Morgunblaðið - 12.09.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 12.09.2020, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020 H a m r a b o r g 1 2 • 2 0 0 K ó p a v o g u r • 4 1 6 0 5 0 0 Árangur í sölu fasteigna Komdu með eignina þína til okkar Óskar Bergsson löggiltur fasteignasali • Sími 893 2499 • oskar@eignaborg.is Fyrir 50 árum fór fram á ól-ympíumótinu í Siegenviðureign Sovétríkjannaog Bandaríkjanna. Á 1. borði mættust heimsmeistarinn Boris Spasskí og Bobby Fischer. Engin skák þessa árs vakti meiri athygli. Spasskí, sem hafði orðið heimsmeistari varð sumarið 1969, hafði sigrað á þremur sterkum al- þjóðlegum mótum, unnið Bent Lar- sen í 17 leikjum í keppni Sovétríkj- anna gegn heimsliðinu í Belgrad um páskaleytið þetta ár, og einungis tapað einni skák frá því hann varð heimsmeistari. Bobby Fischer hafði lagt Petrosjan 3:1 á 2. borði heimsl- iðsins, unnið stórmót í Júgóslavíu og Argentínu með óheyrilegum yf- irburðum og hlotið 19 vinninga af 22 mögulegum á óopinberu heims- meistaramóti í hraðskák í Svart- fjallalandi, 4½ vinningi fyrir ofan Tal. Spasskí bar krúnuna með glæsi- brag en Fischer var eins manns herdeildin sem allir óttuðust. Í Sie- gen rak hjálparhella hans, fyrrver- andi ofursti í bandaríska flug- hernum, Ed Edmundson, erindi fyrir þingi FIDE sem snerist um að Bobby fengi keppnisrétt á milli- svæðamótinu á Mallorca síðar um árið. Viðureign risaveldanna fór fram í 6. umferð. Í síðasta sinn stilltu Bandaríkjamenn upp liði með ein- staklingum, sem allir höfðu tekið út skákþroska sinn í Bandaríkjunum, og jafnframt í fyrsta og eina skiptið sem Fischer og Reshevsky tefldu saman í ólympíuliði: Ólympíumótið Siegen 1970: Boris Spasskí – Bobby Fischer Grünfelds-vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Bc4 c5 8. Re2 Rc6 9. Be3 0-0 10. 0-0 Dc7 11. Hc1 Hd8 12. h3 Spasskí lék 12. De1 í skák þeirra í Santa Monica 1966. Hann þekkti andstæðinginn og vissi að end- urbóta var að vænta. 12. … b6 13. f4 e6 14. De1 Ra5 15. Bd3 f5 16. g4 fxe4 17. Bxe4 Bb7 18. Rg3 Rc4 19. Bxb7 Dxb7 20. Bf2 Ekki 20. dxc5 vegna 20. … Hd3! o.s.frv. 20. … Dc6 21. De2 cxd4 22. cxd4 b5 23. Re4!? Færni Spasskís í miðtöflum á þessum árum var annáluð. Hann gat valdað peðið á d4 en vildi freista andstæðingsins. 23. … Bxd4 24. Rg5 Bxf2+ 25. Hxf2 Hd6 26. He1 Db6 27. Re4 Hd4 28. Rf6+ Kh8 29. Dxe6! Það er talið að Fischer hafi nú ætlað að leika 29. … Hd1 sem lítur vel út en séð hvað Spasskí hafði í huga, 30. Df7! og eftir 30. … Hxe1+ 31. Kg2 Re3+ leikur hann 32. Kf3! (ekki 32. Kg3 vegna 32. … Rf5+ 33. gxf5 De3+ og 34. … De7) t.d. 32. … Dc6+ 33. Kg3 Hg1+ 34. Kh4 Hxg4+ 35. hxg4 Dh1+ 36. Kg5 og vinnur. 29. … Hd6 30. De4 Hf8 31. g5 Hd2 32. Hef1 Dc7?! Betra var 32. … Kg7 eða 32. … Hc8. 33. Hxd2 Rxd2 34. Dd4 Hd8? 34. … Db6 gaf jafnteflisvon þó að hvíta staðan sé betri eftir 35. Dxb6 axb6 36. Hd1 Hd8 36. Kg2. 35. Rd5+ Kg8 36. Hf2 Rc4 37. He2! Hd6 38. He8+ Kf7 39. Hf8+! -og Fischer gafst upp. Þetta var mikill sigur fyrir Spasskí. Aðrar viðureignir féllu í skuggann en voru engu að síður mjög áhugaverðar. Reshevsky sætti sig að vísu snemma við jafntefli gegn Petrosjan á 2. borði en Larry Evans var nálægt því að vinna Polu- gajevskí á 3. borði. Á 4. borði fór svo fram hatrömm barátta séra Lomb- ardys við Efim Geller. Eftir að skák- in fór í bið var Lombardy með gjör- unnið tafl og lokastaðan var sennilega unnin hjá honum en hann virtist ekki gera sér grein fyrir hvernig hann gæti sloppið úr þrá- skák. Sovétmenn unnu því þessa við- ureign, 2½:1½. Forleikur „ein- vígis aldarinnar“ Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Þröngt á þingi Spasskí t.v. og Fischer við taflið í Siegen. Það hefur engum dul- ist að viðbrögð ríkis- stjórnar, þríeykis með Þórólf smitvarnalækni í broddi fylkingar, Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagrein- ingar og hans starfs- fólks voru aðdáunar- verð þegar kórónufar- aldurinn skall á okkur fyrr á þessu á ári. Ekki skal gleyma að minnast á og þakka hjartanlega heilbrigðis- starfmönnum um land allt sem unnu stórkostlegt starf, oft við mjög erfiðar aðstæður. Nú hefur komið í ljós að Covid 19- veiran sem hér hefur herjað frá því í júlí virðist mildara afbrigði af þessum hættulega faraldri en hér geisaði síð- astliðinn vetur. Allir vita að þessi skað- valdur hefur valdið gífurlegu tjóni um allan heim, bæði efnahagslegu, félags- legu og heilsufarslegu. Nú fjölgar þeim röddum hér á landi sem gagnrýna stjórnvöld harðlega fyrir þær ströngu reglur sem settar voru í seinni faraldr- inum og telja að ráðamenn hafi farið offari í varúðarráðstöfunum. Það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á. En hvernig hefði þetta sama fólk brugðist við ef seinni bylgjan hefði verið ill- skeyttari og stjórnvöld hefðu ekki tek- ið nógu alvarlega á vandanum? Enginn gat með vissu vitað um alvarleika seinni bylgjunnar í upphafi en rann- sóknir hafa sýnt fram á að aðgerðir ís- lenskra stjórnvalda í sóttvörnum eru hófstilltar á alþjóðavísu. Í sumum lönd- um, til dæmis Bretlandi, er farið að benda á Ísland sem fyrirmynd í því hvernig beita megi meðalhófi í sótt- vörnum. Reynum eitt andartak að setja okk- ur í spor þessa fólks sem tekur ákvarð- anir til að vernda heilsu þjóðarinnar. Ábyrgð þessa fólks er gífurleg og álag- ið eftir því. Ég tel engum vafa undir- orpið að sjaldan hafi nokkur ríkisstjórn hér á landi staðið frammi fyrir öðrum eins vanda og núverandi ríkisstjórn. Verkefni hennar eru geysilega krefj- andi, flókin og margbreytileg. Enginn mannlegur máttur getur gert öllu jafn góð skil eða séð fyrir endann á öllum þörfum í atburðarás sem er mjög hröð. Sýn- um þessu fólki virðingu og þakklæti því það leggur sig fram af öllum mætti. Snúum bökum saman því sameinuð er- um við sterk. Ég hvet alla landsmenn til að sýna stillingu, sam- heldni, sanngirni og hjálpsemi, ekki síst gagnvart þeim sem eiga nú bágast hér í þessum heimi. Lítum inn á við og spyrjum okkur sjálf hvernig við getum veitt hjálp í þessum vanda. Endalaus leit að sökudólgum skapar sundrungu og tortryggni. Lýðræð- isleg umræða og gagnrýni sem er sanngjörn og sett fram af velvilja, en ekki til að klekkja á pólitískum and- stæðingum, er uppbyggileg í öllum ríkjum sem kenna sig við lýðræði. Ómaklegar árásir eru ekki til þess fallnar að styrkja þau bönd sem tengja okkur saman sem þjóð. Gleym- um aldrei að líta í eigin barm þegar reiðin, dómharkan og ósanngirnin virðast ætla að taka völdin hið innra. Hversu lengi þessi veira muni herja á mannkynið veit enginn með vissu en við verðum með öllum ráðum að reyna að lifa með þessum faraldri, skapa ný tækifæri og aðlaga okkur að breyttum heimi. Í þessum erfiðu að- stæðum hefur mannkynið möguleika á að skapa nýjan heim, betri heim, fyrir okkur og afkomendur okkar. Að ganga veg sannleika, góðleika og feg- urðar hefur alltaf í för með sér ein- hverjar fórnir, en sú vegferð mun óhjákvæmilega leiða okkur til betra lífs. Dómharka og ósanngirni Eftir Gunnar Kvaran » Lýðræðisleg umræða og gagn- rýni sem er sanngjörn og sett fram af velvilja er uppbyggileg í öllum ríkjum sem kenna sig við lýðræði. Gunnar Kvaran Höfundur er sellóleikari og prófessor emeritus við Listaháskóla Ísland. Þann 10. september sl. voru 100 ár liðin frá fæðingu Guðjóns Hólms, hdl. og forstjóra í Reykjavík. Guðjón fæddist að Litla Ási og flutti að Prest- húsum og síðar Útkoti. Fjöl- skyldan fluttist til Reykjavíkur og Guðjón fór eftir MR í HÍ þar sem hann lauk embættisprófi í lögfræði árið 1947. Guðjón kvæntist Guðrúnu Stefánsdóttur og áttu þau sex börn: Jóhann Geir ökukennara, Gunnar sjóntækjafræðing, Stef- án Sigurð eldri (sem lést í slysi), Stefán Sigurð yngri, forstjóra, Guðjón Hólm framkvæmda- stjóra og og Áslaugu, d. 2011. Guðjón var afkastamikill á sínum starfsferli og rak eigin lögfræðistofu fram til 1965 þeg- ar hann varð forstjóri umboðs- og heildverslunarinnar John Lindsay hf. Auk þess stofnaði hann og rak verslanirnar An- goru og Vogabúðina í Vogum auk þess að vera framkvæmda- stjóri Skemmtigarðsins Tívolí. Hann var forstjóri Reykhússins hf. frá 1959 til 1979. Ótalin er stjórnarformennska í mörgum fyrirtækjum. Guðjón var fyrsti formaður Gigtarfélags Íslands og gegndi því embætti til 1980 og varð heiðursfélagi árið 1990. Guðjón var sæmdur gullmerki Félags íslenskra stórkaupmanna og fékk gullmerki Gigtarfélags Ís- lands árið 1999. Merkir Íslendingar Guðjón Hólm Sigvaldason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.