Morgunblaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020
✝ Haukur GústiJóhann Guð-
mundsson fæddist
á Oddsflöt í
Grunnavík 25.6.
1928. Hann lést í
Brákarhlíð 16.9.
2020.
Foreldrar hans
voru Elísa Guðrún
Einarsdóttir frá
Dynjanda, f. 1.7.
1900, d. 6.4. 1985,
og Guðmundur Árnason Páls-
son frá Höfða, f. 24.1. 1895, d.
2.6. 1967. Systkini hans eru Að-
alheiður, f. 7.1. 1923, d. 29.8.
1977, Steinunn María, f. 11.5.
1924, d. 26.11. 2007, Páll Hall-
dór, f. 22.7. 1925, og Gunnur
Einars, f. 15.3. 1934, d. 8.12.
2007.
Haukur ólst upp í Grunnavík
til 1942 en þá fluttist fjöl-
skyldan til Ísafjarðar. Hann var
í farskóla í Grunnavík og
barnaskólanum í Bolungarvík.
Hann byrjaði ungur að stunda
sjóinn á trillunni Baldri með
föður sínum og bróður. Á Ísa-
firði vann hann á Ísafjarð-
með Guðmundi Kristbjörnssyni
Eydal, f. 16.3. 1956.
Hugur Hauks leitaði alltaf til
sjávar. Vann hann um tíma á
togurum hjá Tryggva Ófeigs-
syni. Réð sig síðan til Miðness
við netagerð og vann þar í nokk-
ur ár. Fór svo í Stýrimannaskól-
ann og tók þar skipstjórnarpróf.
Var hann með ýmsa báta hjá
Miðnesi eða þar til hann stofnaði
sitt eigið útgerðarfélag kringum
bátinn Grunnvíking. Rak hann
þá útgerð í mörg ár eða þar til
sonur hans tók við. Haukur undi
sér best á sjónum en var lag-
hentur og lagaði það sem þurfti
lagfæringar við. Hann reisti
þeim hjónum sumarbústað í
Grunnavík 1980 þar sem þau
dvöldu á hverju sumri meðan
heilsan leyfði. Einnig fóru þau
lengi vel hvert haust til Kan-
aríeyja. Haukur hafði mikinn
áhuga á knattspyrnu. Fór á leiki
innanlands og horfði á ensku
knattspyrnuna. Síðari ár dvöldu
þau flestar helgar í sumarbústað
sem þau áttu í Skorradal. Þar
gerði Haukur ýmsar tilraunir
við ræktun á kartöflum. Fyrir
13 árum fluttu þau í Boðahlein í
Hafnarfirði. Þau voru nýflutt í
Brákarhlíð í Borgarnesi þegar
Haukur lést.
Útför hans verður gerð frá
Lindakirku í Kópavogi í dag, 24.
september 2020, klukkan 15.
arbátum. Árið 1947
fluttist hann suður.
Var fyrst á sjó í
Sandgerði með til-
vonandi tengda-
föður sínum eina
vertíð. Þar fann
hann konuefnið
sitt, Önnu Magneu
Jónsdóttur, f.
18.11. 1929. For-
eldrar hennar voru
Guðrún Magn-
úsdóttir, f. 25.4. 1908, d. 3.2.
2000, og Jón Valdimar Jó-
hannsson, f. 5.6. 1906, d. 26.5.
1979.
Anna og Haukur giftu sig 3.
febrúar 1951 og byrjuðu að búa
í Skipasundinu í Reykjavík, en
lengst bjuggu þau í Vallhólm-
anum í Kópavogi. Sonur þeirra
er Gunnar Örn, f. 15.7. 1950.
Synir hans og Elfu Dísar Arn-
órsdóttur, f. 21.7. 1957, eru
Haukur Ársæll, f. 4.4. 1985, og
Jóhann Örn, f. 5.9. 1987. Fyrir
átti Elfa Dís Kristbjörn Guð-
mundsson Eydal, f. 30.9. 1976,
og Sigrúnu Jónu Guðmunds-
dóttur Eydal, f. 30.11. 1977,
Ég minnist hér, með nokkrum
orðum, móðurbróður míns
Hauks Guðmundssonar, skip-
stjóra og útgerðarmanns. Hann
ólst upp í litlum torfbæ norður í
Grunnavík í Jökulfjörðum þar
sem menn stunduðu búskap og
sumir hverjir útræði sem auka-
grein. Haukur var lítt hneigður
til bústarfa, að eigin sögn, en því
meir að sjónum enda farinn að
róa til fiskjar á opnum báti með
föður sínum og eldri bróður Páli
frá fermingu, í Jökulfjörðum og
Ísafjarðardjúpi, hvar veður eru
æði oft válynd og ófyrirséð eins
og dæmin sanna. En drengnum
óx fljótt fiskur um hrygg og
skorti hvorki afl né kjark og fyrr
en varði var hann kominn um
borð í togara.
Þeim sem þar stóðu á dekki
ýmist með trollið í fanginu eða í
fiskaðgerð, oft í ólgusjó eða hríð-
arbyl, var víst sjaldnast fisjað
saman. Síðar aflaði Haukur sér
skipstjórnarréttinda og gerðist
formaður á bátum í Sandgerði.
Þar í plássi hafði hann jú sett í
þann stóra, er hann kynntist
Önnu Jónsdóttur, sjómannsdótt-
ur frá Sjónarhóli, sem varð lífs-
förunautur hans og hefur fylgt
honum ævina í blíðu og stríðu.
Þau hafa staðið saman sem einn
maður – alla tíð. Ég átti því láni
að fagna að komast um borð hjá
frænda mínum, þá aðeins 16 ára,
um það höfðu þau vélað systk-
inin, móðir mín og hann.
Þarna fékk ég að kynnast
mörgu um mannlífið, sem ég
hafði ekki upplifað áður og
gleymi aldrei – ekki síst persónu-
gerð Hauks. Hann virtist alltaf
yfirvegaður og rólegur á hverju
sem gekk, hvort heldur fiskirí
var dræmt eða gott – var stund-
um þurr á manninn, ef í móti
blés. Honum var mjög umhugað
um velferð áhafnar sinnar og
sýndi það í hvívetna, slíka menn
er gott að eiga sem fyrirmynd og
bindast tryggðaböndum. Þar
kom að Hauk langaði sjálfan að
eignast bát og gera út þótt efnin
væru kannski ekki mikil. En
hann var kjarkmaður mikill, með
staðfasta konu sér að baki. Þau
áræddu að leggja allt sitt undir -
og tefla til vinnings og hann
treysti eðlisgreind sinni, til að
kljást við þann gula, sem reynd-
ist mikið heillaspor fyrir bæði.
Bátinn eignuðust þau og auð-
vitað hlaut báturinn nafnið
Grunnvíkingur, útgerðin gekk
framúrskarandi vel alla tíð.
Haukur var vakinn og sofinn yfir
útgerðinni nótt sem nýtan dag,
sá um öll veiðarfæri sjálfur,
kunni þar allt sem kunna þurfti,
hvort heldur var að fella net eða
splæsa víra, allt lék þetta í hönd-
um hans. Færi báturinn í slipp til
viðhalds eða viðgerða var hann
alltaf á vaktinni, svo öllu væri til
skila haldið.
Á seinni árum komu þau sér
upp litlu sumarhúsi á bernsku-
slóðum hans á Oddsflöt í Grunna-
vík og þangað var haldið öll sum-
ur meðan heilsan leyfði, reyndar
áttu þau líka sumarhús í Borg-
arfirði, ef ekki var fært alla leið
til Grunnavíkur.
Þangað bar Haukur sterkar
taugar alla tíð og þar gat hann
yljað sér við gamlar minningar
um æskuárin. Fallinn er nú frá
einstakur dugnaðar- og eljumað-
ur, sem gerði oftast meiri kröfur
til sjálfs sín en annarra.
Far þú í friði kæri frændi og
friður Guðs þig blessi. Önnu og
Gunnari syni þeirra sem og Páli
bróður hans og öðrum ættingjum
sendi ég samúðarkveðjur.
Hilmar Hafsteinsson.
Haukur
Guðmundsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGRÍÐUR SIGGEIRSDÓTTIR
húsmóðir,
lést laugardaginn 19. september á Eir
hjúkrunarheimili. Sendum við starfsfólki á
Eir sérstakar þakkir fyrir góða umönnun.
Útförin mun fara fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
25. september klukkan 13.
Kolbeinn Steinbergsson Erla K. Ólafsdóttir
Sigrún Steinbergsdóttir Sigmundur Felixson
Ólafur Þ. Steinbergsson Jóhanna S. Ragnarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Okkar elskaði og besti
GUÐNI ÓLAFUR GUÐNASON
kennari,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi
fimmtudaginn 10. september, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
25. september klukkan 13.
Magnea Steiney Jónsdóttir
Guðrún Elín Guðnadóttir
Guðni Ólafur Guðnason
Margrét Steiney Guðnadóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRÐUR ÁS. JÚLÍUSSON,
fyrrv. útibússtjóri,
Blásölum 13, Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
fimmtudaginn 17. september.
Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 28. september
klukkan 15 og verður streymt á slóðinni
www.facebook.com/groups/thordurjul.
Erna Gunnarsdóttir
Hans Júlíus Þórðarson Soffía Guðrún Kr. Jóhannsd.
Gunnar Kristinn Þórðarson
Ásdís Rósa Þórðardóttir Ívar Páll Jónsson
og barnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR
ljósmóðir,
Hraunvangi 1, Hafnarfirði,
lést 17. september á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 28. september
klukkan 13.
Athöfninni verður einnig streymt á slóðinni:
https://www.facebook.com/
MinningarsidaGudbjorgJohannesdottir
Benedikt Halldórsson
Sigurbergur Árnason Súsanna Rós Westlund
Aðalbjörg Benediktsdóttir Guðjón Þór Victorsson
Halldór Benediktsson Ingibjörg Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær maðurinn minn og besti vinur, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HJÁLMAR GUNNARSSON
málarameistari,
Hólabergi 84,
lést á Hrafnistu Skógarbæ að kvöldi 31.
ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fjölskyldan vill koma innilegu þakklæti til allra sem önnuðust
hann síðastliðið hálft ár, á erfiðum tímum; starfsfólks
Landspítala Fossvogi á deildum A-2, B-4, B-5 Vífilsstöðum og
Skógarbæ. Einnig innilegustu þakkir til heimahjúkrunar fyrir
umhyggju og góða þjónustu fimm mánuðina þar á undan.
Guðrún Erla Melsted
Gunnar Hjálmarsson Erla Elíasdóttir
Hjálmar Hjálmarsson Berglind Ágústsdóttir
Halldór Óli Hjálmarsson
Ingólfur Hjálmarsson
Árni Hjálmarsson Ágústa Björk Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
✝ Kristín Vigfús-dóttir fæddist í
Hafnarfirði 21.
nóvember 1934.
Hún lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði 5.
september 2020.
Foreldrar hennar
voru Elísabet Niku-
lásdóttir og Vigfús
Þorgilsson (látin).
Var Kristín í hópi
sjö systkina sem ól-
ust upp á Vitastíg 6a í Hafn-
arfirði. Systkini hennar eru
Hörður, Óskar og Þorbjörg sem
eru látin og eftirlifandi bræður
hennar eru Ólafur, Lýður og
Ómar.
Kristín giftist Grétari Finn-
bogasyni 24. júlí 1954. Þau Grét-
ar og Kristín hófu búskap sinn í
Keflavík og voru búsett þar til
ársins 1963 að þau fluttu til
Hafnarfjarðar og bjuggu þar
upp frá því. Grétar andaðist árið
2002.
Börn þeirra Kristínar og
Grétars eru: Vigdís Erla, f.
Guðjónssyni og þeirra börn eru
Hrafnhildur Emma Þórð-
ardóttir, Gabriel Gaui Þórð-
arson, Sara María, Theodór
Donni og Oliver Steinar.
3. Elísabet Stella er gift
Gunnari Einarssyni og þeirra
börn Erla Kristín Bjarnadóttir,
Guðmundur Bjarnason, Berg-
lind Bjarnadóttir og Halldór. a)
Maður Erlu Kristínar er Daníel
Oddsson og þeirra dætur Hekla
og Högna. b) Kona Guðmundar
er Brynja Rut Guðmundsdóttir
og þeirra synir Jökull Bjarni og
Jakob Ernir. c) Maður Berg-
lindar er Stefán H. Jónsson og
þeirra börn Stella Björt, Grétar
Logi og Emil Rafn.
4. Kona Ómars er Árdís Sig-
mundsdóttir og þeirra börn
Guðfinnur Þórir, Kristín Björg
og Almar Erlingsson. a) Guð-
finnur er giftur Sigrúnu Egg-
ertsdóttur og dóttir þeirra er
María Sól.
Kristín lauk hefðbundnu
barnaskólanámi í Hafnarfirði og
samhliða heimilisstörfum starf-
aði hún á St. Jósefsspítala í um
30 ár.
Útför Kristínar Vigfúsdóttur
fór fram í kyrrþey að ósk henn-
ar frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
17. september 2020. Jarðsett
var í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
1953, Guðjón Ragn-
ar, f. 1955, Elísabet
Stella, f. 1956, og
Þórir Ómar, f.
1962.
1. Vigdís Erla er
gift Helga Rúnari
Gunnarssyni og
þeirra börn Ólafía,
Gréta og Fjóla. a)
Ólafía er gift Birni
Guðmundssyni og
þeirra börn Vigdís
Lilja Ásgeirsdóttir, Bertel Snær
og Ingibjörg Embla. b) Gréta er
gift Ólafi Erni Oddssyni og
þeirra börn Oddur Helgi, Þórdís
Ósk og Fannar Óli. c) Fjóla er
gift Guðmundi Steinsen Rúnars-
syni og þeirra synir Arnar Máni,
Haukur og Jakob.
2. Guðjón Ragnar er giftur
Hrafnhildi Jónsdóttur og þeirra
börn Jón Grétar og Guðrún
Þóra. a) Jón Grétar er giftur El-
ísabetu Grétarsdóttur, þeirra
börn eru Nikulás Hrafn, Ólafía
Gyða og Hrafnhildur Rósa. b)
Guðrún Þóra er gift Gísla Þór
Elsku mamma mín! Nú ert þú
komin á góðan stað í Guðsríki,
laus við líkamann sem svo oft
gerði þér grikk þegar aldurinn
fór að færast yfir þig, sem verð-
ur víst ekki umflúið þegar ald-
urinn er orðinn þetta hár, 85 ár.
Þegar sjónin þín fór að daprast
var mikið tekið frá þér og var
það erfitt fyrir okkur fjölskyld-
una að horfa upp á það og geta
lítið gert annað en hjálpað þér
að leita lausna sem í boði voru
fyrir þig.
Elsku mamma, þú varst stoð
mín og stytta á minni lífsleið og
hjálpaðir mér að halda áfram í
námi eftir að ég eignaðist fyrsta
barnið mitt, Erlu Kristínu mína.
Þá varst þú alltaf til staðar fyrir
okkur og Erla Kristín fékk að
koma í afa- og ömmuholu þegar
við foreldrarnir vorum á sífelld-
um vöktum. Og svo síðar þegar
Guðmundur minn og Berglind
fæddust voruð þið alltaf til stað-
ar fyrir mig og mín börn. Þetta
hef ég oft sagt við þig og þakkað
þér, elsku mamma mín. Svo þeg-
ar aldurinn færðist yfir þig og
heilsan fór að daprast gat ég
launað þér allt það sem þú gerð-
ir fyrir mig með því að vera til
staðar fyrir þig. Þú varst elsku-
leg mamma mín alltaf brosandi
og kát og árin okkar saman á St.
Jósefsspítala þar sem við unnum
saman voru yndislegur tími og
bara góðar minningar með okk-
ar góða samstarfsfólki sem
margt varð okkar bestu vinir.
Nú eruð þið pabbi sameinuð á
ný og ég er viss um að það hafa
verið fagnaðarfundir í Guðsríki
þegar pabbi fékk þig loksins til
sín. Far þú í friði, elsku mamma
mín, og takk fyrir allt. Þín dótt-
ir,
Elísabet Stella.
Elsku mamma mín. Nú ertu
búin að kveðja okkur og komin í
faðminn hans pabba. Við höfum
átt svo margar góðar stundir
saman, ekki síst eftir að pabbi
dó. Þá komst þú mikið til okkar
og ferðaðist mikið með okkur.
Þú varst alltaf svo falleg og ynd-
isleg og naust þess að koma með
að heimsækja dætur okkar
Helga og barnabörnin sem elsk-
uðu þig öll. Síðasta árið var þér
erfitt, heilsunni hrakaði ört, en
alltaf var gott að vera með þér.
Takk fyrir allt elsku mamma
mín, þín verður sárt saknað.
Minningu um yndislega móður
geymi ég í hjarta mínu.
Minning um móður
Í hjarta mínu er lítið ljós,
sem logar svo skært og rótt.
Í gegnum torleiði tíma og rúms
það tindrar þar hverja nótt.
Það ljósið kveiktir þú, móðir mín,
af mildi, sem hljóðlát var.
Það hefur lifað í öll þessi ár,
þótt annað slokknaði þar.
Og þó þú sért horfin héðan burt
og hönd þín sé dauðakyrr,
í ljósi þessu er líf þitt geymt,
– það logar þar eins og fyrr.
Í skini þess sífellt sé ég þig
þá sömu og þú forðum varst,
er eins og ljósið hvern lífsins kross
með ljúfu geði þú barst.
Af fátækt þinni þú gafst það glöð,
– þess geislar vermdu mig strax
og fátækt minni það litla ljós
mun lýsa til hinsta dags.
(Jóhannes úr Kötlum)
Guð geymi þig elsku mamma
mín.
Þín dóttir,
Vigdís.
Kristín
Vigfúsdóttir