Morgunblaðið - 12.09.2020, Side 25

Morgunblaðið - 12.09.2020, Side 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020 Húsnæðisskortur eru helstu búsifjar ungs fólks í Reykjavík. Hús- næðisskortur hækkar verð á húsnæði en sl. 5-7 ár hefur hækkun á íbúðaverði og húsaleigu í Reykjavík verið meiri en um getur í marga áratugi. Hana ber að rekja til Aðalskipulags Reykjavíkur sem sam- þykkt var árið 2013. Þar var þétting byggðar aukin úr 75% í ríflega 95%. Þar með var hætt að byggja á ódýru landsvæði borg- arinnar. Farið var að skipuleggja all- ar nýbyggingar á dýrum lóðum í einkaeign eða eigu banka og sjóða. Þetta stöðvaði alla húsnæðisupp- byggingu í nokkur ár. Byggingakranar og íbúðaverð Þegar loks risu byggingakranar í Reykjavík, reis íbúðaverðið í sömu hæðir: Lóðaverð margfaldaðist sem hlutfall af íbúðaverði og tífaldaðist sums staðar. Samt þótti ekki nóg að gert. Nú er lagður nýr skattur á íbúð- irnar í boði borgarstjórnar, svokallað innviðagjald, til að standa straum af því að eyðileggja samgönguæðar höf- uðborgarsvæðisins. Þessi skattur hækkar íbúðaverð enn frekar. Íbúðabyggð og flugvöllur Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að í borginni þurfi að byggja 1.000 nýjar íbúðir á ári hverju til 2040. Ef svo er, á húsnæðisskortur eftir að stóraukast á allra næstu árum ef ekkert verður að gert. Vinstri meiri- hlutinn gengur enn út frá þeirri forsendu að byggðar verði 4.000 íbúðir á allra næstu ár- um þar sem flugvélar eru nú að hefja sig til flugs og lenda í Vatns- mýrinni. Ekkert bendir til þess að þar rísi íbúðabyggð á næstu 10- 15 árum þar sem ekkert bólar á nýju flugvall- arstæði. Bygging nýs flugvallar er feikilega fjárfrek og tröllaukin framkvæmd. Það er vægast sagt hæpið að ráðist verði í slíka fram- kvæmd á næstu árum eða áratug, þó ekki sé nema vegna þeirra þrenginga sem kórónuveiran á eftir að valda, hér á landi og um allan heim og sem ekki sér fyrir endann á. Tillaga sjálfstæðismanna Af þessum sökum höfum við sjálf- stæðismenn í borgarstjórn ákveðið að bera þar fram eftirfarandi tillögu: Borgarstjórn samþykkir að gera breytingu á Aðalskipulagi Reykjavík- urborgar sem heimilar íbúðabyggð í Keldnalandinu annars vegar, og í Ör- firisey hins vegar. Samhliða þessu verði farið í að skipuleggja atvinnu- lóðir á Keldum. Umhverfis- og skipu- lagssviði verði falið að skila nánari út- færslu til skipulags- og samgöngu- ráðs í síðasta lagi í lok október. Uppbygging íbúðarhúsnæðis á þessum svæðum er nærtæk og skyn- samleg. Geta má þess að ein forsenda samgöngusáttmálans er skipulagning Keldnalandsins. Auk þess er Keldna- landið haft í huga í lífskjarasamning- unum og tillögu ríkisins um húsnæð- isuppbyggingu fyrir alla. Íbúðauppbygging í Örfirisey er í fullu samræmi við þéttingu byggðar og myndi draga úr bílaumferð vegna nálægðar við verslun og þjónustu. At- vinnulóðir við Keldur munu hins veg- ar koma á jafnvægi í borginni og minnka umferðarálagið til vesturs yfir daginn. Húsnæðisskortur er samfélagsböl Sú var tíð á síðustu öld að húsnæð- isskortur átti sinn þátt í ungbarna- dauða, lungnabólgu og mikilli út- breiðslu berkla hér á landi. Sífellt fleiri fluttu af landsbyggðinni til Reykjavíkur, en heimskreppan og innflutningshöft komu í veg fyrir að Reykjavík gæti séð þessu aðkomu- fólki fyrir sómasamlegu húsnæði. Í lok síðari heimsstyrjaldar bjuggu þúsundir Reykvíkinga í kofum og hermannabröggum. Af þeim sökum tóku ríki, borg og verkalýðssamtök á þessum vanda með góðum árangri. Nú lifum við sem betur fer á öðrum og betri tímum hvað þetta varðar. Það breytir samt ekki þeirri stað- reynd að yfirvöld eiga aldrei að skapa, heldur leysa húsnæðisskort, því hann er ætíð alvarlegt sam- félagsböl. Eftir Mörtu Guðjónsdóttur Marta Guðjónsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Húsnæðisvandi er samfélagsböl » Þegar loks risu byggingakranar í Reykjavík, reis íbúða- verðið í sömu hæðir. Í upphafi ársins var slaki tekinn að mynd- ast í efnahagskerfinu og blikur voru á lofti eftir samfellt langt hagvaxtarskeið á Ís- landi. Fregnir af COVID-19 voru farn- ar að berast frá Kína, en fáir sáu fyrir hversu alvarlegar af- leiðingarnar yrðu af hinni áður óþekktu veiru. Smám saman breyttist þó heimsmyndin og í byrjun mars raungerðist vand- inn hérlendis, þegar fyrstu innan- landssmitin greindust. Höggið á efnahagskerfi heimsins var þungt og enn eru kerfin vönkuð. Efnahagshorfur um allan heim munu hverfast um þróun faraldurs- ins og hvernig tekst að halda sam- félagslegri virkni, þar til bóluefni verður aðgengilegt öllum eða veir- an veikist. Við þessar aðstæður reynir á grunnstoðir samfélaga; heilbrigðiskerfi, menntakerfi og efnahagsaðgerðir stjórnvalda. Hér- lendis er eitt mikilvægasta verk- efnið að ráðast í fjárfestingar, grípa þau tækifæri sem felast í krefjandi aðstæðum og leggja grunninn að hagsæld næstu áratuga. Samfélagsleg virkni tryggð Baráttan við veiruna hefur um margt gengið vel hérlendis. Heil- brigðiskerfið hefur staðist álagið, þar sem þrotlaus vinna heilbrigð- isstarfsfólks og höfðinglegt framlag Íslenskrar erfðagreiningar hafa varðað leiðina. Menntakerfið hefur einnig staðist prófið og Ísland er eitt fárra landa sem hefur ekki lok- að skólum. Þá hafa umfangsmiklar efnahagsaðgerðir skilað góðum ár- angri og lagt grunninn að næstu skrefum. Skilvirk efnahagsstjórnun og framtíðarsýn er lykilinn að velsæld. Gert er ráð fyrir tæplega 6% sam- drætti í landsframleiðslu á þessu ári, en viðsnúningur verði á því næsta með 4% hagvexti. Sam- dráttur upp á 9,3% á öðrum ársfjórðungi 2020 er sögulegur, en þó til marks um varn- arsigur í samanburði við ríki á borð við Frakkland (-14%) og Bretland (-20%). Þótt óvissan um þróun far- aldursins og þeirra at- vinnugreina sem verst hafa orðið úti sé mikil, geta stjórnvöld ekki leyft sér að bíða held- ur verða þau að grípa í taumana. Vinna hratt og skipulega, veita fjármunum í innviðaverkefni af ólíkum toga og skapa aðstæður fyrir fjölgun virðisaukandi starfa til skemmri og lengri tíma. Ríkisstjórnir grípa boltann Þróuð hagkerfi heimsins gripu flest til róttækra efnahagsaðgerða til að örva hagkerfi sín í upphafi heimsfaraldurs, með kennisetn- ingar John M. Keynes að leið- arljósi. Sterkt samspil ríkisfjár- mála, peningastefnu og fjármálakerfis varð leiðarljós rík- isstjórna í samanburðarlöndunum, sem hafa tryggt launþegum at- vinnuleysisbætur og fyrirtækjum stuðning, svo atvinnulífið komist fljótt af stað þegar heilsufarsógnin er afstaðin. Langtímavextir í stærstu iðnríkjum eru í sögulegu lágmarki og viðbúið að svo verði um nokkurt skeið, ekki síst í ljósi spár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem gerir ráð fyrir 5% samdrætti á heimsvísu í ár og efnahagsbatinn verði hægari en talið var í fyrstu. Í því felst aukin áskorun fyrir lítið og opið hagkerfi, eins og það íslenska, sem er um margt háð þróun á al- þjóðamörkuðum og fólksflutningum milli landa. Á hinn bóginn verður áfram mikil eftirspurn eftir helstu útflutningsvörum Íslendinga, mat- vælum og grænni orku. Opinberar fjárfestingar gegn samdrætti Í ársbyrjun var staða ríkissjóðs Íslands sterkari en flestra ríkja Efnahags- og framfarastofnunar- innar (OECD). Hreinar skuldir rík- issjóðs voru aðeins um 20% af landsframleiðslu, sem endurspeglar styrka stjórn og niðurgreiðslu skulda undanfarin ár samhliða miklum hagvexti. Uppgjörsaðferðir og lög frá 2015 um stöðugleika- framlög frá slitabúum fallinna banka lögðu grunninn að þeirri stöðu, auk þess sem ferðaþjónustan skapaði mikið gjaldeyrisinnflæði. Stjórnvöld hafa því verið í kjör- stöðu til að sníða fjárveitingar að þörfinni og munu laga framhalds- aðgerðir að raunveruleikanum sem blasir við. Opinberar fjárfestingar munu vega á móti samdrætti ársins og núna er tíminn til að hugsa til framtíðar. Fjárfesta í metnaðar- fullum innviðaverkefnum, menntun, nýsköpun, rannsóknum og þróun. Við eigum að fjárfesta í vegum og brúm, uppbyggingu nýrra atvinnu- greina og stuðningi við þær sem fyrir eru. Við eigum að efla inn- lenda matvælaframleiðslu, byggja langþráða þjóðarleikvanga fyrir íþróttir og fjárfesta í nýjum fyrsta flokks gagnatengingum Íslands við umheiminn. Við eigum að kynna Ís- land betur fyrir erlendum lang- tímafjárfestum, fyrirtækjum og laða til landsins hæfileikafólk á öll- um sviðum. Við eigum að setja okk- ur markmið um íbúaþróun og sam- félagslegan árangur, sem bæði er mældur í hagvexti og almennri vel- ferð fólks sem hér býr. Auka þarf samstarf hins opinbera og atvinnu- lífsins í fjárfestingum og höfða til þeirra sem sjá framtíð í skapandi greinum. Vextir í sögulegu lágmarki 1% Vaxtastig er í sögulegu lágmarki og hefur Seðlabanki Íslands ráðist í umfangsmiklar aðgerðir til að spyrna við slaka í hagkerfinu. Raunvextir Seðlabankans hafa lækkað samhliða lækkun nafnvaxta og eru nú -1,7%. Þessi skilyrði hafa leitt til þess að heimilin í landinu hafa endurfjármagnað óhagstæðari lán og um leið aukið ráðstöfunarfé sitt. Aðstæður hafa einnig leitt af sér, að ávöxtunarkrafa skuldabréfs- ins sem ríkissjóður Íslands gaf út á alþjóðamörkuðum í vor nam aðeins tæplega 0,7%. Þrátt fyrir sögulega lága vexti eru fjárfestingar at- vinnulífsins litlar og stjórnvalda bíður það verkefni örva þær. Minnka óvissu og stuðla að efna- hagslegum stöðugleika sem ýtir undir fjárfestingar atvinnulífisins, á meðan vaxtakjör eru hagstæði. Vextir á heimsvísu eru líka sögu- lega lágir og peningaprentvélar stærstu seðlabankanna hafa verið mjög virkar. Hérlendis höfum við tekið meðvitaðar ákvarðanir um að gera meira en minna, nýta slakann til fulls og fjárfesta til framtíðar svo samfélagið verði samkeppn- ishæft til lengri tíma. Fjármálakerfið stór þáttur í viðspyrnu Eigin- og lausafjárstaða íslenska fjármálakerfisins er býsna sterk og bankarnir því í góðri stöðu til að styðja við heimilin og fyrirtækin í landinu. Vitaskuld ríkir í augna- blikinu ákveðin óvissa um raunvirði útlánasafna, en með sjálfbæru og framsæknu atvinnulífi skapast verðmæti fyrir þjóðarbúið sem eyk- ur stöðuleika og getu lántakenda til að standa við skuldbindingar sínar. Með hagkvæmri fjármögnun at- vinnulífsins geta fyrirtæki skapað störf og verðmæti fyrir allt sam- félagið, sem er forsenda þess að ríkissjóður geti staðið undir sam- neyslunni. Með opinberum aðgerð- um og stuðningi ríkisins við at- vinnulífið – hlutabótaleiðinni, brúar- og stuðningslánum og fjár- veitingum til ótal verkefna – er stutt við útlánavöxt til fyrirtækja, sem verða á bremsunni þar til óvissa minnkar. Það má því segja, að mikilvægasta verkefni stjórn- valda sé að draga úr óvissunni. Sjálfbær viðskiptajöfnuður Fyrir þjóðarbúið er fátt mik- ilvægara en sjálfbær greiðslujöfn- uður. Það er því sértakt gleðiefni, að þrátt fyrir áföllin er búist við af- gangi af viðskiptajöfnuði á árinu, sem nemur um 2% af landsfram- leiðslu. Meginástæðan er hagfelld þróun útflutningsgreinanna, að frá- talinni ferðaþjónustunni. Þannig hefur álverð farið fram úr vænt- ingum og horfur á mörkuðum fyrir sjávarafurðir eru betri en óttast var. Tekjufall ferðaþjónustunnar dregur sannarlega mikið úr heild- argjaldeyristekjum þjóðarbúsins, en sökum þess að samdráttur á þjónustujöfnuði er bæði í inn- og útflutningi myndast minni halli en ætla mætti. Ferðaþjónustan mun taka við sér og skapa aftur mikil verðmæti, en framtíðarverkefni stjórnvalda er að fjölga stoðunum undir útflutningstekjum þjóðar- innar og tryggja að hagkerfið þoli betur áföll og tekjusamdrátt í einni grein. Samvinna er leiðin Að fenginni reynslu um allan heim er ljóst, að stjórnvöld fá það verkefni að tryggja velferð, hag- sæld og atvinnustig þegar stór áföll ríða yfir. Kostir hins frjálsa markaðskerfis eru margir, en þörf- in á virku samspili ríkis og einkaframtaksins er bæði augljós og skynsamleg. Hérlendis hefur þjóðin öll lagst á eitt við að tryggja sem mesta samfélagsvirkni í heimsfaraldrinum og ríkið hefur fumlaust stigið inn í krefjandi að- stæður. Því ætlum við að halda áfram og kveða niður atvinnuleys- isdrauginn, með nýjum störfum, sjálfbærum verkefnum og stuðn- ingi við fyrirtæki, þar sem það á við. Atvinnuleysið er helsti óvinur samfélagsins og það er siðferðisleg skylda okkar að auka verðmæta- sköpun sem leiðir til fjölgunar starfa. Við viljum að allir fái tæki- færi til að láta reyna á hæfileika sína, hrinda hugmyndum í fram- kvæmd og skapa sér hamingjusamt líf. Með samhug og viljann að vopni mun það takast. Hugsum stórt Eftir Lilju Alfreðsdóttur » Fram undan er ára- tugur fjárfestinga og nýsköpunar. Lilja Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningar- málaráðherra. Rigning Haustið er farið að minna á sig og vissara að geta gripið til regn- hlífarinnar, eins og þessi kona gerði er hún átti leið um Lönguhlíðina. Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.