Skessuhorn - 15.04.2020, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 202018
„Ef það hefur einhvern tímann ver-
ið þörf, þá er það núna,“ segir Aldís
Arna Tryggvadóttir, umdæmisstjóri
Streituskólans á Vesturlandi, um
hversu mikilvægt það sé að huga
vel að andlegri heilsu. Streituskól-
ann stofnaði Ólafur Þór Ævarsson
geðlæknir árið 2002 sem fræðslu-,
mannræktar- og lækningasetur.
Hann var þá fyrstur hér á landi til að
tala um kulnun og streitu. „Ólafur
er einn reyndasti geðlæknir lands-
ins í þreytu- og streitusjúkdóm-
um. Hann hafði unnið á sjúkrahúsi
í mörg ár við að lækna lasið fólk
en honum þótti kröftum sínum og
þekkingu betur varið í að minnka
líkur á að fólk veiktist. Ólafur opn-
aði því Streituskólann til að leggja
áherslu á forvarnir gegn streitu og
vanlíðan með fræðslu, ráðgjöf og
stuðningi. Markmið Streituskól-
ans er einfalt: Stórbæta andlega
heilsu á Íslandi,“ segir Aldís þegar
Skessuhorn hafði samband við hana
og fékk að vita meira um nýopnað
útibú Streituskólans á Vesturlandi.
Óskrifað ,,doktorspróf“
í sjúklegri streitu
Aldís er vottaður markþjálfi og með
próf í viðskiptafræði, verðbréfavið-
skiptum, frönsku og líkamsrækt.
Hún hefur ávallt verið í krefjandi
starfi. Þegar mest lét á fjármála-
markaði starfaði hún sem hluta-
bréfagreinandi. Eftir fall bankanna
starfaði Aldís við rannsókn efna-
hagsbrota hjá Embætti sérstaks sak-
sóknara. Þá fluttu þau hjónin, Aldís
og Sigurður Guðmundsson, ásamt
börnunum þeirra þremur, sem nú
eru orðin fjögur, á Hvanneyri árið
2015 og fór Aldís þá að vinna hjá
Borgarbyggð, fyrst á fjölskyldu-
og fjármálasviði og svo fjármála-
og stjórnsýslusviði. ,,Þegar hér var
komið sögu hafði ég í of mörg ár
keyrt mig áfram og verið vansvefta
vegna álags í vinnu, veikinda barna
minna og óuppgerðra áfalla í æsku.
Ég var farin að finna fyrir alvarleg-
um streitueinkennum sem ég huns-
aði því að mér fannst það ,,aum-
ingjaskapur“ að hægja á. Eitt sinn
tók líkaminn völdin og það leið yfir
mig. Hjartalæknir talaði hreint út
við mig í kjölfarið: Nú yrði ég að
finna betri takt og hvílast meira, ég
hefði ekkert val lengur því að heilsa
mín, fjölskyldan og lífsgæðin væru í
húfi. Mér þótti erfitt að viðurkenna
fyrir sjálfri mér að ég væri að missa
stjórnina enda hafði ég til þessa allt-
af komist í gegnum áskoranir, erfið-
leika og áföll. Ætli ég hafi ekki allt-
af hugsað, eins og svo margir aðrir,
að það kæmi ekkert fyrir mig. Við
skiljum nefnilega mikilvægi þess
að fara reglulega með bílinn í við-
gerð og hlaða símana okkar þegar
þeir eru að verða batteríslausir en
gleymum oft að ,,hlaða“ okkur sjálf.
Ég gantast oft með það eftir þessa
lífsreynslu og það sem á eftir kom
að reynsla mín jafnist á við nokk-
urs konar ,,óskrifað“ doktorspróf í
þreytu og streitu. Það góða er að
fyrir vikið á ég auðveldara með að
ráðleggja fólki um streitustjórnun
og brenn fyrir því,“ segir Aldís.
Streitustjórnun og
græn endurhæfing
Aldís ákvað að taka orð læknis-
ins til greina og fékk um leið mik-
inn áhuga á að fræðast um streitu,
streitustjórnun og líðan fólks. ,,Ég
las mér mikið til um orsök og af-
leiðingar streitu og hafði sérstakan
áhuga á ,,tæknistreitu“ nútímans og
hamingjunni. Um leið tók við nýr
kafli í lífi mínu þar sem ég ákvað
að héðan í frá myndi ég eingöngu
vinna við það sem mér finnst reglu-
lega skemmtilegt og gefandi: Að
vinna fyrir og með fólki að sjálfs-
rækt, mannrækt og mannúð,“ segir
hún. Aldís stofnaði í kjölfarið ferða-
þjónustufyrirtækið Coldspot ásamt
fjölskyldu sinni árið 2016. Þar
skipulagði hún streitulausar ferðir
fyrir fólk um Ísland þar sem áhersl-
an er andleg, líkamleg og félagsleg
heilsa með núvitund, náttúruvitund
og náungakærleika að leiðarljósi.
„Heilsa okkar er nefnilega ekki bara
andleg og líkamleg heldur skiptir
félagsleg heilsa líka máli - maður er
manns gaman,“ segir Aldís og bæt-
ir við að nú sé Streituskólinn kom-
inn í samstarf við Coldspot með
græna endurhæfingu að sænskri
fyrirmynd. „Hugmyndin er að taka
á móti fólki í endurhæfingu þar sem
einstaklingar geta kúplað sig út úr
amstri dagsins og fengið uppbyggi-
lega fræðslu til frambúðar. Þótt við
fjöllum um alvarleg mál nálgumst
við efnið með jákvæðni til að efla
viðskiptavini okkar og gera þeim
kleift að stjórna streitunni betur
eftirleiðis,“ útskýrir hún.
Markþjálfun
er málið mitt
Aldís var svo áhugasöm um streitu
og líðan fólks að hún hóf störf hjá
Ólafi í Streituskólanum eftir að
hafa náð heilsu að nýju. ,,Ég starfa
sem markþjálfi, streituráðgjafi og
fyrirlesari. Sem streituráðgjafi að-
stoða ég fólk við að kortleggja
streituvaldana í lífi sínu og finna
nýjar og betri leiðir til að ná jafn-
vægi í einkalífi og starfi. Í jafnvæg-
inu felast hin sönnu lífsgæði. Ég
er vottaður markþjálfi frá alþjóð-
legum samtökum markþjálfa (ICF)
og er heilluð af aðferðafræðinni.
Markþjálfun snýst um að breyta og
bæta líf fólks svo að það öðlist ríkari
tilgang og sátt – geti dansað í takt
við eigin gildi og þrár. Sem mark-
þjálfi styð ég skjólstæðinga mína
við markmiðasetningu svo að þeir
nái tilskildum árangri, svo sem að
vegna betur í vinnu, minnka streitu
og bæta sjálfstraust, samskipti eða
heilsu. Að líða vel er á okkar eig-
in ábyrgð. Við lendum öll í brekk-
um á lífsleiðinni en mestu skiptir að
skapa okkur spennandi framtíð. Við
höfum alltaf allt það val og vald sem
við tökum okkur til að sú draumsýn
rætist,“ segir Aldís.
Aldís segir fyrirtæki einnig nýta
sér teymismarkþjálfun í auknum
mæli til að stilla saman strengi
starfsfólks, marka stefnu, stuðla að
aukinni vellíðan starfsmanna, betri
vinnustaðamenningu og auknum
afköstum. Aldís heldur fjölda fyr-
irlestra og námskeiða sem tengj-
ast markþjálfun. Fyrirlesturinn
,,Leynivopn leiðtogans“ er ætlað-
ur stjórnendum fyrirtækja þar sem
„Vellíðan í lífi, leik og starfi er forsenda velgengni“
Rætt við Aldísi Örnu um streitu, kulnun og andlega heilsu.
Aldís Arna Tryggvadóttir markþjálfi hjá Streituskólanum.
Ólafur heldur hér fyrirlestur.