Morgunblaðið - 07.08.2020, Síða 27
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kvennaflokkur Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er efst kvenna í Mosfellsbæ.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
69 högg Tómas Eiríksson Hjaltested vippar á hringnum í gær.
Kaiserslautern
Framherji Andri Rúnar Bjarnason
er á förum frá Kaiserslautern.
Knattspyrnumaðurinn Andri Rúnar
Bjarnason er á leiðinni til Esbjerg í
dönsku fyrstu deildinni en Ólafur
Kristjánsson er nýráðinn þjálfari
liðsins, kom frá FH í síðasta mán-
uði.
Andri Rúnar hefur verið á mála
hjá Kaiserslautern í þýsku C-
deildinni undanfarið ár og átt erfitt
uppdráttar, spilað tíu deildarleiki
án þess að skora. Staðarblaðið Die
Rheinpfalz segir frá fyrirhuguðum
félagsskiptum en Andri Rúnar var
ekki með á fyrstu æfingu þýska
liðsins sem hóf undirbúnings-
tímabilið sitt í gær.
Andri Rúnar sagður á förum
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 2020
Félög ensku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu kusu í gær að fækka
aftur skiptingum úr fimm niður í
þrjár. Var þeim fjölgað upp í fimm í
sumar vegna áhrifa kórónuveir-
unnar.
Var skiptingum fjölgað til að
minnka meiðslahættu og passa upp
á leikjaálag leikmanna. Vildu ein-
hver félög halda fimm skiptingum út
næsta tímabil en meirihluti félag-
anna var á móti, eða ellefu atkvæði á
móti níu.
Þá verða aftur átján leikmenn í
leikmannahópum liðanna í stað tutt-
ugu líkt og var í sumar.
Skiptingum fækkað á ný
AFP
Skipting Gylfi Þór Sigurðsson
FÓTBOLTI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
„Það er auðvitað búið að vera mikið
vesen í gangi og þetta hefur eiginlega
verið algjört rugl, bæði með kórónu-
veiruna og fleira. Ég ræði það
kannski einhvern tímann seinna,“
voru fyrstu orð knattspyrnumannsins
Viðars Arnar Kjartanssonar þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í
gær en til umræðu var Tyrklandsdvöl
landsliðsmannsins þar sem hann spil-
aði með Yeni Malatyaspor á síðustu
leiktíð.
Framherjinn fór til Tyrklands að
láni frá rússneska liðinu Rostov í
byrjun febrúar og má segja að vera
hans þar hafi verið skrautleg til
þessa. Stuttu eftir að hann kom til
borgarinnar Malatya í Austur-
Tyrklandi skall kórónuveirufarald-
urinn á en þar að auki var hann að
spila með liði þar sem mikið gekk á.
Yeni Malatyaspor var í bullandi fall-
baráttu allan veturinn og var ítrekað
skipt um þjálfara til að reyna að bæta
gengi liðsins.
„Það eru fern þjálfaraskipti hjá
okkur á sama tímabilinu. Oft kemur
maður í nýtt lið og allt er á hreinu,
umgjörðin traust og sterkbyggð. En
þegar ég kem þangað er búið að
skipta um þjálfara þrisvar! Þetta hef-
ur verið mikið ævintýri,“ sagði Viðar
Örn enn frekar um tíma sinn hjá fé-
laginu, en hann fékk ekki ýkja mörg
tækifæri til að sanna sig, skoraði tvö
mörk í 15 leikjum, þar af aðeins
þremur byrjunarliðsleikjum.
Þvæla frá upphafi
„Ég kem í byrjun febrúar og segi
þeim strax að ég sé ekki búinn að
spila heilan leik í Rússlandi síðan í
nóvember. Það hefði þurft að gefa
mér tvær til þrjár vikur til að komast
í fullt stand en þjálfarinn sem var þá
skildi mig ekki held ég. Hann hélt
bara að ég væri í toppstandi og fannst
það óafsakanlegt að ég skyldi ekki
skora í fyrstu tveimur leikjunum. Svo
kemur annar þjálfari, ég skora í
fyrsta leik undir honum og svo skell-
ur þetta kórónuveiruástand strax á í
kjölfarið.“
Eftir að tyrknesku deildinni var
frestað í nokkra mánuði vegna veir-
unnar var svo ákveðið að klára mótið í
sumar. Ákvörðun sem Viðar og fleiri
voru ekki sáttir við. „Það var ekkert
annað en þvæla frá upphafi að klára
þetta. Það voru lið á botninum að
vinna 3:0 gegn toppliðunum. Það var
ekkert eðlilegt og eitthvað skrítið yfir
þessu eftir að við byrjuðum aftur,“
sagði Viðar en liðið slapp við fall þrátt
fyrir að hafa endað í fallsæti. Tyrk-
neska knattspyrnusambandið tók þá
ákvörðun að ekkert lið myndi falla
þetta tímabil vegna ástandsins. Yeni
Malatyaspor verður því áfram í efstu
deild næsta vetur. Viðar reiknar með
að hann verði áfram einnig, en aðeins
ef hagur hans hjá félaginu breytist.
„Ég var ekki sáttur með síðasta
tímabil. Spilaði kannski einn leik og
var svo þrjá á bekknum. Ég ætla ekki
að fara þarna út ef ég er ekki að fara
að spila alla leiki.“
Skora ef ég fæ traustið
„Ég mun ræða við þá, þeir hljóta að
vilja breyta einhverju líka því að
þetta gekk ekki. Eina skiptið sem ég
var kannski svekktur með sjálfan
mig á ferlinum var hjá Rubin Kazan,
ég spilaði mikið þar en skoraði bara
eitt mark. En þegar ég horfi á tíma-
bilið hjá þeim; liðið rétt bjargar sér
frá falli og skorar 15 mörk í 30 leikj-
um. Það var vonlaust að skora þarna.
Alls staðar þar sem ég hef verið, ef
ég fæ traustið þá skora ég.“
Viðar Örn hefur spilað víða og hef-
ur til að mynda náð þeim áfanga að
skora í deildakeppnum allra þeirra
sjö landa þar sem hann hefur leikið á
ferlinum, samtals 142 mörk og þar af
89 í efstu deildum erlendis. Hann
segir númer eitt, tvö og þrjú að fram-
herji njóti stuðnings þjálfarans.
„Sem framherji þarftu að vita að
þjálfarinn vilji hafa þig inn á og að þú
megir eiga einn lélegan leik. Ef þú
hugsar að þú verðir að skora ferðu að
reyna hluti sem eru kannski of erf-
iðir.“
Fékk ósanngjarna byrjun
Þótt hann sé ósáttur með ýmislegt
þessa fyrstu mánuði í Tyrklandi er
hann spenntur fyrir því að byrja upp
á nýtt, á nýju tímabili, svo lengi sem
félagið treystir honum fyrir því að
vera aðalframherji liðsins. Ella muni
hann horfa í kringum sig.
„Ég fékk ósanngjarna byrjun. Var
ekki í standi þegar ég mætti, þurfti
að vinna mig inn í liðið af bekknum
og fór svo á bekkinn eftir að hafa
skorað. Mér fannst þetta ekki eiga
rétt á sér, að byrja ekki fleiri leiki var
bara þvæla. Ég þarf að fá staðfest að
þeir fengu mig til að byrja alla leiki,
annars þarf ég að skoða mig um.
Fullt af liðum er búið að heyra í
manni, en ég er með samning þarna.
Ég var fenginn til að spila alla leiki
og skora mörkin fyrir þá. Ef það er
óbreytt þá er ég spenntur fyrir
áskoruninni í vetur,“ sagði Viðar Örn
Kjartansson við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Eggert
Markaskorari Viðar Örn Kjartansson hefur skorað í deildakeppnum allra
sjö landanna þar sem hann hefur leikið á ferlinum, nú síðast í Tyrklandi.
Viðar Örn segir frá skrautlegri Tyrklandsdvöl Spenntur fyrir næstu áskorun
Hef skorað alls staðar
þar sem ég hef verið
Ólafur Karl Finsen, leikmaður Vals,
hefur lítið komið við sögu í Pepsi Max-
deildinni í sumar. Logi Ólafsson, annar
þjálfara FH, sagði í samtali við Fantasy
Gandalf-hlaðvarpið að FH hefði reynt
að fá Ólaf Karl til félagsins.
„Það er ekkert launungarmál að við
höfum rætt við Ólaf Karl Finsen og
hann vill koma í FH en Valur vill ekki
hleypa honum til okkar,“ sagði Logi,
sem hefur þó ekki gefið upp alla von.
„Það hafa verið viðræður milli Vals og
FH í þessu máli en það hafa engar
lausnir komið ennþá. Ég vona að þær
komi.“
Knattspyrnumaðurin ungi Andri
Lucas Guðjohnsen, sem leikur með
unglingaliði Real Madríd, fór í aðgerð í
vikunni eftir að hann sleit krossband í
hné á æfingu á dögunum. Umboðs-
skrifstofa hans birti mynd af honum á
samfélagsmiðlum eftir aðgerðina sem
heppnaðist vel en hann verður senni-
lega frá keppni í sex mánuði. Andri
hefur leikið vel með unglingaliði Real
og var nýlega á lista The Guardian yfir
60 efnilegustu leikmenn heims sem
fæddir eru árið 2002 eða síðar.
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur
hefur samið við Eistann Joonas Jarve-
lainen fyrir komandi keppnistímabil.
Jarvelainen er 202 sentímetrar og get-
ur leyst stöðu miðherja og framherja.
Hann er þrítugur að aldri og á að baki
nokkuð farsælan feril í heimalandi
sínu og þá hefur hann einnig leikið í
Bretlandi.
Jarvelainen er annar eistneski leik-
maðurinn til að leika í efstu deild hér á
landi. Sá fyrsti var Renato Lindmets
sem var hjá Stjörnunni 2010-2012.
LeBron James og félagar í Los Ang-
eles Lakers í NBA-deildinni í körfu-
knattleik fengu skell í fyrrinótt, töp-
uðu 105:86-gegn Oklahoma City
Thunder. Lakers hefur þegar tryggt
sér toppsæti vesturdeildarinnar og
virðist aðeins vera farið að slaka á
klónni.
Pierre Emerick Aubameyang, fyr-
irliði enska knattspyrnufélagsins Ars-
enal, er sagður nálægt því að skrifa
undir nýjan samning við félagið en
Gabonmaðurinn verður samningslaus
eftir næstu leiktíð. Hann hefur verið
orðaður við brottför frá Lundúnaliðinu
undanfarið en virðist hafa snúist hug-
ur eftir að Arsenal varð enskur bikar-
meistari um helgina og tryggði sér
jafnframt sæti í Evrópudeildinni á
næstu leiktíð. Samkvæmt Daily Tele-
graph mun hann skrifa undir á næstu
dögum.
Ítalska knattspyrnufélagið Inter
Mílanó hefur gert þriggja ára samning
við Sílemanninn Alexis Sánchez.
Sóknarmaðurinn, sem er 31 árs, lék
með Inter á leiktíðinni á lánssamningi
frá Manchester United. Inter þarf ekki
að greiða United fyrir félagsskiptin, en
þess í stað greiðir félagið leikmann-
inum himinhá laun. Skoraði Sánchez
fjögur mörk í 29 leikjum í öllum
keppnum með Inter á leiktíðinni.
Hann lék 45 leiki
með United
eftir að fé-
lagið keypti
hann frá Ars-
enal. Náði hann
sér ekki á strik í
Manchester og
skoraði aðeins
fimm mörk. Sánchez
skoraði 80 mörk í
166 leikjum með Ars-
enal og 47 mörk í 141 leik
með Barcelona.
Eitt
ogannað