Morgunblaðið - 12.09.2020, Side 10

Morgunblaðið - 12.09.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020 MJÓLKINGEFUR STYRK LEOANTHONYSPEIGHT AFREKSMAÐUR Í TAEKWONDO VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta smá potaðist áfram og um 1990 urðu miklar breytingar. Ég hef stundum hugsað að þá hafi Vegakerfið á Vestfjörðum fyrst orðið nothæft,“ segir Gísli Eiríks- son, forstöðumaður jarðganga hjá Vegagerðinni og fyrrverandi um- dæmisverkfræðingur á Ísafirði. Hann hefur yfirsýn yfir þróun vegamála á Vestfjörðum í fjörutíu ár. Gísli á sjö- tugsafmæli í dag og lætur af störfum í lok mánaðarins. Gísli hóf störf sem verkfræð- ingur í brúadeild Vegagerðarinnar árið 1978, eftir framhaldsnám í Kaupmannahöfn, en hafði áður unnið mörg sumur í brúarvinnuflokki föður síns, Eiríks Jónasar Gíslasonar. Hann tók síð- an við starfi umdæmisverkfræð- ings á Vestfjörðum árið 1980. Gísli lýsir ástandi vegamála við upphaf starfs hans á Ísafirði: „Vegakerfið var ekki nothæft. Lokað var á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur á veturna, reynt var að hafa samgöngur frá Ísafirði til Þingeyrar en það gekk misjafn- lega. Sama var með suðurfirðina. Vegurinn til Reykjavíkur var lok- aður á vetrum og gamli Baldur sem sigldi á Breiðafirði tók ekki marga bíla. Reynt var að hafa opið frá Patreksfirði til Bíldudals og yf- ir á Barðaströnd. Á Ströndum var mokað frá Hólmavík og Drangs- nesi til Reykjavíkur tvisvar í viku.“ Miklar breytingar urðu um 1990, eins og fyrr segir. Þá hafði vegur verið lagður um Steingrímsfjarð- arheiði og búið að styrkja nokkra vegarkafla í Ísafjarðardjúpi og snjómokstur hafinn svo flutn- ingabílar gátu ekið á milli Ísafjarð- ar og Reykjavíkur allt árið. Dýra- fjarðarbrúin bætti mjög sam- göngur við Þingeyri og ný bílferja kom á Breiðafjörð á þessum árum. „Allt þetta varð til þess að sam- göngur breyttust nokkuð til batn- aðar,“ segir Gísli. Mokað til Patreksfjarðar Áfram héldu verkin. Göngin undir Breiðadals- og Botnsheiði sem tekin voru í notkun 1996 opn- uðu greiða heilsársleið til Suður- eyrar, Flateyrar og Þingeyrar. Einnig var lagður nýr vegur yfir Hálfdán, milli Bíldudals og Tálkna- fjarðar. Nýr vegur um Klettsháls kom ekki fyrr en árið 2002. Eftir það var í fyrsta skipti auglýstur snjó- mokstur allt árið frá Patreksfirði til Reykjavíkur. Patreksfjörður var síðasti þéttbýlisstaðurinn af þessari stærð sem fékk snjómokst- ur. Umdæmisskrifstofan á Ísafirði var lögð niður árið 2004 og fór Gísli til annarra starfa og tók fá- einum árum síðar við umsjón jarð- gangaframkvæmda. En vegabætur héldu áfram á Vestfjörðum, slitlag- ið lengdist smám saman. Brúin yf- ir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og vegur um Þröskulda voru miklar samgöngubætur. Dýrafjarðargöng verða opnuð nú í haust og fyrsti áfangi vegarins um Dynjandisheiði hefur verið boðinn út. Þá er eftir umdeildur kafli Vestfjarðavegar í Gufudalssveit. Byrjað verður á hluta verksins í haust en enn eru ágreiningsmál uppi um Teigsskóg. Herslumuninn vantar því á að góð- vegur verði kominn hringinn í kringum Vestfirði, þegar Gísli læt- ur af störfum. „Einnig eru eftir tveir erfiðir Ljósmynd/Vegagerðin Bolungarvíkurgöng Byrjað var á gangamunnanum Hnífsdalsmegin í júlí 2008. Gunnar Gunnarsson og Gísli Eiríksson eru eitthvað að skipuleggja. Vegakerfið á Vestfjörðum varð nothæft  Gísli Eiríksson vegagerðarmaður lýsir áföngum í samgöngumálum á Vestfjörðum  Margt hefur áunnist og fleiri áfangar að nást  Telur að gera þurfi göng undir Mikladal og Hálfdán  Vandi að reka jarðgöng Gísli Eiríksson Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Héðinsfjarðargöng Hátíðarhöld eru gjarnan við opnun nýrra vegganga. Morgunblaðið/Skapti Vaðlaheiðargöng Vatnsæð opnaðist í göngunum og tafði framkvæmdir. Jarðgöng Helgi Hallgrímsson, Jón Birgir Jónsson og Gísli Eiríksson á við- burði við jarðgangaframkvæmd. Ljósmyndasafn Ísafjarðar/BB Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Húsið Skólavörðustígur 36, sem rif- ið var í óleyfi á miðvikudaginn, var friðað vegna hverfisverndar. Það var talið hafa menningarsögulegt gildi sem hluti af heillegri byggð húsa frá 3. áratugi 20. aldar á Skólavörðuholti. Þetta kemur fram í húsakönnun fyrir svæðið, sem unn- in var af Minjasafni Reykjavíkur 2009. Í skipulagsreglugerð sem um- hverfis- og auðlindaráðuneytið setti árið 2013 segir um hverfisvernd: „Ákvæði í svæðis-, aðal- eða deili- skipulagi um vernd á sérkennum eldri byggðar, annarra menningar- sögulegra minja eða náttúruminja.“ Í húsakönnun Minjasafnsins segir að húsið Skólavörðustígur 36 hafi verið byggt árið 1922 eftir teikn- ingu Guðmundar H. Þorlákssonar byggingameistara. Öll hús og mannvirki sem eru 100 ára eða eldri eru friðuð samkvæmt lögum um menningarminjar og því voru aðeins tvö ár í að Skólavörðustígur 36 nyti slíkrar varanlegrar friðunar. Bæta átti við hæð Í fyrstu fékkst leyfi fyrir einlyftu húsi, en á meðan það var enn í byggingu var samþykkt að byggja mætti ofan á það aðra hæð. Húsið Skólavörðustígur 36 hefur því frá upphafi verið tvílyft með risi. Í fyrstu brunavirðingu er húsið sagt byggt úr hlöðnum steinlímdum kalksteini, sem er afar óvenjulegt byggingarefni á þessum tíma, segir í húsakönnuninni. Í seinni virðingu er húsið hins vegar sagt byggt úr hlöðnum holsteini, 12 x 9 tommu þykkum, og er líklegra talið að þar sé um rétt byggingarefni að ræða. Inn- og uppgönguskúr hefur frá upphafi verið við vesturgafl hússins. Á hvorri hæð hússins var upp- haflega ein íbúð. Um leið og húsið Horfna húsið var hluti af heillegri byggð á svæðinu  Vantaði tvö ár í 100 árin til að ná varanlegri friðun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.