Morgunblaðið - 04.07.2020, Side 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2020
✝ Messíana Mar-zellíusdóttir
fæddist 18. maí
1942 á Ísafirði. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Vestfjarða
á Ísafirði þriðju-
daginn 24. mars
2020.
Foreldrar henn-
ar voru Marzellíus
Bernharðsson f. 16.
ágúst 1896, d. 2.
febrúar 1977 og Alberta Al-
bertsdóttir, f. 11. febrúar 1899,
d. 24. febrúar 1987.
Messíana var yngst 13 systk-
ina. Látin eru Jónína Jóhanna,
Stefanía Áslaug, Kristján
Sveinn, Guðmundur Jón Dan,
Kristín, Sigríður Guðný, Helga
Þuríður, Kristinn, Bettý og Sig-
urður Magni. Eftirlifandi bræð-
ur eru Þröstur og Högni.
Þann 30. desember 1961 gift-
ist Messíana Ásgeiri S. Sigurðs-
syni, f. 21. nóvember 1937, d. 20.
apríl 2019. Þau eignuðust þrjár
dætur: a) Þórlaug Þuríður, f. 3.
október 1961. Börn hennar og
Þrastar Kristjánssonar eru: Hel-
ena Björk, f. 18. ágúst 1981, d.
21.júlí 2017. Ásgeir Helgi, f. 8.
nóvember 1988. sonur hans og
Blómeyjar Ó. Karlsdóttur er
Máni Þór, f. 17. júlí 2017. Sam-
býlismaður Þórlaugar er Finn-
bogi Karlsson, f. 12. mars 1956.
b) Helga Alberta, f. 15. janúar
1963. c) Sigríður Guðfinna, f. 17.
júlí 1966. Eiginmaður hennar er
Gunnar Skagfjörð Sæmundsson
f. 14. október 1969. Dóttir Sig-
ríðar og Heimis Brynjarssonar
er Andrea Messíana f. 26. janúar
1995. Börn Gunnars eru Logi
Leó, f. 25. júní 1990 og Dögg
Patricia f. 19. mars
1994.
Messíana ólst
upp á Ísafirði og
bjó þar alla tíð. Hún
stundaði píanónám
við Tónlistarskól-
ann á Ísafirði undir
handleiðslu Ragn-
ars H. Ragnar.
Að loknu gagn-
fræðaprófi stund-
aði hún píanónám
hjá Jóni Nordal í Reykjavík í eitt
ár og nokkru síðar fór hún í
Húsmæðraskólann á Laugum í
Þingeyjarsýslu. Messíana stund-
aði verslunarstörf í nokkur ár,
en lengst af starfaði hún sem pí-
anó- og harmóníkukennari við
Tónlistarskólann á Ísafirði.
Messíana starfaði lengi í Sjálfs-
björgu á Ísafirði og var formað-
ur um árabil og var hún sæmd
gullmerki samtakanna árið
2015. Hún var einn af stofn-
endum kvennastúku Oddfellow
á Ísafirði og var organisti stúk-
unnar í 40 ár. Messíana var virk-
ur félagi í Harmóníkufélagi
Vestfjarða ásamt Ásgeiri eig-
inmanni sínum, sem safnaði
harmóníkum um langt skeið.
Árið 2008 afhentu þau hjónin
Ísafjarðarbæ 140 harmóníkur
að gjöf en í dag telur Harm-
óníkusafn Ásgeirs S. Sigurðs-
sonar ríflega 220 harmóníkur.
Messíana var heiðruð árið 2008
af Sambandi íslenskra harm-
óníkuunnenda fyrir starf í þágu
harmóníkunnar.
Í ljósi aðstæðna fór útför
hennar fram í kyrrþey.
Minningarathöfn verður
haldin í dag, 4. júlí 2020, kl. 14 í
Ísafjarðarkirkju.
Elsku mamma.
Þá er komið að leiðarlokum.
Mamma var einstaklega
hjartahlý og skemmtileg kona.
Alltaf stutt í hláturinn og það sem
hún gat hlegið! Henni féll sjaldan
verk úr hendi, hún var mikil
handavinnukona og þeir eru
margir fallegir harðangursdúk-
arnir og sængurveramilliverkin
sem eftir hana liggja.
Við systur gátum alltaf treyst
því að ef eitthvað stóð til í fjöl-
skyldunni var mamma mætt til að
aðstoða.
Minningakistan okkar er full af
góðum og kærleiksríkum minn-
ingum sem við geymum í hjarta
okkar.
Guð þig leiði sérhvert sinn
sólarvegi alla.
Verndarengill varstu minn
vissir mína galla.
Hvar sem ég um foldu fer
finn ég návist þína.
Aldrei skal úr minni mér
mamma, ég þér týna.
(Jón Sigfinnsson)
Elsku mamma, við kveðjum
þig í dag með vissu um að þau tvö
sem fóru á undan þér í sumar-
landið hafa tekið vel á móti þér.
Þórlaug Þuríður,
Helga Alberta og
Sigríður Guðfinna.
Við erum fjórar systur, dætur
Áslaugar Tulinius sem var næst-
elst í stóra Massapúkahópnum á
Austurvegi 7 á Ísafirði. Messí var
yngst og tæp 20 ár á milli þeirra
systra. Við höfum allar lifað öllu
okkar lífi með Messí innanborðs
og það eru mörg ár. Við setjumst
og ornum okkur við eld minning-
anna og vissulega stafar hita og
hlýju frá þeim minningum. Messí,
baldna, stríðna og jafnvel óþekka
uppáhald allra, bæði foreldra
sinna og systkina. Hún gat reynt
á þolrifin með uppátækjum sín-
um, eins og að mála sig og nagla-
lakka. Burt með þetta og í ruslið!
Berta man eftir að amma Berta
krafðist þess að Messí hellti
naglalakkinu í vaskinn og að þá
grét Messí reiðitárum. Þegar
Messí fermdist var samt ýmislegt
leyft: hún skyldi fá fallegasta
kjólinn, hann sáu eldri systurnar
um, og svo skyldi hún vera með
fallegar krullur í hárinu. Hún
varð yndisfögur, því gleymir eng-
inn. Hún giftist ung Ásgeiri og
mikið vorum við heppnar því við
elskuðum allar Ásgeir og síðan
allar stelpurnar þeirra. Við feng-
um að taka talsverðan þátt í upp-
eldinu á þeim, því mamma og
Messí voru nánar og mamma bjó í
Reykjavík, þangað sem sækja
þurfti læknisþjónustu og milli-
lenda á ferðalögum út í lönd.
Pabba okkar, Axel, var það ákaf-
lega ljúft að þjónusta Messí og
Helgu á mörgum ferðalögum
þeirra til Danmerkur. Við bund-
umst öll sterkum böndum.
Hrefna hóf sinn kennsluferil,
ófrísk, einstæð móðir í Barna-
skóla Ísafjarðar. Er hún þakklát
Messí fyrir einstök vinahót og
hvatningu, vinur í raun. Helga
minnist hennar sem gáskamikill-
ar ungrar konu sem lék sér með
okkur þótt hún og Guðrún væru
litlu systurnar og fannst Helgu
sjálfsagt að þjónusta hana með
pantanir úr verslunum í Reykja-
vík síðar meir. Guðrún man eftir
leyndarmáli sem Messí sagði
henni, sem mun nú koma í ljós:
hún reykti sígó og leyfði okkur að
prófa. Varðveitt leyndarmál þar
til nú.
Messí var tónlistarkennari.
Hún lék á píanó og harmónikku.
Hvað við vorum hrifnar af þessu.
Skemmtilegt að fá að njóta þess-
ara óvæntu hæfileika í fjölskyldu
þar sem iðnmenntun var eðlilega
í heiðri höfð. Kannski naut hún
þess að vera yngst og tónlistar-
skólinn tekinn til starfa. Hún náði
að leika við jarðarfarir flestra
systkina sinna, nema mömmu, en
sendi í stað þekktan harmónikku-
leikara.
Við kveðjum Messí klökkar en
ákaflega þakklátar fyrir stórar
stundir, oftast gleði, því hún var
þeim ótrúlega hæfileika gædd að
geta alltaf kveikt á gleðinni þrátt
fyrir erfiðar stundir. Mamma og
hún töluðu iðulega í síma og var
alltaf hlegið, að minnsta kosti
einn stórbrandari í hverju sím-
tali. Takk, Messí, fyrir vináttuna,
traustið og gleðina. Takk fyrir
allar heimsóknirnar bæði austur
á land til Bertu og Helga á hús-
bílnum og til Reykjavíkur. Sam-
úðarkveðjur til fjölskyldunnar,
einkum systranna þriggja, fjöl-
skyldna þeirra og eftirlifandi
bræðra. Kveðjur senda börnin
okkar sem fengu einu sinni hangi-
kjöt og uppstúf í morgunmat,
sem Ásgeir og Messí höfðu boðið
okkur í að morgni jarðarfarar-
dags Öddu, elstu systurinnar. Sá
matur líður þeim seint úr minni.
Hrefna, Berta, Guðrún
Halla og Helga Tulinius.
Litla systir hennar mömmu,
eins og ég kallaði hana gjarnan,
hún Messý Massa, lést hinn 24.
mars sl.
Helga dóttir hennar tilkynnti
mér fjórum dögum áður að hún
hefði dottið heima hjá sér og ver-
ið flutt á sjúkrahúsið til skoðunar.
Hún hlaut beinbrot sem var ekki
hægt að meðhöndla og tæplega
fjórum sólarhringum síðar and-
aðist Messý frænka mín.
Það voru 16 ár á milli okkar,
hún var yngsta barn ömmu minn-
ar og afa. Ég ólst upp á heimili
þeirra, þar sem við mæðgur
bjuggum. Systkin mömmu urðu
þannig eiginlega eins og systkin
mín.
Messý lærði á píanó, það var í
stofunni á æskuheimilinu okkar.
Þegar hún hafði kynnst honum
Ásgeiri sínum bjuggu þau fyrstu
árin með dæturnar í íbúðinni fyr-
ir ofan ömmu og afa. Þar kenndi
Messý á píanó. Ekki tókst nú bet-
ur til með mig en það, að ég var
nemandi hennar hluta úr vetri
þegar ég var sjö ára. Sumarið eft-
ir fæddist Sigga yngsta dóttir
þeirra, en þá fékk ég stundum að
gæta hennar á meðan Messý
sinnti píanókennslu.
Miðdóttirin var skírð á heimili
þerra og man ég eftir að Messý
trúði mér, þá á fimmta ári, fyrir
nöfnunum, sem henni voru valin.
Þetta gekk eftir, ég þagði og
barnið var skírt nöfnum móður
minnar og móður Messýjar. Ég
hef alltaf verið mjög ánægð með
þetta val og að sjálfsögðu frænku
mína sem ber nöfnin Helga Al-
berta.
Síðar fluttu þau niður í Smiðju-
götu og fór ég oft þangað til að
passa stelpurnar, þrátt fyrir að
sú elsta sé bara þremur árum
yngri en ég. Dætur Messýjar
hafa líka alltaf verið mér eins og
systur, það var mikill samgangur
okkar á milli.
Síðar unnum við Messý báðar í
Ljóninu, búð sem afi átti, einnig
Runný æskuvinkona og mágkona
Messýjar. Þær vinkonurnar eign-
uðust dætur með eins dags milli-
bili, en eldri dæturnar voru skírð-
ar daginn sem foreldrar þeirra
giftust. Frænkurnar voru mikið
saman, tvö sett af vinkonum.
Fyrir þremur áratugum vann
ég í tvö ár í Tónlistarskóla Ísa-
fjarðar þar sem Messý var tón-
listarkennari. Hún var þá byrjuð
að kenna á harmoniku, sem var
lengst af „hljóðfærið hans Ás-
geirs“.
Hann hélt mikið upp á harm-
oniku, spilaði og eignaðist stórt
safn af þeim. Harmonikusafnið er
núna í eigu Ísafjarðarbæjar.
Safnið stækkaði ört og var lengst
af á heimili þeirra á Urðarvegin-
um.
Framan af var Messý sú eina
úr fjölskyldunni sem tengdist
tónlist. Hún var þá gjarnan feng-
in til að spila fyrir okkur hin. Ég
man eftir tilfellum þar sem hún
spilaði á lítil kirkjuorgel, t.d. við
húskveðjuna hjá ömmu og afa
þegar Finnur Guðni föðurbróðir
hennar var kvaddur. Yngsta dótt-
irin, sem fæddist sama ár, var
skírð eftir honum.
Margs er að minnast, margt er
hér að þakka, hafðu þökk fyrir
allt og allt elsku Messý mín.
Innilegar samúðarkveðjur til
fjölskyldunnar, sem hefur nú
misst svo mikið á stuttum tíma.
Bænum mínum heima hjá
Hlíðar brekkum undir
er svo margt að minnast á,
margar glaðar stundir.
Því vill hvarfla hugurinn,
heillavinir góðir,
heim í gamla hópinn minn,
heim á fornar slóðir.
(Þorsteinn Erlingsson)
Áslaug og Magnús á
Austurveginum.
Ég var átta ára þegar ég fékk
loksins að byrja í tónlistarskólan-
um heima á Ísafirði. Eftir nokkra
umhugsun ákvað ég sjálfur að
læra á harmóníku. Hver ástæðan
var nákvæmlega veit ég ekki en
þvílíkt gæfuspor sem það var.
Harmóníkukennarinn var
Messíana, Messý, og kennslustof-
an fyrstu árin herbergi í húsi
hennar og Ásgeirs á Urðarvegi.
Þrátt fyrir að oft væri barningur
að komast þangað uppeftir í snjó
með hljóðfærið og það á samvisk-
unni að kannski var maður ekki
nægilega vel undirbúinn, var allt-
af gott að koma til Messýjar. Ég
tel fullvíst að þannig hafi okkur
öllum nemendum hennar liðið.
Hún var svo góð við okkur og
passaði að það væri gaman.
Enda sýndi það sig að eftir því
sem árin liðu fjölgaði nemendum
hennar jafnt og þétt og úr varð
stór hópur nemenda á öllum stig-
um. Þetta hefur án efa blásið
Messý og Ásgeiri byr undir
vængi því þau höfðu óbilandi
áhuga á að efla harmóníkulíf
Vestfjarða og um land allt. Messý
var brautryðjandi í kennslu á
hljóðfærið og við nemendur henn-
ar fyrst til að taka samræmd
stigspróf – Tónlistarskóli Ísa-
fjarðar var mekka harmóníku-
kennslu landsins undir hennar
forystu. Það vildu þau heiðurs-
hjón sýna.
Það skal engan undra að eftir-
minnilegar eru ferðir með Messý
og Ásgeiri á mót harmóníkuunn-
enda á Siglufirði og Núpi í Dýra-
firði, æfingar með flottu körlun-
um í Harmóníkufélagi Vestfjarða
í skipasmíðastöðinni síðdegis á
sunnudögum, nemendakvöld með
kóki og snakki á Urðarveginum,
lyktin í nikkuherberginu. Hin
óendanlega gæska sem skein af
Messý.
Þó svo að ég grípi ekki oft í
hljóðfærið í dag og vitnisburður
um nám mitt í skólanum oft að ég
mætti æfa mig betur heima veit
ég að tónlistartímarnir hjá Messý
veittu mér gott veganesti út í lífið
sem ég bý enn að.
Megi minningin um brautryðj-
andann, kennarann og vinkonu
mína lifa.
Greipur Gíslason.
Messíana
Marzellíusdóttir
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
RAGNHEIÐAR JÚLÍU GÍSLADÓTTUR
frá Súðavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og
hjúkrunarheimilisins Eyrar, Ísafirði.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigurgeir Garðarsson Jónína Hansdóttir
Þráinn Ágúst Garðarsson Sawai Sara Kham
Gísli Garðarsson Kristín Jónsdóttir
Hansína G. Garðarsdóttir Finnbogi Hermannsson
Gerður Ragna Garðarsdóttir Ægir Sigurgeirsson
Smári Garðarsson Karítas Halldórsdóttir
Björn Jónsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir,
mágur og afi,
RAGNAR INGIMUNDUR ÁGÚSTSSON
fyrrverandi leigubifreiðastjóri,
lést á heimili sínu í Reykjavík 29. júní.
Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Ásgerður María Ragnarsd.
Íris Lilja Ragnarsdóttir Guðjón Örn Ingólfsson
Linda Hrönn Ágústsdóttir Einar Ágústsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BERGUR KARLSSON
frá Gilsárstekk í Breiðdal,
sem lést 2. júlí síðastliðinn, verður
jarðsunginn frá Heydalakirkju í Breiðdal
fimmtudaginn 9. júlí klukkan 14.
Valdís Heiða Þorleifsdóttir
og fjölskylda
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar elskulega
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
BJARNA RAGNARS
LÁRENTSÍNUSSONAR
húsasmíðameistara,
Skólastíg 14a, Stykkishólmi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra í
Stykkishólmi og starfsfólks St. Fransiskusspítalans í
Stykkishólmi.
Anna María Bjartmars
Sólborg Olga Bjarnadóttir
Bjartmar Bjarnason Guðrún Helga Gylfadóttir
Unnar Freyr Bjarnason Anna Margrét Guðmundsd.
Sigurður Ragnar Bjarnason Anna Sigríður Melsteð
barnabörn og barnabarnabörn
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 11-16 virka daga