Morgunblaðið - 03.10.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Greinahöfundum í nýjasta tölublaði
Lögmannablaðsins, tímarits lög-
manna, verður tíðrætt um ferð Ró-
berts Spanó, forseta Mannréttinda-
dómstóls Evrópu, á fund Erdogans
Tyrklandsforseta í september. Ferð
Róberts var sem kunnugt er mjög
umtöluð og hafa margir gagnrýnt
hana. Nú um mánuði eftir Tyrk-
landsför Róberts, skrifa þau Berg-
lind Svavarsdóttir, formaður Lög-
mannafélagsins, Ragnar Aðalsteins-
son lögmaður og Sveinn Andri
Sveinsson, einnig lögmaður, öll
greinar um málið.
Berglind segir það góðar og gildar
vangaveltur að telja að til harkalegra
viðbragða hefði komið ef Róbert
hefði ekki þegið boð Erdogans. Hún
segir það þó skýrt, með vísan í 21.
grein MSE, að sjálfstæði og hlutleysi
dómstólsins sé fólgið í því að dóm-
arar MDE geri það sem þeir voru
skipaðir til að gera – að leysa úr
dómsmálum. Sveinn segir í grein
sinni að hann telji að hlutleysi dóm-
stólsins hefði verið ógnað ef Róbert
hefði ekki þegið boð Tyrklandsfor-
seta. Hefð sé fyrir því að dómarar
MDE fari í slíkar opinberar heim-
sóknir og því hefði verið varasamt að
rjúfa þá hefð. Ragnar er harðorðari
og segir að Róbert hefði átt bera sig
eftir því að fá að heimsækja þá Tyrki
sem vísað hafa mannréttindabrotum
Tyrklandsstjórnar gegn sér til
MDE. Það hefði vegið þyngra en
„falleg orð í hátíðarræðu“ og vísar
Ragnar þar til þakkarræðu Róberts
við útnefningu heiðursnafnbótar við
háskóla í Tyrklandi.
Rita um Tyrklandsför
Lögmenn fjalla um umdeilda ferð Róberts Spanó á fund
Erdogans Tyrklandsforseta Á að leysa úr dómsmálum
Berglind
Svavarsdóttir
Ragnar
Aðalsteinsson
Biðröð var eftir slátri þegar slát-
ursala Sláturfélags Suðurlands og
Hagkaupa var opnuð í Kringlunni í
gær. Var þetta annar dagur slátur-
sölunnar en í fyrradag seldist slátr-
ið upp. Eru því enn margar fjöl-
skyldur sem nýta þessa þjóðlegu
ofurfæðu.
Slátur er hefðbundinn íslenskur
matur og hægt er að gera ein-
staklega hagkvæm matarinnkaup
með því að gera slátur. Sláturgerð
hefur farið minnkandi en enn vilja
margir halda í hefðirnar. Algengt
er að fjölskyldur taki slátur saman
og þannig færist kunnáttan á milli
kynslóða.
Sláturmarkaður SS og Hagkaupa
er opinn frá þriðjudögum til föstu-
daga, frá klukkan 14 til 18. Næst er
því hægt að kaupa slátur næstkom-
andi þriðjudag. Til sölu er ferskt og
frosið slátur. Hægt er að fá þrjú
slátur í kassa og er í honum mör,
blóð, lifur, hjarta, nýru, sviðinn
haus, þindar og prótínkeppar.
Einnig verður hægt að fá kalónaðar
vambir sem sumum finnst ómiss-
andi við sláturgerðina.
helgi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg
Biðröð eft-
ir íslenskri
ofurfæðu
Aldrei hafa fleiri dvalið í farsóttar-
húsunum við Rauðarárstíg heldur en
síðustu daga og hefur fjölgað jafnt
og þétt í hópnum. Um miðjan dag í
gær voru þar 75 manns, langflestir í
einangrun með kórónuveikina, að
sögn Gylfa Þórs Þorsteinssonar, um-
sjónarmanns farsóttarhúsanna.
Hann segir að nú dvelji nánast ein-
göngu Íslendingar í farsóttarhús-
unum og fólk innan við miðjan aldur
sé áberandi í hópnum.
Sex manns hafa verið þar við störf
undanfarið, en í vikunni var auglýst
eftir fleira starfsfólki. Gylfi segir að
unnið sé á vöktum allan sólarhring-
inn og vegna álags sé nauðsynlegt að
fjölga um 4-5 starfsmenn.
Hann segir að unnið sé að því að
útbúa nýja aðstöðu og bæta við ein-
angrunarrýmum, sem full þörf virð-
ist vera á. Hins vegar eigi hann von á
því að allstór hópur fari til síns
heima um helgina og þá létti á í far-
sóttarhúsunum við Rauðarárstíg.
Um miðjan dag í gær voru 54 ein-
staklingar í upprunalega farsótt-
arhúsinu við Rauðarárstíg, þar sem
áður var Hótel Lind. Í húsinu við
hliðina var 21 einstaklingur, en bæði
húsin eru í eigu Fosshótela. Það er
Rauði krossinn á Íslandi sem hefur
umsjón með farsóttarhúsunum á
Rauðarárstíg. aij@mbl.is
Aldrei fleiri í farsóttarhúsum
Starfsfólki fjölg-
að Einangrunar-
rýmum bætt við
Morgunblaðið/Ásdís
Einangrun Gylfi Þór Þorsteinsson í farsóttarhúsinu á Rauðarárstíg.
Göngudeild vegna kórónuveikinnar
hefur síðustu dag verið efld í sam-
ræmi við aukinn fjölda smitaðra í
samfélaginu, samkvæmt upplýsing-
um frá Önnu Sigrúnu Baldursdótt-
ur, aðstoðarmanni forstjóra Land-
spítala. Starfið felst í reglulegri
eftirfylgd símleiðis við fólk í ein-
angrun og eins er fólki sinnt á
göngudeildinni í Birkiborg, þegar
það þarfnast sérstaks mats eða upp-
vinnslu.
Göngudeildin var opnuð síðari
hluta marsmánaðar en eftir því sem
smituðum fækkaði í vor dró úr starf-
seminni. Breytingarnar nú felast í
auknum fjölda verkefna og þar með
auknum fjölda starfsmanna sem
sinna verkefnum deildarinnar, bæði
í símaþjónustu og í Birkiborg.
Fram kemur á heimasíðu Land-
spítalans að í gær voru 609 sjúkling-
ar í eftirliti Covid-19 göngudeildar-
innar. Þeir voru 572 á fimmtudag,
550 á miðvikudag, 519 á þriðjudag og
497 sjúklingar voru í eftirliti göngu-
deildarinnar á mánudag. Ragnar
Freyr Ingvarsson er yfirlæknir
deildarinnar og Sólveig Sverrisdótt-
ir deildarstjóri. aij@mbl.is
Göngudeildin efld
til að mæta álagi
Sjúklingum í eftirliti fjölgar hratt
Morgunblaðið/Eggert
Landspítalinn Viðbúnaður aukinn
vegna fjölgunar kórónuveirusmita.