Morgunblaðið - 24.09.2020, Qupperneq 47
þau eiga börnin Ágúst, f. 2009, og
Sólveigu, f. 2013, og búa í Hafnar-
firði. 2) Guðrún Júlía Ólafsdóttir
viðskiptafræðingur, f. 6.1. 1994, í
sambúð með Hirti Eyþórssyni nema
í atvinnuflugi. Þau eiga soninn Alex-
ander Tryggva, f. 2009, og búa í
Garðabæ. 3) Aþena Elíasdóttir
nemi, f. 9.5. 2000.
Systkini Sólveigar eru Karl, f.
13.1. 1958, kokkur og matarfröm-
uður í Reykjavík; Haraldur, f. 7.3.
1965, veðurfræðingur í Reykjavík,
og Eiríkur, f. 7.3. 1965, athafnamað-
ur í London.
Foreldrar Sólveigar eru Eiríkur
Haraldsson menntaskólakennari og
einn af stofnendum Skíðaskólans í
Kerlingarfjöllum, f. 12.3. 1931, og
Hildur Karlsdóttir píanókennari, f.
25.11. 1935. Þau hafa verið gift í 63
ár og búa í Reykjavík.
Sólveig
Eiríksdóttir
Magnea Ingibjörg Einarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sigurhans Hannesson
rennismiður og
verkstjóri í Reykjavík
Steinunn Jóhanna Þorsteins
húsmóðir í Reykjavík
Karl Andreas Eiríksson Þorsteins
stórkaupmaður og
ræðismaður í Reykjavík
Hildur Karlsdóttir
píanókennari í Reykjavík
Marín Sigurðardóttir
húsfreyja, Borgarfirði eystra
Eiríkur Sigfússon
póstafgreiðslumaður, Borgarfirði eystra
Kristíana Ágústa
Eymundsdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Jes Anders Gíslason
prestur, verslunarstjóri, kennari
og bókavörður í Vestmannaeyjum
Solveig Soffía Jesdóttir
hjúkrunarkona í Reykjavík
Haraldur Eiríksson
rafvirkjameistari í Reykjavík
Sigurbjörg Rannveig
Pétursdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Eiríkur Hjálmarsson
útvegsbóndi á Vegamótum og
barnakennari í Vestmannaeyjum
Úr frændgarði Sólveigar Eiríksdóttur
Eiríkur Haraldsson
menntaskólakennari í Reykjavík
Brúðhjónin Sólveig og Elías úti í
náttúrunni á brúðkaupsdaginn.
DÆGRADVÖL 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Vefverslun
komin í loftið!
mostc.is
St. 38-56
Gerið verðsamanburð
FULL BÚÐ
AF NÝJUM OG
FALLEGUM
VÖRUM
26.990 kr.
Kápur - Úlpur
loðfóðraðar
„EKKERT FYRIR MIG, TAKK. ÉG ER
AÐ REYNA AÐ HÆTTA AÐ BORÐA
RUSLFÆÐI.”
„ÞETTA ER SÚ SÍÐASTA SEM HANN
MÁLAÐI.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hlakka til að fá
hann heim aftur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER AÐ SENDA
LÍSU SJÁLFU
ÚÚPS
SMELL
HÚN FÓR TIL
MÖMMU
ÞÚ ERT SEINN Í KVÖLDMATINN
KYSSILEGUR
ER ÞÁ MATURINN
MINN KALDUR?
NEI, HANN ER
HEITUR OG
FÍNN …
Í MAGANUM Á SNATA!
TIL ÞJÓNUSTU
REIÐUBÚINN!
SKELL
ÍVísnahorni á þriðjudag féll niðurfyrir vangá fyrsta vísuorðið í
vísu, sem Elísabet Jónasdóttir
kenndi mér og hafði eftir móður
sinni. Mér þykir þetta mjög leið-
inlegt og bið hana og lesendur að
afsaka. Hér er erindið eins og hún
fór með það:
Margur ágirnist meira en þarf.
Maður fór að veiða skarf
hafði fengið fjóra,
elti þann fimmta og í því hvarf
ofan fyrir bergið stóra.
Á föstudag gengu sjóirnir yfir
Eiðsgrandann og fleygðu stórgrýti
á land. Því rifjast upp þetta erindi
úr Kláusarvísum Bjarna Thor-
arensen:
Kláus karlinn gamli,
Kambs í leiru fæddur,
í landsynning þó svamli
sést hann aldrei mæddur,
og þó að brjóti og bramli
brimsjór stormi glæddur
er hann óhræddur.
Það berast fréttir úr Mývatns-
sveit. Friðrik Steingrímsson segir á
Boðnarmiði að bitmýið gjósi upp í
hvert sinn sem lygnir:
Síst er lífið sæla tóm
svífur haustið yfir,
þó að fryst’og fölni blóm
fluguskrattinn lifir.
Björn Ingólfsson svarar:
Lífið hjá Filla er stapp og stríð
og stúrinn er karlinn að vonum
því bitmýið gleðst yfir góðri tíð
og gæðir sér óspart á honum.
Ingólfur Ómar Ármannsson
hefur orð á því að það hafi gránað í
Esjuna:
Erja vindar úfinn ver
öldur brotna á dröngum.
Kuldaleg nú Esjan er
orðin grá í vöngum.
Ármann Þorgrímsson segir:
„Þetta heldur áfram“:
Tapast bæði fólk og fé
og fleira en ég hef grun um
Finnst mér eins og fjandinn sé
að fara á límingunum.
Þessi haustvísa Magnúsar Gríms-
sonar þykir mér alltaf jafn falleg:
Lóan í flokkum flýgur,
fjarlægist sumarból.
Fyrri og fyrri hnígur
fögur að djúpi sól.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margur ágirnist
meira en þarf