Morgunblaðið - 24.09.2020, Síða 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einkar gott er að sinna viðskiptum
og fjármálum í dag. Láttu einskis ófreistað
til þess að komast til botns í hlutunum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að finna athafnaþrá þinni
jákvæðan farveg. Ferðalög eða kostn-
aðarsamir atburðir eru inni í myndinni.
Farið ekki út fyrir þau mörk sem þið sett-
uð ykkur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert ástfangin/n. Viðurkenndu
það bara. Þú gefur vandamálum þínum
ekki mikinn gaum og þess vegna hverfa
þau.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Áður en þú verðlaunar sjálfa/n þig
með einhverju skemmtilegu skaltu ganga
úr skugga um að öllum skyldustörfum sé
lokið. Taktu eitt skref í einu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú lítur alltaf á björtu hliðarnar og
það virkar vel. Uppáhaldsafþreying þín
núna er að ráða dularfullar gátur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Óvænt tækifæri mun bjóðast þér
og það ríður á að þú kunnir að bregðast
rétt við. Spennandi möguleikar á ferðalög-
um eða námi gætu boðist.
23. sept. - 22. okt.
Vog Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar
þínir eru með besta móti. Ef þú efast er
engin von til þess að þín mál nái fram að
ganga.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er mannlegt eðli að leita
að göllum í öðrum til að líða betur með
sjálfan sig. Stundum er betra að telja upp
að tíu áður en þú opnar munninn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Líklegt er að rómantíkin
blómstri gagnvart einhverjum sem er þér
eldri. Leggðu þitt af mörkum til að bæta
umhverfi þitt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú færð ný tækifæri til að leysa
vandamál varðandi skuldir. Mundu að öll-
um orðum fylgir ábyrgð.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Næsti mánuður verður anna-
samur því fram undan eru stór verkefni í
vinnunni. Vertu óhrædd/ur við að biðja
um hjálp.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ákaflega gefandi að eiga
sálufélaga sem skilur þig og þekkir allar
þínar þarfir. Nýttu þér þitt frjóa ímynd-
unarafl.
Ríkó að læra um lifandi fæði og
breytti eftir það eldhúsinu sínu í
gróðurhús og ræktaði hveitigras og
kost með Hjördísi Gísladóttur sem
þær ráku í 11 ár. Sólveig hélt áfram
að læra og 1997 fór hún til Púertó
S
ólveig Eiríksdóttir fædd-
ist 24.9. 1960 og ólst upp
í Vesturbænum í
Reykjavík. „Á sumrin
var ég annaðhvort uppi í
Kerlingarfjöllum þar sem pabbi
stofnaði skíðaskóla ásamt vinum
sínum eða uppi í Rauðhólum þar
sem foreldrar mínir voru með stór-
an matjurtagarð á sumarbústað-
arlóð móðurafa og -ömmu,“ segir
Sólveig, sem kynntist grænmetis-
fæði á heimilinu.
Hún gekk í Melaskóla og síðan í
Hagaskólann og fór síðan í Sam-
vinnuskólann á Bifröst. „Ég bar út
blöð, passaði börn og vann á Skák-
prent sem var á Hagamelnum. Þar
var ég að hella upp á kaffi fyrir
gesti og það var oft mikið um að
vera, en þetta var um það leyti sem
heimsmeistaramót Fischers og
Spasskís í skák var haldið hér-
lendis. Einn fastagestanna, Helgi
Sæmundsson, kallaði einhvern dag-
inn á mig og sagði: „Komdu hérna
stelpa og tefldu við mig,“ og eftir
það var stundum hóað í mig ef það
vantaði andstæðinga.“
Sólveig bjó í Kaupmannahöfn í
sex ár eftir Bifröst og vann ýmis
störf auk þess að ljúka námi í
handavinnukennslu. Hún fór í jóga-
skóla til Svíþjóðar og stúderaði
makróbíótíska matreiðslu áður en
hún kom aftur til Íslands og fór að
vinna hjá Dóru Einars fatahönnuði.
Síðan tók við Myndlista- og hand-
íðaskólinn, og allt benti til þess að
fatahönnun yrði hennar farvegur
því hún vann bæði íslenska keppni
og lenti í 2. sæti í stórri alþjóðlegri
keppni „Síðasta árið í skólanum var
tilraunaár og deildum blandað sam-
an. Þá var ég alltaf að hanna eitt-
hvað matartengt,“ segir Sólveig
sem segir að reynslan úr skólanum
hafi verið ómetanleg. „Ég fékk svo
mikla þjálfun í því að fá hugmynd,
og ekki síst að koma henni í fram-
kvæmd. Og þá skipti engu máli
hvort ég væri að vinna með ull eða
kál.“ Það var þó búið að skrifa í
skýin að Sólveig myndi hafa mikil
áhrif á matarmenningu Íslendinga,
og láta fatatískuna öðrum eftir.
Árið 1994 stofnaði hún Grænan
sólblóma/bókhveiti-græðlinga til að
nota í matinn.
Sólveig hefur verið dugleg við að
kynna Íslendingum nýja matarhætti
og bæði haldið fjölmörg matreiðslu-
námskeið og fyrirlestra auk þess að
vera með þætti í útvarpi og sjón-
varpi um grænkerafæði. „Það er
ótrúlegt hvað mikið hefur breyst á
þessum tíma og Íslendingar hafa
verið duglegir að tileinka sér nýja
siði,“ segir Sólveig og nefnir að þeg-
ar hún gaf út sína fyrstu Hagkaups-
bók hafi það verið skilyrði að hrá-
efnið fengist í búðinni. „Þá fóru að
koma heilsuhillur í búðirnar. Lík-
lega hef ég verið rétt kona á réttum
stað með nógu mikla ástríðu.“
Árið 2005 stofnaði Sólveig ásamt
Elíasi, eiginmanni sínum, Himneskt
ehf. sem framleiddi lífræna mat-
vörulínu, fyrst undir nafninu Himn-
esk hollusta og síðar Himneskt í
samstarfi við Haga. Síðan ráku Sól-
veig og Elías veitingastaðinn Gló í
níu ár. Matreiðslubækurnar eru
orðnar 10 talsins og hráfæðisbókin
RAW hefur verið þýdd á fjölda
tungumála. Sólveig var kosin besti
hráfæðiskokkur heims bæði 2012 og
2013 og hefur farið víða um heiminn
með fyrirlestra tengda grænu mat-
aræði. Núna er næsta kynslóð fjöl-
skyldunnar farin að vera með, en
Sólveig heldur úti matarblogginu
Mæðgurnar ásamt Hildi dóttur
sinni og eins er hún með netversl-
unina Healthy Dóttir með Elíasi og
dóttur sinni, Júlíu.
Fjölskylda
Eiginmaður Sólveigar er Elías
Guðmundsson, f. 29.9. 1971, fram-
kvæmdastjóri. Foreldrar hans eru
Guðmundur Magnússon skrif-
stofustjóri, f. 14.10. 1936, og Guðrún
Elíasdóttir hjúkrunarkona, f. 6.3.
1941. Þau búa í Garðabæ.
Fyrri sambýlismenn og barns-
feður eru Ársæll Harðarson, svæð-
isstjóri hjá Icelandair, f. 9.1. 1956,
og Ólafur Jónsson ráðgjafi, f. 8.8.
1958.
Börn Sólveigar eru: 1) Hildur Ár-
sælsdóttir listakona, f. 31.1. 1980.
Hún er gift Erni Inga Ágústssyni
tónlistarmanni og iðnaðarmanni og
Sólveig Eiríksdóttir matarhönnuður – 60 ára
Vináttan Þessar vinkonur hafa fylgst að í mörg ár. F.v. Agnes Kristjónsdóttir,
Anna Kristín Þorsteinsdóttir, Laila Awad, Sólveig og Gunný Magnúsdóttir.
Rétt kona á réttum stað
Foreldrar Hildur Karlsdóttir og Eiríkur Haraldsson hafa verið gift í 63 ár.
30 ára Jóhanna fædd-
ist í Reykjavík, ólst upp
á Seltjarnarnesi og býr
núna á Höfn í Horna-
firði. Hún er hjúkrunar-
stjóri á hjúkrunarheim-
ilinu Skjólgarði í
Hornafirði. Hennar
helstu áhugamál eru ferðalög, bæði inn-
anlands og erlendis, að elda góðan mat
og kvikmyndir svo eitthvað sé nefnt.
Maki: Davíð Þór Skúlason, f. 1990, flug-
maður.
Börn: Embla Hjördís, f. 2016, og Vík-
ingur Brynjar, f. 2018.
Foreldrar: Guðrún Brynjólfsdóttir, f.
1964, sjúkraþjálfari á Seltjarnarnesi, og
Sveinn Grétar Pálmarsson, f. 1963, við-
skiptafræðingur, búsettur í Noregi.
Jóhanna Sigríður
Sveinsdóttir
40 ára Karl ólst upp í
Hrútafirði fyrstu fimm
árin og síðan í Borg-
arnesi. Núna býr hann
í Kópavogi. Hann er
sölumaður. Karl hefur
mestan áhuga á bíl-
um, íþróttum og kvik-
myndum auk þess að njóta samvista
með fjölskyldu og vinum.
Maki: Margrét Lilja Árnadóttir, f. 1980,
húsmóðir.
Börn: Svanhildur, f. 1997, Brynjar Hugi, f.
2005, og Karl Ágúst, f. 2007. Karl á eitt
barnabarn og er það sonur Svanhildar,
Aron Brimir, f. 2017.
Foreldrar: Svanhildur Karlsdóttir, f.
1956, d. 2016, og Sveinn Trausti Guð-
mundsson, f. 1956, vélamaður í Noregi.
Karl Sveinsson
Eriksen
www.gilbert.is
Til hamingju með daginn
Reykjavík Stella Benjaminsdóttir
fæddist 22. nóvember 2019. Hún vó
3.500 g og var 53 cm löng. Foreldrar
hennar eru Benjamin Boorman og
Valdís Þorkelsdóttir.
Nýr borgari