Morgunblaðið - 12.09.2020, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 12.09.2020, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020 37 Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is SPENNANDI FRAMTÍÐ Umsóknarfrestur er til og með 27. september nk. Sótt er um starfið á landsnet.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmannsson, forstöðumaður stjórnstöðvar, í síma 563 9300. Sérfræðingur í stýringu flutningskerfisins Við leitum að metnaðarfullum samstarfsfélaga, með brennandi áhuga á orkugeiranum, í hóp frábærra sérfræðinga í stjórnstöð okkar. Stjórnstöðin ber ábyrgð á stjórnun raforkukerfisins, samhæfingu aðgerða í tengslum við truflanir og viðhald auk þess að halda utan um orkumarkað. Nýju starfsfólki er veitt öflug og markviss þjálfun en um er að ræða krefjandi og ábyrgðarmikið starf. Hluti starfsins er vaktavinna. Landsnet er þjónustufyrirtæki sem kappkostar að vinna í takt við samfélagið og hefur það að meginmarkmiði að tryggja örugga afhendingu á raforku til framtíðar. Við bjóðum upp á fyrsta flokks aðbúnað, góðan starfsanda, frábært mötuneyti, aðgengi að líkamsræktaraðstöðu og stuðning við að viðhalda og sækja sér frekari þekkingu. Við erum þátttakandi í fjölmörgum rannsóknar- og samvinnuverkefnum innan Norðurlandanna og Evrópu. Menntunar- og hæfniskröfur • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og geta til að starfa í teymi • Geta til að starfa undir álagi • Öguð og nákvæm vinnubrögð • Sterk öryggis- og jafnréttisvitund • Háskólamenntun í raungreinum sem nýtist í starfi Starfs- og ábyrgðarsvið • Stýring og vöktun raforkukerfisins • Aðgerðastjórnun og áætlanagerð um rekstur flutningskerfisins • Rekstur jöfnunarorkumarkaðs • Þátttaka í greiningar- og úrbótaverkefnum • Þátttaka í nýsköpunarverkefnum Við leitum að liðsauka Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki í framleiðsluteymi álversins á Reyðarfirði. Teymisfélagar skipta með sér hlutverkum og sjá um daglega framleiðslu Fjarðaáls á þrískiptum átta tíma vöktum. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin. Umsóknarfrestur er til og með 22. september. Hvers vegna að vinna með okkur? Við erum með vaktakerfi sem gefur góðar tekjur og góð frí. Akstur til og frá vinnu, mötuneyti, heilsugæsla, velferðarþjónusta o.fl. Við stöndum vörð um jafnrétti og gerðum með okkur sáttmála um góða vinnustaðarmenningu. Við trúum því að samhent teymi ólíkra einstaklinga skili bestum árangri. Við gerum strangar kröfur til okkar í umhverfis-, heilbrigðis- og öryggismálum. Tækifæri til starfsþróunar með þjálfun, fræðslu og fjölbreyttri starfsreynslu. Við búum í nálægð við náttúruna í fjölskylduvænu samfélagi á Austurlandi. Ef þú hefur áhuga á að vinna með okkur í álverinu á Reyðarfirði þá hvetjum við þig til að kynna þér málið nánar. Frekari upp- lýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í gegnum netfangið starf@alcoa.com eða í síma 470 7700. Hægt er að sækja um framleiðslustörf hjá Fjarðaáli á www.alcoa.is. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, tala íslensku, vera með gild ökuréttindi og hreint saka- vottorð. Umsóknir eru trúnaðarmál og er þeim öllum svarað. • • • • • • •

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.