Morgunblaðið - 26.09.2020, Qupperneq 48
10. UMFERÐIN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valsarinn Birkir Már Sævarsson átti
stórleik fyrir Val þegar liðið heim-
sótti FH í toppslag úrvalsdeildar
karla í knattspyrnu, Pepsi Max-
deildarinnar, í Kaplakrika í Hafn-
arfirði í frestuðum leik úr 10. umferð
deildarinnar á fimmtudaginn síðasta.
Birkir, sem er 35 ára gamall, skor-
aði tvívegis í 4:1-sigri Valsmanna
sem eru með pálmann í höndunum í
efsta sæti deildarinnar með 11 stiga
forskot á FH sem á leik til góða á
Val.
Birkir er uppalinn á Hlíðarenda en
hann sneri aftur til félagsins fyrir
tímabilið 2018 eftir tíu ár í atvinnu-
mennsku með Brann í Noregi og
Hammarby í Svíþjóð.
„Við vissum það fyrir leikinn að
sigur myndi gera mikið fyrir okkur
og setja okkur í ansi þægilega
stöðu,“ sagði Birkir í samtali við
Morgunblaðið. „Við mættum 100%
einbeittir til leiks og vorum vel und-
irbúnir. Við vissum nokkurn veginn
hvað FH-ingarnir ætluðu að gera,
hvar við ættum að sækja á þá og
hvernig við áttum að verjast þeim.
Mér fannst sigurinn sanngjarn og við
erum komnir í ansi góða stöðu á
toppnum,“ sagði Birkir sem á að baki
112 leiki í efstu deild hér á landi þar
sem hann hefur skorað níu mörk.
Engin þreytumerki að finna
Valsmenn hafa verið óstöðvandi
síðustu vikur en sigurinn gegn FH
var sá tíundi í röð hjá liðinu í deild-
inni.
„Við fengum mun færri leiki en
gengur og gerist til þess að slípa okk-
ur saman fyrir tímabilið, alveg eins
og önnur lið deildarinnar. Það tók
okkur því smá tíma að finna taktinn
en það mætti alveg segja sem svo að
við höfum verið það lið sem var
kannski fljótast að slípa sig saman í
sumar, allavega af þeim liðum sem
eru með nýjan þjálfara.
Það má líka ekki gleyma því að við
erum með frábæran leikmannahóp
og þetta hefur einhvern veginn allt
komið saman á hárréttum tíma fyrir
okkur. Við vorum mjög samvisku-
samir í kórónuveiruhléinu þar sem
menn þurftu að æfa einir og allar æf-
ingatölur voru framúrskarandi.
Þrátt fyrir þétt leikjaplan eru lítil
þreytumerki á liðinu sem er mjög já-
kvætt þar sem við erum að spila mik-
ið á sama liðinu.“
Heimir Guðjónsson tók við liðinu í
október 2019 og fékk Srdjan Tufeg-
dzic með sér en þeir tóku við liðinu af
Ólafi Jóhannessyni sem lét af störf-
um eftir síðasta tímabil.
„Það hafa einhverjar áherslu-
breytingar átt sér stað frá því Heim-
ir tekur við sem er bara eðlilegt. Það
gekk mjög vel hjá okkur tímabilið
2018 en tímabilið í fyrra var hörmu-
legt og það var einfaldlega margt
sem fór úrskeiðis.
Við erum búnir að strika það tíma-
bil út og gleyma því en á móti kemur
að við erum nánast með sama leik-
mannahóp. Mér finnst við hafa gert
mjög vel í að núllstilla okkur á milli
ára og læra af því sem fór til fjand-
ans í fyrra.
Breytingar sem Heimir og Tufa
hafa lagt fyrir hópinn hafa hentað
okkur gríðarlega vel enda báðir frá-
bærir þjálfarar sem undirbúa okkur
gríðarlega vel fyrir alla leiki.“
Mikið sjálfstraust á Hlíðarenda
Það virðist fátt geta stoppað Vals-
menn á leið sinni að sínum 23. Ís-
landsmeistaratitili.
„Sjálfstraustið er í botni en við
sem erum búnir að vera lengi í þessu
vitum að það þýðir ekkert að ætla að
fljúga upp í geim eftir nokkra sigur-
leiki. Við höfum sýnt það sem hópur
að við getum núllstillt okkur eftir
hvern sigurleik og mætt svo brjál-
aðir til leiks í næsta leik. Þetta er
stutt deild og það skiptir miklu máli
að tapa ekki leikjum. Þegar ég labba
inn á völlinn í dag líður mér eins og
við séum langbesta lið landsins og
það sé enginn að fara að vinna okkur,
sem er auðvitað frábær tilfinning.
Við gerum okkur grein fyrir því að
við þurfum að vera 100% ef við ætl-
um okkur sigur því það fara öll lið í
gegnum okkur ef við erum bara 90%
eins og á síðustu leiktíð og það er
kannski helsti lærdómurinn frá síð-
asta ári,“ sagði Birkir.
Líður eins og við séum
langbesta lið landsins
Birkir Már Sævarsson skoraði tvívegis í tíunda deildarsigri Valsmanna í röð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valur Birkir Már Sævarsson hefur skorað þrjú mörk í tveimur sannfærandi útisigrum Valsmanna síðustu daga.
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
HK vann sinn fyrsta sigur á tíma-
bilinu í Olísdeild kvenna í hand-
bolta í gærkvöld er liðið gerði góða
ferð í Garðabæinn og vann 25:23-
sigur á Stjörnunni. Var HK án stiga
fyrir leikinn og Stjarnan með fullt
hús stiga og komu úrslitin því nokk-
uð á óvart. Díana Kristín Sigmars-
dóttir og Valgerður Ýr Þorsteins-
dóttir voru markahæstar hjá HK
með sex mörk og Sigríður Hauks-
dóttir gerði fimm mörk. Helena Rut
Örvarsdóttir skoraði átta fyrir
Stjörnuna og Sólveig Lára Kjærne-
sted sjö.
HK fagnaði
fyrsta sigrinum
Morgunblaðið/Eggert
Drjúg Díana Kristín Sigmarsdóttir
átti góðan leik fyrir HK.
Haukar fóru í gærkvöld upp í topp-
sæti Olísdeildar karla í handbolta
með 32:26-sigri á Stjörnunni á úti-
velli. Eru Haukar með fullt hús
stiga eftir þrjá leiki en Stjarnan að-
eins með eitt stig. Var jafnræði með
liðunum framan af en Björgvin Páll
Gústavsson í marki Hauka skellti í
lás í seinni hálfleik og varði alls 17
skot, þar af eitt víti. Orri Freyr
Þorkelsson skoraði tíu mörk fyrir
Hauka og Atli Már Báruson átta.
Tandri Már Konráðsson var marka-
hæstur hjá Stjörnunni með sex
mörk.
Haukamenn
með fullt hús
Morgunblaðið/Eggert
Markvarsla Björgvin Páll Gúst-
avsson fór á kostum í seinni hálfleik.
Eftir tíundu umferðina í Pepsi Max-deild karla í fótbolta sem var leikin í
fyrradag eru fjórir leikmenn jafnir og efstir í M-einkunnagjöf Morgun-
blaðsins. Steven Lennon úr FH, Patrick Pedersen úr Val og Stefán Teitur
Þórðarson úr ÍA náðu allir Valdimari Þór Ingimundarsyni úr Fylki með 13 M
samanlagt. Valdimar er sem kunnugt er farinn til Strömsgodset í Noregi.
Atli Sigurjónsson úr KR og Ágúst Eðvald Hlynsson úr Víkingi koma næstir
með 12 M en þeir Kennie Chopart úr KR, Þórir Jóhann Helgason úr FH, Ar-
on Bjarnason úr Val og Tryggvi Hrafn Haraldsson úr ÍA koma þar á eftir
með 11 M hver. Úrvalslið 10. umferðar má sjá hér að ofan en þar eru fimm
nýliðar, sem ekki hafa verið valdir áður í liðið í ár.
10. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
25-3-2
Ásgeir
Eyþórsson
Fylki
Arnar Þór
Helgason
Gróttu
Birkir Már
Sævarsson
Val
Ingvar Jónsson
Víkingi
Damir
Muminovic
Breiðabliki
Hörður
Árnason
HK
Tryggvi Hrafn Haraldsson
ÍA
Almarr Ormarsson
KA
Oliver Sigurjónsson
Breiðabliki
Kristinn Freyr
Sigurðsson
Val
Sigurður Egill Lárusson
Val
2
2 2
3
3 3
Fjórir jafnir með þrettán M
Pepsi Max-deild kvenna
KR – Stjarnan........................................... 0:2
Staðan:
Valur 14 12 1 1 36:10 37
Breiðablik 13 12 0 1 57:3 36
Fylkir 13 5 5 3 21:21 20
Selfoss 13 6 1 6 21:15 19
Stjarnan 15 5 2 8 24:33 17
ÍBV 14 5 2 7 15:28 17
FH 14 4 1 9 15:32 13
Þróttur R. 14 2 6 6 20:33 12
Þór/KA 14 3 3 8 17:36 12
KR 12 3 1 8 14:29 10
Lengjudeild karla
Vestri – Keflavík....................................... 1:3
Staðan:
Keflavík 17 11 4 2 52:25 37
Leiknir R. 17 10 3 4 37:21 33
Fram 17 9 6 2 36:23 33
ÍBV 17 6 9 2 28:21 27
Þór 17 8 3 6 32:29 27
Grindavík 16 6 8 2 32:27 26
Vestri 18 7 5 6 25:25 26
Afturelding 17 6 3 8 33:27 21
Víkingur Ó. 17 4 4 9 21:36 16
Þróttur R. 17 3 3 11 15:34 12
Leiknir F. 17 3 3 11 16:36 12
Magni 17 2 3 12 17:40 9
3. deild karla
Ægir – KV................................................. 0:2
Elliði – Tindastóll ..................................... 3:1
Staðan:
KV 18 13 1 4 54:29 40
Reynir S. 17 11 3 3 54:34 36
KFG 17 8 4 5 32:27 28
Augnablik 17 7 5 5 38:35 26
Tindastóll 18 6 7 5 37:39 25
Elliði 18 7 3 8 35:36 24
Sindri 16 6 4 6 29:37 22
Ægir 18 5 5 8 30:38 20
Einherji 17 6 2 9 33:45 20
Vængir Júpiters 16 5 3 8 23:29 18
Höttur/Huginn 17 4 3 10 26:32 15
Álftanes 17 3 4 10 25:35 13
Katar
Deildabikarinn, B-riðill:
Al-Arabi – Al Ahli Doha.......................... 5:1
Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 82
mínúturnar með Al-Arabi. Heimir Hall-
grímsson þjálfar liðið.
Danmörk
B-deild:
Esbjerg – Helsingör ................................ 2:1
Andri Rúnar Bjarnason kom inn á sem
varamaður á 63. mínútu hjá Esbjerg. Ólaf-
ur H. Kristjánsson þjálfar liðið.
Noregur
B-deild:
Strömmen – Lilleström........................... 1:4
Björn Bergmann Sigurðarson og Arnór
Smárason voru ekki í leikmannahópi Lille-
ström.
Tromsö – Grorud..................................... 0:3
Adam Örn Arnarson lék ekki með
Tromsö vegna meiðsla.
Olísdeild karla
Stjarnan – Haukar ............................... 26:32
Staðan:
Haukar 3 3 0 0 82:68 6
Afturelding 3 2 1 0 77:73 5
Valur 2 2 0 0 76:54 4
FH 3 2 0 1 82:74 4
KA 2 1 1 0 47:45 3
Selfoss 3 1 1 1 75:76 3
ÍBV 2 1 0 1 61:61 2
Þór Ak. 3 1 0 2 67:69 2
Fram 3 0 1 2 70:78 1
Grótta 2 0 1 1 44:45 1
Stjarnan 3 0 1 2 77:84 1
ÍR 3 0 0 3 76:107 0
Grill 66 deild karla
Kría – Hörður ....................................... 33:31
Olísdeild kvenna
Stjarnan – HK ...................................... 23:25
Staðan:
Valur 2 2 0 0 59:47 4
Stjarnan 3 2 0 1 75:67 4
ÍBV 2 1 1 0 46:42 3
Fram 2 1 0 1 49:52 2
Haukar 2 1 0 1 49:56 2
HK 3 1 0 2 70:73 2
KA/Þór 2 0 1 1 42:44 1
FH 2 0 0 2 46:55 0
Grill 66 deild kvenna
Víkingur – ÍR........................................ 21:30
Svíþjóð
Ystad IF – Alingsås ............................. 26:31
Aron Dagur Pálsson skoraði tvö mörk
fyrir Alingsås.
Danmörk
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Aalborg – Silkeborg ........................frl. 33:40
Sandra Erlingsdóttir skoraði átta mörk
fyrir Aalborg.