Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Haltu ró þinni á hverju sem geng-
ur og líttu bara á björtu hliðar tilverunnar.
Hafðu ekki áhyggjur af framtíðinni, hún
sér um sig.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert reiðubúin/n til að leggja þig
fram við að bæta afkomu þína með nýj-
um hætti. Nýtt samband veldur þér heila-
brotum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Óöryggi gerir vart við sig, en
ekki láta á neinu bera út á við. Gættu
þess að blandast ekki persónulega í erjur
annarra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt miklar annir séu hjá þér
máttu ekki vanrækja sjálfa/n þig. Góður
undirbúningur tryggir farsæla fram-
kvæmd.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú mátt eiga von á harðri gagnrýni
ef þú hefur ekki stjórn á skapi þínu. Þú
lætur ekki kjaftagang hafa áhrif á þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu aðra ekki velkjast í vafa um
skoðanir þínar. Hafðu hugfast að ef þú
ert tilbúin/n til að gefa af þér, færðu heil-
mikið til baka.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að slá öllum meiriháttar
ákvörðunum á frest því þú ert ekki í
formi til þess að ákveða eitt eða neitt að
svo stöddu. Makinn hjálpar þér að settu
marki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er hætt við að þú kaupir
eitthvað í fljótræði í dag. Hafðu það þó í
huga að allir þurfa einhverja hvíld.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef þú finnur til óánægju
skaltu ekki byrgja hana innra með þér.
Hópvinna er einstaklega árangursrík í
dag.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur fullt að segja, en
bíddu fram yfir hádegi með að segja það.
Búðu þig undir erfiða ákvarðanatöku.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Breytingar á aðstæðum gætu
sparað þér fé eða bætt líf þitt á einhvern
hátt. Mundu að allir hafa eitthvað til síns
ágætis.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur lagt mikla vinnu í verk-
efni þitt og sérð nú fyrir endann á því.
Hvað sem þú gerir mun það kenna þér
ýmislegt um þig sjálfa/n þig.
segja að það sé mín lífssýn því já-
kvæðnin bætir allt í lífinu og smitar
út frá sér.“
Ólafur hefur verið við ýmis félags-
og sjálfboðastörf hjá slökkviliðinu,
Slysavarnafélaginu og síðar Lands-
björg. Hann var einnig í sveitarstjórn
í Grundarfirði um nokkurra ára
skeið.
„Ég hóf störf hjá Orkuveitu
Reykjavíkur árið 2001 og var vél-
stjóri á Nesjavöllum og Hellisheiði
þar til ég hætti störfum síðastliðin
áramót. Ég á margar góðar minn-
ingar frá Orkuveitunni og kynntist
mörgum. Þegar ég hætti sögðu
vinnufélagarnir um mig að ég væri já-
kvæður út í eitt og það má eiginlega
Ó
lafur Hjálmarsson fædd-
ist 26. september 1950
á Hlaðhamri í Bæjar-
hreppi í Strandasýslu
og ólst þar upp til 20
ára aldurs. Hann gekk í Barnaskól-
ann á Borðeyri og fór svo á Héraðs-
skólann á Skógum í þrjá vetur. „Það
var yndislegt að vera í sveitinni hjá
afa og ömmu og vera frjáls eins og
fuglinn.“
Ólafur flutti til föður síns árið
1970, en hann var útgerðarmaður í
Grundafirði. Hann sá að þarna gætu
verið góðir atvinnumöguleikar fyrir
sig svo hann ákvað að mennta sig og
fór í Iðnskólann í Reykjavík á verk-
námsbraut. Þaðan lá leiðin í Vélskól-
ann og Ólafur útskrifaðist sem vél-
fræðingur 1976 og sem vélvirki
haustið 1978 frá Vélsmiðju Sig.
Sveinbjörnssonar.
„Það er mjög mikilvægt fyrir alla
sem fara í þetta nám að ljúka því al-
veg og taka vélvirkjaprófið líka til að
hafa meiri möguleika síðar meir.“
Ólafur hafði strax byrjað á sjó vor-
ið 1970 í Grundarfirði og var á sjó
með skólanum. Eftir útskrift var
hann alfarið á sjónum til ársins 2001,
fyrir utan smá tíma sem hann var út-
gerðarstjóri í landi. Hann varð vél-
stjóri á bátum og svo yfirvélstjóri á
togara hjá útgerð föður síns í fimm
ár og eitt ár var hann vélstjóri hjá
Eimskip. Eftir það var hann yfir-
vélstjóri á Breiðafjarðarferjunni
Baldri í ellefu ár.
„Þetta var mjög skemmtilegur
tími og gott samstarfsfólk á ferjunni.
Það var heilt ævintýri að kynnast
lifnaðarháttum eyjarskeggja sem
maður kynntist mikið og ég á marga
góða kunningja frá þessum tíma. Svo
var allur þessi fjöldi af farþegum á
sumrin svo þetta var líflegt og alltaf
nóg að gera.“
Þegar dætur Ólafs uxu úr grasi
stóð fjölskyldan frammi fyrir ákvörð-
un. „Það var enginn framhaldsskóli í
Grundarfirði og þegar dæturnar
spurðu okkur hvort við myndum
ekki bara koma með þeim til Reykja-
víkur þegar þær færu í menntaskóla
var erfitt að segja bara nei.“ Þar með
var ákveðið að fjölskyldan flytti öll
saman í höfuðstaðinn.
„Ég byrjaði í Slysavarnafélaginu
þegar ég var í Grundarfirði og var
töluvert virkur í því og hélt því svo
bara áfram í bænum og var vélstjóri á
björgunarbátnum og fleira. Þetta er
sjálfsagt gamli ungmennafélagsand-
inn eða framsóknarandinn að vilja
leggja sitt af mörkum,“ segir Ólafur
og hlær, en hann hefur starfað mikið
fyrir Framsóknarflokkinn í gegnum
tíðina, bæði í Grundarfirði, Kópavogi,
Reykjavík og núna síðast í Hafn-
arfirði. „Menn sem alast upp í ein-
hverjum pólitískum skoðunum – það
er bara mjög erfitt að breyta því.“
Síðan hefur Ólafur verið í Kiwanis
frá 1994 og er núna forseti Hraun-
borgar í Hafnarfirði. Hann hefur líka
verið virkur í félagsstarfi fyrir þjóð-
kirkjuna. „Þegar ég kom til Grund-
arfjarðar ákvað ég að halda uppi
merkjum afa míns, sem hafði gert
mikið fyrir kirkjuna í bænum, svo ég
fór í sóknarnefnd.“ Ólafur var síðar
formaður sóknarnefndar Guðríð-
arkirkju og hefur sinnt ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir þjóðkirkjuna.
Núna er hann varamaður í sóknar-
nefnd Ástjarnarkirkju.
Ólafur Hjálmarsson vélfræðingur – 70 ára
Orkuveitan Hér er Ólafur kátur að vanda á vaktinni á Nesjavöllum, en hann vann í tæp 20 ár hjá Orkuveitunni.
Jákvæður út í eitt
Í golfi Ólafur og Emilía hafa farið í margar góðar golfferðir til Spánar.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Vinkonurnar
Hrafnhildur Vala Heiðarsdóttir
og Sara Lind Snorradóttir
héldu tombólu í Hlíðahverfinu
og söfnuðu með því 7.009 kr.
til styrktar Rauða krossinum.
Við þökkum þeim kærlega fyrir
þeirra framlag til mannúðar-
mála.
Tombóla
40 ára Margrét ólst
upp í Reykjavík og er
nýflutt í bæinn aftur
eftir að hafa búið í 12
ár á Kársnesinu. Hún
er grunnskólakennari í
Vogaskóla. Margrét
hefur mjög gaman af
listum og bæði teiknar, skrautskrifar og
málar. Hún reynir að nýta tímann sem
mest með börnum sínum og fjölskyld-
unni.
Maki: Halldór Heiðar Sigurðsson, f.
1980, rafeindavirki.
Börn: Embla Hrönn, f. 2007, Styrmir
Heiðar, f. 2010 og Hákon Bjarmi, f. 2017.
Foreldrar: Nína Draumrún Guðleifs-
dóttir, f. 1944, d. 2015 og Guðmundur
Eyjólfsson, f. 1945, d. 2018.
Margrét Erla
Guðmundsdóttir
40 ára Arnar ólst upp
í Hveragerði og býr
þar enn. Hann er
kokkur og pípulagn-
ingamaður að mennt
en er nýbúinn að
stofna fyrirtækið Leik-
tæki og sport sem
setur upp gervigrasvelli og útileikvelli.
Helsta áhugamál Arnars er skotveiði-
mennska og síðan eru mótorhjól of-
arlega á listanum auk ferðalaga.
Maki: Thelma Rós Kristinsdóttir, f. 1981,
háskólanemi og fasteignasali.
Synir: Kristinn Berg, f. 2005, og Viktor
Ernir, f. 2012.
Foreldrar: Erna Valdimarsdóttir, f. 1954,
kennari, og Stefán Stefánsson, f. 1953,
vinnur á Morgunblaðinu.
Arnar
Stefánsson
Viðskipta
Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og
efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður
ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar
hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi.
Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru
í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum
hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is
VIÐSKIPTAPÚLSINN
VIÐSKIPTAPÚLSINN
NÝTTU
TÍMANN OG
FYLGSTU MEÐ