Morgunblaðið - 12.09.2020, Síða 33

Morgunblaðið - 12.09.2020, Síða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020 Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku mamma. Ekki átti ég nú von á að þurfa að kveðja þig svona snögglega, aðeins þremur mánuðum eftir að við kvöddum pabba. Hann hafði víst rétt fyrir sér þegar hann sagði að þú kæm- ir fljótlega til hans. Við huggum okkur nú við það að núna eruð þið saman í Sumarlandinu og vaknið glöð með sól að morgni. Takk fyrir allt og allt. Guð geymi þig. Þín Ester Fríða. Það var harla óvænt að fá sím- tal um að Ása frænka í Vest- mannaeyjum væri látin. Við höfðum farið saman í búðir að- eins tveimur dögum áður. Ása var lengi hluti af lífi mínu. Móðir hennar, Fríða, og faðir minn voru systkini. Mæður okk- Ása Hólmfríður Sigurjónsdóttir ✝ Ása Hólm-fríður Sigur- jónsdóttir fæddist 2. nóvember 1944. Hún lést 28. ágúst 2020. Útför hennar fór fram 11. september 2020. ar voru þar að auki góðar vinkonur og mikill vinskapur var á milli fjölskyldn- anna. Þegar fjöl- skylda Ásu þurfti að sinna erindum „uppi á landi“, gistu þau jafnan hjá okk- ur. Það þótti ekki tiltökumál að hafa 4-5 næturgesti. Það var mér allt- af tilhlökkunarefni þegar von var á Eyjafólkinu. Við Ása náðum vel saman og hún nennti að leika við mig þrátt fyrir fjögurra ára ald- ursmun. Við Sigrún systir mín fórum líka með Ásu í ýmsa leið- angra um bæinn. Eftir að móðir mín lést árið 1978 hélt Fríða frænka alla tíð góðu sambandi við okkur systk- inin og pabba. Við Sigrún áttum við hana regluleg símtöl allt þar til hún lést. Við Ása tókum síðan upp þennan góða sið og vináttan hélst alla tíð. Með okkur ríkti góður trúnaður, ekki síst seinni árin og við ræddum um heima og geima og skiptumst á fréttum um fólkið okkar. Það var Ásu mikið áfall þegar maður hennar, Ágúst Guð- mundsson, veiktist alvarlega fyr- ir hálfu öðru ári og lést 26. maí sl. Hún stóð sig eins og hetja í veik- indum hans en átti erfiða tíma síðustu mánuði enda átti hún sjálf við langvarandi veikindi að stríða og við bættist sorgin og söknuðurinn. Ása og Gústi voru gift í 57 ár og voru nánast eins og eitt hugtak, svo samrýnd voru þau. Við hjónin áttum margar notalegar stundir með þeim, jafnt heima hjá okkur og í Kópa- voginum þar sem þau áttu íbúð sem kom sér vel þegar sinna þurfti erindum á höfuðborgar- svæðinu. Ása bjó Gústa og börnunum fjórum afar fallegt heimili á Sól- eyjargötu í Vestmannaeyjum þar sem þau bjuggu í fjölda ára. Fyr- ir fáum árum fluttu þau í nýja fallega íbúð með einstöku útsýni yfir höfnina í Eyjum en auðn- aðist því miður ekki að njóta bú- setunnar þar nema um skamman tíma. Ásu var mikið í mun að hafa fallegt í kringum sig og var mjög myndarleg húsmóðir. Hún hafði ánægju af margs konar handa- vinnu og heklaði mikið á seinni árum. Einkum voru það falleg milli- verk, handverk sem nú er orðið fátítt, en það er fíngerð blúnda sem saumuð er í sængurver til skrauts. Þetta gaf hún börnum sínum, barnabörnum og fleirum, enda einkenndi hana gjafmildin. Og hún var hvergi nærri hætt, tveimur dögum áður en hún lést átti hún tilbúnar blúndur og milliverk í sjö sængurver og vöggusett, ætluð í gjafir handa vinum og fjölskyldu. Ása var þá sárlasin en fór í búðaferðina meira af vilja en mætti. Mér þyk- ir afar vænt um að hafa getað að- stoðað hana við innkaupin því þrátt fyrir að hún væri máttlítil fór hún þetta á seiglunni, hún þurfti að ganga frá verkum sín- um til að ná að gefa þau. Gústi hafði rétt fyrir sér en hann hafði oft nefnt það að ekki yrði langt á milli þeirra eftir að ljóst var hvert stefndi hjá hon- um. Ég kveð kæra frænku með sorg í hjarta og við Þórarinn sendum börnum Ásu og fjöl- skyldum og Kristbjörgu, systur Ásu, og hennar fjölskyldu inni- legar samúðarkveðjur. Ásdís Sigurgestsdóttir. Elsku Ása Fríða okkar. Það sem þú varst að drífa þig til hans Gústa. Ekki bjóst ég nú við því alveg svona fljótt þótt hann hafi nú verið búinn að segja það í veikindum sínum, að þú kæmir fljótt á eftir honum (hann hafði oft rétt fyrir sér hann Gústi). Ég skil þig vel því það er sárt að sakna og þú varst tilbúin, þú sagðir mér og fleirum það. Við áttum svo margar góðar stundir saman. Ég finn það svo vel þegar þú ert farin hvað við vorum nánar. Þú varst börnun- um mínum og barnabörnum sem amma og varst okkur alltaf svo góð. Við gátum talað um allt. Þú lást ekki á þínu og ég ekki held- ur. Ég skrifaði í minningargrein Gústa fyrir þremur mánuðum að við skyldum passa upp á þig fyrir hann og það ætluðum við að standa við, þar sem þú varst í Eyjum með okkur. Við vorum farnar að tala um jólin, hvort þú yrðir hjá okkur eða færir í bæinn til fólksins þíns. Þú varst farin að spyrja mig hvenær ég ætlaði að taka gardínurnar fyrir jólin. Við ætluðum að fara að keyra aftur og ökuskírteinið þitt er komið. Ég geymi það bara. Elsku Ása okkar, Guð geymi þig og þú kyssir alla frá okkur. Gréta, Heiðar og fjölskylda. Elsku besta amma. Þegar ég lít yfir farinn veg þá eru minningarnar svo ótal margar um þig. Fyrstu árin mín var ég svo heppinn að hafa þig svolítið út af fyrir mig og var alltaf ólmur í að gista hjá ykkur afa. Fékk ég ósjaldan að kúra á milli ykkar eftir að búið var að lesa spennandi sögu. Ef mamma var að koma að kenna leikfimi þá kom ég alltaf með því að ég vissi að þú mynd- ir skella í þínar landsfrægu pönnukökur sem voru hesthúsa- ðar af bestu lyst. Það var því þungbært fyrir lítinn gutta þegar amma og afi fluttu úr sveitinni en þó var allt- af gaman að koma í heimsókn í Bogahlíðina og ekki vantaði að slegið væri upp veislu í hvert skipti. Það var því ekki mikill kvíði fyrir 14 ára ungling að fara að heiman þegar grunn- skólanum á Finnbogastöðum lauk, því að eins og einhver sagði þá var þetta eins og að fara að heiman en í raun heim, að fara frá Melum til ykkar afa í Bogahlíðina. Það var oft glatt á hjalla í Bogahlíðinni. Þegar systkinin komu í heimsókn var oftar en ekki gripið í gítarinn eða org- elið og afi stjórnaði söng af mik- illi röggsemi. Helgarbíltúrar til skemmtunar og fræðslu voru ómissandi og þeim fylgdu sögur af mönnum og stöðum á leiðinni og oftar en ekki áð og dregið upp nesti sem dugað hefði hálfri sveitinni. Okkur bræðrum leið Aðalbjörg Albertsdóttir ✝ Aðalbjörg Al-bertsdóttir fæddist 1. maí 1934. Hún lést 28. ágúst 2020. Útför Að- albjargar fór fram 10. september 2020. alltaf afar vel hjá ykkur og þó að við værum fluttir frá ykkur á eigin stað var alltaf hægt að leita til þín og afa. Þegar við bjugg- um erlendis var oft erfitt að halda sam- bandinu en ég hafði það alltaf fyrir reglu að fyrsta og síðasta stoppið í hverri heimferð var hjá ykkur, þá var nú heldur betur spjallað og farið yfir bæði þjóðmálin og heimsmálin. Þú hafðir sterkar skoðanir á hlutunum og vildir leggja þitt af mörkum til að að- stoða þá sem að minna máttu sín. Síðustu árin urðu minning- arnar þínar um æskuárin sem þú hafðir sjaldan deilt á fyrri tíð oft að umræðuefni. Eggjaferðir á Hornbjarg, heyskapur með gamla laginu og bernskubrek pabba komu þar oft fyrir og sönnuðu fyrir mér að alveg sama hvað gekk á og þótt tím- arnir væru erfiðir þá gast þú samt alltaf skemmt þér og haft gaman af hlutunum. Sveitin var alltaf ofarlega í þínum huga og spurðir þú alltaf spennt eftir helstu fréttum úr sauðburði, af heyfeng og loks af fallþunga að hausti. Ullarsokkar og vettling- ar fyrir smalana voru einnig fastur liður. Veikindi þín voru áfall fyrir okkur öll en hvernig þú tókst á við þau sýndi hversu ótrúleg manneskja þú ert, tókst öllu með jafnaðargeði og jákvæðni og einbeittir þér að því að lifa í núinu og njóta hverrar stundar. Góða skapið, hláturinn þinn og ástúðin sem þú áttir í bíl- förmum er það sem mun lifa með mér og fleirum alla tíð. Guð geymi þig, elsku amma. Guðmundur Ragnar Björnsson. Kristín Lilja er látin aðeins þrjátíu ára. Hún kom inn í líf sonar míns fyrir rúmum þremur árum og var unun að fylgjast með því hve vænt þeim þótti hvoru um annað. Það er ótrúlegt til þess að hugsa hve stutt er síðan hún hringdi á hjá okkur á neðri hæðinni og bað um að fá lykil að láni. Hún hafði læst sig úti. Hún faðmaði mig áður en hún fór og sagði: „Takk fyrir allt, tengdamamma“ og ég svar- aði á móti: „Takk miklu fremur fyrir allt og allt, Kristín mín.“ Það hvarflaði ekki að mér þá að þetta yrðu okkar síðustu orðaskipti en fáeinum dögum seinna var hún komin á sjúkra- hús þar sem hún lést eftir stutta legu. Kristín átti sína fortíð eins og við öll. Um hana töluðum við ekki og um hana vissi ég lítið. Fortíðinni fær enginn breytt, ekkert er hægt bæta og engu er hægt að breyta af því sem liðið er. Kristín Lilja Gunnsteinsdóttir ✝ Kristín LiljaGunnsteinsdóttir fæddist 4. mars 1990. Hún lést 14. júlí 2020. Útför Kristínar Lilju fór fram í kyrr- þey 28. júlí 2020. Það er núið sem skiptir máli og það sem ókom- ið er. Ég á aðeins góðar minningar um Kristínu, margar sem koma upp í hugann sem sýna góða konu með ljúft bros og hlýja nærveru. Henni var annt um að gleðja aðra og mig þar á meðal. Eitt sinn var það með ávaxta- drykk sem hún hafði keypt handa mér um leið og hún fór í matarbúðina, í annað sinn með kók og súkkulaði sem hún hljóp og keypti og færði mér út í garð þar sem ég var að hreinsa beðin en hún síðan að flýta sér í vinn- una. Ég á margar svona minning- ar sem ég mun geyma með mér og rifja upp. Við söknum hennar við Jakob og Einar Hugi, sonarsonur minn, en mestur er söknuður Böðvars Yngva, sonar míns, sem misst hefur konuna sem átti að verða hans lífsförunaut- ur. Fjölskyldu hennar sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guðrún Kvaran. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi, bróðir og frændi, HELGI SIGURJÓN ÓLAFSSON, Seljalandsvegi 54, Ísafirði, lést á Sjúkrahúsi Ísafjarðar mánudaginn 31. ágúst. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 17. september klukkan 13. Ólafur Freyr Númason Katrín Ágústa Thorarensen Bríet Ósk Ólafsdóttir Helgi Sigurjón Ólafsson Sigurður Björn Björnsson og frændsystkini Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi, JÓN GUÐMUNDSSON arkitekt, lést í faðmi fjölskyldu sinnar sunnudaginn 6. september. Útförin verður tilkynnt síðar. Ragnheiður Björk Hreinsdóttir Sigurrós Jónsdóttir Brynjar Þór Björnsson Guðmundur Hjalti Jónsson Lísa Mikaela Gunnarsdóttir Ingunn Ívarsdóttir Bjartmar og Sólmar Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG ÓLAFSDÓTTIR, lést 24. ágúst á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins fyrir góða umönnun. Borghildur Guðmundsdóttir Rannveig Guðmundsdóttir Björn Guðmundsson Rebekka Sigrún Guðjónsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir Ólafur Guðmundsson Bryndís Birnir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÖRLYGUR ÞÓR HELGASON, fyrrum bóndi á Þórustöðum, Brekatúni 2, Akureyri, lést 8. september. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. Margrét Sigfúsdóttir Helgi Örlygsson Sigurlína Örlygsdóttir Jón Ólafur Jónsson Egill Örlygsson Efemía Fanney Valgeirsdóttir afabörn og langafabörn Ástkær eiginkona mín, móðir mín, tengdamóðir og amma, JÓHANNA GUNNARSDÓTTIR, Skipastíg 19, Grindavík, varð bráðkvödd á heimili sínu miðvikudaginn 2. september. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir útförina. Þórey Rakel Mýrdal Theodóra Mýrdal Gunnar Björn Björnsson og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.