Skessuhorn - 22.04.2020, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 22. ApRíl 2020 15
Á föstudaginn langa barst bréf til
Kvenfélagasambands íslands frá
kínversku kvennasamtökunum All-
China Women’s Federation. í bréfinu
er sagt frá gjöf sem þær ásamt, China
Women’s Development Fund og
Tencent Company, hafa fært lands-
spítalanum vegna Covid -19 heims-
faraldurs. Um er að ræða 200.000
andlitsmaska til nota á spítölum.
Maskarnir komu til landsins 17. apríl
síðastliðinn með flugvél frá Kína sem
flutti einnig aðrar lækningavörur til
landsins. „Þetta er rausnarleg gjöf frá
þeim og mun koma að góðum notum
á landspítalanum,“ segir í frétt á vef
Kvenfélagasambandsins.
í lauslegri þýðingu segir um gjöf-
ina: „Undanfarið höfum við heyrt af
fjölda staðfestra smita á íslandi og
áskorun sem landið stendur frammi
fyrir í baráttunni gegn COVID-19.
Við höfum samúð með því sem þið
eruð að ganga í gegnum og lýs-
um hér með einlægri samúð okkar
við ykkur og íslendinga sem verða
fyrir áhrifum af faraldrinum, sér-
staklega konum og börnum. ísland
veitti okkur dýrmætan stuðning og
aðstoð á erfiðasta tímabili í baráttu
Kína gegn COVID-19. Alheims-
staðan er orðin mjög alvarleg vegna
hraðrar þróunar heimsfaraldursins,
sem veldur ógn við öryggi og heilsu
fólks og miklar áskoranir fyrir lýð-
heilsu íbúa heimsins. Vinsamleg-
ast færið öllum félagskonum Kven-
félagasambands íslands okkar bestu
óskir okkar um góða heilsu og frið,“
segir í bréfi sem Jing Shuiming hjá
All-China Women’s Federation rit-
ar. Fram kemur að Kvenfélagasam-
band íslands hefur sent þeim góðar
kveðjur og kærar þakkir fyrir höfð-
inglega gjöf.
mm/ Ljósm. economist.com
Nú þegar öll starfsemi liggur niður
í íþróttahúsum var í Borgarbyggð
ákveðið að nýta tímann til að fara
í viðhaldsframkvæmdir sem krefjast
þess að aðstaðan sé lokuð. Að því
er fram kemur í frétt á vef Borgar-
byggðar hefur verið unnið að ýmsu
viðhaldi síðustu daga. „Eitt af þeim
verkefnum var að endurnýja gólf-
efni í íþróttamiðstöðinni á Klepp-
járnsreykjum. Áætlað er að þeirri
vinnu ljúki á næstu dögum,“ seg-
ir í fréttinni. Þá er á dagskrá hellu-
lögn og viðgerðir á lagnakerfi og
loftræstingu íþróttamiðstöðvarinn-
ar í Borgarnesi og að lagfæra lýs-
ingu í sal íþróttamiðstöðvarinnar á
Varmalandi.
arg
Olíunotkun í sjávarútvegi var rétt
rúm 133 þúsund tonn á árinu 2019.
Það er minnsta notkun í greininni
frá upphafi mælinga, sem ná aft-
ur til ársins 1982 og þá fyrir daga
kvótakerfisins. Olíunotkun fiski-
skipa nam 130 þúsund tonnum á
árinu og dróst saman um rúm 4%
frá fyrra ári. Samdrátturinn var öllu
meiri í olíunotkun fiskimjölsverk-
smiðja, eða 63%, en þar nam notk-
unin tæplega 3 þúsund tonnum. í
heild nam samdrátturinn í grein-
inni því 7% á milli ára. Þetta má
sjá í bráðabirgðatölum sem Orku-
stofnun birti nýlega um olíusölu á
árinu 2019.
Kolefnissporið minnkar
en umsvifin ekki
Vissulega er olíunotkun á hverjum
tíma háð framleiðslu, það er veið-
um og vinnslu. Var til að mynda
einnig 7% samdráttur í útflutn-
ingsframleiðslu á árinu 2019 frá
fyrra ári. Þann samdrátt má að
stærstum hluta rekja til loðnubrests
og kemur því ekki á óvart að sam-
drátturinn í olíunotkun fiskimjöls-
verksmiðja var eins mikill og raun
ber vitni. Engu að síður er leitnin
klárlega niður á við hvað olíunotk-
un varðar. Á undanförnum árum
hefur sjávarútvegur notað helmingi
minna af olíu til að veiða og vinna
sama magn og hann gerði á síðustu
árum fyrir aldamót. Það þýðir að
sjávarútvegi hefur tekist að draga
úr olíunotkun án þess að það komi
niður á framleiðslu og gott betur.
„Það eru margir samverkandi þætt-
ir sem leggjast á eitt og skýra þessa
þróun, svo sem bætt fiskveiðistjór-
nun, fjárfesting í tækjum og bún-
aði, fækkun og endurnýjun á skip-
um sem eru öflugri og hagkvæm-
ari og breytt orkunotkun. Þetta
er ákjósanleg þróun því vanalega
eykst olíunotkun, og kolefnisspor-
ið stækkar, þegar umsvif atvinnu-
greina aukast. Það á ekki við um ís-
lenskan sjávarútveg,“ segir í frétt á
Radarnum, þar sem tölur um olíu-
notkun hafa verið uppfærðar.
mm
HVAR ER MATURINN OKKAR?
GÆLUDÝRAFÓÐRIÐ FRÁ ROYAL CANIN FÆST NÚ
Í FÓÐURBLÖNDUNNI Á SELFOSSI OG HELLU.
AF ÞVÍ TILEFNI VERÐUR 20% AFSLÁTTUR AF
ÖLLU ROYAL CANIN FÓÐRI ÚT FEBRÚAR
Á OFANGREINDUM STÖÐUM
KOMDU OG GERÐU GÓÐ KAUP Á HÁGÆÐA FÓÐRI!
www.fodur.is • fodur@fodur.is • 570 9800
60 ÁRA
1960-2020
Yfir
200 vörur á
afmælistilboði
Allt að 25% afsláttur
á völdum vörum
8. apríl - 8. maí
Frí heimsending
FYRIR ÞÁ SEM VERSLA
FYRIR 30.000 KR. EÐA MEIRA
Í GEGNUM VEFVERSLUN
Frí heimsending gildir í póstnúmer
101-371 og 800-881
WWW.FODUR.IS
Allt fyrir sauðburðinn á www.fodur.is
VILTU VINNA 15.000 KR. GJAFABRÉF?
Skráðu þig á póstlistann.
Drögum úr skráningum vikulega.
Sturtuklefar teknir í gegn. Ljósm. Borgarbyggð
Nýta tímann í viðhald
íþróttamannvirkja
Kínversku kvennasamtökin færa
Íslandi gjöf vegna COVID-19
Minni olíunotkun á síðasta ári má að stórum hluta rekja til loðnubrests á síðasta ári.
Olíunotkun í sjávarútvegi
aldrei minni