
lögð áhersla á innanlandsmarkað.
„Við höfum áhyggjur af því, eins
og aðrir, að það sé lengra í erlenda
ferðamanninn. Þess vegna verð-
ur þessu einkum beint að innlend-
um ferðamönnum,“ segir Sævar og
bætir því við að vinna við þennan
hluta átaksins sé þegar hafin.
Enn fremur má nefna að Akra-
neskaupstaður tekur þátt í mark-
aðsátaki Ferðamálastofu, þar sem
Íslendingar verða hvattir til að
ferðast innanlands á árinu 2020.
Einnig munu bæjaryfirvöld taka
þátt í átaki Íslandsstofu þar sem
lögð verður áhersla á ímynd Íslands
og erlendan markað. kgk
Akraneskaupstaður eykur fjárveit-
ingu í sjóð tómstunda- og íþrótta-
félaga til að halda uppi öflugu fé-
lags-, tómstunda- og íþróttastarfi
fyrir börn og unglinga. Um er að
ræða 4,5 milljóna framlag til við-
bótar við þær 15,5 milljónir sem
fyrir voru í sjóðnum. Er þetta ein af
aðgerðum bæjaryfirvalda til stuðn-
ings heilsueflingar, íþróttastarfs,
menningar og lista vegna Covid-19
faraldursins.
Allir íbúar fá auk þess fimm þús-
und króna hreyfiseðil frá bæn-
um sem sérstakt átak árið 2020
í heilsueflandi samfélagi. Hann
verður hægt að nota sem greiðslu
fyrir líkamsrækt hjá Akraneskaup-
stað, íþróttafélögum eða öðrum
sem bjóða slíka þjónustu. Áætlaður
kostnaður bæjarsjóðs vegna þessa
er 15 milljónir króna.
Þá fá Akurnesingar frítt kort á
bókasafnið fyrir árið 2020 og auknu
fé verður veitt til viðburðahalds á
Akranesi, samtals þremur milljón-
um króna. Menningar- og safna-
nefnd mun vinna tillögur að eflingu
menningar og listalífs. Styrktar-
sjóður menningarmál verður hækk-
aður um 1,5 milljónir króna.
kgk
Akraneskaupstaður í markaðsátak
Kynna bæinn sem búsetukost og áfangastað
Frá sólríkum degi á Akranesi síðastiðið sumar. Ljósm. úr safni/ mm.
Frá listsýningu á Akranesi. Ljósm. úr safni/ bþb.
Meira fé í menningu,
íþróttir og listir