Morgunblaðið - 07.07.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2020
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
buxur
Kr. 7.900.-
Str. 36-52
Litir: svart, hvítt, beige og blátt
Glæsilegar og vandaðar íbúðir fyrir 60 ára og eldri
Íbúðirnar eru frá 44,7 m2
Verð frá: 42,5 millj.
Hlíðasmári 6. Sími: 510 7900. lind@fastlind.is
Nánari upplýsingar
60 ÁRA OG ELDRI
Einstaklings-, 2ja og
3ja herbergja íbúðir
Vandaðar innréttingar
og tæki frá
Bræðrunum Ormsson
Steinborðplötur
Votrými flísalögð
Mynddyrasímar
Stæði í bílakjallara
með flestum íbúðum
Glæsilegt útsýni og
stutt í útivist og alls
kyns þjónustu
LÁRA ÞYRI
EGGERTSDÓTTIR
Lögg. fasteignasali
B.A. í lögfræði
899 3335
lara@fastlind.is
STEFANÍA BJÖRG
EGGERTSDÓTTIR
Viðskiptafræðingur
895 0903
stefania@fastlind.is
Hraunbær 103 (a, b, c.)
OPIÐ
HÚS
laugard.
30. maí
og sunnu
d. 31. ma
í
kl. 15:00-
16:00
miðvikud
ag 8. júlí
kl. 12.15-
12.45
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráð-
herra, afhenti í gær skýrslu sína til
utanríkisráðherra Norðurlandanna,
en þar setti hann fram tillögur um
þróun samstarfs ríkjanna á sviði
utanríkis- og öryggismála.
Birni var falið verkefnið á fundi
ráðherranna í október síðastliðnum
að tillögu Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar, utanríkis- og þróunarsam-
vinnuráðherra Íslands, en þá voru lið-
in tíu ár frá því Thorvald Stoltenberg,
fyrrverandi utanríkisráðherra Nor-
egs, var falið að rita sambærilega
skýrslu.
Guðlaugur Þór segir í frétta-
tilkynningu utanríkisráðuneytisins að
norrænt samstarf hafi dafnað á und-
anförnum árum og áratugum, og að
tímabært sé að skoða í kjölinn með
hvaða hætti megi efla það samstarf
enn frekar. „Tillögur Björns eru
mjög áhugaverðar og ég vonast til
þess að þær komist sem flestar til
framkvæmda á næstu mánuðum og
árum,“ segir Guðlaugur Þór.
Í skipunarbréfi Björns var honum
falið að beina athygli sinni að lofts-
lagsbreytingum, fjölþáttaógnum og
netöryggi auk leiða til að efla fjöl-
þjóðasamstarf og virðingu fyrir al-
þjóðareglum. Þá segir Björn í inn-
gangi að óhjákvæmilegt hafi verið að
skoða áhrif heimsfaraldursins, enda
muni hann hafa áhrif á norrænt og al-
þjóðlegt samstarf í nútíð og framtíð.
Í fréttatilkynningu norrænu utan-
ríkisráðherranna þakka þeir Birni
fyrir mikilvægt starf. Tillögur hans
verða ræddar á septemberfundi ráð-
herranna, en hann verður haldinn í
Kaupmannahöfn. Skýrslan er á ensku
og aðgengileg öllum á heimasíðu
utanríkisráðuneytisins. sgs@mbl.is
Utanríkismál Björn Bjarnason afhendir Guðlaugi Þór skýrsluna.
Tillögur um efl-
ingu samstarfsins
Skýrsla Björns afhent ráðherrum
Færeyski sjávarklasinn var nýverið
stofnaður og gerður hefur verið
samningur við Íslenska sjávarklas-
ann um samstarf klasanna. Hyggj-
ast þeir efla samvinnu sín í milli og
stuðla að auknu samstarfi frænd-
þjóðanna á öllu er við kemur bláa
hagkerfinu.
Íslenski sjávarklasinn mun lið-
sinna Færeyska sjávarklasanum við
uppbyggingu á fyrstu misserunum,
m.a. með því að kynna hvernig
klasastarfsemin hefur farið fram
hérlendis og áherslur Íslenska sjáv-
arklasans á fullvinnslu afurða, efl-
ingu sprotafyrirtækja og nýsköp-
unar, segir í tilkynningu.
Sá færeyski er fimmti klasinn sem
verður til utan Íslands. Fyrir eru
sjávarklasar í Maine-, Alaska-,
Washington- og Massachusetts-
ríkjum í Bandaríkjunum. Fleiri ríki í
Bandaríkjunum og önnur lönd hafa
sýnt því áhuga að stofna sjávarklasa
að íslenskri fyrirmynd. Færeyski
klasinn getur nýtt sér þetta tengsl-
anet klasa og liðsinnt jafnframt
þannig færeyskum fyrirtækjum sem
hyggjast efla útrás.
„Við erum afar ánægð með að fá
vini okkar í Færeyjum af stað í
þessa vegferð. Von okkar er að
byggt verði á svipaðri hug-
myndafræði þar og hér og að það
takist að efla frumkvöðlastarfsem-
ina,“ segir Þór Sigfússon, stjórn-
arformaður Íslenska sjávarklasans,
en klasinn hefur unnið að verkefni
sem lýtur að því að kynna hvernig
efla megi hafnir sem vettvang ný-
sköpunar á Norðurlöndunum. Verk-
efnið nefnist „NordMar Ports“ og er
stutt af Norðurlandaráði. „Þetta
samstarf gefur okkur tækifæri til að
kynna betur þau tækifæri sem við
teljum að felist í nýsköpunarstarf-
semi eins og í Húsi sjávarklasans,“
er haft eftir Þór í tilkynningunni.
Nokkur af stærstu sjávarútvegs-
fyrirtækjum Færeyja, rannsókn-
armiðstöðvar og þjónustuaðilar eru
nú þegar orðnir aðilar að Færeyska
sjávarklasanum.
„Við erum hæstánægð með að
skrifa undir þennan samstarfssamn-
ing við Íslenska sjávarklasann. Við
höfum fylgst með árangursríkri upp-
byggingu hans um langt skeið og við
trúum því að í samstarfi við hann og
aðra sjávarklasa geti orðið til mikil
verðmæti“, segir Unn Laksá, fram-
kvæmdastjóri Sjókovin í Færeyjum.
Stofna sjávar-
klasa í Færeyjum
Verður fimmti klasinn utan Íslands
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þórshöfn Færeyingar vilja auka
nýsköpun í sínum sjávarútvegi.
Allt um
sjávarútveg