Morgunblaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 47
Stórsveit Hjaltalín er á meðal merkilegustu hljómsveita Íslandssögunnar, að mati pistilritara. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Hjaltalín mun fara í sögu-bækurnar sem ein helstamektarsveit landsins. Sleepdrunk Seasons, fyrsta plata hennar (2007), var framúrskar- andi flott kammerpopp en sú er á eftir fylgdi, Terminal (2009), var enn betri. Sannkallað meist- araverk! Sveitin sýndi þá svo um munar hvað í henni bjó. Uppfull af ótrúlega hæfi- leikaríku tónlist- arfólki – sem átti eftir að eflast enn frekar á þessum nýliðna öðrum áratug – fólk sem hafði einstakt lag á að spila inn á styrk hvert annars. Heildin var risastór, meiri en hjá þessum meisturum sem sveitina skipuðu. Þau kunnu líka þá list að láta tón- listarmenntun sína þjóna sköp- uninni, aldrei neitt óþarfa pjatt eða pjátur, stælar eða sýnd- armennska. Svo, eins og til að sanna að ekki væri verið að festa sig í einhverju fari, kom Enter 4 út (2012), alls ólík því sem á und- an kom, myrkt verk og hin list- ræna sýn miskunnarlaus. Enginn afsláttur gefinn. Síðan eru liðin mörg ár og liðsmenn uppteknir við eitt og annað tónlistartengt hver í sínu horni. Engu að síður hefur þetta verk hér verið í vinnslu í heil sjö ár og upptökur farið fram hér og hvar um veröldina. Og hvernig er svo? Platan fer volduglega af stað. „Chestmark“ er í austrænum anda, slagverk og strengir bjóða okkur velkomin og kunnugleg epíkin færir manni sanninn um að hér er Hjaltalín á ferðinni. „Year of the Rose“ inniheldur glæsta strengi og frábærar trommur, sér- kennilega uppbyggt og virkar meira eins og stef. „Baronesse“ er næst, lag sem kom út fyrir þó nokkru. Mjög flott og ballöðu- kennt lag, glæsilega sungið af Sigríði Thorlacius, Hjaltalín eins og hún er best. „Destiny‘s Curtain Call“ er hæglætissmíð, lítið annað en söngrödd Högna studd lágvær- um strengjum og prúðu slagverki. „Waterfall“ er sungið af Sigríði, Bjarkarlegt dálítið. Byrjar með dulrænu móti en rennur svo út í fallegt, áhrifaríkt viðlag. Högni kemur sterkur inn um miðbikið, tónar yfir píanóstefi. Glæsismíð. Þegar hér er komið sögu fer maður að taka eftir mynstri – og um leið uppleggi verksins. Platan hljómar að einhverju leyti eins og blanda af tveimur síðustu hljóð- versplötum þar sem tilraunablær- inn á Enter 4 gerir reglulega vart við sig (án myrkursins samt) í sæmilegum takti við það epíska popp sem sveitin heflaði til á Terminal. Þar, nokkurn veginn, liggur þetta. „Stolen Star“ er sungið af ástríðufullum Högna, þar sem hann virðist vera að tjá sig um það sálræna stríð sem hann hefur háð á síðustu árum. Laginu er lokað með skuggaleg- um „instrumental“ kafla, flott uppbrot sem hefði mátt vera meira af í gegnum plötuna. „Wolf‘s Cry“ er höfugt og þungt, klassískt mjög, og vel heppnað. Allt gengur upp einhvern veginn í hljóðmyndinni. „Love from 9́9“ verður þá að teljast eitt af betur heppnaðri lögum plötunnar. Ekta popplag að hætti Hjaltalín og algerlega frábær samsöngur hjá Högna og Sigríði. Restin af plöt- unni spilar inn á ólíkar hliðar sveitarinnar, „Row“ er þunga- stemma að hætti Högna, „Needles and Pins“ er popplag (í Hjaltalín- skilningi) sungið af Sigríði. „Mad Lady of Lizard Skin“ er eins og lokalag í kvikmynd. „Don‘t go too far“, fjórða síðasta lagið, er samt mögulega það besta hér, þá ein- göngu vegna algjörlega frábærrar söngraddar Högna. Þarna var far- ið inn að kjarna, svo sannarlega. Hér er öllu til tjaldað, platan eins og ferðalag í gegnum sögu sveitarinnar að einhverju leyti. Það væri synd ef þessu fyrirbæri væri lagt fyrir fullt og fast því að þetta er stærra en þeir sem að því koma, tónlistarlegur galdur sem hefur snert við okkur og þeim líka, fullyrði ég. Megi Hjaltalín syngja áfram, meir og hærra, um aldur og ævi. Er örlagatjaldið fellur Fjórða plata Hjaltalín kom út fyrir stuttu, verk sem hefur verið heil sjö ár í vinnslu. Pistilritari rýnir í gripinn um leið og hann setur eðli og eigindir þessarar merku sveitar undir mælikerið. »Hér er öllu tiltjaldað, platan eins og ferðalag í gegnum sögu sveitarinnar að einhverju leyti. MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe í aðalhlutverki. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Harry Potter * Tröll 2 (ísl. tal) * Hvolpasveitin (ísl. tal) * The Secret : Dare to dream FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna.★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ The Guardian The Times The Telegraph Brynhildur Þorgeirsdóttir mynd- höggvari hefur opnað sýningu í vinnustofu sinni á Bakkastöðum 113 í Staðahverfi í Reykjavík. Er opið á laugardögum og sunnudög- um í september kl. 14 til 18. Kallar hún það sem gefur þar að líta „VerkEfni - Kynning á störfum myndhöggvara.“ Í tilkynningunni segir að vinnu- stofan og staðsetning hennar sé ævintýraheimur, „flottasta mynd- höggvaravinnustofan á Íslandi og jafnvel í öllum heiminum [...] og ekkert kjaftæði“. Til sýnis eru nýir og eldri skúlptúrar og lögð áhersla á kynningu á verkefnum tengdum vinnu myndhöggvara, sem í þessu tilfelli er með sérþekkingu á gleri og steinsteypu. Morgunblaðið/Ernir Myndhöggvari Brynhildur Þorgeirsdóttir hefur sérþekkingu á gleri og steinsteypu. Brynhildur sýnir í vinnustofunni Nicolas Lolli, Bryndís Halla Gylfadóttir og Mathias Susaas Halvorsen komu saman í fyrsta sinn sem tríóið Reykjavik Moz- art Ensemble á hádegistónleik- um í Hannesar- holti um liðna helgi. Uppselt var á tónleikana og því eru þeir endurteknir á morgun, 13. september, kl. 12.15. Í fyrsta verkefni sínu sem tríó takast þau á við tvö kunn verk fyrir píanótríó eftir Smetana og Schubert. Miðar eru aðeins seldir í forsölu og er takmarkaður sætafjöldi. Endurtaka leikinn í Hannesarholti Bryndís Halla Gylfadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.