Morgunblaðið - 26.09.2020, Blaðsíða 47
DÆGRADVÖL 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ER ÞETTA MAÐURINN SEM REYNDI AÐ
RÆNA ÞIG?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að telja sig heppinn
að hafa fundið þig.
DÆS …
MIKIÐ VILDI ÉG AÐ ÞAÐ
VÆRI „HÆTTA VIД
TAKKI FYRIR MÁNUDAGA
PABBI, ÉG VIL KOMA
MEÐ Í FÖRINA!
ÞVÍ MIÐUR, HUNANG,
VIÐ ERUM NÚ ÞEGAR
MEÐ KOKK, HANN
HEPPNA EDDA!
LÍTA ÞESSI ÚT FYRIR AÐ VERA
ELDHÚSÁHÖLD?
„ÞEIR VORU MJÖG STUTTARALEGIR Í
TILSVÖRUM OG SÖGÐUST EKKI TAKA
ÁKVÖRÐUN FYRR EN Í NÆSTU VIKU.”
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs er Emilía Karls-
dóttir húsmóðir, f. 20.7. 1954. For-
eldrar hennar eru Karl Eiríksson, f.
21.11. 1910, d. 14.7. 1992, og Anna
Ólafsdóttir, f. 14.5. 1917, d. 11.8. 1999.
Þau bjuggu á Öxl í Breiðuvík og áttu
15 börn. Börn Ólafs og Emilíu eru tví-
burasysturnar Katrín Salima Dögg
Ólafsdóttir verkefnastjóri, búsett í
Kópavogi, gift Einari Júlíussyni, flug-
manni og lögreglumanni, og Amanda
Karima Ólafsdóttir deildarstjóri, bú-
sett í Hafnarfirði. Systurnar fæddust
12.7. 1982. Börn Katrínar og Einars
eru Breki Freyr, f. 27.1. 2014, og Jara
Emilía, f. 5.5. 2017. Einar á fyrir dótt-
urina Halldóru Björgu, f. 9.1. 2002.
Börn Amöndu eru Askur Óli, f. 6.3.
2011, og Sif, f. 22.3. 2013. Faðir þeirra
er Hrannar Már Sigrúnarson.
Systkini Ólafs eru Gunnar, skip-
stjóri, f. 9.8. 1955, Margrét, fv. fisk-
verkandi, f. 17.6. 1957, Ólafía Dröfn,
fv. fiskverkandi, f. 11.1. 1960, d. 30.1.
2016, Jón Óskarsson, löggiltur bók-
ari, f. 17.2. 1962, og Feldís Lilja Ósk-
arsdóttir lögmaður, f. 29.9. 1966.
Faðir Ólafs var Hjálmar Gunnars-
son, útgerðarmaður á Grundarfirði, f.
5.3. 1931, d. 11.3. 2001. Eiginkona
hans var Helga Þóra Árnadóttir út-
gerðarmaður, f. 5.5. 1934, d. 13.9.
2009. Móðir Ólafs var Kristín Ólafs-
dóttir bóndi, f. 24.12. 1926, d. 23.6.
2001. Sambýlismaður hennar var
Óskar Guðbjörnsson bóndi, f. 24.3.
1927, d. 25.12. 1999. Þau bjuggu á
Máskeldu í Saurbæ í Dölum.
Aðalheiður Kristný Stefánsdóttir
húsfreyja í San Diego
í Bandaríkjunum
Karl Sævar
Benediktsson
fyrrv. skólastjóri
Bjarni Karlsson
prestur og
sálfræðingur
Ólafur
Hjálmarsson
Sigríður Kristbjörg
Kristjánsdóttir húsfreyja á
Valdasteinsstöðum, Strand.
Jón Jónsson
bóndi á Valdasteinsstöðum, Strand.
Jóna Jónsdóttir
húsfreyja á Hlaðhamri, Bæjarhr.
Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson
bóndi Hlaðhamri Strand.
Kristín Ólafsdóttir
húsfreyja á Máskeldu í
Saurbæ, Dal. og í Reykjavík
Ingibjörg Gunnlaug
Bjarnadóttir húsfreyja í Hrútstungu
og á Hlaðhamri í Bæjarhr., Strand.
Þorsteinn Þorsteinsson
bóndi í Hrútatungu, Valdasteinsstöðum
og Hlaðhamri, síðast í Laxárdal
Vilborg Jónsdóttir
húsfreyja í Vatnabúðum
í Eyrarsveit
Elís Gíslason
bóndi á Vatnabúðum,
Setbergssókn, Snæf.
Lilja Elísdóttir
húsmóðir frá Eiði í Eyrarsveit
Gunnar Jóhann Stefánsson
bóndi á Eiði, Setbergssókn, Snæf.
Hjálmrós Ólafía Ólafsdóttir
húsfreyja í Efri-Hlíð, var
kölluð Skallabúða-Rósa
Stefán Jóhannesson
bóndi í Efri-Hlíð í Helgafellssveit
Úr frændgarði Ólafs Hjálmarssonar
Hjálmar Gunnarsson
skipstjóri, útgerðarmaður, verslunarm.
og fiskverkandi á Grundarfirði
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Má það sjá í mörgu eggi.
Í mýrinni ég trúi að leggi.
Inn í það má troða tvinna.
Á teningi það megum finna.
Hér kemur lausn frá Hörpu á
Hjarðarfelli eftir nokkurt hlé vegna
fjárrags o.fl.:
Auga í eggi finnst.
Auga í mýri fraus.
Auga er á nál minnst.
Auga á teningi kaus.
Eysteinn Pétursson svarar:
Víst í eggi auga fann.
Auga í mýri leggja kann.
Í nálarauga má troða tvinna,
í teningsaugum gæfu finna.
Sigmar Ingason á þessa lausn:
Augun á teningnum telja má
Tvinna í auga á nál má sjá
Í eggið kemur auga yls ef nýtur
Augað í mýrinni brátt nú frjósa hlýtur.
Helgi Þorláksson leysir gátuna
þannig:
Stropað eggið auga hefur,
augu í fenjamýrum hvika,
nálaraugað tvinna tefur,
í teningsdeplum augu blika.
Guðrún B. svarar:
Í egginu auga, strop.
Auga í mýri frýs.
Þrætt auga þolir skop.
þrjú augu tenings kýs.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Stropað eggið auga hefur.
Auga mýrar frostið vefur.
Nálaraugað tekur tvinna.
Á teningi má auga finna.
Þá er limra:
Í flóanum fífan hvíta
fögur er á að líta,
og aðdáun hlýtur,
er augunum gýtur
á hana mýrispíta.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Greitt til verka geng ég nú,
gátu fylgi úr hlaði.
Þó að léttvæg þyki sú,
það er lítill skaði:
Í flíkina þá förum við.
Fjarskalega mikið hró.
Líka nefnist lagvopnið.
Leppur er í mínum skó.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Augað er spegill
sálarinnar
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
HVARSEMÞÚERT
SAMSTARFSAÐILI
Öryggiskerfi
15:04 100%