Skessuhorn - 22.04.2020, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 22. ApRíl 2020 13
Forinnritun 10. bekkinga - 9. mars til 13. apríl
Lokainnritun 10. bekkinga - 6. maí til 10. júní
Innritun eldri nemenda - 6. apríl til 31. maí
Komdu í FVA!
Vingjarnlegt viðmót - Persónuleg samskipti
Öflug nemendaþjónusta - Frábær aðstaða
Líflegt félagslíf - Heimavist - Mötuneyti - Námsver
Námsaðstoð - Tölvuver - Þráðlaust net um allan skólann
Stúdentsbrautir - 3 ára brautir
Félagsfræðabraut
Náttúrufræðabraut
Opin stúdentsbraut
-Íþrótta- og heilsusvið
-Lista- og nýsköpunarsvið
-Opið svið
-Tónlistarsvið
-Tungumálasvið
-Viðskipta- og hagfræðisvið
Annað nám
Framhaldsskólabraut
Viðbótarnám eftir iðn- og starfsnám
Starfsbraut
Iðn- og starfsnám
Tréiðngreinar
Húsasmíði
Húsgagnasmíði
Málmiðngreinar
Vélvirkjun
Grunndeild bíliðngreina
Rafiðngreinar
Rafvirkjun
Grunndeild rafeindavirkjunar
Sjúkraliðabraut
Afreksíþróttasvið
Ertu á leið í
framhaldsskóla?
Námsbrautir
Nánari upplýsingar
um nám á brautum
er að finna á vef
skólans
www.fva.is
Góð aðstaða
til náms og
félagsstarfa
Fjölbrautaskóli Vesturlands
INNRITUN STENDUR YFIR
Fjölbrautaskóli Vesturlands • Vogabraut 5, 300 Akranes • 433 2500 • skrifstofa@fva.is
www.borgutfor.is
Gréta Björgvinsdóttir
s: 770 0188
Guðný Bjarnadóttir
s: 869 7522
Borg útfararþjónusta borg@borgutfor.is
Borg útfararþjónusta veitir alhliða þjónustu
við syrgjendur þegar að útför kemur, óháð
trúarbrögðum og lífsskoðunum.
Umsjón útfara
Akraneskaupstaður samþykkti
snemma í aprílmánuði að auglýsa
tillögu að deiliskipulagi við Garða-
braut 1 þar í bæ. Þar stendur félags-
heimili sem KFUM og K lét byggja
á sínum tíma. Félagið seldi eign-
ina 2017 en eftir gjaldþrot kaup-
anda og greiðsluþot var sölunni
rift og eignin aftur komin í hendur
félagsins. lóðin sem húsið stendur
á hefur alla tíð verið skilgreind sem
íbúðarlóð í aðalskipulagi. í tillögu
að deiliskipulagi lóðarinnar er gert
ráð fyrir að svo verði áfram. Húsið
verði rifið og byggð upp þétt íbúða-
byggð með góðri tengingu við mið-
svæði, aðalgötur og megingöngu-
leiðir bæjarins. „Stefnt er að því að
byggðar verði vandaðar íbúðir með
góðu aðgengi, þ.e. bílageymslu og
lyftu. Einnig eru lagðar fram hug-
myndir um rými fyrir verslun og
þjónustu á jarðhæð næst gatnamót-
um Garðabrautar og Þjóðbrautar,“
eins og segir í skipulagslýsingunni.
í drögum að deiliskipulagi er gert
ráð fyrir sex hæða punkthúsi næst
horninu og lægra punkthúsi austar
á lóðinni. Hálfniðurgrafinn bíla-
geymsla á mið- og norðurhluta lóð-
arinnar myndi tengjast báðum hús-
unum. Þá er gert ráð fyrir atvinnu-
starfsemi, svo sem verslun og þjón-
ustu, á jarðhæð. Miðað við þessar
hugmyndir myndu rúmast á bilinu
20 til 30 íbúðir á lóðinni, eftir stærð
íbúa, en í drögunum segir að æski-
legt sé að þær verði fjölbreyttar að
stærð og gerð.
kgk
Síðastliðinn mánudag fór rann-
sóknaskipið Bjarni Sæmundsson,
skip Hafrannsóknastofnunar, í
fimm daga leiðangur í Jökuldjúp,
Kolluál og á sunnanverðan Breiða-
fjörð. Markmið verkefnisins er að
skoða magn og útbreiðslu rækju
og meta stofnstærð hennar. Niður-
stöður leiðangursins verða notaðar
til að veita ráðgjöf um rækjuveiðar
á svæðinu við Snæfellsnes frá 1. maí
næstkomandi. Teknar verða 31 fyr-
irfram ákveðnar stöðvar sem dreift
er um allt rannsóknasvæðið.
Svæðið hefur verið vaktað með
þessum hætti frá árinu 1990. Fylgj-
ast má með gangi leiðangursins á
skip.hafro.is þar sem sjá má stað-
setningar stöðva.
mm/ Ljósm. Jónas P. Jónasson.
Sjúkraþjálfun Akraness verður
opnuð á næstu vikum. Það eru þau
Gunnar Smári Jónbjörnsson, Einar
Harðarson, Anna Sólveig Smára-
dóttir og Helga Sjöfn Jóhannes-
dóttir sem hafa sameinað krafta
sína og munu opna Sjúkraþjálfun
Akraness við Suðurgötu 126. „Við
erum þar með efri hæðina og salinn
á neðri hæð. Þetta eru yfir 300 fer-
metrar og það verður aðstaða fyr-
ir fimm sjúkraþjálfara, æfingasalur
og hópæfingasalur,“ segir Gunnar
Smári í samtali við Skessuhorn.
Nú er að sögn Gunnars Smára
unnið að því að standsetja hús-
næðið fyrir opnun og vonast þau
til að geta opnað í næsta mánuði.
„Við eyddum páskunum í þetta en
í hægaganginum sem er í samfé-
laginu núna er erfitt að koma dóti
til landsins svo við vitum ekki alveg
hvenær við fáum það sem við pönt-
uðum,“ segir Gunnar Smári og
bætir við að meðal annars þurfi að
koma fyrir lyftu í húsinu. Aðspurð-
ur segir hann að í salnum á neðri
hæð hússins verði ýmis starfsemi,
bæði hjá þeim sjálfum og öðrum.
„Þær Anna og Helga eru með fyr-
irtækið Hreyfistjórn þar sem þær
hafa verið að kenna ýmis námskeið
í þessum sal og munu halda því
áfram. Svo verður hann leigður út
fyrir jóga og annað, vonandi verður
bara mikil starfsemi í salnum,“ seg-
ir Gunnar Smári.
arg
Áform um tvö fjölbýlishús við Garðabraut
Sjúkraþjálfun Akraness verður til húsa við Suðurgötu 126. Ljósm. mm
Sjúkraþjálfun Akraness
opnuð á næstu vikum
Rannsaka magn og út-
breiðslu rækju í Breiðafirði
Gert er ráð fyrir því í deiliskipulagstillögu að
KFUM og K húsið verði rifið og tvö fjölbýlishús
rísi á lóðinni. Ljósm. kgk.