Morgunblaðið - 26.09.2020, Síða 7

Morgunblaðið - 26.09.2020, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020 Áminning um framtalsskil lögaðila Forráðamenn lögaðila, sem enn hafa ekki staðið skil á skattframtali 2020 ásamt ársreikningi, eru hvattir til að annast skil hið allra fyrsta. Skráður lögaðili skal ætíð skila skattframtali vegna undangengins reikningsárs, jafnvel þó að engin eiginleg starfsemi eða rekstur hafi átt sér stað á reikningsárinu. Félög eiga jafnframt að skila ársreikningi til ársreikningaskrár. Skattframtali og ársreikningi ber að skila rafrænt á skattur.is Álagning opinberra gjalda á lögaðila árið 2020 vegna rekstrarársins 2019 fer fram 30. október nk. Lokaskiladagur skattframtals lögaðila er 2. október skatturinn@skatturinn.is 442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Alls útskrifuðust 4.370 nemendur með 4.408 próf á háskóla- og dokt- orsstigi skólaárið 2018-2019 sem er svipaður fjöldi og árið áður, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar. Doktorar hafa aldrei verið fleiri en þeir voru 101, eða 40 fleiri en ár- ið áður. Um fjórir af hverjum tíu brautskráðum doktorum teljast hafa innflytjendabakgrunn, þ.e. eru fæddir erlendis og eiga erlenda for- eldra. Sumir doktoranna hafa brautskráðst frá íslenskum háskól- um í samstarfi við erlenda háskóla. Alls voru 2.442 brautskráningar vegna fyrstu háskólagráðu, braut- skráningar með viðbótardiplómu voru 466 og 1.323 brautskráningar vegna meistaragráðu. Eins og undanfarin ár voru konur um tveir af hverjum þremur nemendum sem luku háskólaprófi skólaárið 2018- 2019, eða 65,8%, segir í frétt Hag- stofunnar. Aldrei fleiri doktorar útskrifaðir  1.323 luku meist- ara- og doktorsgráðu Háskóli Íslands Frá brautskrán- ingu doktora frá skólanum. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Reiðhjólauppboð lögreglunnar er nú í fullum gangi. Lýkur því klukkan 21 á sunnudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Gunnari Rúnari Sveinbjörnssyni, upplýsingafulltrúa lögreglunnar, hefur uppboðið farið frekar hægt af stað miðað við uppboðið í júlí þegar hátt í́ 100 hjól voru seld. Sú breyting hefur orðið á uppboði nú og í júlí að það er eingöngu á net- inu. Vanalega hefur verið eitt reið- hjólauppboð á ári sem fram hefur farið að vori til í húsakynnum Vöku. Í óskilum í eitt ár og einn dag Þar hefur fólk getað mætt á stað- inn og boðið í gripina. Yfirleitt hafa uppboðin verið vel sótt en hjólin eru óskilamunir sem hafa verið í vörslu lögreglunnar í að minnsta kosti eitt ár og einn dag. Ágóði uppboðsins hefur runnið í lögreglusjóð. Uppboði að ljúka Uppboð Hjólin sem boðin eru upp á reiðhjólauppboði lögreglunnar voru til skoðunar hjá Vöku í vikunni.  Reiðhjólauppboð fór hægt af stað Morgunblaðið/Árni Sæberg Harpa Þórunn Pétursdóttir, lög- fræðingur hjá Orkustofnun, hef- ur verið kjörin áfram formaður félagsins Konur í orkumálum. Harpa var ein af stofnendum fé- lagsins árið 2016 og hefur gegnt formannsstöðu frá upphafi, segir í tilkynningu. Fimm nýjar konur tóku sæti í stjórn eftir aðalfund sem fram fór í vikunni með rafrænum hætti. Þær eru Amel Barich, verkefnastjóri hjá GEORG, Anna Lilja Oddsdóttir, verkefnastjóri hjá OS, Ásdís Bene- diktsdóttir, teymisstjóri hjá ÍSOR, Ásdís Eir Símonardóttir, mannauðs- sérfræðingur hjá OR, og Svandís Hlín Karlsdóttir, forstöðumaður hjá Landsneti. Harpa áfram formaður orkukvenna Harpa Þórunn Pétursdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.