Skessuhorn - 22.04.2020, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 22. ApRíl 2020 17
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Laust starf fagaðila í sértæku
úrræði barnaverndar
Velferðar- og mannréttindasvið auglýsir lausa tíma-
bundna 100% stöðu fagaðila í sértæku úrræði barna-
verndar. Um er að ræða gefandi og krefjandi starf með
börnum með með fjölþættan vanda m.a. hegðunarvanda.
Vinnutími er virka daga en getur verið aðeins breytilegur eftir
dögum en á bilinu frá kl. 8:00 til 18:00.
Úrræðið hefur verið starfrækt frá því í janúar 2020 og er
tímabundið samþykkt úr árið 2020. Óskað er eftir því að við-
komandi geti hafið störf sem allra fyrst og eigi síðar en 1. júní
2020.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl næstkomandi.
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði má finna
á www.akranes.is/lausstorf
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Bæjarstjórnarfundur
1312. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn
í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18,
þriðjudaginn 28. apríl kl. 17:00.
Fundarsalurinn verður ekki opinn að svo stöddu og eru
bæjarbúar hvattir til þess að hlusta á fundinn á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna falla allir niður vegna
samkomubanns sem er í gildi til og með 4. maí.
Borgarbyggð óskar íbúum
sveitarfélagsins og Vestlendingum
öllum gleðilegs sumars.
undirbúa seinni hálfleik sauðburð-
arins en það er alltaf strembinn tími
þar sem nóg er að gera. Eins og það
er alltaf gaman þegar fyrsta lambið
kemur á vorin er líka rosalega góð
tilfinning þegar það síðasta lætur
sjá sig. Þetta er löng og ströng törn
hjá sauðfjárbændum og í stöðu eins
og núna má gera ráð fyrir að þetta
verði enn erfiðara hjá mörgum því
ekki er jafn auðvelt að kippa inn
aðstoð við sauðburð núna,“ segir
Sigrún. Sjálf segir hún ábúendur í
Hallkelsstaðahlíð reyni eftir bestu
getu að halda búinu Covid hreinu
með því að umgangast annað fólk
eins lítið og hægt er. „Þetta væri
erfiður tími til að fá svona pest.“
Vorverkin
Næstu daga og vikur taka vorverkin
við í Hallkelsstaðahlíð eins og víð-
ast hvar annars staðar. „Núna för-
um við bara að keyra skít á túnin og
gera allt klárt fyrir sauðburð en það
er nóg sem þarf að gera til að und-
irbúa bæði aðstöðuna í húsunum
og svo að baka í frysti svo við þurf-
um sem minnst að vera í eldhúsinu
þessar vikur sem sauðburður stend-
ur yfir,“ segir Sigrún og bætir við
að á búinu eru tvær fjölskyldur og
eru þau því fjögur saman að dekka
sauðburðinn og aðra starfsemi á
bænum. En auk þeirra hjóna búa
þar sonur þeirra og tengdadótt-
ir með eitt barn. „Við höfum allt-
af verið heppin að fá góða aðstoð
um sauðburðinn frá vinum og ætt-
ingjum,“ segir Sigrún og bætir því
við að þau reyni að hafa aðra starf-
semi í lágmarki í maí, þegar sauð-
burður stendur yfir. „En það eru
samt hross sem við þurfum að halda
í þjálfun og getum ekkert slakað á
með. Ef þetta væri eðlilegt vor væru
líka ferðamenn hjá okkur og reið-
kennsla í gangi en það verður ekki í
ár. Það var því alveg fínt að fá svona
smá forskot á sauðburðinn, svona
til að brjóta aðeins upp þennan erf-
iða tíma,“ segir hún. Aðspurð segist
Sigrún ekki óttast að smitast enda
haldi þau sér vel frá fólki. „Við höf-
um dregið mikið úr öllum ferðum
og það er engin samgangur hér milli
bæja eða gestir að koma til okkar.
Það var til dæmis mjög sérstakt að
upplifa páskana núna því venjulega
er hér fullt hús af fólki yfir páskana
en nú kom enginn. Akkúrat þegar
við fáum svona mörg páskalömb
eru engin börn hér til að leika við
þau en yngstu gestirnir hafa gjarn-
an kvartað yfir því að það séu eng-
in lömb komin um páskana,“ seg-
ir Sigrún.
arg/ Ljósm. aðsendar
Í Hallkelsstaðahlíð er einnig hestamiðstöð. Hér er Sigrún á fjörureið.
Góð aðstaða í hestamiðstöðinni í Hallkelsstaðahlíð.
Það er gott að kúra.
Þessi á myndast vel.
Forvitin um þessa myndavél.