Skessuhorn


Skessuhorn - 15.04.2020, Page 26

Skessuhorn - 15.04.2020, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 15. ApRÍL 202026 „Ég er afar stoltur að fá að starfa fyrir jafn gamalgróið og sigursælt knattspyrnufélag og ÍA,“ segir Geir Þorsteinsson í samtali við Skessu- horn. Hann var seint í síðasta mán- uði ráðinn í starf framkvæmdastjóra knattspyrnufélags ÍA. Hann hefur þegar hafið störf hjá félaginu og er búinn að koma sér fyrir á skrifstof- unni að Jaðarsbökkum á Akranesi. Geir þarf vart að kynna fyrir knattspyrnuáhugafólki. Hann hef- ur starfað innan knattspyrnuhreyf- ingarinnar um áratuga skeið. Eftir áratug sem mjög virkur þátttakandi í starfi KR hóf hann störf á skrif- stofu Knattspyrnusambands Íslands í ársbyrjun 1993. Hann varð síðar framkvæmdastjóri frá 1997 til 2007 og loks formaður til tíu ára, eða til ársins 2017. Sama ár var hann kjör- inn heiðursformaður KSÍ á ársþingi sambandsins, eftir 25 ára starf inn- an KSÍ. Undanfarin ár hefur hann starfað við ráðgjöf og þróunarstarf fyrir Alþjóðaknattspyrnusamband- ið og Knattspyrnusamband Evr- ópu, mest í Asíu og Eyjaálfu, en nú er hann snúinn aftur í íslenska bolt- ann. Og þrátt fyrir að taka við starfi framkvæmdastjóra knattspyrnu- félags ÍA á undarlegum og um margt erfiðum tímum fyrir íþróttafélög- in í landinu rétt eins og þjóðfélag- ið allt, er metnaðurinn engu minni. Geir vill ná árangri í starfi og vill að áður en langt um líður verði knatt- spyrnulið ÍA í hópi þeirra allra, allra bestu á landinu á nýjan leik. Skessu- horn ræddi við Geir rétt fyrir páska um farinn veg, íslenska boltann, nýja starfið og framtíð knattspyrnu- félags ÍA. Krefjandi tímar „Ég hef starfað í knattspyrnunni meira og minna alla tíð. Mér líst vel á nýtt starf þó vissulega séu krefj- andi tímar núna. Það breytir því ekki að það er alltaf skemmtilegt að vera í boltanum,“ segir Geir en fer þó ekki ofan af því að rekstur knatt- spyrnufélags ÍA, rétt eins og ann- arra íþróttafélaga, gæti reynst þung- ur á árinu. „Áður en samkomubann var sett á og allt það stefndi þeg- ar í erfitt ár rekstrarlega. Rekstur- inn gekk illa í fyrra, mjög illa meira að segja og alveg rétt að segja það bara eins og það er. Félagið tap- aði miklum peningum á rekstrin- um. En á móti kemur að félagið er ekki mjög skuldsett, sem betur fer,“ segir hann. „En almennt séð held ég að staðan hafi aldrei ver- ið eins svört í rekstri íþróttafélaga og nú. Það verður þá að leita langt aftur,“ segir Geir. „Útlitið er miklu dekkra en eftir hrunið að mínu viti. Staða íþróttafélaga mótast auðvitað af því að ef litið er til viðskiptalífs- ins og rekstrarumhverfisins erum við neðsta lagið, við treystum á það sem er fyrir ofan, fyrirtækin. Þeg- ar þrengir að hjá þeim getur það reynst okkur erfitt líka. Framlög til íþróttahreyfingarinnar eru oft með því fyrsta sem er skorið niður þegar harðnar á dalnum hjá fyrirtækjum. Því miður,“ segir hann. Íþróttafélög mikilvæg samfélaginu Til marks um óvenjulegar aðstæður nefnir Geir að aldrei áður hafi ver- ið sett á æfingabann í knattspyrnu. Hann segir sérstakt að taka við nýju starfi á tímum sem þessum. Leysa þurfi fullt af erfiðum verkefnum sem muni hafa áhrif á marga, sérstak- lega fjárhagslega. En hvernig getur íþróttahreyfingin, knattspyrnufélag ÍA þar með talið, brugðist við þess- ari stöðu? „Það er eðli þessa rekst- urs að hann hefur alltaf byggst á og byggir ennþá á gríðarlegri vinnu sjálfboðaliða. Með mikilli fórnfýsi og vinnu félagsmanna munum við ná okkur út úr þessu. Auk vonandi öflugs stuðnings okkar stuðnings- manna og bæjarfélagsins. Þannig verður þetta að bjargast,“ segir Geir og heldur áfram. „Því mikilvægi íþróttafélaga í samfélaginu hefur að mínu viti vaxið í gegnum tíð- ina og líklega aldrei verið meira en nú. Við erum með miklar kvaðir á okkur varðandi skipulag og faglega stjórnun barna- og unglingastarfs. Í ofanálag hefur knattspyrnufélag ÍA mikinn metnað í sínu barna- og unglingastarfi, sem er vel þekkt, að hér verði til góðir knattspyrnu- menn,“ segir hann. „Við sinnum þannig mikilvægu hlutverki í bæj- arfélaginu fyrir yngstu kynslóðina. Og almennt mikilvægi íþróttastarfs er miklu meira en áður, vegna þess að samfélagið hefur breyst mik- ið. Íþróttir eiga í samkeppni við aðra afþreyingu, þar sem er kannski mikil kyrrseta. En mikilvægi þess að börn og unglingar hreyfi sig hefur ekki minnkað. Þegar foreldrar líta til þess hvernig samfélagið er orð- ið þá er stór þáttur, að mínu viti, í uppeldi barna að sjá til þess að þau séu í einhvers konar hreyfingu. Þá getur fólk á Akranesi gengið að því vísu að þau börn sem eru í fótbolt- anum fái góða hreyfingu og góðan skóla,“ segir hann. Mikil vinna að vera leikmaður Þegar kemur að meistaraflokkun- um hefur líka ýmislegt breyst frá því sem áður var. „Hvort sem er í meistaraflokki karla eða kvenna er nánast fullt starf að vera leikmaður. Hér er æft meira og minna allt árið. Oft fær fólk enga frídaga svo mán- uðum skiptir, það eru alltaf æfing- ar, leikir eða fundir. Með þessu eru menn og konur í námi eða vinnu,“ segir Geir. „Að ætlast til þess að einhverjir leggi allt þetta á sig án þess að fá umbun er mjög erfitt, þannig að fólki er umbunað fyrir. Þannig verðum við að reka svona knattspyrnulið til að ná árangri. Leikmenn munu núna verða fyr- ir miklum áhrifum og tekjuskerð- ingu vegna ástandsins, það er al- veg ljóst. En með réttu hugarfari, samstöðu leikmanna, stuðnings- manna, stjórnar og bæjarfélagsins alls þá munu við vinna okkur út úr þessu. Það er klárt mál,“ segir Geir sem telur að til þess séu allir af vilja gerðir. „Ég finn ekki annað en mjög jákvæða strauma hér innan félags- ins, þó á móti blási. Það er mikil- vægt að gleyma því ekki að þó stað- an sé svört núna þá mun birta til,“ segir hann. Þarf breidd í félögin Geir er alinn upp í Vesturbæ Reykja- víkur og lék knattspyrnu með KR sem barn og unglingur. „Ég æfði og lék upp alla yngri flokkana hjá KR. Ég var mjög ungur beðinn að taka að mér dómgæslu og svo að þjálfa, var bara 16-17 ára gamall. Svo ekki mikið seinna var ég kom- inn í pappírsvinnuna hjá félaginu,“ segir hann og hlær við. „Þarna fékk ég óbein skilaboð um að framtíð mín væri ekki inni á vellinum,“ seg- ir hann léttur í bragði. „En þetta sýnir líka hvað er mikilvægt að hafa breidd í félögum. Leikmenn eru öfundsverðir að því leytinu til að þeir fá að gera það skemmtilegasta innan knattspyrnuhreyfingarinn- ar; að spila leikinn. Það er ekkert skemmtilegra en það. Á eftir kem- ur svo þjálfun og kannski dómgæsla, sem eru hluti af leiknum sjálfum en með öðrum hætti þó. Það vilja allir vera hluti af leiknum. En svo þurfum við bara fullt af öðru fólki í félagsstarfið, ýmis sjálfboðaliða- störf og stjórnunarstörf til að láta þetta ganga upp, svo leikurinn sem er svo skemmtilegt að spila og fylgj- ast með geti farið fram,“ segir Geir. Skýr sýn og trú á verkefnið Geir gegndi ýmsum stjórnunar- störfum hjá KR, meðal annars sem framkvæmdastjóri áður en hann söðlaði um og hóf störf hjá KSÍ. „Ég var mjög virkur í starfi KR í svona áratug eða svo. Síðan fór ég til KSÍ um áramótin 1992/93 og þá hófst 25 ára ferill þar, sem var mjög skemmtilegur. Þar starfaði ég með frábæru fólki í stjórninni við að „Við viljum vera í fremstu röð í fótboltanum“ - segir Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri knattspyrnufélags ÍA Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri knattspyrnufélags ÍA. Ljósm. úr safni/ KFÍA. Skagamenn fagna fyrir framan fullri stúku á Akranesi á síðasta keppnistímabili. Skagakonur fagna marki á Akranesvelli síðasta sumar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.