Morgunblaðið - 26.09.2020, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 6. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 226. tölublað 108. árgangur
+ www.hekla.is/audisalur
Vinsæli fjórhjóladrifni rafbíllinn
+ Afmælispakki
Basic
8.170.000 kr.
Dæmi um búnað: 20” álfelgur, loftpúðafjöðrun,
íslenskt leiðsögukerfi, hiti í stýri
*Bíll á mynd er
Advanced S-line
DRAUMUR UM
BÍLSTJÓRASTARF
RÆTTIST FETA NÝJAR SLÓÐIR
KARDEMOMMUBÆRINN 50LANGAR VEGALENGDIR 12
Sé leiguverð á hvern fermetra á
langtímabílastæði við Keflavíkur-
flugvöll borið saman við leiguverð
á fasteignamarkaði er leiguverð
við flugvöllinn hærra en meðal-
leiguverð á þriggja herbergja íbúð
í miðbæ Reykjavíkur. Hver sólar-
hringur í langtímastæði kostar
1.750 krónur í fyrstu vikunni, 1.350
krónur í annarri viku og 1.200
krónur í þeirri þriðju. Ef gert er
ráð fyrir 30 dögum í stæði hljóðar
kostnaðurinn því upp á 40.990 með
meðalverði upp á 1.363 krónur á
sólarhring. Hvert bílastæði er 11,5
fermetrar og fermetraverðið því
rúmar 3.550 krónur á tímabilinu.
Meðalleiguverð á hvern fermetra í
þriggja herbergja íbúð í miðbæ
Reykjavíkur var 3.291 króna í júní
síðastliðnum.
Hækkanir á verðskrá á
langtímabílastæðum hjá Isavia
hafa verið allt að 300% frá árinu
2015.
Í heild eru bílastæði á langtíma-
svæði 2.366 talsins en þeim fjölgaði
um 300 árið 2016. »11
Dýrara að leigja
stæði en íbúð
Mikið sjónarspil er nú að finna við Fífuna í Kópavogi en þar
hefur tívolí hins breska Taylors verið opnað; betur þekkt sem
helgina. Tívolí Taylors hefur verið á nokkru ferðalagi í sumar
og í haust en það stóð áður í Hafnarfirði og á Akureyri.
Taylors-tívolí. Það mun standa opið eitthvað áfram og verður
opið frá klukkan tvö síðdegis og til klukkan tíu að kvöldi yfir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björt tívolíljós blika við Fífuna í Kópavogi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Rannsóknarhópur undir stjórn
Þórarins Gíslasonar, prófessors við
læknadeild Háskóla Íslands og
yfirlæknis svefndeildar Landspít-
alans, og Bryndísar Benediktsdótt-
ur, prófessors við læknadeild HÍ
og læknis, hefur fengið 200 millj-
óna króna styrk frá bandarísku
heilbrigðisstofnuninni (NIH) til
nýrrar rannsóknar á kæfisvefni.
Að sögn Þórarins er mikil sam-
keppni um styrki frá NIH. „Um-
sóknir eru mjög margar en aðeins
örfáar fá styrki,“ segir hann. Ís-
lensk erfðagreining hafi verið leið-
andi í erfðarannsóknum í heimin-
um í tvo áratugi og það greiði
götuna. Einnig samvinna við NOX
Medical, sem sé leiðandi í þróun
svefngreiningarbúnaðar á heims-
vísu.
Samstarf í tvo áratugi
Samstarf teymis Þórarins og vís-
indamanna í svefnrannsóknadeild
háskólasjúkrahússins í Fíladelfíu í
Bandaríkjunum (PENN) hefur
varað í tvo áratugi og frá aldamót-
um hefur íslenski hópurinn fengið
tæplega milljarð í styrk frá NIH.
Í rannsókninni felst hvort greina
megi kæfisvefn með blóðsýni og
hvort segja megi til um fylgikvilla
sjúkdómsins. Þórarinn segir að vís-
bendingar séu um að fyrirhugaðar
mælingar geti til dæmis sagt fyrir
um hjarta- og æðasjúkdóma.
Einstaklingar með kæfisvefn eru
mjög mismunandi, að sögn Þórar-
ins. Greining og meðferð hafi hafist
um miðjan áttunda áratuginn og þá
hafi rannsóknir bent til þess að
sjúkdómurinn væri ekki algengur.
Fljótlega hafi komið í ljós að end-
urteknar öndunartruflanir, súrefn-
isskortur og svefntruflun væru á
meðal algengustu langvinnra sjúk-
dóma. „Þrátt fyrir að yfir 11.000
manns hafi greinst með kæfisvefn
á Íslandi er líklegast að enn fleiri
séu með ógreindan sjúkdóm,“ segir
Þórarinn.
MVíðamikil rannsókn … »6
Nær milljarður í rann-
sóknir á kæfisvefni
Greint hvort blóðtaka meti kæfisvefn og líkur á fylgikvillum
Gufa upp úr öðrum opna sigkatl-
inum í Bárðarbunguöskjunni hefur
ekki áður sést jafn greinilega og
þegar þyrla Landhelgisgæslunnar
flaug þar yfir í vikunni. Ljóst er að
hiti er undir en Ingibjörg Jóns-
dóttir, dósent við Jarðvísindastofn-
un Háskóla Íslands, segir að ekki sé
hægt að fullyrða að aukin virkni sé
í eldstöðinni.
Bárðarbunga er ein af megineld-
stöðvunum í Vatnajökli og eitt virk-
asta svæði landsins. Jarðvísinda-
menn hafa fylgst sérstaklega með
Bárðarbungu. »4
Landhelgishæslan/TF-SIF
Sigketillinn Ljóst er að hiti er undir.
Gufa í Bárðarbungu