Morgunblaðið - 24.09.2020, Page 20

Morgunblaðið - 24.09.2020, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020 Byltingarkennd nýjung í margskiptum glerjum 50–65% stærra lessvæði Sjónmælingar eru okkar fag Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 5115800 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík hefur gefið út framkvæmdaleyfi vegna nýrrar gatnatengingar á milli Borg- artúns og Snorrabrautar ásamt að- lögun að núverandi gatnakerfi. Áður hafði borgarráð samþykkt að láta bjóða verkið út. Kostnaðaráætlun er 40 milljónir króna. Um er að ræða 1. áfanga fram- kvæmdar við gerð nýrra gatnamóta Snorrabrautar og Borgartúns. Í síð- ari áfanga verður svo opnað í gegnum miðeyju Snorrabrautar og sett upp umferðarljós. Framkvæmdir eru í samræmi við deiliskipulag fyrir Hlemm og nágrenni sem samþykkt var í borgarráði hinn 19. mars 2020. Aukakrókur verður úr sögunni Í dag eru aðstæður þannig að komi bílar akandi vestur Borgartún geta þeir ekki ekið beint inn á Snorra- braut. Þurfa þeir að beygja til vinstri fram hjá kínverska sendiráðinu í átt að Lögreglustöðinni og síðan taka hægribeygju inn á Snorrabraut. Þessi aukakrókur verður úr sögunni þegar nýju gatnamótin, svokölluð T- gatnamót, verða komin í gagnið. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, var ekki sátt við mála- lyktir og bókaði í borgarráði að það væri hreint með ólíkindum að borg- arstjóri og meirihlutinn ætluðu að fara í þessar gerræðislegu fram- kvæmdir þvert á vilja lögreglunnar. „Í upphafi þessa máls lagði lögreglan inn ítarlega umsögn í þá veru að við- bragðsflýti frá lögreglustöðinni við Hverfisgötu yrði stefnt í hættu þegar framkvæmdirnar verða að fullu komnar til framkvæmda. Öryggis- sjónarmið sem snúa að viðbragðsflýti lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs sem snúa að vernd borgaranna hafa aldrei truflað meirihlutann. Minnt er á að Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri er formaður stjórnar Slökkvi- liðs höfuðborgarsvæðisins og ber því ábyrgð á almannavörnum á höf- uðborgarsvæðinu. Almannavarnir eru samnefnari viðbragða og úrræða þegar hættu- og neyðarástand skap- ast á höfuðborgarsvæðinu. Þrenging- arstefna meirihlutans trompar al- mannavarnir í borginni,“ bókaði Vigdís. Borgarfulltrúar meirihlutans bentu hins vegar á að verkefnið væri í samræmi við deiliskipulag fyrir Hlemm og nágrenni sem borgarráð samþykkti í mars á þessu ári. Borg- arráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bókuðu að mikilvægt væri að vinna í góðu samráði við lögregluna varðandi aðgengi og akstursleiðir við Hlemm. Á árunum 2013-14 var unnið að endurgerð Borgartúns, milli Snorra- brautar og Sóltúns. Gróðursvæði var komið fyrir milli götunnar og hjóla- stíga og skipt um ljósastaura í göt- unni. Fjórum miðeyjum var bætt við til að auðvelda gangandi vegfar- endum að þvera götuna. Þá var bíla- stæðum fækkað verulega. Beinn vegur kemur í stað beygju  Breytingar á mót- um Borgartúns og Snorrabrautar verða boðnar út á næstunni Morgunblaðið/sisi Gatnamótin Í fyrsta áfanga verksins verður Borgartúnið framlengt og því þurfa ökumenn ekki að taka aukakrók til að komast inn á Snorrabrautina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.