Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Leiðin er löng en bílstjórinnþekkir hverja brekku,beygju og beinan kafla.Umferðin er þétt þegar ek-
ið er út úr borginni en færri eru á veg-
unum þegar fjær er komið. Bílvélin
syngur og drifskaftið hvín þegar ekið
er upp úr Hvalfjarðargöngunum og
kæliviftan er á fullum snúningi þegar
komið er af Bröttubrekku niður í Dali.
Rétt eins og foreldri les hug barns síns
og knapinn kannast við kenjar klárs-
ins hefur ökumaðurinn næma tilfinn-
ingu fyrir bílnum; hjarta hans og sál.
Volvo FH-16, spánnýr bíll með 16 lítra
og 650 hestafla vél. Í eftirdragi er stór
vagn; drekkhlaðinn af meðal annars
neysluvörum sem fara eiga í Bónus-
búðina. Samanlagt eru ökutækin og
fraktin 47 tonn.
Sjö tíma á leiðinni vestur
Við erum á vesturleið; bílstjórinn er
Veigar A. Sigurðsson sem segist verða
sjö tíma vestur á Ísafjörð úr Reykja-
vík, rétt eins kemur á daginn. „Í skóla
prófaði ég bæði kokkanám og bak-
arann, en fann mig ekki. Innst inni
langaði mig alltaf mest að verða
trukkabílstjóri og sá draumur rætt-
ist,“ segir Veigar. Hann hóf bílstjóra-
ferilinn árið 2006. Starfaði hjá Ragnari
og Ásgeiri í Grundarfirði og Böðvari
Sturlusyni í Stykkishólmi um nokk-
urra ára skeið, en hefur verið með tvo
bíla í eigin útgerð frá 2016. Er verk-
taki fyrir Eimskip og sér um flutninga
á Ísafjarðarleiðinni.
Veigar og Atli bróðir hans keyra bíl-
ana tvo; fara úr Reykjavík síðla dags
og ef allt gengur upp er komið í
áfangastað snemma nætur. Svo er far-
ið aftur suður síðla næsta dags. Aðrir
tveir bílar, gerðir út að vestan, eru í
áætlunarferðum á þessari leið og svo
er fleiri bætt við ef mikið þarf að flyja.
Aflahrota til sjávar kallar á mikla
flutninga og stundum koma þeir dagar
að Eimskip er með 8-10 bíla í ferðum á
norðanverða Vestfirði. Bílarnir og
vegirnir eru lífæð svæðisins.
Árni trukkur og
Erlendur ofurmenni
Frá Reykjavík vestur á Ísafjörð eru
455 kílómetrar – en fram og til baka
með snatti og snúningum í nærliggj-
andi kauptún vestra er hver vest-
urferð um 1.000 kílómetrar. „Þennan
bíl fékk ég í maí og núna er teljarinn
kominn í 53 þúsund kílómetra. Sam-
anlagt eru þetta um 150 þúsund kíló-
metrar á ári á bílnum sem eyðir um
55 lítrum af díselolíu á hundraðið,“
segir Veigar.
Þótt birtu sé farið að bregða þekk-
ir bílstjórinn úr langri fjarlægð hvern
einasta trukk sem við mætum. Bílar
og umhverfið er kunnuglegt og meðal
flutningabílstjóra er líka sérstök
menning og orðfæri. Stemning og
stikkorðastíll eins og heyra má í sím-
tölum Víðis. „Já, það eru margir lit-
ríkir persónuleikar á flutningabílum;
Árni trukkur, Erlendur ofurmenni og
Stebbi bleiki svo ég nefni nú nokkur
nöfn. Flestir í bransanum þekkjast
og þetta er skemmtilegt samfélag,“
segir Veigar sem er Strandamaður
að uppruna. Samkvæmt því er hann
með einkanúmer á bílnum, T-75.
Sjö snjóflóð í Skötufirði
Steingrímsfjarðarheiði. Ljósin í
mælaborðinu blikka og neyðarbrems-
urnar detta inn á beinum og breiðum
vegi. „Þetta gerist stundum án nokk-
urrar ástæðu, nema hún sé yf-
irskilvitleg. Að minnsta kosti finnst
mér ég ekki vera einn á ferð. Sér-
staklega finn ég fyrir slíku í Skötufirð-
inum; kunnugir segja að kona sem er
löngu látin fái stundum far þótt enginn
viti hvert,“ segir Veigar.
Bílstjórinn rifjar upp stóru drættina
af ferli sínum síðastliðin fjórtán ár. Á
þeim tíma hefur hann ekið um tvær
milljónir kílómetra og allt gengið
óhappalaust. Stundum hafa veður þó
verið válynd og allur er varinn góður á
fjallvegum; til dæmis Þröskuldum og
Steingrímsfjarðarheiði. Ferðirnar geta
oft verið slarksamar og dregist á lang-
inn eins og í mars síðastliðnum, þegar
sjö snjóflóð lokuðu veginum í aust-
anmegin í Skötufirði. Þá var ekki annað
fyrir bílstjórana að gera en bíða átekta,
uns óveðrinu slotaði og moksturstæki
voru komin í gegnum spýjurnar.
„Hvergi á leiðinni milli Reykjavíkur
og Ísafjarðar finnst mér samt fallegra
en í Djúpinu, þar sem ekið er fyrir
hvern fjörðinn á fætur öðrum. Á sum-
arnóttum eru þeir spegilsléttir, svo
stundum fer ég út úr bílnum og virði
dýrðina fyrir mér. Samt er þetta starf
endalaust kapphlaup við tímann; að
vörurnar séu komnar á réttum tíma til
kaupenda sem gera kröfur. Fyrst og
síðast er þetta þjónusta og samskipti
við fólkið í landinu á ferðum um vegi
landsins.“
Áfram veginn
Við rennum inn á Ísafjörð um mið-
næturbil. Ferðin gekk eins og í sögu og
sendingar að sunnan fara í búðirnar í
bænum næsta morgun. Hver gengur
að sínu, lífið er hringrás og svo fór bíl-
stjórinn að huga að suðurferð. Áfram
veginn. Svona er lífið í landinu.
Vesturferð
með Veigari
Trukkur Volvoinn hér í Djúpinu og í baksýn í rigningarveðrinu er hið svip-
sterka Hestfjall. Bílstjórinn lagður af stað suður þegar hér var komið sögu.
Bílstjóri „Innst inni langaði mig alltaf mest að verða trukkabílstjóri og sá draumur rættist,“ segir Veigar A. Sigurðs-
son, hér undir stýri á bílnum. Sérstakt samfélag er meðal manna sem keyra stóru trukkana, skriðdrekaher Íslands.
Strandabíll Merkingin er T, skv.
gamla bílnúmerakerfinu.
Leiðin til Ísafjarðar
455 km
Reykjavík
Ísafjörður
Búðardalur
Hólmavík
Borgarnes
Úr Reykjavík á Ísafjörð eru 455 km. Þá leið fer Veig-
ar A. Sigurðsson stundum þrisvar í viku á stórum
trukk. Hann skynjar huldukonu í Skötufirði í Djúpi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sé veður um helgina sæmilegt er
bíltúr austur á Þingvelli fín hug-
mynd. Klukka náttúrunnar er þar í
hefðbundnum takti. Stórurriðinn
syndir upp Öxará og blasir við þegar
gengið er um árbakkann og fjalls-
topparnir eru komnir með hvíta
snjóhúfu. Þá eru haustlitirnir nú í al-
gleymingi; gulur, rauður og brúnn.
Skógargróður, lyng og grös eru kom-
in með annan svip, en ekki síður fal-
legan en gerist um hásumar.
„Fegurð Þingvalla nær hámarki á
haustin. Þó er vissara að fylgjast vel
með veðurspám þar sem vindar geta
spillt tónum og laglínu í haustlita-
sinfóníunni sem ég kalla svo,“ segir
Einar Á.E. Sæmundsen þjóðgarðs-
vörður í samtali við Morgunblaðið.
Opið er í gestastofunni á Hakinu
þar sem er sýn-
ingin Hjarta lands
og þjóðar. Þar
kalla gestir sjálfir
fram stafrænar
upplýsingar um
sögu og náttúru
þjóðgarðsins um
leið og þeir rölta í
gegnum rýmið.
Gagnvirkt viðhorf
ásamt hefð-
bundnu viðmóti gerir gestum kleift
að verða hluti af þjóðgarðinum. Eftir
það er tilvalið fara í göngutúr um Al-
mannagjá og að Þingvallabæ og
-kirkju. Leiðangurinn er síðan fínt að
enda með því að fá sér kaffi og
kleinu í þjónustumiðstöðinni á Leir-
unum.
Haustlitabíltúr um helgina er góð hugmynd
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þingvellir Horft yfir gjár, gróður og fjöll, sem nú hafa fengið hvíta snjóhúfu.
Einar Á.E.
Sæmundsen
Fegurð Þingvalla nær hámarki
Hagræðing
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
á haustdögum
án þess að það bitni á gæðum
Hafðu samband og við
gerum fyrir þig þarfagreiningu
og tilboð í þjónustu
án allra skuldbindinga.