Morgunblaðið - 04.07.2020, Page 28

Morgunblaðið - 04.07.2020, Page 28
28 UMRÆÐAN Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020 Þegar krepputal ein- kennir allt samfélagið eftir pestina vondu þá er frábært að geta kynnt til sögunnar nýja sýningu, nýtt setur sem er skemmtun og menn- ing í senn. Þetta er Vín- landssetrið í Búðardal vestur í Dölum. „Land það sem kall- að er Grænland fannst og byggðist af Íslandi. Eiríkur hinn rauði hét maður breiðfirskur, sem fór út héðan þangað og nam þar land sem síðan er kallað Eiríksfjörður. Hann gaf nafn landinu og kallaði Grænland og kvað menn mundu fýsa þangað far- ar að landið ætti nafn gott.“ Svo segir í Ari í Íslendingabók. Og frá Grænlandi „fundu“ landar okkar undir forystu Leifs heppna Eiríkssonar Ameríku. Þess vegna verður opnað hér á landi Vínlandssetur í Leifsbúð 5. júlí næst- komandi. Og hvar nema vestur í Döl- um; í Búðardal. Stórhátíð. Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra opnar setrið. Hvað gerðist eiginlega? Hvað er hér eiginlega á seyði? Jú þannig er að Leifsbúð var tilbúin lang- leiðina. En þá kom hrun. Allir kipptu að sér hendinni. Eftir hrun þá kom Kjartan Ragnarsson sem hafði ásamt konu sinni Sigríði Margréti Guðjóns- dóttur stofnað Landnámssetrið í Borgarnesi. Þau kunnu að reka veit- ingastað og menningarstað í senn. Kjartan skrifaði sveitarstjórnum á Vesturlandi með hugmynd um að setja upp sýningu, sögulega sýningu, ekki síst fyrir ferðamenn. Enginn sveitarstjórnarmaður svaraði. Nema einn. Sveinn Pálsson, þáverandi sveit- arstjóri í Dalabyggð. Og niðurstaðan varð sú að sveitarstjórnin taldi rétt að ganga í verkið. Til varð nefnd sem var látin heita Eiríksstaðanefnd því hún var beint framhald af Eiríksstaða- nefndinni sem Friðjón Þórðarson veitti forystu og lét byggja tilgátubæ- inn að Eiríksstöðum í Haukadal sem opnaði árið 2000. Gengið í verkið Eiríksstaðanefndin kallaði til listamenn og hönnuði og safnaði pen- ingum. Miklu skipti að sjóðir menningar- og uppbyggingar á Vestur- landi tóku erindi okkar vel. En mestu skipti að ríkisstjórn landsins lagði til við Alþingi að verk- efnið fengi stuðninginn sem hvarf í hruninu. Al- þingi samþykkti. Og hér erum við. Allt að verða eða orðið tilbú- ið. Í Eiríksstaðanefnd störfuðu Rögn- valdur Guðmundsson, Svavar Gests- son, Örnólfur Thorsson, Sigríður M. Guðmundsdóttir, Kjartan Ragn- arsson og svo fulltrúi Dalabyggðar sem var Valdís Gunnarsdóttir fram að síðustu sveitarstjórnarkosningum en í stað hennar kom þá Þuríður Sigurðar- dóttir í nefndina. Þá hafa sveitar- stjórar Dalabyggðar starfað með nefndinni og haft forystu um verkið, fyrst Sveinn Pálsson en síðan Kristján Sturluson. Hvað er á sýningunni? Og hvað er í Vínlandssetri? Það er sýning um landafundina á efri hæð- inni og notalegur veitingastaður á neðri hæðinni. Það er vandi að setja upp svona sýningu. Þar hefur verið valinn til verka listamaður sem hefur meiri reynslu af uppsetningu safnasýninga en flestir aðrir, Axel Hallkell Jóhann- esson. Hugmyndafræðingurinn er Kjartan Ragnarsson. Sýningin er sett saman úr 43 atriðum. Tuttugu og þrjú atriði eru unnin af tíu íslenskum lista- mönnum. Það er sá hluti sýning- arinnar sem rekur efni Vínlandssagn- anna beggja, það er Grænlendinga- sögu og Eiríkssögu rauða. Í fyrsta þriðjungi sýningarinnar verður farið yfir þær rannsóknir, sem gerðar hafa verið á lífi norrænna manna á Grænlandi og í Ameríku. Söguþráður Vínlandssagnanna er síð- an unninn sjónrænt af listamönnunum tíu. Þau eru Aðalheiður Eysteins- dóttir, Finnur Arnarsson, Fjölnir Bragason, Helgi Björnsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hrund Atladótt- ir, Ingibjörg Ágústsdóttir, Kjartan Ragnarsson, Þórarinn Blöndal og Örn Sigurðsson. Verkin eru misstór og misjafnlega umfangsmikil. Mikilvægur stuðningur Mjólkursamsalan hefur verið rausnarleg við uppbyggingu sögu- legra menningarverkefna í Dölum. Í fyrra voru afhjúpuð fjögur forkunn- arfalleg söguskilti sem opnuðu það svæði sem við nú köllum Gullna sögu- hringinn. MS kostaði það verkefni en hefur ekki látið þar staðar numið. Núna sendir Mjólkursamsalan öllum Dalamönnum boðskort á sýninguna í Leifsbúð. Glæsilegt. Síðan tekur Mjólkursamsalan þátt í móttökunni í Dalabúð á opnunardaginn. Opnunarhátíðin 5. júlí hefst klukkan 15. Katrín forsætisráðherra opnar sýninguna formlega en á hátíð- inni koma einnig við sögu sendiherra Bandaríkjanna, fulltrúar Kanada og Grænlands, fyrsti þingmaður Norð- vesturkjördæmis og forstjóri stofn- unar Árna Magnússonar. Eftir opn- unina bjóða Dalabyggð og Mjólkur- samsalan til móttöku í Dalabúð. Bjarnheiður Jóhannsdóttir á Jörva hefur starfað með Eiríksstaðanefnd- inni en hún veitir nú forstöðu starf- seminni á Eiríksstöðum í Haukadal. Hún mun ásamt félögum sínum taka við rekstri Vínlandseturs frá 5. júlí. Með henni eru þau Reynir Guð- brandsson, Anna Sigríður Grétars- dóttir og Pálmi Jóhannsson auk Bjarnheiðar. Það er magnað að lítið byggðarlag skuli takast á hendur annað eins verkefni. Venjulega er ráðist í annars konar verkefni til að efla byggð í landinu. Hér er það menning. Sveitarfélagið hefur haft foryst- una; Dalabyggð á húsið og sýn- inguna. Til hamingju Dalamenn og landsmenn allir með þetta mikilvæga framlag til íslenskrar menningar. Skemmtun, menning og saga: Vínlandssetur Eftir Svavar Gestsson Svavar Gestsson » Í fyrsta þriðjungi sýningarinnar verð- ur farið yfir þær rann- sóknir, sem gerðar hafa verið á lífi norrænna manna á Grænlandi og í Ameríku. Söguþráður Vínlandssagnanna er síðan unninn sjónrænt af listamönnunum tíu. Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Söguskilti Myndin er frá þeim atburði þegar afhjúpað var söguskilti á afleggjaranum heim að Hjarðarholti í Dölum. Þarna er eitt skiltið af fjórum á Gullna söguhringnum en Mjólkursamsalan kostaði skiltin sem unnin voru að frumkvæði Sturlufélagsins. ARNARBÆLI í Ölfusi | Útimessa í Arnarbæli í Ölfusi kl.14. Kirkjukór Hveragerðis - og Kot- strandarsókna leiðir söng, organisti Ester Ólafsdóttir, prestur sr. Ninna Sif Svavarsdóttir. Messukaffi á eftir. Ef veðrið bregst flyst guðs- þjónustan inn í Kotstrandarkirkju. ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11. á ljúfum og léttum nótum. Sr. Þór Hauksson þjónar. Organisti Kristina K. Szklenár. Kaffi og spjall eftir. ÁSKIRKJA | Helgihald fellur niður vegna sumarleyfa sóknarprests og starfsfólks Ás- kirkju. Næst verður messað í kirkjunni sunnu- daginn 9. ágúst 2020 kl. 11. BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta með léttu ívafi kl 20. Svava Kristín Ingólfsdóttir mezzo- sópran og Antónía Hevesí píanóleikari ætla að flytja nokkur ljúf lög frá miðri síðustu öld, tón- list úr söngleikjum, óperu og önnur vinsæl lög sem öll fjalla um ástina og lífið. Prestur er séra Pálmi Matthíasson og messuþjónar lesa ritn- ingarlestra. DIGRANESKIRKJA | Sameiginleg messa Digraneskirkju og Hjallakirkju verður sunnu- daginn 5. júlí í Hjallakirkju kl 11. Prestur Karen Lind Ólafsdóttir. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir DÓMKIRKJA KRISTS KONUNGS, Landa- koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa og messa á pólsku kl. 19. DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11. Prestur séra Elínborg Sturludóttir. EGILSSTAÐAKIRKJA | Útimessa 5. júlí kl. 10:30 í Selskógi Egilsstöðum (útileikhúsi). Prestur Þorgeir Arason. Torvald Gjerde leikur á harmoniku. Almennur söngur. Eftir messu er boðið upp á grillaðar pylsur í skóginum. Tónlistarstund í Egilsstaðakirkju 5. júlí kl. 20. Ásdís Arnardóttir selló og Jón Sigurðsson pí- anó. Enginn aðgangseyrir. Tónlistarstund í kirkjunni fim. 9. júlí kl. 20. Tor- vald Gjerde, organisti kirkjunnar, spilar á orgel. Enginn aðgangseyrir. GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsamessa verður í Grafarvogskirkju sunnudaginn 5. júlí kl. 11. Séra Grétar Halldór Gunnarsson þjónar og org- anisti er Hákon Leifsson. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl 11. Ljúf og góð morgunstund, séra Pálmi Matthíasson þjónar og félagar úr kór Grensáskirkju syngja við undirleik Ástu Haraldsdóttur. Messuþjónar lesa ritningarlestra og boðið er upp á hress- ingu eftir messuna. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sumarkirkjan, samstarfsverkefni kirkna í Hafnarfirði og Garðabæ. Guðsþjónusta í Garðakirkju á Álfta- nesi kl. 11 alla sunnudaga í sumar. Kaffisopi á eftir í Króki. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Hádegismessa kl. 12 miðvikudag. Bænastundir kl. 12 fimmtudag og föstudag. Orgelsumar í Hallgrímskirkju: Tón- leikar fimmtudag kl. 12. Erla Rut Káradóttir leikur. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sameiginleg messa Digraneskirkju og Hjallakirkju verður sunnudaginn 5. júlí í Hjallakirkju kl 11. Prestur Karen Lind Ólafsdóttir. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir LINDAKIRKJA í Kópavogi | kl. 11. Sunnu- dagaskóli. kl 20. Guðsþjónusta. Áslaug Helga Hálfdán- ardóttir og Matthías Baldursson sjá um tónlist- ina. Sr. Dís Gylfadóttir þjónar. NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir guðsþjónustu. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestsþjón- ustu sinnir sr. Axel Á. Njarðvík héraðsprestur og Ester Ólafsdóttir er organisti. Kórfélagar leiða söng safnaðarins og þú ert velkomin(n). STÓRUBORGARKIRKJA Grímsnesi | Bæna- og kyrrðarstund við kertaljós, fimmtu- dagskvöld 9. júlí kl. 20.30. Sr. Egill Hall- grímsson annast stundina. Óvenjuleg en ein- föld stund við hlið himinsins. ÚTHLÍÐARKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag kl. 16. Sr. Egill Hallgrímsson annast prests- þjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. Hlýleg stund í húsi Drottins. Orð dagsins: Verið mis- kunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur. (Lúk 6.36-42) Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reynisstaðarkirkja Halla Lögg. fast. 659 4044 Ólafur Sölu- og markaðsstjóri 690 0811 Ellert Sölustjóri 661 1121 Sigþór Lögg. fast. 899 9787 Hafrún Lögg. fast. 848 1489 Bárður Sölustjóri 896 5221 Elín Urður Lögg. fast. 690 2602 Elín Rósa Lögg. fast. 773 7126 Lilja Sölufulltrúi 820 6511 Kristján Sölufulltrúi 691 4252 Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.