Morgunblaðið - 26.09.2020, Side 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast beðið um að hafa samband í
síma 898-9396 eða á hakon@valfell.is og panta tíma til skoðunar.
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is
Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis
á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi.
STILLHOLT 21 - AKRANESI
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og
seljast fullbúnar
án gólfefna nema forstofa, þvottahús og
baðherbergi flísalagt. Öllum íbúðum fylgir
kæliskápur og uppþvottavél
í eldhúsinnréttingu. Sýningaríbúð á 1. h
Innréttingar og fataskápar frá danska
framleiðandanum HTH
Innhurðir og flísar frá Parka
Heimilistæki frá Ormsson
æð.
Aðeins
örfáar íbúðir
eftir
Sunnudaginn 13.
september 2020 var
Silfur Egils á dagskrá.
Þar komu fram fulltrúi
Pírata, Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir, og odd-
viti Sjálfstæðismanna,
Eyþór Laxdal Arn-
alds. Þau ræddu stöðu
Sundabrautar eina
ferðina enn, þéttingu
byggðar og nýbygg-
ingarland í Örfirisey þrátt fyrir
hækkun sjávarborðs á næstu árum,
en stefnan er að byggja íbúðir og
önnur mannvirki þrátt fyrir ábend-
ingar um hættur. Hvar eru flótta-
leiðir fólksins og umferðargötur,
ekki blindgötur? Nú er ein leið til
fram og til baka til að komast leiðar
sinnar. Hvers konar rugl er þetta í
þessum borgarfulltrúum? Ekki var
minnst einu orði á þá hættu sem
stafar af olíubirgðastöð í Örfirisey
sem borgarstjóri lagði til að færi
burt á sínum tíma, fyrir utan þá
sprengjuhættu sem fylgir því að aka
hættulegum efnum inn í miðbæ
Reykjavíkur. Yfirgangur Sigur-
borgar í þessum þætti var slíkur að
hún gekk yfir velsæmismörk, sem
hún komst upp með án skýringar. Í
lok þáttar missti hún algjörlega vald
á skapi sínu þegar hún hóf reiðilest-
ur um leið og hún varð rökþrota í
viðræðum við Eyþór. Þá greip hún
til þess ráðs að fara í nornaveiðar af
blaði sem hún hafði undirbúið; las
það síðan beint í beinni útsendingu.
Í geðvonsku sinni sakaði Sigurborg
Eyþór um að vera viðriðinn Sam-
herja! Var Samherji á dagskrá hjá
þáttarstjórnanda? Ég held ekki.
Sundabraut er búin að vera til
skoðunar síðan þú varst smástelpa
og hafðir ekki hugmynd um hvað
var að gerast hjá Reykjavíkurborg.
Sundabraut kom fyrst í skipulag ár-
ið 1984. Nú eru liðin nær 40 ár síðan
hún var sett í aðalskipulag. Í mars
árið 2008, þegar það var kynnt sem
nýr kostur að leggja Sundabraut í
göng í fyrsta kafla úr borginni,
Sundagöng, eða frá Laugarnesi í
vestri, samþykkti
borgarráð að Sunda-
braut yrði lögð í göng.
Þá samþykkti borg-
arráð að fela borg-
arstjóra að efna til
samráðs við sveit-
arfélög og aðra
lykilhagsmunaaðila á
Vestur- og Norður-
landi og funda með
þingmönnum viðkom-
andi kjördæma um
aðrar aðgerðir til að
vinna að framgangi
lagningar Sundabrautar í göng.
Ekki verður hér rakin sagan öll.
Sigurborg borgarfulltrúi, málið
snýst um að þú, sem kjörinn
fulltrúi, farir að settum reglum og
gætir hags borgarbúa og tjáir þig
með réttum hætti, ekki með mein-
fýsni í garð fólks sem er ekki á
sama máli og þú sjálf. Þú þarft ekk-
ert að fara í naflaskoðun um Sunda-
braut í göng; það er Sigurborg sem
stendur í vegi fyrir lagningu Sunda-
brautar í fjögurra akreina göng
fjarri íbúðarbyggð með sínum
krúsidúllum og yfirgangi gagnvart
skoðunum fólksins sem hefur aðra
skoðun en hún sjálf! Ekki hefur þú
áhuga á að auka lífsgæði fólks við
Kleppsveg, sundin blá eða í Graf-
arvogi með því að setja yfir 100 þús-
und bíla umferð inn í skipulögð
íbúðarhverfi, sem myndi hverfa með
Sundagöngum. Þú hefur ekki áhuga
á að gera athugasemdir við fjögurra
akreina götu, Hallsveg, með tilheyr-
andi hljóðmönum. Þið Dagur B.
Eggertsson hafið ekki áhuga á að
bæta samgönguleiðir í Reykjavík
þar sem svifrykið fer yfir PM 10 –
sem er mælingarstaðall ef þú veist
það ekki! Þínar krúsídúllur eru að
heltaka íbúa í Reykjavík með því að
banna umferð bíla. Hafið þið borg-
arstjóri skoðað það hörmulega
ástand sem íbúar í Reykjavík búa
við? Þeir komast ekki af heimilum
sínum vestur í bæ og víðar um borg-
ina vegna þrenginga á gangbraut-
arljósum og þrenginga gatna með
geysilegum töfum á flæði bíla-
umferðar í stað þess að setja gang-
brautir og hjólabrautir í stokka til
að auka flæði bíla og umferðar af
öryggisástæðum og koma þannig í
veg fyrir loftmengun sem oftast fer
yfir viðmiðunarmörk á höfuðborgar-
svæðinu. Borgarstjórnarmeirihluti í
Reykjavík: Hafið þið ekki upplýst
borgarbúa um umhverfismörk sem
tóku gildi árið 2010? Fróðlegt væri
ef borgarstjóri gæti upplýst borgar-
búa um hvar málið er statt í dag!
Leikritaflokkar í meirihluta
Reykjavíkurborgar
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir: Þið
tókuð við stjórn Reykjavíkurborgar
í júní fyrir rúmum tveimur árum
með stórri kattafárssýningu við
Breiðholtslaug – þvílíkt leikrit –
undir stjórn borgarstjóra, Dags B.
Eggertssonar, sem lék leikritið afar
vel. Sami borgarstjóri lét endurnýja
allar lagnir við Óðinstorg þar sem
hann á heima til að baka vöfflur
með sultu og rjóma. Ég vil minna á
R-listann, sem Dagur B. Eggerts-
son sat í með Samfylkingu í broddi
fylkingar, sem kom í veg fyrir fram-
tíðarþróun í umferðarmálum þegar
hætt var við 90 milljarða uppbygg-
ingu nýs vegakerfis; lagningu
Sundabrautar og Hlíðarfótar vestan
Öskjuhlíðar; fjögurra akreina vegar
sem hefði tengt Hringbraut við
Kringlumýrarbraut, líklega í göng-
um undir Öskjuhlíð. Það hefði létt á
umferð um Miklubraut, umferð frá
miðbænum til Kópavogs og Hafn-
arfjarðar og á nýjum vegi yfir
Skerjafjörð og Kópavog þar sem
hann hefði tengst Hlíðarfæti við
Hafnarfjarðarveg eða með jarð-
göngum undir Skerjafjörð.
Einþykki píratinn
í borgarstjórn Reykjavíkur
Eftir Jóhann Pál
Símonarson » Sigurborg, þú þarft
ekkert að fara í
naflaskoðun um Sunda-
braut. Það liggur ljóst
fyrir að það ert þú sem
stendur í vegi fyrir lagn-
ingu Sundaganga.
Jóhann Páll Símonarson
Höfundur er fv. sjómaður.
Þið líklega hálf-
vorkennið okkur, sem
búum úti í henni Am-
eríku, eða BNA eins
og íslensku fjölmiðl-
arnir eru farnir að
kalla landið. Hér geisa
skógareldar og felli-
byljir. Kröfugöngur og
óeirðir eru algengar í
mörgum borgum, og
blámenn segjast vera
kúgaðir af okkur þessum hvítu. Eng-
um kemur saman um, hvernig eigi
að höndla útbreiðslu kórónuveir-
unnar og við höfum öngvan Þórólf
eða Víði. Stjórnmálalega er þjóðin
klofin í tvennt og kosningar eru á
næsta leiti. Og yfir öllu þessu ríkir
spillirinn Trump með sína fínu hár-
greiðslu.
Sem eðlilegt er veldur þetta
mörgum manninum hér miklu hug-
arangri. En við gamlingjarnir, sem
ekki búumst við allt of miklu af
framtíðinni, látum mest af þessu
sem vind um eyru þjóta. En það kom
mér á óvart, að skyndilega var mér
ýtt inn í þessa framtíð þegar ég
þurfti að endurnýja ökuskírteinið.
Ég vissi ekki fyrir víst hve mörg ár
nýja skírteinið myndi gilda. Varð ég
því yfir mig hissa og ánægður þegar
í ljós kom að það gildir í átta ár! Ég
er sem sagt skyldugur til þess að
halda áfram að aka bíl inn í framtíð-
ina þangað til ég verð 96 ára! Mér
skilst að öðruvísi reglur gildi hjá
ykkur á Fróni.
Á mánudaginn skrapp ég í búð,
með grímuna auðvitað, að kaupa
ýmsa hluti, meðal annars flösku af
víni og kippu af öli. Hér í Georgíu,
þar sem afar auðvelt er að komast
yfir skotvopn, passa yfirvöldin mjög
vel upp á það, að fólk yngra en 18
ára geti ekki keypt áfengi. Þess
vegna verða allir að draga upp vesk-
ið, hversu gamlir sem þeir eru, og
sýna ökuskírteinið þar sem fæðing-
ardagurinn er skráður. Þetta gerði
ég skilmerkilega og afgreiðslukonan
leit fyrst á skírteinið og svo beint
framan í mig með undrun og/eða
vorkunn og hrópaði „vá“! Ég bara
hældi henni fyrir hvað hún væri góð
í reikningi.
Alltaf er gaman að fara í göngu-
klúbbinn, en hann kemur saman á
miðvikudögum í garði nálægt öldr-
unarsetrinu. Við puðum og svitnum
með grímuna fyrir vitunum í klukku-
tíma og meðlimirnir, mest konur í
eldri kantinum, spjalla saman um
heima og geima og gæða okkur
stundum á gróusögum. Um daginn
var ein af þeim um hálfníræðan karl,
sem er í kúluspilsliðinu á öldr-
unarsetrinu, en hann var sagður
vera farinn að bera víurnar í unga
konu úr leikfiminni, aðeins sjötíu og
tveggja ára gamla. Göngukonurnar
sögðust ekki vita, hvað hann gæti nú
afrekað í ástamálum, ef svo ólíklega
skyldi vilja til að hann kæmist yfir
hana. Sagði ég þeim þá söguna um
bóndann á Íslandi, sem átti hund,
sem alltaf hljóp á eftir bílum. Sagðist
hann ekki vita, hvað snati gæti gert,
ef hann næði einhverjum þeirra.
Á daglegum göngum um hverfið
hitti ég oft nágranna, sem stundum
vilja stoppa og spjalla. Flestir þeirra
eru konur, komnar af léttasta skeiði,
úti að labba með kjöltu-
rakkana sína. Margir
íbúanna hér hafa flutt
hingað annars staðar
frá og ætla að eyða hér
ellinni. Sumir þeirra
eiga börn, sem búa hér
nálægt. Svo var um
Susan, sem ég hitti
næstum daglega, þegar
hún viðrar hundinn
sinn. Flutti hún hingað í
fyrra. Um daginn varð
mér á að spyrja hana
hvaðan hún hefði komið. Úr varð
næstum 20 mínútna stopp, því nú
kom öll ævisaga hennar. Hún var
fædd í Minnesota og hafði gifst ung
manni, sem vann hjá stóru fyrirtæki.
Var hann fluttur á milli ríkja sex
sinnum á starfsævinni og sagðist
Susan hafa búið honum gott heimili
á hverjum stað. Þar á ofan hafði hún
borið honum þrjá syni. Þegar eig-
inmaðurinn komst á eftirlaun og þau
fluttu hingað til að búa nálægt ein-
um syninum gerði hann sér lítið fyr-
ir og skildi við hana. „Þetta gerði
hann eftir 54 ára hjónaband og fór
að búa með yngri kvensnift. Hann
skildi mig eftir eins og skít í polli
með hundinn. En það get ég sagt
þér, að hundurinn er miklu betri en
karlhelvítið!“ Susan var orðið heitt í
hamsi.
Þótt fólk hér reyni að tala ekki um
stjórnmál, trúmál og kynferðismál
sín í milli verður stundum brestur
þar á. Nágrannakonan Nancy, rúm-
lega áttræð ekkja, er algjör trump-
isti sem getur ekki á sér setið að
syngja honum lof og dýrð við gesti
sem gangandi. Hún reynir að skjalla
mig og segist ekki skilja, að svona
skynsamur maður eins og ég (!) skuli
ekki vera ánægður með Trump.
Dóttir Nancyar býr hér nálægt
ásamt manni sínum og fimm börnum
þeirra. Tengdasonurinn, sem er
frjálslyndur demókrati, gafst loks
upp á stöðugum Trump-áróðri
tengdamútter og bannaði henni að
koma inn á heimilið. Eymingja dótt-
irin var sem milli steins og sleggju.
Sem eðlilegt er var konugreyið
slegið yfir því að fá ekki að umgang-
ast dóttur og barnabörn. Ráðlagði
ég henni að afneita Trump til að geta
endurheimt fjölskylduna. En hún
var ekki tilbúin að gera það og var
hún því útskúfuð í marga mánuði.
Loks tókst dótturinni að miðla mál-
um og allt féll í ljúfa löð. Um daginn
fékk Nancy hita og hósta og fór dótt-
irin með hana til læknis til að finna
út hvort um veiruna illræmdu væri
að ræða. Það var sem betur fer ekki
og sagði Nancy við mig sigri hrós-
andi, að engin covid-veira hefði fund-
ist. Mig langaði að spyrja, en þorði
ekki, hvort þeir hefðu rekist á
Trump-veiruna.
Gamlingjarnir
og framtíðin
Eftir Þóri S.
Gröndal
Þórir S. Gröndal
»En við gamlingj-
arnir, sem ekki bú-
umst við allt of miklu af
framtíðinni, látum mest
af þessu sem vind um
eyru þjóta.
Höfundur er fyrrverandi fisksali og
ræðismaður.
floice9@aol.com
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?