Skessuhorn - 22.04.2020, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 22. ApRíl 2020 31
Stjórnir Fornbílafjelags Borgar-
fjarðar og Bifhjólafélagsins Raf-
tanna, en bæði félögin hafa aðset-
ur sitt í Brákarey í Borgarnesi, hafa
ákveðið að árleg stórsýning bíla og
mótorhjóla í Brákarey fellur niður
í vor. Sýningin hefur mörg undan-
farin ár verið haldin aðra helgina
í maí og ætíð verið vel sótt. Þá er
Samgöngusafnið í Brákarey enn
lokað vegna samkomutakmark-
anna, en það gæti breyst eftir 4. maí
næstkomandi þegar söfnum verð-
ur leyft að opna að nýju fyrir gesta-
komu. loks má geta þess að aðal-
fundi Fornbílafjelagsins, sem lög-
um samkvæmt skal halda að vori,
hefur verið frestað þar til í fyrri
hluta septembermánaðar.
mm
Brynhildur Traustadóttir sundkona
á Akranesi hefur skrifað undir skóla-
styrk við háskóla í Bandaríkjunum,
University of Indianapolis. Bryn-
hildur mun hefja nám þar í haust
ásamt því að æfa sund með háskóla-
liðinu. Hún hefur stefnt að þessum
áfanga í mörg ár og í tilkynningu
óskar stjórn Sundfélags Akraness
henni til hamingju með áfangann
og óskar henni góðs gengis.
mm
Sú ákvörðun hefur verið tekin af
landssambandi hestamannafélaga,
Félagi hrossabænda og Rangár-
bökkum, þjóðaleikvangi íslenska
hestsins ehf., að fresta landsmóti
hestamanna sem fara átti fram á
Hellu dagana 6. – 11. júlí. í sam-
ráði við Hestamannafélagið Sprett
mun mótið fara fram á Hellu sum-
arið 2022. Af þeim sökum verð-
ur landsmót hestamanna haldið í
Kópavogi árið 2024 í stað 2022 eins
og samningar gerðu ráð fyrir. Þeim
aðilum sem sótt höfðu um að halda
landsmótið 2024 hefur verið gefin
kostur á að færa þær umsóknir yfir
á landsmótið árið 2026.
„Sú heilsufarsvá sem stafar af
COVID-19 faraldrinum á heims-
vísu er ekki liðin hjá og mun hafa
ýmsar takmarkanir í för með sér á
næstu mánuðum. í máli sóttvarna-
læknis, Þórólfs Guðnasonar, hef-
ur komið fram að fjöldasamkomur
skuli takmarkaðar við 2000 manns
a.m.k. út ágústmánuð. landsmót
hestamanna er því of fjölmenn
samkoma til að hægt sé að halda
hana í sumar. Þeir sem keypt hafa
miða á viðburðinn munu fá tölvu-
póst frá tix miðasölu ásamt því að
allar upplýsingar eru aðgengilegar
á www.landsmot.is. Miðahafar geta
valið um þrennt a) fá endurgreitt b)
láta miðann gilda fram til 2022 eða
c) styrkja viðburðinn. Allar bókanir
á tjaldsvæðum verða endurgreiddar.
Fyrirspurnir varðandi viðburðinn
skal senda á landsmot@landsmot.
is en varðandi miðasölu á info@tix.
is,“ segir í tilkynningu.
Að endingu segir: „Öll él stytt-
ir upp um síðir. Málsaðilar senda
hestamönnum baráttukveðjur og
hvetja til þess að allir fari að útgefn-
um reglum og tilmælum Almanna-
varna ríkislögreglustjóra.“
mm
Bikarmeistarar Skallagríms í körfu-
bolta hafa gengið frá samningi við
Guðrúnu Ósk Ámundadóttur um
að stýra liðinu áfram á næstu leik-
tíð. Karfan.is greindi frá. Guðrún
Ósk er uppalin í Borgarnesi og tók
við liðinu fyrir ári síðan og náði frá-
bærum árangri á sínu fyrsta tímabili
sem aðalþjálfari. Skallagrímur lyfti
eins og kunnugt er fyrsta bikar-
meistaratitli félagsins undir henn-
ar stjórn fyrr í vetur, en liðið var í
fjórða sæti Dominos deildarinnar
þegar deildin var flautuð af vegna
Covid 19. „Mikil ánægja er með að
hafa Guðrúnu áfram við stjórnvöl-
inn og eftirvænting í loftinu fyrir
næsta tímabili,“ segir í tilkynningu
frá körfuknattleiksdeild Skalla-
gríms. mm
Stóri plokkdagurinn verður hald-
inn á Degi umhverfisins laugar-
daginn 25. apríl næstkomandi. Það
er von skipuleggjenda að sem flest
sveitarfélög, stofnanir og fyrir-
tæki hvetji almenning til þátttöku
og auðveldi hreinsun umhverfis-
ins með hvers kyns aðkomu og að-
stoð. „Samkomubann er alveg upp-
lagt til að taka á því í plokkinu. Frá-
bær útivera og hreyfing um leið og
við finnum fyrir tilgangi, sjáum ár-
angur, eflum núvitund og gerum
umhverfinu og samfélaginu okkar
gott. plokkið kostar ekkert og kall-
ar ekki á nein tæki nema ruslapoka.
Allsstaðar um landið eru öflugustu
plokkararnir þó löngu byrjaðir,“
segir í tilkynningu frá samtökunum
plokk á íslandi.
Samtökin eru hópur einstaklinga
sem ber virðingu fyrir umhverfinu
og hefur það sem áhugamál að fara
um illa hirt svæði og þrífa þar upp
plast, pappa og annað rusl sem fall-
ið hefur til frá íbúum, framkvæmd-
um eða þungaflutningum innan
marka sveitarfélaga, á girðingum
og í skurðum á víðavangi og síðast
en ekki síst við strendur landsins.
Hópurinn á sérsvæði á Facebook og
telja meðlimir hans rúmlega 6000
manns. Þar deila meðlimir sigrum
og áskorunum í umhverfismálum
og þar hvetja meðlimir hvor aðra til
dáða og birta myndir af rusli sem
tekið hefur verið úr náttúrunni og
fært á viðeigandi sorpmóttöku- eða
endurvinnslustöð. mm
Þjóðaröryggisráð íslands hefur
ákveðið að koma á fót vinnuhópi
til að kortleggja birtingarmynd-
ir og umfang upplýsingaóreiðu í
tengslum við COVID-19 hér á
landi og gera tillögur um aðgerð-
ir til þess að sporna gegn henni.
„íslensk stjórnvöld eru nú í sam-
starfi við önnur EES-ríki um að
sporna gegn upplýsingaóreiðu og
rangfærslum í tengslum við CO-
VID-19. Sjaldan hefur verið mikil-
vægara að almenningur hafi aðgang
að réttum upplýsingum eins og nú í
tengslum við þennan heimsfaraldur
sem nú geisar,“ segir í tilkynningu
frá forsætisráðuneytinu.
í vinnuhópnum eru þau Elfa
Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri
fjölmiðlanefndar, Kjartan Hreinn
Njálsson frá landlæknisembættinu,
Jón Gunnar Ólafsson doktor í fjöl-
miðlafræði, Anna lísa Björnsdótt-
ir samskiptamiðlafræðingur, Guð-
rún Hálfdánardóttir blaðamaður,
María Mjöll Jónsdóttir frá utanrík-
isráðuneytinu, Sigurður Emil páls-
son frá samgöngu- og sveitastjórn-
arráðuneytinu, Þorgeir Ólafsson
frá mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu og Þórunn J. Hafstein,
ritari þjóðaröryggisráðs, sem leiðir
starf hópsins.
mm
Framtakssamar stúlkur á Akranesi sem tóku sig til á síðasta ári og hreinsuðu rusl
úr umhverfinu. F.v: Ásdís Rebekka Karlsdóttir, Eva María Elíasdóttir og Tinna Dís
Orradóttir.
Stóri plokkdagurinn verður
á degi umhverfisins
Árleg stórsýning í
Brákarey fellur niður
Landsmóti hestamanna frestað um ár
Vinnuhópur gegn
upplýsingaóreiðu
Brynhildur á
háskólastyrk í USA
Guðrún Ósk lengst til hægri þegar bikarmeistaratitillinn var í höfn, hér ásamt
systrum sínum og foreldrum.
Samið um að Guðrún Ósk
þjálfi Skallagrím áfram