Skessuhorn - 15.04.2020, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 2020 19
hún kennir grunntækni í markþjálf-
un fyrir betri samskipti, samstarf og
árangur. Í fyrirlestrinum ,,Hvað
viltu? Vegferð að vellíðan og vel-
gengni“ hjálpar hún einstaklingum
að skilgreina hvað það raunverulega
vill í lífinu. Þá er námskeiðið „Ró í
ólgusjó – láttu þér líða vel“ snið-
ið að ástandi líðandi stundar þar
sem Aldís deilir ráðum um hvernig
komast megi í gegnum tímabil ótta,
óvissu og streitu með lífsgleði að
leiðarljósi.
Lögmálið um lífsgæðin
,,Sá sem er heill heilsu á sér marga
drauma en sá sem missir heilsuna á
sér aðeins einn draum: Að ná aftur
heilsu. Sjúkleg streita er átakanleg-
ur heilsubrestur. Það sem oft tefur
fyrir bata er að streitan er lúmsk og
það getur tekið fólk langan tíma að
viðurkenna fyrir sjálfu sér og öðr-
um að um vandamál sé að ræða.
Fólk fer í gegnum visst sorgarferli
er það áttar sig á að það hefur ekki
heilsu til að gera allt það sem áður
var mögulegt. Það getur tekið þá
sem veikjast af sjúklegri streitu allt
frá hálfu ári upp í sex ár að jafna
sig,“ segir Aldís. Hún segir minn-
isleysi vera eina helstu birtingar-
mynd sjúklegrar streitu. ,,Við eig-
inmaður minn hlæjum að því í dag
en mér var ekki skemmt eitt sinn
er ég spurði manninn minn hvaða
hestur þetta væri úti í garðinum
okkar. Ég mundi ekkert eftir hest-
inum þótt þetta væri annað sumar-
ið sem hann var þarna hjá okkur,
ég hefði sjálf keypt hann og fundið
honum nafn,“ segir Aldís og held-
ur áfram: ,,Það er enginn hafinn
yfir hið svokallaða ,,lögmál um lífs-
gæðin“: Of mikið álag í of langan
tíma þar sem kröfur eru umfram
getu og stjórn og hvíld ónæg veld-
ur fólki, óháð stétt og stöðu, alvar-
legri streitu. Það sem ég veit í dag,
en vissi ekki þá, er að það er tiltölu-
lega auðvelt að koma í veg fyrir al-
varlega streitu með fræðslu og for-
vörnum. Sumum finnst það enn
feimnismál að leita til fagaðila til
að vernda og efla geðheilsuna en
þetta hefur sem betur fer breyst
hratt hin síðari ár.“
Fræðsla til forvarna -
þín heilsa er ekki þitt
einkamál
„Starf okkar í Streituskólanum
snýst um að auka meðvitund um
streitu og vellíðan og þar með
minnkar veikindafjarvera - fólki,
fyrirtækjum og samfélaginu öllu
til hagsbóta. Frá upphafi hefur
Streituskólinn þjónustað 300 fyr-
irtæki og frætt rúmlega 10.000
manns. Útibú frá skólanum var
opnað á Akureyri í fyrra en með
opnun Streituskólans á Vesturlandi
færum við þjónustuna nær íbúum
landshlutans,“ segir Aldís. En upp
á hvað er boðið hjá Streituskól-
anum? „Við störfum sem fjölfag-
legt teymi sérfræðinga sem þjón-
ustar fólk og fyrirtæki sem vill hlúa
að andlegri heilsu. Við gerum það
fyrst og fremst með fræðslu til for-
varna. Ótrúlegt er hvað fólk getur
lært af aðeins einum fræðslufyrir-
lestri ef það fylgir ráðleggingum
okkar í kjölfarið. Fræðsla er besta
forvörnin. Brýnt er að fólk átti sig
á mikilvægi þess að bera ábyrgð á
eigin heilsu því að heilsan er ekki
okkar einkamál. Við þurfum að
vera til staðar fyrir marga sem er
annt um okkur. Við tölum um einn
á móti fimmtíu; þegar einn verður
fyrir heilsubresti hefur það mögu-
lega áhrif á fimmtíu aðra, ef ekki
fleiri. Það geta verið fjölskyldu-
meðlimir, vinir og vinnufélagar. Í
þessari stöðu getur myndast dep-
urð, kvíði og jafnvel þunglyndi sem
er ein algengasta ástæða veikinda-
fjarveru á vinnumarkaði. Það er því
til mikils að vinna,“ segir Aldís.
Fjárfesting til farsældar
Streituskólinn gerir fyrirtækja-
samninga við fyrirtæki þar sem
boðið er upp á ákveðna grunnþjón-
ustu með fræðslu- og forvarnar-
áætlunum gegn streitu, vanlíðan og
samskiptavandamálum hvers kon-
ar. Hægt er að bæta við þjónustuna
aukinni ráðgjöf til stjórnenda og
auknum stuðningi við starfsmenn
með streituráðgjöf, markþjálfun
eða handleiðslu. „Þannig léttum
við á álaginu á stjórnendum með
því að styðja við vöxt, vellíðan og
velgengni starfsmanna. Starfsfólk á
misgott með að tjá sig við yfirmenn
og samstarfsmenn og því er það
ákjósanlegt fyrirkomulag að hitta
fagaðila á hlutlausum vettvangi í
trúnaði. Vinnan og einkalíf fólks
hangir saman og það að greiða fyrir
fræðslu sem þessa eða andlega efl-
ingu fyrir starfsfólk skilar sér alltaf
til baka í fyrirtækið, þótt viðkom-
andi nýti samtalið til að tala um allt
annað en vinnuna. Flest fyrirtæki
styrkja líkamsrækt starfsmanna og
að sama skapi þykir orðið sjálfsagt
að fjárfesta í vellíðan mannauðs-
ins því að stjórnendur sjá árangur-
inn af því. Samkvæmt rannsóknum
skilar hver króna sem fjárfest er í
forvörnum sér átta sinnum til baka
til samfélagsins í formi lægri kostn-
aðar og aukinnar framlegðar. Vel-
líðan starfsfólks er forsenda starfs-
ánægju sem er forsenda þess að fyr-
irtækjum gangi vel. Þetta er ósköp
einfalt: Til að ganga vel þarf okkur
að líða vel og velviljaðir stjórnend-
ur eru meðvitaðir um það,“ segir
Aldís.
Vöxtur, von og vellíðan
Forvarnargildin vöxtur, von og
vellíðan endurspegla þá þjónustu
sem Streituskólinn veitir: „Vöxt-
ur stendur fyrir að við hjálpum
einstaklingum að blómstra. Von
stendur fyrir vonina um aukinn ár-
angur og betra líf. Vellíðan er svo
það sem kemur í kjölfarið. Við vilj-
um leggja okkar af mörkum til þess
að hækka hamingjustigið í heimin-
um,“ segir Aldís ánægð. „Ég hvet
stjórnendur fyrirtækja til að hlúa
sérstaklega vel að starfsfólki sínu
og fjárfesta í vellíðan þess. Það er
fjárfesting en ekki kostnaður því
að mannauðurinn er dýrmætasta
auðlind sérhvers fyrirtækis,“ segir
hún. En getur fólk komið til þeirra
á eigin forsendum? „Já, við tök-
um á móti öllum og þá er í mörg-
um tilfellum hægt að fá endurgreitt
frá stéttarfélagi sínu og mælum við
með að fólk skoði það,“ segir Al-
dís.
Eins og fram hefur komið hefur
Streituskólinn opnað útibú á Vest-
urlandi en í ljósi aðstæðna er ekki
hægt að taka á móti fólki í nýju
útibúi strax. „Öll okkar þjónusta
fer núna fram í gegnum netið. Við
höldum fyrirlestra með fjarfræðslu
og tökum fólk í fjarviðtöl eða ræð-
um við það í síma. Sumum finnst
þessi kostur þægilegri en að þurfa
að mæta eitthvert. Þegar ástandið í
samfélaginu lagast aftur munum við
opna formlega skrifstofu í Borgar-
nesi,“ segir Aldís. Það er hægt að
senda tölvupóst á aldisarna@stress.
is til að fá frekari upplýsingar.
arg/ Ljósm. aðsendar
Frá fyrirlestri með slökkviliðinu.
Aldís og Ólafur Þór Ævarsson stofnandi Streituskólans.