Morgunblaðið - 04.07.2020, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
B
irt
m
eð
fyrirvara
um
verð-
og
m
yndabrengl.
Verð á sjálfskiptum Korando DLX:
4.990.000 kr.
Fimm ára
ábyrgð
+ 178 hestöfl, 400 Nm
+ 2ja tonna dráttargeta
+ Fjórhjóladrif með læsingu
+ Ótrúlega rúmgóður
+ Gott aðgengi
+ Fimm ára ábyrgð
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Bílaríki, Akureyri
Glerárgötu 36
Sími: 461 3636benni.is
ÖRFÁ SÝNINGAREINTÖK Á LAGER!
1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020
Sex ráðherrar og Samtök fyrirtækja í
sjávarútvegi skrifuðu í gær undir
sameiginlega yfirlýsingu um hvata til
að draga úr kolefnisspori íslensks
sjávarútvegs. Þar er stefnt að því að
draga úr losun frá sjávarútvegi og
auka eftirspurn eftir heilnæmum ís-
lenskum fiski með samstarfi stjórn-
valda og atvinnugreinarinnar.
Með yfirlýsingunni er lagður
grundvöllur að formlegu samstarfi
stjórnvalda og sjávarútvegsins til að
tryggja að markmiðum Íslands í lofts-
lagsmálum verði náð, eins og það er
orðað í tilkynningu um yfirlýsinguna.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra, Bjarni Benediktsson, fjármála-
og efnahagsráðherra, Sigurður Ingi
Jóhannsson, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, Kristján Þór
Júlíusson, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, og Guðmundur Ingi
Guðbrandsson umhverfisráðherra
skrifuðu fyrir hönd stjórnvalda undir
yfirlýsinguna á lóð Ráðherrabústað-
arins við Tjarnargötu í gær, að lokn-
um fundi ríkisstjórnarinnar. Fyrir
hönd Samtaka fyrirtækja í sjávarút-
vegi skrifuðu undir Ólafur Marteins-
son, formaður SFS, og Heiðrún Lind
Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri
samtakanna.
Öll hluti af vanda og lausn
Fjármála- og efnahagsráðherra
hefur skipað starfshóp sem mun
vinna með fulltrúum greinarinnar að
tillögum til að draga úr losun og auka
kolefnisbindingu.
„Við erum öll hluti af vandanum og
því verðum við öll að vera hluti af
lausninni,“ sagði Bjarni Benediktsson
við þetta tilefni.
„Þær nauðsynlegu breytingar sem
verður að gera í loftslagsmálum á
næstu árum verða ekki að veruleika
nema við tökum höndum saman;
stjórnvöld, atvinnulíf og almenning-
ur.“
Fram kemur í yfirlýsingunni að um
98% af íslensku sjávarfangi sé selt á
erlendum mörkuðum og líta þurfi til
þess að þær aðgerðir sem ráðist er í
dragi ekki úr samkeppnishæfni ís-
lensks sjávarútvegs. Það sé raunhæft
markmið að íslenskur sjávarútvegur
verði kolefnishlutlaus og þannig skap-
ist tækifæri til þess að hámarka virði
þeirra verðmæta sem felast í auðlind-
um hafsins.
Sjö manns skipa starfshópinn en
formaður hans er Tómas Brynjólfs-
son, tilnefndur af fjármála- og efna-
hagsráðherra.
Dregið verði úr
kolefnisspori
sjávarútvegsins
Stjórnvöld og Samtök fyrirtækja
í sjávarútvegi sameina krafta sína
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Yfirlýsing Sex ráðherrar og fulltrúar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi rituðu undir samstarfsyfirlýsingu í gær.
Verkefni starfshópsins
» Tillögur að umfangi sam-
dráttar í losun frá sjávarútvegi
til ársins 2030
» Tillögur um innleiðingu fjár-
hagslegra hvata vegna m.a.
fjárfestinga í búnaði og kerfum
» Tillögur um hvernig megi
auka hlutfall endurnýjanlegra
orkugjafa í sjávarútvegi
» Tillögur varðandi íblöndun
lífeldsneytis og fýsileika þess í
rekstrarlegu tilliti
Umferð ökutækja á höfuðborgar-
svæðinu jókst á óvæntan hátt í ný-
liðnum mánuði að því er fram kemur
í umfjöllun Vegagerðarinnar. „Um-
ferðin í júní á höfuðborgarsvæðinu
jókst um 1,2 prósent sem kom á
óvart en þetta er fyrsti mánuður
þessa árs þar sem umferðin í mán-
uðinum er meiri en umferðin í sama
mánuði ári fyrr. Athygli vekur að
það er aukin umferð á mánudögum
sem stendur undir allri aukningunni.
Skýringar á aukinni umferð á mánu-
dögum eru ekki augljósar,“ segir á
vefsíðu Vegagerðarinnar um niður-
stöður úr umferðarmælingum á
mælisniðum á höfuðborgarsvæðinu.
Umferðin var 1,2% meiri í júní en í
sama mánuði á síðasta ári. Mest
jókst umferðin í mælisniði á Reykja-
nesbraut eða um 3,2% en 1,6% sam-
dráttur mældist í mælisniði á
Hafnarfjarðarvegi. Fara þarf aftur
til júní árið 2018 til að finna meiri
umferð um þrjú lykilmælisnið Vega-
gerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu.
„Svo virðist sem umferð á mánu-
dögum, í nýliðnum mánuði hafi tekið
stórt stökk uppávið því hún mældist
tæpum 12% meiri en á mánudögum í
sama mánuði fyrir ári síðan. Mánu-
dagar er jafnframt eini vikudagur
mánaðarins sem sýnir aukningu á
milli ára í júní þ.a.l. ber hann uppi
umrædda aukningu. Athygli vekur
að aukningin á mánudögum er lang
mest í öllum sniðum,“ segir í umfjöll-
uninni.
Er því nú spáð samkvæmt reikni-
líkani Vegagerðarinnar að yfir árið
allt verði rúmlega 9% samdráttur í
umferð á höfuðborgarsvæðinu.
9% samdráttur á Hringvegi
Umferðin á Hringveginum í júní
þróaðist með öðrum hætti en á
höfuðborgarsvæðinu og dróst hún
saman um 9% í mánuðinum, sem að
mati sérfræðinga Vegagerðarinnar
er mjög mikill samdráttur. Mestur
varð samdrátturinn á Mýrdalssandi,
þar sem 62% færri ökutæki fóru um
umferðarteljarann en í sama mánuði
fyrir ári.
Umferðin jókst á óvæntan hátt
Umferðin í júní 1,2% meiri en í sama mánuði í fyrra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umferð Búist er við 9% samdrætti á höfuðborgarsvæðinu yfir allt árið.