Morgunblaðið - 26.09.2020, Side 29
Hjörvar Steinn Grétarssonvann Braga Þorfinnssoní fimmtu umferð Haust-móts TR sem fór fram sl.
miðvikudagskvöld. Hann hefur unn-
ið allar fimm skákir sínar og telja
verður ólíklegt að Bragi nái að
blanda sér í baráttuna um efsta sæt-
ið. Það munu Guðmundur Kjart-
ansson og Helgi Áss Grétarsson
hinsvegar báðir gera en þeir eru
ekki langt undan.
Nokkuð hefur verið um frestanir í
A-flokki haustmótsins m.a. vegna
Evrópumóts ungmenna sem fram
fór um síðustu helgi. En staða efstu
manna er þessi: 1. Hjörvar Steinn
Grétarsson 5 v. (af 5) 3. Guðmundur
Kjartansson 4 v. (af 4) + frestuð
skák. 3. Helgi Áss Grétarsson 4 v.
(af 5) 4. Bragi Þorfinnsson 2½ v. (af
4) + frestuð skák.
Keppendur í A-riðli eru tíu talsins.
Efstu menn munu mætast í loka-
umferðum mótsins.
Í B-riðli eru keppendur einnig tíu
talsins. Lenka Ptacnikova er efst
með 4 vinninga af fimm mögulegum
en í 2.-3. sæti koma Pétur Pálmi
Harðarson og Þorvarður Ólafsson
með 3½ vinning af fimm mögu-
legum.
Í Opna flokknum hefur Batel
Goitom unnið allar fimm skákir sín-
ar. Í 2.-3. sæti koma Jóhann Jónsson
og Halldór Kristjánsson með 4½
vinning hvor. Hrósa ber stjórn Tafl-
félags Reykjavíkur fyrir góða um-
gjörð um þetta mót.
Hjörvar Steinn er óneitanlega
sigurstranglegur eftir hina góðu
byrjun. Hann hefur ekki þurft mikið
fyrir vinningum að hafa en frá er
skilin skák hans í 1. umferð við Sig-
urbjörn Björnsson. Í fjórðu umferð
tefldi Hjörvar við Davíð Kjartans-
son. Það er dýrt að missa þráðinn í
sikileyjarvörn; einn ónákvæmur
leikur getur gert útslagið eins og
þetta dæmi sannar:
Haustmót TR 2020; A-riðilli, 4.
umferð:
Hjörvar Steinn Grétarsson –
Davíð Kjartansson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. f4 a6 7.
Rxc6 bxc6 8. Bd3 d5 9. O-O Rf6 10.
Df3 Be7 11. Bd2 O-O 12. Hae1 He8
13. Kh1 Hb8?
Ónákvæmni. Nú fara peð hvíts á
skrið.
14. e5 Rd7 15. f5! Rc5
Gallinn við 13. … Hb8 kemur í ljós
því að 15. … Rxe5 gengur ekki
vegna 16. Hxe5! Dxe5 17. Bf4 og
hrókurinn á b8 fellur óbættur.
16. f6 Rxd3 17. Dxd3 gxf6 18.
exf6 Bd6
19. Re4!
Snarplega leikið og annar
skemmtilegur möguleiki er 19. Hf5
sem einnig ætti að vinna.
19. … dxe4 20. Hxe4 Hb5
Kóngsstaða svarts er opin upp á
gátt og lítið hald í þessum leik.
21. Hg4+ Kh8 22. Hh4 Hf5 23.
Hxf5 exf5 24. Dh3
– og svartur gafst upp.
Vignir Vatnar í toppbaráttunni
á EM ungmenna.
18 ungmenni tóku þátt í Evrópu-
móti einstaklinga 18 ára og yngri á
netinu, keppnin fór fram dagana 18.
– 20. september og var teflt í átta
aldurflokkum pilta og stúlkna. Tíma-
mörk voru 25:5. Keppnin var vel
skipulögð í hvívetna og langflestir ís-
lensku þátttakendurnir bættu ætl-
aðan árangur sinn verulega. Vignir
Vatnar Stefánsson var eins og
stundum áður í nokkrum sérflokki
meðal íslensku keppendanna en
hann var í baráttunni um efsta sætið
allan tímann og var einn í 2. sæti fyr-
ir síðustu umferð með 6½ vinning af
átta mögulegum. Jafntefli í loka-
umferðinni hefði að líkindum tryggt
honum silfurverðlaun en hann tapaði
og hrapaði niður í 5. sæti með nokkr-
um öðrum. Engu að síður frábær
frammistaða, því að 18 ára flokk-
urinn var skipaður flestum af bestu
ungu skákmönnum Evrópu.
Þrír berjast um sigurinn á Haustmóti TR
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Annasöm helgi Fulltrúar Íslands sem tefldu á EM ungmenna á netinu. Vignir Vatnar Stefánsson var lengi í baráttu um verðlaunasæti en endaði í 5. sæti.
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Melteigur 19, 230 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
6 herbergja neðri hæð með bílskúr í hjarta Keflavíkur.
ATH EFRI HÆÐ LÍKA TIL SÖLU
Eignarlóð
Verð kr. 41.000.000Stærð 184,7 m2
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Arnfríður Guð-
mundsdóttir, prófessor
við guðfræðideild Há-
skóla Íslands, ritar
grein í Morgunblaðið
undir fyrirsögninni
„Var Jesús með brjóst
og farða?“. Segir pró-
fessorinn að mynd af
Jesú með farða og
brjóst hjálpi til þess að
skýra afstöðu krist-
innar kirkju til þeirra
einstaklinga í okkar samfélagi, sem
ekki skilgreina kyn sitt á hefðbund-
inn hátt. Prófessorinn spyr svo hvort
alveg sama sé hvernig Jesúslíti út svo
framarlega sem hann líti út sem karl-
maður. Það útlit Jesú hafi t.d. nasist-
ar notað sem rök fyrir yfirburðum
hins hreina hvíta kynstofns. Myndir
af Jesú með brjóst og farða henti þess
vegna vel til þess að koma á framfæri
þeim boðskap, að kirkjan taki afstöðu
með einstaklingum óháð kynvitund,
kyngervi eða kynhneigð. Kirkjan er
sko ekki nasisti!
Fleiri í tölu heilagra hafa verið
dýrkaðir og taldir vera fyrirmyndir
kristinnar kirkju en Jesús frá Nasar-
et. Einn þessara, sem einna mest
helgi hefur verið borin til, er móðir
Jesú, María Guðsmóðir. Eigum við þá
ekki þess að vænta að kirkjan fari að
birta myndir af henni með skalla og
skegg? Er það ekki sannasta tákn-
myndin af því að kirkjan taki afstöðu
með einstaklingum
óháð kynvitund, kyn-
gervi eða kynhneigð?
Kannski má það ekki –
af því að María mey var
kona, eða svo var sagt.
Þá væri ekki heldur við-
eigandi að teikna bisk-
upinn yfir Íslandi með
skalla og skegg. Hún er
jú líka kona. En hvað
um Martein Lúter?
Væri hann ekki fínn
með brjóst og farða?
Hann var jú karl. Og
heilagur Sankti Pétur?
Væntanlegur með stór brjóst og mik-
inn farða til marks um það að kirkjan
tekur ríkulega afstöðu með einstak-
lingum óháð kynvitund, kyngervi og
kynhneigð? Og hver getur svo sem
sannað, að sankti Pétur hafi ekki ver-
ið einn af þeim? Hvað segir prófess-
orinn um það?
Þegir barasta?!?
María með skalla og skegg,
skulu kirkjugestir vona
og þegar Kristur komst á legg,
kom í ljós að hann var kona.
Var María með
skalla og skegg?
Eftir Sighvat
Björgvinsson
»Eigum við þá ekki
þess að vænta að
kirkjan fari að birta
myndir af henni með
skalla og skegg?
Sighvatur
Björgvinsson
Höfundur er fv. ráðherra.
Laufey Jakobsdóttir fæddist
á Bóndastöðum í Seyðisfirði 25.
september 1915. Foreldrar
hennar voru Jakob Sigurðsson
frá Unaósi í Hjaltastaðaþinghá,
f. 15. nóvember 1884, d. 15.
febrúar 1952, og Þuríður
Björnsdóttir frá Snotrunesi í
Borgarfirði eystra, f. 21. sept-
ember 1888, d. 31 október 1971.
Maki Laufeyjar var Magnús
Björgvin Finnbogason frá
Eskifirði og eignuðust þau átta
börn.
Laufey var virk í fé-
lagsmálum og var m.a. einn af
stofnendum Kvennalistans.
Hún var heiðursfélagi í Dýra-
verndunarfélagi Íslands, sinnti
málefnum aldraðra, var áhuga-
söm um friðun gamalla húsa og
formaður Torfusamtakanna
um tíma.
Laufey barðist ávallt fyrir
rétti lítilmagnans og er hún
þekkt fyrir störf sín í þágu
unglinganna í miðborg Reykja-
víkur og þekktu hana margir
sem „ömmuna í Grjótaþorp-
inu.“ Megas kallar hana
„bjargvættinn Laufeyju“ í
texta sínum um krókódíla-
manninn og vísar þar í að hún
hefði komið mörgum unglingn-
um til bjargar í vafasömum að-
stæðum. Hún var sæmd
riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu 17. júní 1996.
Laufey lést 6. mars 2014.
Merkir Íslendingar
Laufey
Jakobsdóttir