Skessuhorn - 22.04.2020, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 17. tbl. 23. árg. 22. apríl 2020 - kr. 950 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
• 2 STÓ
RAR P
IZZUR
AF M
ATSEÐ
LI
• 2 ME
ÐLÆT
I AÐ E
IGIN V
ALI
• 2 SÓS
UR AÐ
EIGIN
VALI
• 2 L G
OS
AÐEIN
S 5.99
0 KR.
Tilboð gildir út apríl 2020
Icelandic meat soup
1.690 kr.
arionbanki.is
Fjármálin mín
– betri y�irsýn í Arion appinu
Þrátt fyrir fordæmaleysi tímans heldur gangverk tilverunnar að einhverju leyti sínum venjulega takti. Sólin rís að morgni og vorverkin eru þau sömu til sveita og
venjulega, þrátt fyrir allt. Þó hefur eitthvað borið á því að bændur hafi afráðið að fá ekki til sín rúningsmann sökum ástandsins heldur rýja sjálfir. Aðrir hafa pantað tíma
í klippingu fyrir skjáturnar en þá beitt varúðarráðstöfunum og sýnt ýtrustu varkárni. Sú var einmitt raunin í fjárhúsum einum í Stykkishólmi á dögunum þar sem þessi
mynd var tekin af Guðmundi Þór Guðmundssyni rúningsmanni svipta af Móru reifinu. Ljósm. sá.
Framundan eru flutningar fyrir-
tækisins Efnagreiningar ehf. frá
Hvanneyri til Akraness. Hjónin
Elísabet Axelsdóttir og Arngrím-
ur Thorlacius tóku fyrstu skóflu-
stunguna að nýju húsnæði fyrirtæk-
isins í Flóahverfi á Akranesi síðast-
liðinn sunnudagsmorgun, að við-
stöddum sínum nánustu ættingj-
um. Verða þau fyrst til að byggja at-
vinnuhúsnæði á nýju athafnasvæði í
Flóahverfi á Akranesi.
Elísabet og Arngrímur hafa und-
anfarin fimm ár starfrækt efna-
greiningarstofu sína í gömlu nauta-
stöðinni á Hvanneyri, en fyrirtæk-
ið hefur meðal annars sinnt hey-
mælingum fyrir bændur. En nú eru
flutningar til Akraness framundan,
sem fyrr segir. Jarðvinna er hafin og
Elísabet kveðst í samtali við Skessu-
horn vonast til að húsin verði sett
niður innan tíu daga.
kgk
Töluverðar framkvæmdir standa
nú yfir í Akraneskirkju, en ákveð-
ið var að flýta sumum þeirra til að
nýta þær aðstæður sem eru með-
an takmörkun er á samkomuhaldi.
Búið er að mála hluta af kirkjunni
að innan, en til stendur að skipta
um klæðningu á húsinu og lag-
færa altaristöflu í sumar. Síðastlið-
inn mánudag hófst svo vinna orgel-
smiða við hreinsun hljóðfærisins á
kirkjuloftinu. Á meðfylgjandi mynd
eru Margrét Erlingsdóttir rafvirki,
Björgvin Tómasson orgelsmiður,
séra Þráinn Haraldsson sóknar-
prestur, Sveinn Arnar Sæmundsson
organisti og Helga Sesselja Ásgeirs-
dóttir kirkjuvörður og meðhjálpari.
Sjá nánar frétt á bls. 12.
mm
Hjónin Elísabet Axelsdóttir og
Arngrímur Thorlacius, eigendur
Efnagreiningar ehf., tóku fyrstu
skóflustunguna að nýju húsnæði
fyrirtækisins á Akranesi síðastliðinn
sunnudag. Ljósm. aðsend.
Efnagreining flytur
á Akranes
Framkvæma í samkomubanni