Skessuhorn - 22.04.2020, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 22. ApRíl 2020 29
Markaðstorg Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
Nýfæddir
Vestlendingar
ýMIsLEGt
Finna leiðir til að efla þig og styrkja•
Fá upplýsingar um nám og störf•
Fá færni þína metna•
Fá aðstoð við ferliskrá eða færnimöppu•
Takast á við hindranir í námi og starfi•
Finna hvar styrkleikar þínir liggja•
Komdu þá til okkar og fáðu viðtal við
náms- og starfsráðgjafa sem mun aðstoða
þig eftir fremsta megni.
Pantaðu viðtal:
vala@simenntun.is eða í síma 437-2391.
Langar þig að:
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
15. apríl. Drengur. Þyngd: 4.490
gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar:
Emilía Ósk Olsen og Oliver
Glick, Stykkishólmi. Ljósmóðir:
Elísabet Harles.
Íbúð í Borgarnesi
Til leigu er 2ja herbergja
íbúð við Hrafnaglett 8 í
Borgarnesi. Íbúðin er á
þriðju hæð. Leiguverð er
120 þús. með hússjóði.
Laus um mánaðamót-
in apríl-maí. Upplýsingar í
síma 864-5542 eða í tölvu-
pósti: karlsbrekka@outlo-
ok.com.
Óska eftir geymslu
Óska eftir að leigja geymslu
undir búslóð frá júní til
september í Borgarnesi
eða nágrenni. Upplýsingar
í tölvupósti: huskall@gma-
il.com.
Óskast til leigu á Akranesi
Óska eftir að taka á leigu
stúdíóíbúð eða sambæri-
lega á Akranesi. Upplýsingar
gefur Guðmundur R. í síma
867-8911.
Bækur
Eldri bækur, fjöldi titla, gjafa-
verð. Upplýsingar í síma
467-2114.
Starfsmaður óskast
á tjaldsvæðin
í Borgarnesi og Varmalandi
Viðkomandi þarf að:
Vera sjálfstæður •
í vinnubrögðum
Hafa bílpróf•
Vera heiðarlegur•
Hafa góða samskiptahæfileika•
Tala góða ensku•
Góð laun í boði fyrir réttan einstakling
Vinsamlega sendið upplýsingar á
thorhak10@gmail.com fyrir 10. maí
Opnað hefur verið fyrir umsóknir
í viðskiptahraðalinn Til Sjávar og
sveita sem fram fer haustið 2020.
Óskað er eftir öflugum teymum
með verkefni sem snúa að hátækni
í matvælaiðnaði, nýjum lausnum
í landbúnaði og haftengdum iðn-
aði og betri nýtingu hráefna þar
sem sjálfbærni og nýsköpun eru
höfð að leiðarljósi. Sérstaklega er
óskað eftir nýjum tæknilausnum á
sviði smásölu, svo sem við birgða-
stýringu, greiðslumiðlun og flutn-
ing. Valin verða allt að tíu teymi í
hraðalinn sem hefst í lok ágúst og
lýkur í byrjun nóvember.
„Við viljum höfða til lands-
byggðarinnar allrar og munum því
leggja okkur fram við að nýta fjar-
fundatækni og skipuleggja hraða-
linn með þeim hætti að hægt sé
að takmarka ferðir til höfuðborg-
arsvæðisins þegar svo ber undir,“
segir Freyr Friðfinnsson, verk-
efnastjóri hjá Icelandic Startups.
Umsóknarfrestur í verkefnið
rennur út 15. júní n.k. Hrað-
allinn er samstarfsverkefni Ice-
landic Startups og Sjávarklas-
ans með stuðningi Matarauðs ís-
lands, Nettó og landbúnaðarklas-
ans. Nánari upplýsingar má finna
á vefsíðunni tilsjavarogsveita.is og
hjá Icelandic Startups.
-fréttatilkynning
Viðskiptahraðall fyrir nýjar lausnir
í matvælaiðnaði og á sviði smásölu
Hámarki á losun gróðurhúsaloftteg-
unda hér á landi var náð árið 2007.
Eftir hrun gætti töluverðs sam-
dráttar en síðan 2011 hefur losun
verið tiltölulega stöðug. losun sem
er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn-
valda var svo gott sem óbreytt milli
áranna 2017 og 2018, minnkaði um
0,1%. Þetta kemur fram í skýrslu
Umhverfisstofnunar. Þróun losun-
ar íslands, sem er á beinni ábyrgð
íslenskra stjórnvalda, samkvæmt
skuldbindingum íslands gagnvart
Evrópusambandinu, er sýnd á með-
fylgjandi grafi. Frá árinu 2005, sem
er viðmiðunarár fyrir skuldbind-
ingar íslands gagnvart Evrópusam-
bandinu, hefur losun dregist saman
um 6,3%. Hins vegar hefur losun
gróðurhúsalofttegunda verið nokk-
uð stöðug síðan 2012.
Helstu uppsprettur sem falla
undir beina ábyrgð íslenskra stjórn-
valda eru vegasamgöngur (33%),
olíunotkun á fiskiskipum (18%),
nytjajarðvegur (8%), losun frá kæli-
miðlum (6%) og losun frá urðunar-
stöðum (7%).
mm
Losum álíka mikið af gróðurhúsalofttegundum
Losun 2005-2017 sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda (kt CO2-ig). Graf:
Umhverfisstofnun.