Skessuhorn


Skessuhorn - 22.04.2020, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 22.04.2020, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 22. ApRíl 2020 27 Pennagrein Vísnahorn Ætli það sé ekki marga farið að lengja eftir vor- inu eftir þennan held- ur leiðinlega vetur. Þeg- ar þetta er skrifað virðist aðeins glytta í það handan við hornið. Hvort sem það verður nú veruleikinn verður að koma í ljós en nú á dög- unum orti Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð: Bíður dagsins basl og önn, en bráðum léttist sporið, ég dunda við að draga úr fönn, draumana um vorið. Annar Húnvetningur, Bjarni Jónsson frá Gröf í Víðidal úrsmiður á Akureyri, hefur greinilega verið farinn að hlakka til vorsins þegar þessi fæðist: Lengjast dagar, lækkar fönn ljómar sól á glugga guð er farinn að glotta við tönn gegnum vetrarskugga. Og þá er þessi ekki síðri: Er vorið kemur verður gaman, það veitir lífi nýjan þrótt og dagar halda höndum saman í hringdansi um miðja nótt. Freistast til að taka hér eina enn eftir Bjarna: Fuglar syngja friðarbæn fræin vakna úr dái fagnar vori grundin græn. Guð er á hverju strái. Og einn Húnvetningurinn enn, Gísli G. Magnússon, er nokkuð ákveðinn í að vorið muni sigra: Vorið kemur víst á ný, vetur burtu fýkur. Í það minnsta eru á því afar miklar líkur. Séra Einar Friðgeirsson á Borg var uppalinn í Fnjóskadal norður og að sjálfsögðu sá hann vorkomuna með augum Norðlendingsins: Nætursól við norður strönd nálgast rjóð það gaman, er himininn og hafsins rönd halla vöngum saman. Ingveldur Einarsdóttir sem lengi var vinnu- kona á Reykjum hjá Bjarna Ásgeirsyni orti líka um vorið: Vorið er í vexti svo vonhýrt og hlýtt. Græðir upp hið gamla og gjörir það nýtt. Og Kristján Sigurðsson á Brúsastöðum: Fuglar hagleg hefja ljóð, hljómar lag við kvæði. Vefur dagur gulls úr glóð geislafagurt klæði. Ég held að þessi vorstemning sé eftir pál Ásgeir Ásgeirsson. Vona þá að ég verði leið- réttur ef svo er ekki. Svosem ekki óvanalegt að ég blaðri einhverja vitleysu: Sólin eins og lúxorlampi ljómar yfir skít og slor. Nú fer ég að ná upp dampi, nú er loks að koma vor. Hreingerningar eru eitt af því sem fylgir vorinu. Nauðsynlegt að fara í vorbaðið og svo jólabaðið. Það sem umfram er eru meiri vafaatriði. Hálfdan Bjarnason frá Bjarghúsum velti þessu fyrir sér: Að baða skrokkinn þykir þægilegt, og það er sjálfsagt hollt og nauðsynlegt. Samt hugsa eg meira um minn innri mann, hve oft sé nauðsynlegt að skola hann. Stefán heitinn Jónsson faðir Kára Stefáns orti ýmislegt í orðastað Jóns á Akri og þar á meðal þessa vorstemningu: Það kliðar lækur hjá klettinum. Það kúrir lóa rétt hjá honum. Það er töluverð tónlist í kettinum þegar troðið er á rófunni á honum. Og um lúðvík Jósepsson sem var um tíma sjávarútvegsráðherra ef ég man rétt og for- maður Alþýðubandalagsins: Póli jafnan töff í tík og telst það höfuðprýðin, Lúð- er maður vaskur vík verka styður lýðinn. Skagfirskur góðbóndi prýðilega hagmælt- ur var einn gullfagran sumardag kominn út á hlað og dáðist að sínu heimahéraði eins og Skagfirðingar gera gjarnan. Já og reyndar ekki bara Skagfirðingar ef út í það er farið. En semsagt honum varð litið á giftingarhringinn sinn sem glampaði fagurlega í sólinni og þar með kom fyrsta hendingin: Hýrnar gull í hreinviðri. Næst verður honum litið á fjóshauginn en á hann var komin skán af blessaðri sólinni og þar með næsta hending: Harðnar drulla í sólskini. í því heyrir hann að konur eru að sinna bú- verkum innanhúss og þar með var seinnipart- urinn fullskapaður: Starfar bulla í strokkloki, stelpur sulla í mjólkinni. Það er að vísu dálítið misjafnt hvaða viðmið fólk hefur í sambandi við vorið. Hjá sumum er sauðburðurinn viðmiðið. Hjá öðrum eru það farfuglarnir nú eða grásleppuveiðin en Ólafur B. Guðmundsson hafði þessi viðmið: Þegar blóm fara að gróa á grundunum og grásleppa að veiðast á sundunum Þá er týnd vetrar sút. Þá fer tíkin mín út að trimma með nágrannahundunum. Bjarni Ásgeirsson var eitt sinn staddur á ráðstefnu í prag og sá þar kríuhóp á grasflöt framan við hótelið. Mun það hafa orðið til- efni eftirfarandi: Ó hve gaman er að sjá okkar gömlu kríu, úti á túni að tína strá í Tékkóslóvakíu. Góðvinur minn sem nú er látinn sagði ein- hvern tímann að vísur geymdust þeim mun betur sem þær vikju lengra frá miðjumoðinu í aðra hvora áttina. Allavega er oft gott að ná öðru sjónarhorni en því sem algengast er. Eft- irfarandi vísa mun vera eftir Ragnar Böðvars- son: Það er keppikefli mitt að kveða stökur vitlausar. Engu betra er samt hitt: að þær séu litlausar. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Þegar blóm fara að gróa á grundunum - og grásleppa að veiðast á sundunum... Færeyski málvísindamaðurinn, kennarinn og útgefandinn Jonhard Mikkelsen hlýtur alþjóðleg menn- ingarverðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrver- andi forseta íslands. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti á 90 ára af- mælisdegi Vigdísar, 15. apríl síðast- liðinn. Það voru íslensk stjórnvöld, Háskóli íslands og Stofnun Vig- dísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum sem ákváðu í samein- ingu að setja verðlaunin á fót. Var það gert í tilefni stórafmælis Vig- dísar og þess að í vor verða liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri henn- ar. Verðlaunin verða veitt árlega einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu menn- ingar og þá einkum tungumála. Jonhard er sem fyrr segir fyrstur til að hljóta verðlaunin og er það fyr- ir einstakt framlag sitt til að efla og þróa færeyska tungu bæði inn á við og út á við. Það var Benedikt Jónsson, sendi- herra og aðalræðismaður íslend- inga í Færeyjum, sem afhenti Jon- hard Mikkelsen fyrstu Vigdísar- verðlaunin með þökkum fyrir ein- stakt framlag hans í þágu tungu- málanna. mm Þegar vorar og sól hækkar á lofti verður mörgum tamt að grípa til orðtaksins, að nú sé tími til að rækta garðinn sinn, og öll þekkj- um við óeiginlega merkingu orð- taksins sem bregður fyrir allan árs- ins hring. Þegar við göngum í gegnum um- rótartíma eins og nú, þá er okk- ur ofarlega í huga að samfélagið komist um síðir öflugt frá þessum hremmingum, bæði hvað varðar mannlífið og ekki síður hvað inn- viði samfélagsins snertir, atvinnu- og viðskiptalíf. Matvælaörygg i Þegar ræktunarmál ber á góma kemur ylrækt og matvælafram- leiðsla fljótt upp í hugann, iðulega er bent á matvælaöryggi á íslandi um þessar mundir. í því sambandi er tími til kominn að við náum átt- um og hættum að einblína á löngu úrelt framleiðslukerfi landbúnaðar- ins. Á þetta höfum við í Samfylk- ingunni lengi bent með hagsmuni bændastéttarinnar í huga og raun- verulegar þarfir samfélagsins, að við horfum fram á veginn en ekki stöðugt um öxl. Mannrækt Mannrækt er einnig mikilvægt ræktunarstarf og fátt tekur fram einstöku starfi íþróttahreyfinga um allt land. Þetta er lýðheilsustarf, forvarnir og heilsueflandi verkefni, allt í senn. íþróttastarf á landsbyggðinni og áhugafólk sem stendur vörð um það berst í bökkum, fjárhagsleg- um bakhjörlum fækkar, sveitarfélög eru víða fjárvana. Alltaf er þó fyrir hendi ýmislegur fastur kostnaður, svo sem vegna þjálfunar, æfingaað- stöðu og ferðalaga sem er iðkend- um á landsbyggðinni afar þungur í skauti. Þarna þurfum við að vera á verði og tryggja öllum börnum og ungmennum aðstæður til að efla hreyfiþroska sinn og um leið að styrkja hvern og einn til vaxtar sem heilbrigður einstaklingur. Börnin Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að börn á íslandi eru að þyngjast að líkamsvigt og það eru hættuleg teikn. Ekkert betra mót- vægi er til en skipuleg hreyfing og íþróttir við hæfi. Opinberar aðgerðir stjórn- valda þurfa að taka mið af þessu og tryggja verður að þessi mikilvægi samfélagsþáttur fái ríkulegan skerf af stuðningi í því bakslagi sem börn og ungmenni upplifa nú, ekki síður en aðrir. Guðjón S. Brjánsson. Höf. er þingmaður Samfylkingar í NV kjördæmi Börn, íþróttir og ylrækt Mikkelsen fyrsti handhafi verðlauna Vigdísar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.