Morgunblaðið - 26.09.2020, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
pinnamatur
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á
einnota fötum, tilbúið fyrir veisluborðið
Fagnaðir
Hólshraun 3 · 220 Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
lagði til í gær að Rússar og Banda-
ríkjamenn gerðu með sér sérstakt
samkomulag um að ríkin skiptu sér
ekki af kosningum og innri mál-
efnum hins ríkisins. Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands, las
upp yfirlýsingu Pútíns, en forsetinn
var á ferðalagi um suðurhluta
Rússlands, þar sem heræfingar
Rússa, Kínverja og Írana fara nú
fram.
Í yfirlýsingu sinni kallaði Pútín
eftir því að ríkin tvö hétu því að
skipta sér ekki af innri málefnum
hvort annars, og vék Pútín sérstak-
lega að notkun „upplýsinga- og
samskiptatækni“ í slíkum af-
skiptum. Þá kallaði hann eftir al-
þjóðasáttmála þar sem ríki heims
myndu heita því að beita ekki slíkri
tækni til þess að greiða „fyrsta
höggið“ í átökum. „Ein af helstu
áskorunum samtímans er hættan á
stórum átökum á stafræna sviðinu,“
sagði í yfirlýsingu Pútíns.
Sagði forsetinn að þau ríki sem
fremst væru komin í þróun þeirrar
tækni hefðu sérstökum skyldum að
gegna til þess að koma í veg fyrir
slíkt og tryggja öryggi upplýsinga
á alþjóðavísu.
Um leið væri ástæða fyrir Banda-
ríkjamenn og Rússa til þess að taka
upp sérstakt samráð til þess að
koma í veg fyrir atvik í netheimum,
og líkti Pútín því við samkomulag
risaveldanna frá 1972, sem átti að
koma í veg fyrir að atvik í lofti eða
hafi milli herja Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna myndu leiða til frek-
ari átaka.
AFP
Netárásir Tölvuþrjótar eru sagðir hafa skipt sér af kosningum.
Leggur til sáttmála
gegn afskiptum
Vill samkomulag um netöryggismál
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Franska lögreglan handtók í gær
mann með kjötexi, sem réðst á gang-
andi vegfarendur fyrir utan skrif-
stofubygginguna sem áður hýsti
franska skoptímaritið Charlie
Hebdo. Náði maðurinn að særa tvo
áður en hann var yfirbugaður.
Árásin verður rannsökuð sem
hryðjuverk að sögn frönsku and-
hryðjuverkalögreglunnar PNAT, en
hún átti sér stað í miðjum réttar-
höldum yfir grunuðum vitorðsmönn-
um þeirra sem tóku þátt í árásinni á
starfsfólk Charlie Hebdo árið 2015,
en tólf manns létust í henni.
Sú árás átti rætur sínar í skop-
myndum sem tímaritið hafði birt af
Múhameð spámanni, en þær voru
sagðar móðgandi fyrir fólk sem er
íslamstrúar. Tímaritið ákvað að end-
urprenta teikningarnar fyrr í mán-
uðinum á forsíðu sinni vegna upp-
hafs réttarhaldanna.
Fórnarlömbin úr lífshættu
Þeir tveir sem særðust í árásinni í
gær voru fluttir á sjúkrahús, og
sagði lögreglan að ástand þeirra
væri alvarlegt. Jean Castex for-
sætisráðherra tilkynnti hins vegar
síðar um daginn að fórnarlömbin
væru ekki talin í lífshættu. Sagði
Castex í yfirlýsingu sinni að ríkis-
stjórn sín myndi berjast af fullum
krafti gegn hryðjuverkastarfsemi
með öllum mögulegum ráðum.
Hin særðu voru starfsmenn Pre-
mieres Lignes-fréttastofunnar, og
voru þau karl og kona sem voru í há-
degishléi að reykja fyrir utan hús-
næðið, sem áður hýsti Charlie
Hebdo, en hinar nýju skrifstofur
skoptímaritsins eru ekki á al-
mannavitorði af öryggisástæðum.
Sendi tímaritið frá sér samúðar-
kveðjur til þeirra sem urðu fyrir
árásinni.
Saksóknarar sögðu að „aðalsak-
borningurinn“ hefði verið handtek-
inn nálægt Bastillutorginu, skammt
frá skrifstofunum, en hann er 18
ára gamall karlmaður. Samkvæmt
yfirlýsingu PNAT er talið að hann
sé fæddur í Pakistan.
33 ára gamall karlmaður var
handtekinn við Bastillutorgið síðar
um daginn og tekinn til yfirheyrslu
vegna gruns um að hann væri
tengdur þeim sem framdi árásina.
Loka þurfti fimm skólum í nágrenn-
inu, sem og sex neðanjarðarlestar-
stöðvum, í kjölfar árásarinnar.
Tveir særðir eftir árás
með kjötexi í París
Réðst á fólk fyrir utan fyrrverandi skrifstofur Charlie Hebdo
Charlie Hebdo
» Tólf létust og ellefu særðust
í árásinni á Charlie Hebdo 7.
janúar 2015.
» Bræðurnir Said og Cherif
Kouachi báru ábyrgð á árásinni
en þeir voru felldir af lögregl-
unni 9. janúar 2015.
» 14 meintir vitorðsmenn
þeirra eru nú fyrir rétti í París.
AFP
Hryðjuverk Lögreglan í París var með mikinn viðbúnað eftir árásina.