Skessuhorn - 22.04.2020, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 22. ApRíl 202028
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Uppsöfnuð viðhaldsþörf vegakerf-
isins sem tengist skorti á fjárveit-
ingum frá stjórnvöldum er ástæða
slæms ástands vega víða um land.
Að undanförnu hafa vegir verið að
koma mjög illa undan vetri og mikið
um holur og hvörf í vegum. Aukn-
ar fjárheimildir til uppbyggingar og
viðhalds duga ekki til að mæta van-
rækslu liðinna ára.
Nú er sá árstími og það tíðarfar
sem eykur hættuna á holumyndun-
um á vegum. í miklum umhleyp-
ingum og þegar þíða kemur í kjölfar
frosts og kulda eykst hættan á því
að holur myndist í bundnu slitlagi,
malbiki og klæðingu. Vegfarendur
eru því beðnir að sýna sérstaka ár-
vekni og aka ætíð eftir aðstæðum.
Tjón á ökutækjum
Það getur tekið skamman tíma fyrir
holu að myndast, jafnvel djúpa holu
sem getur leitt til tjóns. Starfsmenn
þjónustustöðva veghaldara fylgjast
með eins og kostur er og bregðast
við ábendingum um holur. Vega-
gerðin leitast við að bregðast við
með viðgerð sem allra fyrst. Þrátt
fyrir góðan vilja dugar þetta ekki
alltaf til og allt of margir bíleigend-
ur hafa ekið í djúpar holur með al-
varlegum afleiðingum. Inn til FíB
berast tilkynningar og ábendingar
frá fólki vegna sprunginna og tættra
hjólbarða, brotinna fjaðragorma og
alls konar annarra skemmda á far-
artækjunum. Það er sannarlega mál
að linni.
Gamalt slitlag
Víða má sjá holur í malbiki á leið-
inni á milli Hveragerðis og Selfoss
og eins á Hellisheiðinni og í Svína-
hrauni. Svanur Bjarnason, svæðis-
stjóri suðursvæðis Vegagerðarinnar
sagði í viðtali á RÚV í liðinni viku
að nú væri þessi tíð þegar hlýnar á
vorin, yfirborð veganna þiðnar og
oft veldur það skemmdum á slitlög-
um. Svanur bætti við að því miður
væru slitlögin víða orðin mjög göm-
ul og að viðhald hefði skort. Fram
kom í fréttinni að starfsmenn Vega-
gerðarinnar hefðu haft í nógu að
snúast við að laga og fylla í holur.
Verkefnið væri ærið en sökum mik-
ils álags hefði ekki tekist að mæta
öllum ábendingum vegfarenda um
holur með eins skjótum hætti og
vonast hefði verið eftir.
Það er ljóst að framundan inn í
vorið er mikil vinna við lagfæringar
og aðrar framkvæmdir. Stjórnvöld
ákváðu fyrir skemmstu að bæta við
einum milljarði króna til viðhalds á
vegum en það er allt eins víst að það
fjármagn dugi skammt þegar upp
verður staðið. Þörfin er augljós,
meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Smáskammtalækningar
Við uppbyggingu og lagfæringar
vega eftir veturinn hafa komið fram
gagnrýnisraddir um að sparnað-
ur og ódýrari aðgerðir við viðhald-
ið hafi komið illa við vegfarend-
ur. Töluvert hefur verið um notk-
un holubóta og fyllingu hjólfara á
verstu stöðunum í stað þess að end-
urnýja slitlagið. Á fáum árum verð-
ur vegakerfið ósléttara og ójafnara
sem eykur álag á ökutæki og dreg-
ur verulega úr akstursgæðum og ör-
yggi vegfarenda.
Sú spurning hlýtur að vakna hver
réttarstaða bíleigenda sé vegna
tjóna sem tengjast ástandi vega. í
lögum kemur fram að veghaldari
ber ábyrgð á því að vegi, sem op-
inn er almenningi til frjálsrar um-
ferðar, sé við haldið með eðlilegum
hætti miðað við þá umferð sem um
veginn fer.
Ábyrgð veghaldara
Jóhann Fannar Guðjónsson, lög-
fræðingur FíB, var inntur eftir því
hver ábyrgð veghaldara væri þegar
viðhaldi væri ekki sinnt sem skyldi
og hvort það hafi áhrif á ábyrgð
veghaldara þegar það er viðurkennt
að ástandið sé mun verra vegna þess
að fjárskortur hefur hindrað eðli-
legt viðhald sem leiðir til meiri
vandamála vegna mikils niðurbrots
og holumyndana?
Jóhann Fannar benti á að um
skyldur veghaldara fari skv. ákvæð-
um vegalaga nr. 80/2007. Þar sé
meðal annars kveðið á um skyldur
til viðhalds vega í 43. gr. laganna.
í 1. mgr. 43. gr. vegalaganna komi
fram að veghaldari beri ábyrgð á því
að vegum sem opnir eru almenn-
ingi til frjálsrar umferðar, sé við
haldið með eðlilegum hætti miðað
við þá umferð sem um veginn fer.
í 2. mgr. 43. gr. sé síðan kveðið á
um veghaldari skuli svo fljótt sem
við verður komið eftir að hann fær
vitneskju um skemmdir í vegi, sem
hættulegar eru umferð, láta gera við
þær eða merkja hina hættulegu staði
þar til viðgerð hefur farið fram. í
46. gr. laganna komi auk þess með-
al annars fram að veghaldari beri
ábyrgð á því að vegir sem opnir eru
almenningi til frjálsrar umferðar
skuli uppfylla kröfur sem gerðar eru
með tilliti til öryggis umferðar og
ástands vega.
Ef sannað þyki að veghald sam-
ræmist ekki þeim skyldum sem
vegalög leggja á herðar veghöldur-
um felist í því vanræksla sem verði
ekki afsökuð með fjárskorti, enda
gildi ákvæði laganna og skyldur
óháð fjárreiðum hverju sinni. í ljósi
þess að um lögbundnar skyldur sé
að tefla getur slíkt, að öðrum skil-
yrðum uppfylltum, leitt til bóta-
skyldu veghaldara. Bendir hann í
því sambandi á að samkvæmt 56. gr.
vegalaga beri veghaldari vegar, sem
opinn er almenningi til frjálsrar
umferðar, ábyrgð á tjóni sem hlýst
af slysi á veginum þegar tjónið er að
rekja til gáleysis veghaldara við veg-
haldið og sannað sé að vegfarandi
hafi sýnt af sér eðlilega varkárni.
FíB stendur vörð um hagsmuni
bifreiðaeigenda vegna tjóna sem
reka má til athafnaleysis veghald-
ara. Félagsmenn í FíB hafa sett sig
í samband við skrifstofu félagsins
sem segja nú þegar hafa orðið varir
við holumyndanir. Þetta eigi bæði
við á höfuðborgarsvæðinu og víðar
um land. Vegfarendur eru því beðn-
ir að sýna sérstaka árvekni og aka
ætíð eftir aðstæðum. FíB vinnur að
uppsetningu á vefsíðu sem fer í loft-
ið á næstunni þar sem vegfarendur
geta komið ábendingum um holur
á framfæri.
Ákvæði vegalaga nr. 80/2007 sem
vísað er til í þessari grein:
43. gr. Viðhald vega. Veg-
skemmdir.
Veghaldari ber ábyrgð á því að
vegi, sem opinn er almenningi til
frjálsrar umferðar, sé við haldið
með eðlilegum hætti miðað við þá
umferð sem um veginn fer.
Veghaldari skal svo fljótt sem við
verður komið eftir að hann hefur
fengið vitneskju um skemmdir á
vegi, sem hættulegar eru umferð,
láta gera við þær eða merkja hina
hættulegu staði þar til viðgerð hefur
farið fram og skulu merkingar vera í
samræmi við ákvæði umferðarlaga.
46. gr. Almennt.
Vegir sem opnir eru almenningi til
frjálsrar umferðar skulu uppfylla
kröfur sem gerðar eru með tilliti
til öryggis umferðar, ástands vega,
merkinga og annarra þátta sem
kveðið er á um í lögum þessum og
ber veghaldari ábyrgð á því.
56. gr. Bótaábyrgð
veghaldara.
Veghaldari vegar sem opinn er al-
menningi til frjálsrar umferðar ber
ábyrgð á tjóni sem hlýst af slysi á
veginum þegar tjónið er að rekja til
gáleysis veghaldara við veghaldið
og sannað er að vegfarandi hafi sýnt
af sér eðlilega varkárni.
Félag íslenskra
bifreiðaeigenda, FÍB.
Fjárskortur afsakar ekki vanrækslu veghaldara