Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið // www.hjahrafnhildi.is
HAUST
2020
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgdu okkur á facebook
SKOÐIÐNETVERSLUNLAXDAL.IS
TRAUST
Í 80 ÁR
YFIRHÖFNIN
FÆST Í LAXDAL
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Hækkanir á verðskrá á langtíma-
bílastæðum hjá Isavia hafa verið allt
að 300% frá árinu 2015.
Sé leiguverð á hvern fermetra á
langtímabílastæði við Keflavíkur-
flugvöll sett í samhengi við leiguverð
á fasteignamarkaði er leiguverð við
flugvöllinn hærra en meðalleiguverð
á þriggja herbergja íbúð í miðbæ
Reykjavíkur.
Nýtingarhlutfallið 96% 2016
Þannig kostar hver sólarhringur
1.750 krónur á viku á langtímastæði
á flugvellinum. Aðra viku er dagur-
inn á 1.350 krónur en þá þriðju kost-
ar dagurinn 1.200 krónur. Sé gert
ráð fyrir 30 dögum hljóðar kostnað-
ur því upp á 40.900 kr. með meðal-
verði upp á 1.363 kr. á sólarhring.
Fram kemur í svari við fyrirspurn til
Isavia að hvert bílastæði er 11,5 fer-
metrar og fermetraverðið því rúmar
3.550 kr.á tímabilinu. Til samanburð-
ar var meðalleiguverð á hvern fer-
metra í þriggja herbergja íbúð í
miðbæ Reykjavíkur 3.291 kr. í júní
sl.
Þá kemur einnig fram í svari frá
Isavia við fyrirspurn að í heild séu
bílastæði á langtímasvæði 2.366 og
var þeim fjölgað um 300 árið 2016. Í
frétt á vef fyrirtækisins í febrúar það
sama ár kemur fram að ein ástæða
stækkunarinnar hafi verið sú að nýt-
ingarhlutfall hafi verið allt að 96%.
Isavia vildi ekki gefa upp tekjur og
hagnað af rekstri bílastæðanna
undanfarin ár þegar eftir því var leit-
að. Fyrirtækið er opinbert hluta-
félag og því undanskilið upplýsinga-
löggjöf. Eingöngu var vísað í
ársreikning þar sem fram kemur að
tekjur af bílastæðum og fasteignum
Isavia voru um 11% af heildartekjum
hlutafélagsins árið 2019. Heildar-
tekjur fyrirtækisins árið 2019 voru
rúmir 38,4 milljarðar.
Fasteigna- og bílastæðatekjur
voru því um 4,2 milljarðar króna.
Vilja standa undir kostnaði
Taka ber fram að m.a. eru einnig
inni í þessum tölum tekjur af
skammtímastæðum. Gjaldið er um
500 krónur ef dvalið er lengur en 15
mínútur inni á bílastæði en 750 krón-
ur ef dvalið er klukkustund eða leng-
ur á skammtímastæði.
Sagði í frétt með tilkynningu um
gjaldskrárhækkun samhliða fjölg-
un bílastæða árið 2016 að stefna
Isavia væri að láta tekjur af bíla-
stæðaþjónustu standa undir kostn-
aði við þjónustuna og framkvæmdir.
Í svari Isavia við fyrirspurn Morg-
unblaðsins um hvort látið hafi verið
af þeirri stefnu segir m.a: „Sú krafa
er gerð að einstaka fjárfestingar-
verkefni standi a.m.k. undir sér.“
Árið 2015 kostaði fyrsta vika á
langtímastæði 950 kr. en kostar nú
sem fyrr segir 1.750 kr. dagurinn og
er það hækkun upp á tæp 90%. Önn-
ur vika kostaði árið 2015 600 kr. en
kostar nú 1.350 kr. og er það hækkun
upp á 125% og árið 2015 kostaði
þriðja vikan 400 kr. en kostar nú
1.200 kr. og er það hækun upp á
300%.
Mun ódýrara í borginni
Til samanburðar er mánaðargjald
á sólarhringspassa í Hafnarhúsið
27.000 kr. á mánuði og mánaðargjald
í bílastæðahús og önnur bílastæði á
vegum bílastæðasjóðs sem ætluð eru
til langtímadvalar á bilinu 7.500-
14.500 kr.
Stæðin dýrari en leiga í miðbænum
Bílastæði Vinsælt er að geyma bíla í langtímastæðum á Keflavíkurflugvelli
þegar fólk fer til útlanda. Verðskrá Isavia hefur hækkað á síðustu árum.
Verðskrá Isavia á langtímabílastæðum hefur hækkað um allt að 300% frá 2015
Gefa ekki upp tekjur af rekstrinum Mánaðarpassi í Hafnarhúsinu ódýrari
Morgunblaðið/Eggert
Allt um
sjávarútveg
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hópur fólks vinnur að því að koma
upp safni og sýningu um snjóflóð á
Flateyri og víðar á landinu. Verið er
að leita að húsnæði á Flateyri til að
koma því fyrir.
„Snjóflóð eru
mannskæðustu
náttúruhamfarir
á Íslandi frá upp-
hafi byggðar.
Hvergi er hægt
að fræðast um
þau á aðgengileg-
an hátt. Snjóflóð
eru því miður
ansi stór hluti af
sögu Flateyrar og liggur beinast við
að setja slíka sýningu upp hér. Það
koma til dæmis margir til Flateyrar
og vonast til að fá upplýsingar um
snjóflóðin hér en grípa kannski í
tómt. Við viljum svara þeirri þörf,“
segir Eyþór Jóvinsson, kaupmaður í
Gömlu bókabúðinni á Flateyri, sem
unnið hefur að málinu í samvinnu
við fleira áhugafólk. Hann segir að í
þeim hópi séu meðal annars Flat-
eyringar og brottfluttir Flateyr-
ingar.
Segir hann mikilvægt að fræða
fólk um snjóflóðaógnina, um varnir
gegn henni og hegðun fólks í nátt-
úrunni þar sem hætta geti verið á
snjóflóðum.
Áhugi á Svarta pakkhúsinu
Hópurinn hefur haft augastað á
Svarta pakkhúsinu á Flateyri og
hefur óskað eftir því við Ísafjarðar-
bæ að fá það til afnota.
Málið er í vinnslu hjá bænum en
komið hefur fram að fólk sem var
með sýningu í Svarta pakkhúsinu
áður en gerðar voru endurbætur á
húsinu hefur áhuga á að setja sýn-
inguna upp að nýju. Eyþór segir
áhugann á Svarta pakkhúsinu hafa
komið þannig til að húsið stendur
beint á móti bókabúðinni. Hann hafi
séð samlegðaráhrif í að reka starf-
semina með sama starfsfólki og ná
með því móti að hafa lengri af-
greiðslutíma.
Tekur Eyþór fram að samhliða sé
verið að athuga önnur hús og jafn-
vel nýbyggingu en það sé líklega of
stór pakki til að byrja með.
Mikið til af upplýsingum
Eitthvað er til af munum frá snjó-
flóðunum á Flateyri en Eyþór von-
ast einnig til að heyra í fólki annars
staðar sem á slíka muni eða veit um
þá. Þá segir hann að mikið hafi verið
skrifað um snjóflóð. Hefur hann
hugsað sér að nota efni sem til er og
setja það í nýjan búning svo fólk
geti upplifað ógnina sjálft með
sýningartækni nútímans.
Morgunblaðið/RAX
Snjóflóð Mannskæð snjóflóð féllu á byggðina á Flateyri haustið 1995. Eftir það voru byggðir snjóflóðavarnagarðar.
Tvö snjóflóð féllu á þá í janúar sl. og fóru yfir hann að hluta. Skemmdust hús við garðinn og bátar í höfninni.
Flateyringar undirbúa safn
og sýningu um snjóflóð
Leitað að hentugu húsnæði Ferðafólk vill upplýsingar
Eyþór
Jóvinsson
Heimilt verður að sekta hjólreiða-
menn sem ekki sýna gangandi eða
akandi vegfarendum tillitssemi, verði
frumvarp samgönguráðherra um
breytingar á umferðarlögum sam-
þykkt. Einnig varði það sektum ef
menn hjóla eða reyna að hjóla eða
stjórna eða reyna að stjórna hesti
undir áhrifum áfengis eða vímuefna.
Frumvarpið hefur verið kynnt í
samráðsgátt stjórnvalda.
Meðal nýjunga er að lagt er til að
heimilt verði að beita sektum fyrir
brot gegn ákvæðum laganna sem
fjalla um að hjólreiðamönnum beri
skylda til að sýna öðrum vegfar-
endum tillitssemi. Þar er átt við til-
litssemi gagnvart gangandi vegfar-
endum á gangstétt, göngustíg og
göngugöngu og gagnvart ökumönn-
um á götum þar sem þeim er heimilt
að hjóla á miðri götu.
Ekki fullir á hjóli eða hesti
Þau ákvæði núgildandi umferð-
arlaga sem kveða á um refsingu við
því að hjóla eða að reyna að hjóla eða
stjórna eða reyna að stjórna hesti
undir miklum áhrifum áfengis eða
annarra örvandi eða deyfandi efna
voru ekki talin nógu skýr til að hægt
væri að beita refsingum. Til að taka
af allan vafa um að þessi háttsemi sé
refsiverð er ætlunin að skerpa á orða-
lagi. Ekki er þó miðað við ákveðið
magn vínanda í blóði eða vínanda-
mæli heldur gert ráð fyrir að það sé
háð mati hverju sinni hvort ein-
staklingur sé fær um að stjórna hjóli
eða hesti á öruggan hátt. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Hjólað Hægt er að sekta fyrir
glannaskap á göngustígum.
Sektað
fyrir til-
litsleysi