Morgunblaðið - 04.07.2020, Side 22
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Þegar Morgunblaðið hafði samband
við Þorberg Halldórsson, sem hefur
opnað skartgripaverslunina Prakt
Jewellery ásamt konu sinni Sigríði
Eddu Bergsteinsdóttur, var hann
önnum kafinn við að aðstoða við-
skiptavin sem fyrir nokkru hafði fest
hring á fingri sér. Bæði eru þau gull-
smiðir en það er erfitt að segja að
tækifærið hafi verið gullið til þess að
opna skartgripaverslunina í miðjum
kórónuveirufaraldri þar sem ferða-
mönnum hefur fækkað um 99% bæði
í apríl og maí og samtals 52% á árinu.
Eftir að hafa sagað hringinn sló Þor-
bergur á þráðinn og ræddi viðtök-
urnar fyrstu fjórar vikurnar.
„Þetta hefur gengið vonum fram-
ar. Maður vissi ekkert hvað maður
var að fara út í miðað við þessar
breyttu aðstæður en við höfum feng-
ið góðar undirtektir og það er ótrú-
lega mikið lífið í bænum finnst mér,“
segir Þorbergur við Morgunblaðið.
Hann segist hafa fulla trú á mið-
borginni sem framtíðarsvæði fyrir
verslun. Þau hjónin hafi ákveðið að
vera ofarlega á Laugavegi (82) til
þess að höfða bæði til Íslendinga en
einnig erlendra ferðamanna, en
vissulega séu forsendur breyttar
vegna kórónuveirufaraldursins.
„Ég var með verslun í miðbænum
fyrir um 12 árum og þegar ég lokaði
henni var bara bónus ef ferðamaður
datt inn. Með þessu vali á staðsetn-
ingu reynum við að höfða bæði til Ís-
lendinga og ferðamanna. Ég hef ver-
ið með annan fótinn í miðbænum frá
því ég byrjaði að læra til gullsmiðs
fyrir 40 árum. Ég hef séð miðbæinn
ganga í gegnum hæðir og lægðir og
held að hann sé á uppleið. Við höfum
fulla trú á miðborginni sem fram-
tíðarverslunarsvæði, enda eigum við
aðeins eina miðborg,“ segir Þor-
bergur.
Hærra verð gulls haft áhrif
Að hans sögn spannar mark-
hópurinn alla aldurshópa, Prakt er
með margar vörulínur á breiðu verð-
bili og pláss er á markaðnum fyrir
nýja skartgripaverslun.
„Það er alltaf rými fyrir nýja vöru
í okkar geira. Það hefur ekki verið
mikil fjölgun í gullsmíðinni á undan-
förnum árum. Þar hefur hærra
markaðsverð gulls sitt að segja sem
margfaldaðist eftir hrun. Þegar ég
var með rekstur rétt fyrir hrun fór
kílóið af gulli úr 1.200 þúsund krón-
um í 7,4 milljónir. Það hefur gert
yngri aðilum erfitt fyrir að fara alla
leið í rekstur. Hækkunin á gulli eftir
COVID-19 er ekki nema um 15%,“
segir Þorbergur. Spurður hvort ekki
sé óðs manns æði að opna skart-
gripaverslun á tímum veirunnar
segir hann aðlögunarhæfni rekstrar
þeirra hjóna skipta þar sköpum.
„Við framleiðum, hönnum og ger-
um allt sjálf og getum auðveldlega
aðlagað okkur að markaðnum. Við
erum einnig eigendur og framleið-
endur skartgripamerkisins SEB
sem hefur notið vinsælda hér heima
og erlendis. Öll okkar hönnun er
framleidd á verkstæðinu okkar og
við höfum ekki síst fundið fyrir já-
kvæðni í okkar garð vegna þess.
Þegar ferðamennirnir koma að lok-
um mun það einnig hjálpa. Þegar
fólk stendur við afgreiðsluborðið hjá
okkur horfir það yfir verkstæðið og
það heillar bæði Íslendinga og ferða-
menn þar sem fólk er mjög meðvitað
um að varan sem það er að versla sé
framleidd og hönnuð á staðnum.“
Hefur fulla trú á
verslun í miðborginni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Prýði Þau Þorbergur og Edda framleiða og hanna skartgripina í Prakt.
Markhópur Prakt Jewellery spannar alla aldurshópa
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Líkamsræktarkeðjan World Class
hefur hækkað verð á almennum
kortum um 15%. Verðið hafði verið
óbreytt frá ársbyrjun 2014.
Björn Leifsson, stofnandi og einn
eigenda World Class á Íslandi, segir
það hafa verið óhjákvæmilegt að
hækka verðið. Til að mynda hafi
launavísitala hækkað um 56% frá
ársbyrjun 2014 og vísitala neyslu-
verðs hækkað um 15,2%, en kortin
staðið í stað. Þá hafi til dæmis gjald
fyrir sundferð hækkað um 102% á
tímabilinu.
„Það hlýtur að segja sitt um að
það hafi skapast þörf fyrir hækkun.
Jafnframt reyndist kórónuveiran
okkur dýr. Það eru sex og hálft ár
síðan ég hækkaði verðið síðast. Það
er sennilega ekkert fyrirtæki á Ís-
landi sem getur státað af því. Ég var
orðinn ódýrastur á markaðnum.
Önnur fyrirtæki sem eru með lægra
þjónustustig en við vorum orðin
dýrari,“ segir Björn.
Fær meira fyrir þjónustu
„Við höfum opnað margar stöðvar
síðan í ársbyrjun 2014. Fólk er því að
fá miklu meira fyrir peninginn en
fyrir sex og hálfu ári,“ segir Björn
um þjónustustigið.
Eftir hækkunina fer mánaðarleg
áskrift úr 6.830 krónum í 7.850 krón-
ur og hækkar því um 15%. Um leið
hækkar baðstofukortið í Laugum úr
19.900 í 22.000 á mánuði. Það er um
10% hækkun. Þegar verðið hækkaði
síðast 2. janúar 2014 hækkuðu al-
mennu árskortin um 2,8%. Björn
segir að síðan hafi húsnæðiskostn-
aður, rafmagn og vatn hækkað í
verði og laun hækkað mikið.
Opna nýjar stöðvar
Fram kom í samtali Viðskipta-
Moggans við Björn í lok maí að
World Class hefði tapað um 600
milljónum króna vegna kórónu-
veirufaraldursins. Félagið hefði fjár-
magnað uppbygginguna í sam-
komubanninu með 500 milljóna
yfirdrætti hjá viðskiptabanka.
Björn segir áformað að taka nýja
stöð við sundlaugina á Hellu í notkun
í lok júlí. Þá verði ný World Class-
stöð opnuð í Grósku í lok ágúst og ný
stöð við Kringluna í lok september.
Jafnframt sé verið að leggja loka-
hönd á stækkun World Class-stöðv-
ar í Vallahverfinu í Hafnarfirði.
Aðspurður segir hann kórónu-
kreppuna ekki hafa haft önnur áhrif
á uppbyggingu félagsins en að fresta
stækkun stöðvarinnar við sundlaug-
ina á Selfossi.
Velta World Class var um 3,6
milljarðar í fyrra og var launakostn-
aður um 500 milljónir. Korthafar
voru um 49.300 í mars, fyrir farald-
urinn, en eru nú um 46.500.
15% verðhækkun
hjá World Class
Stofnandinn segir óhjákvæmilegt að
hækka verðið eftir sex og hálfs árs hlé
Morgunblaðið/Hari
Eigandi Björn Leifsson í ræktinni.
Bio-Kult Mind
Einbeitingin farin?
– sérð ekki út úr
NÝTT
Ný vara með áherslu á hugræna virkni.
Rannsóknir hafa sýnt að tenging á milli heila og
meltingarvegs (gut-brain-axis) er mikil og að
þarmaflóran gegni þar lykilhlutverki.
Bio Kult – stendur vörð um þína heilsu
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
4. júlí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.4
Sterlingspund 173.26
Kanadadalur 101.84
Dönsk króna 20.967
Norsk króna 14.618
Sænsk króna 14.936
Svissn. franki 146.73
Japanskt jen 1.2878
SDR 191.16
Evra 156.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.9743
Hrávöruverð
Gull 1771.85 ($/únsa)
Ál 1593.5 ($/tonn) LME
Hráolía 41.33 ($/fatið) Brent
● Kristófer Oliversson, formaður Fyrirtækja í hótel- og gisti-
þjónustu (FHG), segir gögn frá leitarvélum á netinu benda til
aukins áhuga Dana og Þjóðverja á ferðum til Íslands. Það hafi
hins vegar ekki skilað sér í sama mæli í bókunum.
„Við finnum aukinn áhuga frá Dönum og Þjóðverjum en það
er engin bókunarbylgja komin. Áhuginn birtist í fyrirspurnum
og leit í leitarvélum. Danir og Þjóðverjar virðast vera að taka
meira við sér en aðrir í þessu efni,“ segir Kristófer, sem telur
aðspurður þetta vísbendingu um að eitthvert hik sé á ferða-
mönnum í kjölfar kórunuveirufaraldursins. „Við vonum að lín-
urnar fari að skýrast á næstu tveimur vikum,“ segir hann.
Fjallað var um áhuga Þjóðverja á Íslandsferðum í Morgun-
blaðinu í gær en efnt var til kynningarherferðar í Þýskalandi til
að kynna Ísland sem öruggan áfangastað í faraldrinum.
Kristófer er jafnframt eigandi og framkvæmdastjóri CenterHótelanna. Hann
segir keðjuna hafa hótelin Miðgarð, Plaza og Arnarhvol opin í sumar, jafnvel þótt
eftirspurnin sé lítil í höfuðborginni. „Við erum með fólk á uppsagnarfresti og á laun-
um og endumetum stöðuna reglulega í ljósi eftirspurnarinnar,“ segir Kristófer.
Aukinn áhugi Dana og Þjóðverja á Íslandsferð
Kristófer
Oliversson
STUTT
● Krónan veiktist um 2,8% gagnvart
evrunni og 1,7% gagnvart Bandaríkjadal
í júní. Stóð evran í 155,3 krónum sam-
anborið við 150,9 krónur í lok maí að
því er fram kom í Hagsjá Landsbankans
í gær. Velta á gjaldeyrismarkaði nam
42,2 milljörðum króna í júní og þar af
nam hlutdeild Seðlabanka Íslands 11,9
milljörðum króna eða um 28%. Greip
bankinn sex sinnum inn á markaðinn í
júní en nettó kaup Seðlabankans á
gjaldeyrismarkaði námu 800 millj-
ónum króna í júní eða um sex millj-
ónum evra. Flöktið á krónunni gagnvart
evru í júní nam 9% en meðalflökt síð-
ustu 12 mánuði á undan nemur 6,7%.
Krónan veiktist lítillega
í júnímánuði