Morgunblaðið - 24.09.2020, Side 48

Morgunblaðið - 24.09.2020, Side 48
48 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020 Lengjudeild kvenna Völsungur – Tindastóll............................. 0:4 Víkingur R. – Fjölnir ............................... 1:0 Leikjum ÍA – Aftureldingar og Augnabliks – Gróttu var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Staðan eftir fyrri tvo leikina: Tindastóll 15 13 1 1 43:5 40 Keflavík 14 10 3 1 36:14 33 Haukar 14 9 2 3 26:14 29 Afturelding 14 6 3 5 18:17 21 Grótta 14 5 4 5 18:21 19 Víkingur R. 15 5 3 7 21:26 18 Augnablik 13 5 3 5 20:27 18 ÍA 14 2 6 6 19:24 12 Fjölnir 15 2 1 12 7:29 7 Völsungur 14 1 0 13 7:38 3 2. deild karla Fjarðabyggð – Þróttur V......................... 1:3 Dalvík/Reynir – Kári................................ 1:2 KF – Völsungur ........................................ 1:2 Víðir – Njarðvík........................................ 1:2 Kórdrengir – Selfoss................................ 3:1 Staðan: Kórdrengir 18 13 4 1 39:11 43 Þróttur V. 18 11 4 3 37:18 37 Selfoss 18 12 1 5 31:22 37 Njarðvík 18 11 3 4 35:23 36 Haukar 18 10 0 8 34:25 30 KF 18 8 1 9 30:35 25 Fjarðabyggð 18 7 3 8 27:25 24 Kári 17 6 4 7 25:23 22 ÍR 18 6 1 11 30:36 19 Víðir 17 4 1 12 20:43 13 Völsungur 18 3 2 13 22:49 11 Dalvík/Reynir 18 2 4 12 22:42 10 4. deild karla 8-liða úrslit, seinni leikir: Kormákur/Hvöt – KÁ...................... 1:0 (3:2) Hamar – KH..................................... 1:1 (3:1) KFS – KFR ...................................... 6:0 (7:2) Kría – ÍH........................................... 2:5 (2:8)  Í úrslitaeinvígjum um sæti í 3. deild mæt- ast Kormákur/Hvöt – ÍH, og Hamar – KFS. Meistaradeild Evrópu Umspil, fyrri leikir: Olympiacos – Omonia Nikósía ............... 2:0  Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos. Gent – Dynamo Kiev ................................ 1:2 Molde – Ferencváros ............................... 3:3 England Deildabikar, 32ja liða úrslit: Fleetwood – Everton............................... 2:5  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton. Leicester – Arsenal ................................. 0:2  Rúnar Alex Rúnarsson var varamark- vörður Arsenal. Millwall – Burnley ................................... 0:2  Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn með Burnley.  Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Fulham – Sheffield Wednesday.............. 2:0 Preston – Brighton................................... 0:2 Stoke – Gillingham................................... 1:0 Chelsea – Barnsley................................... 6:0 Morecambe – Newcastle ......................... 0:7 Ítalía Bikarkeppnin, 1. umferð: Padova – Breno........................................ 2:0  Emil Hallfreðsson lék ekki með Padova.  Meistaradeild karla A-RIÐILL: Kielce – Pick Szeged........................... 26:23  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 2 mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson ekkert.  Stefán Rafn Sigurmannsson lék ekki með Pick Szeged vegna meiðsla. B-RIÐILL: Aalborg – Motor Zaporzhye .............. 38:29  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Noregur Haslum – Drammen ............................ 27.24  Óskar Ólafsson skoraði 5 mörk fyrir Drammen.   Hallbera Guðný Gísladóttir, lands- liðskona í knattspyrnu og fyrirliði Íslandsmeistara Vals, er á förum frá Val. Hallbera, sem er 34 ára gömul, mun klára tímabilið með Valskonum en heldur utan til Sví- þjóðar í nám eftir áramót. Hún stefnir á að spila áfram fótbolta í Svíþjóð en óvíst er með hvaða liði hún mun leika. Þá er óvíst hvort hún muni leika eitthvað með Vals- liðinu næsta sumar. Hallbera þekk- ir vel til í Svíþjóð eftir að hafa leikið með bæði Piteå og Djurgården í úr- valsdeildinni þar í landi. Hallbera fer til Svíþjóðar Morgunblaðið/Eggert Reynd Hallbera Guðný Gísladóttir hefur leikið 114 landsleiki. NOREGUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Fyrirheitna landið hjá íslensku knattspyrnufólki þessa dagana er Noregur. Jón Guðni Fjóluson, Hólmfríður Magnúsdóttir, Valdimar Þór Ingimundarson, Hólmar Örn Eyjólfsson, Viðar Örn Kjartansson og Björn Bergmann Sigurðarson hafa öll gengið til liðs við norsk félög síðustu daga og vikur. Þar með eru tuttugu Íslendingar á mála í atvinnumennsku í norska fótboltanum, og einn þjálfari að auki. Fimmtán leika í úrvalsdeild karla, ásamt þjálfaranum, þrír í B- deild karla og tvær í úrvalsdeild kvenna. Noregur hefur um árabil verið fyrsta stoppistöð hjá mörgum Ís- lendingum sem hafa verið að hefja atvinnuferilinn. Í þessari síðustu bylgju er hinsvegar aðeins einn í þeirri stöðu, Fylkismaðurinn Valdi- mar sem lék sinn fyrsta leik með Óslóarliðinu Strömsgodset um síð- ustu helgi. Viðar, Björn, Hólmar og Hólm- fríður eiga það sameiginlegt að snúa aftur til síns gamla félags í Noregi. Viðar varð markakóngur úrvals- deildarinnar með Vålerenga 2014 og mætti aftur með látum á dögunum þegar hann skoraði þrennu í fyrsta leiknum. Björn er kominn aftur til Lilleström þar sem hann hóf at- vinnuferilinn, Hólmar leikur á ný með Rosenborg þar sem hann varð tvívegis norskur meistari og Hólm- fríður er komin á ný til Avaldsnes þar sem hún var einn besti leikmað- urinn í norska fótboltanum um fimm ára skeið. Metjöfnun þegar Jón spilar Jón Guðni hefur aftur á móti ekki leikið í Noregi áður á sínum níu ár- um í atvinnumennsku en hann er fimmtándi Íslendingurinn sem klæðist búningi Brann frá Bergen. Þegar Jón Guðni leikur fyrsta leikinn með Brann jafnar félagið metin við Lilleström sem mesta Ís- lendingafélagið í úrvalsdeild karla. Fimmtán íslenskir leikmenn hafa spilað með Lilleström í deildinni. Á hælunum á þessum liðum er Viking frá Stavanger sem hefur teflt fram fjórtán Íslendingum í efstu deild. Alfons þrettándi meistarinn? Íslendingar gætu hæglega fagnað Noregsmeistaratitli í bæði karla- og kvennaflokki í ár. Alfons Sampsted og samherjar í Bodö/Glimt hafa haft ótrúlega yf- irburði í úrvalsdeild karla og eru með sextán stiga forystu eftir 18 umferðir af 30. Norski meistaratitill- inn blasir við þeim eftir sextán sig- urleiki og tvö jafntefli. Alfons hefur eignað sér stöðu hægri bakvarðar á fyrsta ári sínu hjá félaginu, sem verður sögulegt því Bodö/Glimt hef- ur aldrei orðið norskur meistari. Liðið jafnaði sinn besta árangur í fyrra þegar það hafnaði í öðru sæti, fjórtán stigum á eftir meisturunum í Molde. Alfons verður ef allt gengur eftir þrettándi Íslendingurinn til að verða norskur meistari í karlaflokki. Árni Gautur Arason er sigursælastur allra en hann varði mark Rosenborg á sex meistaraárum í röð, frá 1998 til 2003, og var síðan í marki Vålerenga sem stöðvaði sigurgöngu Rosenborg árið 2005. Matthías Vilhjálmsson vann titilinn fjögur ár í röð með Ros- enborg, frá 2015 til 2018, og Hólmar Örn var samhliða Matthíasi tvö fyrstu árin. Kristinn Björnsson (Vålerenga 1981), Gunnar Gíslason (Moss 1987), Ármann Smári Björnsson, Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnason (Brann 2007), Pálmi Rafn Pálmason og Veigar Páll Gunn- arsson (Stabæk 2008), Björn Berg- mann (Molde 2014) og Guðmundur Þórarinsson (2016) hafa einnig orðið norskir meistarar í karlaflokki. Vinnur Ingibjörg eða Hólmfríður meistaratitilinn? Ingibjörg Sigurðardóttir er á toppnum í kvennadeildinni með Vålerenga sem heyr gríðarlega jafna keppni við Rosenborg, Lille- ström og Avaldsnes þegar tólf um- ferðir hafa verið leiknar af átján. Vålerenga er með tveggja stiga for- ystu en hefur leikið einum leik meira en keppinautarnir þrír sem eru tveimur, þremur og fjórum stigum á eftir. Takist Ingibjörgu eða Hólmfríði að landa meistaratitlinum með Våle- renga eða Avaldsnes verður það fyrsti titill viðkomandi félags í sög- unni en bæði hafa þau best náð öðru sæti hingað til. Guðbjörg Gunnarsdóttir lands- liðsmarkvörður hefur ein Íslendinga orðið norskur meistari í tvígang, með Lilleström 2014 og 2015. Þá hafa Katrín Jónsdóttir með Kolbotn (2002), Telma Þrastardóttir með Stabæk (2013) og Sigríður Lára Garðarsdóttir með Lilleström (2018) orðið norskir meistarar í kvenna- flokki. Hólmar og Viðar slást um Evrópusæti Hólmar Örn Eyjólfsson og Viðar Örn Kjartansson koma beint í harð- an slag um Evrópusæti en lið þeirra eru jöfn í fjórða til fimmta sæti, tveimur stigum á eftir Molde og Odd sem eru í öðru og þriðja sæti. Matt- hías Vilhjálmsson er liðsfélagi Við- ars hjá Vålerenga. Axel Andrésson leikur með Vik- ing frá Stavanger sem er á lygnum sjó um miðja deild. Jón Guðni Fjóluson hjá Brann, Valdimar Þór Ingimundarson og Ari Leifsson hjá Strömsgodset og þeir Emil Pálsson og Viðar Ari Jónsson hjá Sandefjord sigla með liðum sín- um rétt fyrir ofan fallsvæðið og þar má lítið út af bera. Start, undir stjórn Jóhannesar Harðarsonar, er í fjórtánda sæti, umspilssæti, en Guðmundur Andri Tryggvason hefur ekkert náð að spila með liðinu vegna meiðsla. Að- eins einu stigi neðar er lið Mjön- dalen en þar er Dagur Dan Þórhalls- son meðal leikmanna. Á botninum situr lið Aalesund í erfiðri stöðu en með því leika Hólm- bert Aron Friðjónsson, Daníel Leó Grétarsson og Davíð Kristján Ólafs- son. Þrátt fyrir slæmt gengi liðsins er Hólmbert fjórði markahæsti leik- maður deildarinnar og hefur skorað 11 af 23 mörkum liðsins. Íslendingalið í toppbaráttu Í norsku B-deildinni hafa ávallt verið nokkrir Íslendingar. Björn Bergmann freistar þess að koma Lilleström aftur upp í úrvalsdeildina en þaðan féll liðið í fyrra eftir 45 ára dvöl sem er met í norska fótbolt- anum. Liðið er nú í fjórða sæti. Arn- ór Smárason er meðal leikmanna Lilleström en er ekkert farinn að spila á tímabilinu vegna meiðsla. Adam Örn Arnarson leikur með Tromsö sem er með tveggja stiga forystu á toppnum, og féll líka úr úr- valsdeildinni í fyrra. Íslendingarnir í Noregi eru fleiri en á undanförnum árum en hafa þó ekki náð þeim fjölda sem mestur hefur verið. Flestir voru þeir árið 2014, átján talsins í úrvalsdeild karla og 26 samtals í umræddum þremur atvinnudeildum karla og kvenna. Fyrirheitna landið  Sex Íslendingar hafa gengið til liðs við norsk félög síðustu vikur  Nálgast metfjöldann frá 2014  Íslendingar norskir meistarar hjá báðum kynjum í ár? Ljósmynd/Vålerenga Vålerenga Viðar Örn Kjartansson var fljótur að taka fram skotskóna. AFP Brann Jón Guðni Fjóluson er fimm- tándi Íslendingurinn með liðinu. Morgunblaðið/Eggert Avaldsnes Hólmfríður Magnús- dóttir er mætt þangað á ný. Dominos-deild kvenna Fjölnir – Snæfell................................... 91:60 Breiðablik – Valur ................................ 71:67 Haukar – Skallagrímur........................ 51:54 Keflavík – KR ..................................... 114:72 Úrslitakeppni NBA Vesturdeild, úrslit: Denver – LA Lakers ........................ 114:106  Staðan er 2:1 fyrir Lakers og fjórði leik- urinn fer fram í nótt. Litháen Siauliai – Pieno Zvaigzdes ................. 80:81  Elvar Már Friðriksson skoraði 19 stig fyrir Siauliai, átti 10 stoðsendingar, tók 6 fráköst og lék í 35 mínútur.   Rúnar Alex Rúnarsson var í leik- mannahópi Arsenal í fyrsta skipti í gærkvöld þegar liðið vann Leicest- er 2:0 á útivelli í 32ja liða úrslitum enska deildabikarsins í knatt- spyrnu. Rúnar var varamarkvörður liðsins en aðalmarkvörðurinn Bernd Leno varði markið. Fyrra markið var sjálfsmark og Edward Nketiah skoraði það síðara. Gylfi Þór Sigurðsson var fyrirliði Everton sem vann Fleetwood 5:2 og Jón Daði Böðvarsson var í liði Mill- wall sem tapaði 0:2 fyrir Burnley á heimavelli. Rúnar í hópnum hjá Arsenal AFP Everton Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum í Fleetwood í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.