Morgunblaðið - 03.10.2020, Page 20

Morgunblaðið - 03.10.2020, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Undirstöður fyrir girðingar, götu- skilti og fleira, umferðareyjar, skiltasteinar, árekstravarnir og umferðartálmar eru meðal þess sem Íslandshús ehf. á Ásbrú í Reykjanesbæ framleiða undir vörumerkingu Dvergarnir. Þetta eru fjölbreyttar einingar úr járn- bentri hágæða steinsteypu sem hafa fengið góðar viðtökur á mark- aðnum. Tengistykkin auka notagildi Í verksmiðju Íslandshúsa eru einingarnar framleiddar í stálmót- um sem sérsmíðuð eru á staðnum. Þar eru einnig framleidd fjöldi sér- hannaðra tengistykkja sem eru heitgalvanhúðuð eða úr ryðfríu stáli. Stykkin passa ofan á allar einingar Íslandshúsa og auka nota- gildi þeirra til muna. „Við þekkjum hvaða vörur mark- aðurinn þarf. Samkvæmt því hög- um við framleiðslu okkar. Vöruþró- un er annars stór þáttur í öllu okkar starfi. Viðskiptavinir koma oft með óskir um nýjar vörur sem við þá útfærum og framleiðum samkvæmt þeirra þörfum,“ segir Óskar Ingi Húnfjörð, fram- kvæmdastjóri Íslandshúsa. Íslandshús voru stofnuð fyrir um sjö árum, með það markmið að hefja framleiðslu á forsteyptum stöðluðum einingum sem raða mætti saman svo úr yrðu ýmiss konar hús. Verkfræðingar ásamt Óskari þróaðu nýjar lausnir að slíkri framleiðslu. Áður en að því kom óskuðu Reykjaneshafnir eftir því við Óskar að fá framleiddar sjósökkur; það er þungar for- steyptar múffur til að setja utan um frárennslisrör fyrir skolp sem liggja langt í sjó. Því kalli var svarað jákvætt. Styrkur í fjölskyldurekstri „Þetta var verkefni af öðrum toga en ég hafði séð fyrir, en þarna fór boltinn samt að rúlla,“ segir Óskar og leggur áherslu á að Ís- landshús sé lítið fjölskyldufyrir- tæki – og í því felist styrkurinn. Sjálfur sér hann um stjórn fyrir- tækisins, vöruþróun og markaðs- mál, Brynja Sif Ingibergsdóttir, kona hans, annast bókhald og inn- heimtu og Brynjar, sonur þeirra- ,stýrir framleiðslu og gæðamálum. Því má segja að allt sé unnið á sama stað og af fjölskyldunni, það er hönnun vörunnar, smíði steypu- móta og járnbindinga, steypa ein- inga, smíði tengistykkja, og hönnun markaðsefnis. Er starfsemin ann- ars betur kynnt á islandshus.is og á vefversluninni dvergarnir.is Dvergarnir eru fjölbreytt fram- leiðsluvara og framleiðir fyrirtækið nú nærri 30 tegundir af stólpum allt frá þrjátíu kílóum til tveggja tonna og eru vörunúmerin í tengi- stykkjum nú komin yfir 50. Steyp- an sem í þá fer er mjög veðurþolin og uppfyllir ýtrustu kröfur um styrk, því standast forsteyptu ein- ingarnar mikið álag. Hannað í þrívídd „Vörurnar eru hannaðar í þrí- vídd og útkoman er heildstæð vörulína. Allt er framleitt á lager, 700-1.000 tonn á ári, svo varan er jafnan tiltæk þegar kaupendur hafa samband. Raunar er mjög æskilegt samkvæmt öllum stöðlum að steypt vara líkt og héðan kemur hafi harðnað í nokkurn tíma áður en hún fer í notkun. Hér eru á bilinu 5-7 starfsmenn, veltan hefur verið að aukast um 20-30% á ári og markaðsstaðan er góð,“ segir Óskar. Markaðurinn fyrir Dvergana er í raun þrískiptur, segir framkvæmdastjórinn. Í fyrsta lagi byggingavöruverslanir, þangað sem almenningur og fólk í fram- kvæmdum kaupir vöruna. Annar markhópurinn eru stærri fyrir- tæki, stofnanir og verktakar, og sá þriðji sveitarfélögin. Umferðarlausnir henta „Víða í bæjum landsins standa yfir framkvæmdir um þessar mundir og til dæmis við götur og bifreiðastæði. Þar erum við með umferðalausnir sem henta. Þar nefni ég til dæmis forsteyptar um- ferðareyjur, sem við köllum Sóley, Fagurey og Borgarey, sem hentar vel þegar aðgerðir þarf til að stemma stigu við hraðakstri. Þrengingar á götum, sem má fjar- lægja síðar, ef aðstæður breytast og geta þá nýst annars staðar,“ segir Óskar Ingi og bætir við að lokum: „Þá erum við með lausnir á bíla- plönum til stýringa og afmörkunar, með Langhólma og Borgarhólma. Einnig ýmsar undirstöður sem við bjóðum, stykki er veita góða festu og hafa fjölþætt notagildi. Enda- lausar og spennandi útfærslur í boði, en eins og ég segi alltaf að kjörorð okkar sé að við fram- leiðum lausnir.“ Þekkjum hvað markaðurinn þarf  Dvergarnir í fjölbreyttri framleiðslu hjá Íslandshúsum  Steyptar lausnir stýra umferðinni  Undirstöður og árekstrarvarnir  Framleidd á lager og veltan eykst  Sóley og Borgarhólmi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjölskyldufyrirtæki Frá vinstri talið Brynjar Marinó Húnfjörð, Brynja Sif Ingibergsdóttir og Óskar Ingi Húnfjörð. Steypa Tugir vörunúmera eru í framleiðslulínu. Rafsuðumaður Járnagrind í skiltastein sett saman. 1975 | Sérfræðingar í bílum | 2020 benni.is Reykjavík Krókhálsi 9 590 2000 Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 420 3330 Opið virka daga frá 9 til 18 Laugardaga frá 12 til 16 Verið velkomin í reynsluakstur OPEL GOES ELECTRIC Birtm eð fyrirvara um m ynd-og textabrengl „Óbyggðirnar kalla...“ 300 hestöfl, 4x4 drif og 59 km á rafmagninu einu saman. Nýr Opel Grandland X 4x4 | Plug-in Hybrid

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.