Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Undirstöður fyrir girðingar, götu-
skilti og fleira, umferðareyjar,
skiltasteinar, árekstravarnir og
umferðartálmar eru meðal þess
sem Íslandshús ehf. á Ásbrú í
Reykjanesbæ framleiða undir
vörumerkingu Dvergarnir. Þetta
eru fjölbreyttar einingar úr járn-
bentri hágæða steinsteypu sem
hafa fengið góðar viðtökur á mark-
aðnum.
Tengistykkin auka notagildi
Í verksmiðju Íslandshúsa eru
einingarnar framleiddar í stálmót-
um sem sérsmíðuð eru á staðnum.
Þar eru einnig framleidd fjöldi sér-
hannaðra tengistykkja sem eru
heitgalvanhúðuð eða úr ryðfríu
stáli. Stykkin passa ofan á allar
einingar Íslandshúsa og auka nota-
gildi þeirra til muna.
„Við þekkjum hvaða vörur mark-
aðurinn þarf. Samkvæmt því hög-
um við framleiðslu okkar. Vöruþró-
un er annars stór þáttur í öllu
okkar starfi. Viðskiptavinir koma
oft með óskir um nýjar vörur sem
við þá útfærum og framleiðum
samkvæmt þeirra þörfum,“ segir
Óskar Ingi Húnfjörð, fram-
kvæmdastjóri Íslandshúsa.
Íslandshús voru stofnuð fyrir um
sjö árum, með það markmið að
hefja framleiðslu á forsteyptum
stöðluðum einingum sem raða
mætti saman svo úr yrðu ýmiss
konar hús. Verkfræðingar ásamt
Óskari þróaðu nýjar lausnir að
slíkri framleiðslu. Áður en að því
kom óskuðu Reykjaneshafnir eftir
því við Óskar að fá framleiddar
sjósökkur; það er þungar for-
steyptar múffur til að setja utan
um frárennslisrör fyrir skolp sem
liggja langt í sjó. Því kalli var
svarað jákvætt.
Styrkur í fjölskyldurekstri
„Þetta var verkefni af öðrum
toga en ég hafði séð fyrir, en þarna
fór boltinn samt að rúlla,“ segir
Óskar og leggur áherslu á að Ís-
landshús sé lítið fjölskyldufyrir-
tæki – og í því felist styrkurinn.
Sjálfur sér hann um stjórn fyrir-
tækisins, vöruþróun og markaðs-
mál, Brynja Sif Ingibergsdóttir,
kona hans, annast bókhald og inn-
heimtu og Brynjar, sonur þeirra-
,stýrir framleiðslu og gæðamálum.
Því má segja að allt sé unnið á
sama stað og af fjölskyldunni, það
er hönnun vörunnar, smíði steypu-
móta og járnbindinga, steypa ein-
inga, smíði tengistykkja, og hönnun
markaðsefnis. Er starfsemin ann-
ars betur kynnt á islandshus.is og
á vefversluninni dvergarnir.is
Dvergarnir eru fjölbreytt fram-
leiðsluvara og framleiðir fyrirtækið
nú nærri 30 tegundir af stólpum
allt frá þrjátíu kílóum til tveggja
tonna og eru vörunúmerin í tengi-
stykkjum nú komin yfir 50. Steyp-
an sem í þá fer er mjög veðurþolin
og uppfyllir ýtrustu kröfur um
styrk, því standast forsteyptu ein-
ingarnar mikið álag.
Hannað í þrívídd
„Vörurnar eru hannaðar í þrí-
vídd og útkoman er heildstæð
vörulína. Allt er framleitt á lager,
700-1.000 tonn á ári, svo varan er
jafnan tiltæk þegar kaupendur
hafa samband. Raunar er mjög
æskilegt samkvæmt öllum stöðlum
að steypt vara líkt og héðan kemur
hafi harðnað í nokkurn tíma áður
en hún fer í notkun. Hér eru á
bilinu 5-7 starfsmenn, veltan hefur
verið að aukast um 20-30% á ári
og markaðsstaðan er góð,“ segir
Óskar.
Markaðurinn fyrir Dvergana er
í raun þrískiptur, segir
framkvæmdastjórinn. Í fyrsta lagi
byggingavöruverslanir, þangað
sem almenningur og fólk í fram-
kvæmdum kaupir vöruna. Annar
markhópurinn eru stærri fyrir-
tæki, stofnanir og verktakar, og sá
þriðji sveitarfélögin.
Umferðarlausnir henta
„Víða í bæjum landsins standa
yfir framkvæmdir um þessar
mundir og til dæmis við götur og
bifreiðastæði. Þar erum við með
umferðalausnir sem henta. Þar
nefni ég til dæmis forsteyptar um-
ferðareyjur, sem við köllum Sóley,
Fagurey og Borgarey, sem hentar
vel þegar aðgerðir þarf til að
stemma stigu við hraðakstri.
Þrengingar á götum, sem má fjar-
lægja síðar, ef aðstæður breytast
og geta þá nýst annars staðar,“
segir Óskar Ingi og bætir við að
lokum:
„Þá erum við með lausnir á bíla-
plönum til stýringa og afmörkunar,
með Langhólma og Borgarhólma.
Einnig ýmsar undirstöður sem við
bjóðum, stykki er veita góða festu
og hafa fjölþætt notagildi. Enda-
lausar og spennandi útfærslur í
boði, en eins og ég segi alltaf að
kjörorð okkar sé að við fram-
leiðum lausnir.“
Þekkjum hvað markaðurinn þarf
Dvergarnir í fjölbreyttri framleiðslu hjá Íslandshúsum Steyptar lausnir stýra umferðinni
Undirstöður og árekstrarvarnir Framleidd á lager og veltan eykst Sóley og Borgarhólmi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjölskyldufyrirtæki Frá vinstri talið Brynjar Marinó Húnfjörð, Brynja Sif Ingibergsdóttir og Óskar Ingi Húnfjörð.
Steypa Tugir vörunúmera eru í framleiðslulínu. Rafsuðumaður Járnagrind í skiltastein sett saman.
1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020
benni.is
Reykjavík
Krókhálsi 9
590 2000
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Verið velkomin í reynsluakstur
OPEL GOES ELECTRIC
Birtm
eð
fyrirvara
um
m
ynd-og
textabrengl
„Óbyggðirnar
kalla...“
300 hestöfl, 4x4 drif
og 59 km á rafmagninu
einu saman.
Nýr Opel Grandland X
4x4 | Plug-in Hybrid