Morgunblaðið - 12.09.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 12.09.2020, Síða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hagræðing Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is á haustdögum án þess að það bitni á gæðum Hafðu samband og við gerum fyrir þig þarfagreiningu og tilboð í þjónustu án allra skuldbindinga. 12. september 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 138.15 Sterlingspund 178.69 Kanadadalur 105.02 Dönsk króna 22.002 Norsk króna 15.317 Sænsk króna 15.785 Svissn. franki 152.05 Japanskt jen 1.3017 SDR 195.18 Evra 163.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 195.8342 Hrávöruverð Gull 1944.8 ($/únsa) Ál 1740.0 ($/tonn) LME Hráolía 40.58 ($/fatið) Brent ● Ný útgáfa norsk-íslenska netvafrans Vivaldi 3.3. er komin út. Ýmsar breyt- ingar er þar að finna, sem miða að því að bæta upplifun notenda af vafranum en einnig auka öryggi. Í tilkynningu frá Vivaldi segir að í nýju útgáfunni sé notendum til dæmis gert auðveldara fyrir að þekkja óþekktar eða ólöglegar vefsíður. Þegar vefsíða sé opnuð sé aðalhluti veffangsins feitletr- aður, þannig að minni áhersla verði á restina af því, en það varpi skýrara ljósi á hvaða fyrirtæki stýri léninu. Vivaldi hjálpar til við að þekkja ólöglegar síður Net Ný útgáfa Vivaldi. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Kröfu Íslandsbanka um kyrrsetn- ingu eigna Sjöstjörnunnar ehf. hefur verið hafnað. Fyrirsvarsmaður Sjö- stjörnunnar er Skúli Gunnar Sigfús- son, sem jafnan er kenndur við Subway. Um er að ræða mál sem snýr að meintum kröfum bankans á hendur fyrirtækjum í eigu Skúla. Umrædd félög voru hluthafar fé- lagsins EK hf., síðar EK1923 ehf., en alls hljóðar krafa bankans upp á ríf- lega 91 milljón króna með dráttar- vöxtum. Við gjaldþrotaskipti síðast- nefnda félagsins fékkst einungis lítill hluti upp í kröfuna. Fór Sveinn Andri Sveinsson, skiptastjóri EK1923 ehf., í kjölfarið fram á kyrr- setningu eigna Sjöstjörnunnar. Ein- ar Þór Sverrisson, lögmaður Skúla, segir að um dæmalausa aðför sé að ræða. Þannig hafi Sveini Andra tek- ist að fá Íslandsbanka í lið með sér með það fyrir augum að ná höggi á Skúla. „Það er gott til þess að vita að sýslumaður hafi séð í gegnum þessa dæmalausu aðför Íslandsbanka. Mér sýnist bankinn hafa tekið höndum saman við Svein Andra Sveinsson, skiptastjóra þrotabús EK 1923, og reynt að fá kyrrsetningu í eignum Sjöstjörnunar, sem ekki er hægt, þar sem þær eru þegar kyrrsettar vegna málatilbúnaðar þrotabúsins. Þetta hafi verið gert í þeim tilgangi að koma félaginu í þrot, þannig að það gæti ekki varið sig í Hæstarétti,“ segir Einar og bætir við að vinnu- brögð bankans í málinu séu döpur. „Bankinn reyndi að fá kyrrsetn- ingu í skjóli nætur og fór fram á að Sjöstjarnan yrði ekki látin vita fyrir fram, þannig að hún gæti ekki varið sig. Auk þess reyndi bankinn að leyna því að fleiri fyrirtækjum með miklar eignir yrði stefnt með Sjö- stjörnunni fyrir dóm og skilyrði kyrrsetningar því ekki til staðar. Mér finnst að svona vinnubrögð séu banka ekki sæmandi.“ Morgunblaðið/Eggert Skúli Íslandsbanki krafðist þess að eignir Sjöstjörnunnar, félags í eigu Skúla, yrðu kyrrsettar. Krafa bankans hljóðar upp á 91 milljón króna. Dæmalaus aðför Íslandsbanka BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Engin ákvörðun hefur verið tekin hjá stærsta eiganda Icelandair, Lífeyris- sjóði verslunarmanna, um þátttöku í hlutafjárútboði félagsins sem hefst á miðvikudaginn í næstu viku. Icelandair hyggst þá bjóða út tutt- ugu milljarða í nýju hlutafé. Lífeyr- issjóður verslunarmanna á 11,8% af hlutafé félagsins, eða rúmlega 642 þúsund hluti. „Það er engin ákvörðun fyrirliggjandi. Menn eru enn að vinna heimavinnuna sína. Þetta mál er þess eðlis að það verður ekkert gert nema stjórn sjóðsins komi að ákvarðana- tökunni. Það er ekki hægt að ákveða neitt fyrr en um það leyti sem útboðið hefst, og ákvörðun verður þá tekin eftir ítarlegar athuganir á málinu,“ segir Þórhallur Jósepsson, upplýs- ingafulltrúi sjóðsins, í samtali við Morgunblaðið. Aðalbjörn Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi lífeyrissjóðsins Gildis, sem er þriðji stærsti hluthafinn með 7,2% hlut, sagði sömuleiðis að engin ákvörðun lægi fyrir, en stjórnin myndi funda í næstu viku til að fara yfir málið. 0,4% af heildareignum Morgunblaðið hafði samband við ýmsa aðila á markaði, bæði greinend- ur, sjóðstjóra og fjárfesta og töldu flestir að útboðið myndi klárast með þátttöku lífeyrissjóða. Einkafjárfest- ar hefðu ekki fjárfestingargetu í lík- ingu við þá sem sjóðirnir hafa, og þá sérstaklega í ljósi þeirrar miklu óvissu sem ríkir um framtíð flug- rekstrar í heiminum, vegna út- breiðslu kórónuveirunnar. Einnig bentu sumir á að í samhengi við heildareignir lífeyrissjóðakerfis- ins, sem námu rúmlega 5.300 millj- örðum króna í lok júlí sl., væru 20 milljarðar ekki há fjárhæð, eða rétt tæplega 0,4% af heildareignum. Slík fjárhæð ógnaði ekki lífeyrisgreiðslum og réttindum sjóðfélaga, jafnvel þótt allt færi á versta veg. Einn einkafjárfestir sem Morgun- blaðið ræddi við sagðist örugglega myndu taka þátt í útboðinu, og nefndi að hann vonaðist til að bóluefni fynd- ist fyrr en síðar. Til lengri tíma litið væri hægt að horfa til þess að Ice- landair væri orðið samkeppnishæfara flugfélag en það var áður. Ljóst er á máli manna á markaðn- um að óvissuþættirnir væru stærri og áhrifaríkari en í mörgum öðrum verk- efnum sem menn skoðuðu. Almennt voru menn á því að ákvörðun um þátttöku yrði ekki tekin fyrr en á síðustu stundu, enda gætu enn borist fréttir sem gætu haft áhrif á forsendur. Einnig var nefnt að þó svo að ekki fyndist bóluefni í bráð, þá væri ekki útséð með að lönd myndu opna landa- mæri sín meira, sérstaklega í ljósi þess að dánartíðni væri á niðurleið þó svo að veiran væri enn á ferð. 10.000 skila milljarði Hvað varðar þátttöku almennings í útboðinu var það mat manna að eft- irspurn úr þeirri átt gæti orðið góð. Lágmarksfjárhæðin væri enda við- ráðanleg, eða 100 þúsund krónur. Sem dæmi má lauslega reikna út að ef 10.000 manns taka þátt í útboðinu og hver kaupi fyrir 100 þúsund krónur samsvarar það einum milljarði króna. Í nýjum punktum greiningarfyrir- tækisins Jakobsson Capital segir að ljóst sé að ávinningurinn af að taka þátt í hlutafjárútboði Icelandair sé mikill ef allt gangi að óskum. Verð- matsgengi Jakobsson Capital er 2,1 og 1,9 að teknu tilliti til 8% þynningar hlutafjárins. Stjórnir sjóðanna funda í næstu viku  Útboð Icelandair hefst 16. september  Búist við góðri þátttöku lífeyris- sjóða og almennings Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjármagn Icelandair hyggst safna 20 milljörðum í nýju hlutafé í næstu viku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.