Skessuhorn - 22.04.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 22. ApRíl 202024
Björg, bátur björgunarsveitarinn-
ar lífsbjargar í Snæfellsbæ, kom
úr slipp í Njarðvík í liðinni viku.
Björgin hafði verið í nokkurn tíma
í slipp þar sem meðal annars var
skipt um öxulþétti í báðum öxl-
um í skrúfubúnaði bátsins ásamt
því að öxulskoðun fór fram, fen-
derar voru lagfærðir enda voru
þeir illa farnir, stjórntæki yfirfarin
og barkar smurðir. Einnig er verið
að vinna að nýju haffæri fyrir bát-
inn. Skrokkurinn var allur blett-
aður en Björgin var nýmáluð þeg-
ar hún kom til hafnar í Snæfellsbæ
í fyrra. Þessi Björg kom frá ísafirði
í staðinn fyrir eldri bát sem kominn
var til ára sinna og vélar hans þar
af leiðandi orðnar þreyttar. Eins og
áður hefur verið sagt frá fór gamla
Björgin til Flateyrar og er öryggis-
bátur þar. þa
Háskólinn á Bifröst ætlar að koma
til móts við óskir um aukið náms-
framboð í sumar og skólinn opnað-
ur öllum. Mikill áhugi er fyrir fjar-
námi á sumarönn við skólann en
opnað var fyrir umsóknir um nám-
ið fyrir viku síðan og umsóknir eru
strax farnar að berast. Nemenda-
fjöldinn á sumarönn gæti tvöfaldast
ef marka má fyrstu viðbrögð. Há-
skólinn hefur nú opnað fyrir um-
sóknir nýrra nemenda sem ýmist
vilja innrita sig formlega í nám við
skólann strax á sumarönn eða taka
einstök námskeið. Enn fremur hef-
ur verið fjölgað námskeiðum fyrir
núverandi nemendur.
Háskólinn á Bifröst hefur boð-
ið upp á reglulegt nám á sumar-
önn fyrir nemendur í grunnnámi
sem hafa þannig getað stytt náms-
tíma sinn. Nú verður í fyrsta sinn
boðið uppá námskeið í meistara-
námi auk grunnnáms og námskeið-
um í Háskólagátt fjölgað. „Um-
ferð inn á heimasíðu skólans jókst
um 80% eftir að námið var kynnt
og ljóst að þúsundir einstaklinga
vildu kynna sér möguleikana. Það
skiptir miklu máli að námskeiðin
eru kennd í fjarnámi en Háskólinn
á Bifröst er í farabroddi í fjarnámi
meðal íslenskra háskóla og skólinn
hefur starfað hnökralítið nú þegar
mikil röskun hefur orðið almennt
á skólastarfi í landinu,“ segir í til-
kynningu frá skólanum.
Námskeið kennd í grunnnámi
eða meistaranámi gefa ECTS ein-
ingar í háskólanámi og námskeið í
Háskólagátt gefa FEIN einingar í
framhaldsskólanámi. Allar þessar
einingar í námi á Bifröst má flytja
milli skóla eftir því sem tilheyr-
ir hverri námsgrein og samkvæmt
reglum viðkomandi skóla um mat
á námi úr öðrum skólum. Þannig
geta námsmenn í öðrum skólum
hraðað námsframvindu sinni með
námi á sumarönn á Bifröst. Nám-
skeið í Háskólanum á Bifröst eru í
viðskiptafræði, lögfræði og félags-
vísindum en skólinn er viðskiptahá-
skóli. Háskólagáttin býður upp á
aðfararnám á framhaldsskólastigi
fyrir þá nemendur sem ekki hafa
lokið stúdentsprófi eða sambæri-
legu prófi til inngöngu í háskóla.
„Námskeiðin á sumarönn hafa
fyrst og fremst verið valnámskeið
í grunnnámi og viðbótarnámskeið
í Háskólagátt til að uppfylla sér-
stakar kröfur í stærðfræði, íslensku
eða ensku. í sumar verður bætt við
fleiri valnámskeiðum í grunnnám-
inu, ný valnámskeið boðin fram í
meistaranáminu og sérstök nám-
skeið verða í boði fyrir nemendur
sem vilja hefja nám í Háskólagátt.
Einstök námskeið eru kynnt sér-
staklega á heimasíðu Háskólans á
Bifröst og þar er hægt að nálgast
allar upplýsingar um námið.
Opið er fyrir umsóknir vegna
sumarannar fram til 4. maí. Um-
sóknafrestir fyrir haustönn eru 20.
maí í meistaranámi og 15. júní í
grunnnámi og Háskólagátt.“ mm
96% aðspurðra á íslandi telja að
stjórnvöld standi sig vel í viður-
eigninni við kórónuveiruna. íslend-
ingar eru ánægðastir allra þjóða
með frammistöðu sinna stjórnvalda
vegna COVID-19 samkvæmt al-
þjóðlegri könnun Gallups. Könn-
unin var gerð víðs vegar um heim-
inn í þessum mánuði en ísland er
eina Norðurlandaþjóðin sem tek-
ur þátt. Næstir á eftir íslending-
um þegar kemur að áliti á frammi-
stöðu stjórnvalda eru Indverjar.
93% þeirra eru sátt við framgöngu
stjórnvalda. Óánægjan er mest í
Taílandi og Japan þar sem í kring-
um 20 af hundraði segja að stjórn-
völd séu að standa sig vel. Þá telur
um helmingur Bandaríkjamanna að
stjórnvöld séu að standa sig og rétt
rúmlega helmingur Rússa er sáttur
við sín stjórnvöld.
mm
Háskólinn á Bifröst með nám
fyrir alla í sumar
Björgin komin úr slipp
Mest ánægja með
viðbrögð stjórnvalda
Dágóður hópur íþróttafólks af höf-
uðborgarsvæðinu stundar reglulega
sjósport við langasand á Akranesi.
Það sem einkennir þetta sport er
að það er einungis stundað í hvass-
viðri, þegar brimskaflar og öldurót
er við ströndina og vindur er um eða
yfir tíu metrar á sekúndu. Vopnað-
ir brettum og svifdrekum láta þeir
svo vindinn bera sig á haf út. Svif-
drekanum er stýrt með böndum og
með lagni fara þeir fram og aftur á
haffletinum jafnt undan sem móti
vindi. leika þeir svo listir sínar;
beygja og bókstaflega fara á flug.
Stundum lenda þeir svo í sjónum
en íþróttamennirnir eru klæddir
blautbúningum. Auk svifrekaflugs
eru einnig nokkrir sem sigla á segl-
brettum meðfram sjávarsíðunni.
í hvassviðri síðastliðinn föstu-
dag kom hópur karla á langasand.
Guðmundur Bjarki Halldórsson
mundaði þá stóru linsuna á mynda-
vélinni sinni og smellti nokkrum
myndum. leyfum þeim að tala sínu
máli.
mm
Svifið um ofan
við öldurótið