Morgunblaðið - 26.09.2020, Page 6

Morgunblaðið - 26.09.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020 Dan V. S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali s. 896 4013 Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali s. 897 8061 Þórarinn Friðriksson lögg. fasteignasali s. 844 6353 Jón Bergsson lögmaður og lg.fs. s. 777 1215 Ármúla 21, 108 Reykjavík • s. 533 4040 • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is OPIÐ HÚS sunnudaginn 27. september kl. 14-15 AÐEINS 9 ÍBÚÐIR EFTIR Nýjar glæsilegar íbúðir í grónu umhverfi í Kópavogi. 40 íbúðir. 3ja, 4ra og 5 herbergja. 3 stigahús, útsýni. Húsið er klætt að utan. Bílastæði í bílageymslu með völdum íbúðum. NÓNHÆÐ Arnarsmári 36-40 starfi við svefnrannsóknadeild há- skólasjúkrahússins í borginni Fíla- delfíu í Bandaríkjunum (PENN). Samvinna Þórarins við sérfræð- inga á svefnrannsóknadeild PENN hófst um aldamótin og hefur teymi hans fengið að jafnaði um 40 millj- Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þórarinn Gíslason, yfirlæknir svefn- deildar Landspítalans og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, hef- ur gert samkomu- lag um tæplega 200 milljóna króna hlutdeild í stórum styrk frá bandarísku heil- brigðisstofnun- inni (National Institude of Health, NIH) til þriggja ára. Frá aldamótum hefur hann fengið samtals tæplega milljarð frá NIH til svefnrannsókna í sam- ónir króna á ári frá NIH undanfarin 20 ár. Nýja rannsóknin hefur hlotið vinnuheitið MOSA (Metabolomics of Obstructive Sleep Apnea). „Rann- sóknin felst í byltingarkenndri nálg- un á greiningu og mati kæfisvefns,“ segir Þórarinn. Rannsakað verði hvort greina megi kæfisvefn með einfaldri blóðprufu, sem gæti einnig sagt fyrir um birtingarform sjúk- dómsins og gert rannsakendum fært að fylgja eftir árangri meðferðar. Gjörbylting Þórarinn segir að þetta yrði gjör- bylting frá þeim aðferðum sem nú séu notaðar þótt líklegt sé að hefð- bundnar svefnrannsóknir haldi áfram í einhverjum mæli. Þekking á því ástandi sem kallað er kæfisvefn hafi gjörbreyst á undanförnum ár- um. „Ljóst er að sjúkdómsmyndin er mjög mismunandi og sterkt samspil er milli kæfisvefns og heilsufars að öðru leyti. Að minnsta kosti 11.000 kæfisvefnssjúklingar hafa greinst á Íslandi og notar meirihluti þeirra svefnöndunartæki að staðaldri. Bið- listar eru ógnarlangir og líklega eru fleiri ógreindir kæfisvefnssjúklingar en greindir.“ Viðamikil rannsókn Áður en meðferð hefst verður 250 einstaklingum á aldrinum 18-90 ára á Íslandi með nýgreindan kæfisvefn á meðalháu eða háu stigi boðin þátt- taka í rannsókninni. Þórarinn segir að gerð verði ná- kvæmari svefnrannsókn en í fyrri rannsóknum með nýrri tegund mæli- tækis, sem hægt sé að sofa með heima og mæli meðal annars heilarit frá mikilvægum mælistöðvum á höfði og hreyfingar augna. Athygli og ein- beiting með nýrri útfærslu á við- bragðsprófun verði könnuð í kjölfar- ið. Hreyfing verði mæld í tvær vikur með nýjustu gerð hreyfiskynjara. Næringarfræðingur muni ræða við þátttakendur og safna upplýsingum með stöðluðum spurningalista. Eftir sex mánaða meðferð með svefn- öndunartæki verði ofangreindar rannsóknir endurteknar. Viðmiðun- arsýni verði einnig skoðuð frá þátt- takendum í öðrum faraldsfræðirann- sóknum sem rannsóknarhópurinn vinnur að. Viðamikil rannsókn á kæfisvefni  Samstarf Þórarins Gíslasonar prófessors og teymis hans við svefnrannsóknadeild háskólasjúkra- hússins í Fíladelfíu í Bandaríkjunum heldur áfram  Að minnsta kosti 11.000 með kæfisvefn á Íslandi Þórarinn Gíslason Kæfisvefn » Að minnsta kosti 11.000 kæfisvefnssjúklingar hafa greinst á Íslandi. » Þórarinn Gíslason telur senni- legt að ógreindir kæfisvefnssjúk- lingar séu fleiri en greindir. Líney Sigurðardóttir, Þórshöfn Margir telja sjósund hafa jákvæð áhrif á heilsu fólks og hópur kvenna á Þórshöfn er því hjart- anlega sammála. Þær stofnuðu nýlega hópinn „Áhugakellur um sjósund“ en fyrsta sund hóps- ins var í byrjun september. Ekki er ylströnd né heitir pottar við strendur Langanessins en þar finnast samt staðir sem heilla til sín sundfólk. Oft er farið í sjóinn við Brekknasand innst í Þistilfirði, austan við ósa Hafralónsár. Þangað er þægilega stutt að fara frá Þórshöfn, svört sand- fjaran er mjúk og hægt að fara nokkuð langt út á grunnsævi. Annar vinsæll baðstaður er úti á Langanesi, nokkru lengra frá Þórshöfn og ekki í alfaraleið en þar upplifa sundkonur sig aleinar í heiminum úti við ysta haf. „Þetta er ótrúlega magnað, endurnærir bæði líkama og sál og dásamleg vellíðan fylgir svo í kjölfar sjóbaðsins,“ sögðu þessar hressu konur í norðrinu sem drifu sig í ullarsokka á sandinum eftir sjóvolkið. Brúsi með brennheitu jurtatei er líka með í sokkapok- anum og yljar vel eftir volkið. Það er farið hægt af stað í sjóböðin og engin ofgerir sér. Námskeið varðandi sjósund verður á vegum Þekkingarnets Þingeyinga á Þórshöfn upp úr miðjum október og búast má við fjölmenni. Sjósund við ysta haf Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Í ljósi lækkandi verðs og minni spurn- ar eftir ferskum fiski í Bretlandi og víðar í Evrópu var ákveðið að hætta við útflutning á um 35 tonnum frá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum á fimmtudag. Fiskurinn var kominn í gáma á bryggjunni í Eyjum og skip frá Eimskip var í innsiglunni þegar þessi ákvörðun var tekin. Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri botnfisksviðs VSV, segir að svo virðist sem þriðja bylgja kórónuveikinnar sé að koma með þunga í mörgum Evrópulöndum, hliðstætt því sem sé að gerast hér á landi. Ekki sé langt síðan menn hafi haldið að faraldurinn væri í rénun, en mikil breyting hefði orðið á síðustu tvær vikur. Verð hefði verið gott fram eftir hausti, en síðan lækkað mikið á mörkuðum um miðja þessa viku og búist sé við frekari lækkunum. Opnunartímar og aðgengi að bör- um og veitingahúsum hefur verið tak- markað á ný í Bretlandi og það hefur um leið komið niður á fiskverði og eft- irspurn, að sögn Sverris. Svipaða sögu sé að segja frá Frakklandi og fleiri Evrópulöndum. Því hafi verið ákveðið að kippa þessum tveimur gámum til baka, en aðrir tveir gámar með ferskum fiski fóru í flutningaskipið. Þeir eru vænt- anlega í sölu og dreifngu í Englandi og Frakklandi í byrjun næstu viku. aij@mbl.is Þriðja bylgjan hefur áhrif á verð á fiski Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Löndun Togarinn Breki við bryggju í Vestmannaeyjum fyrr á árinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.